Morgunblaðið - 09.03.1983, Blaðsíða 16
48
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. MARZ 1983
Iss!, Hazk
og Haugur
Tónleikar af betra taginu
ættu aö verða uppi ó teningn-
um annað kvöld á Veitinga-
húsinu Borg. Mæta þar þrjár
sveitir til leiks: Hazk, Issl og
Haugur.
Haugur hefur vakið mikla at-
hygli að undanförnu fyrir góða
og frumlega tónlist og menn
þurfa ekki að bera kvíöboga
fyrir þeim sveitum, sem Einar
Örn Benediktsson treöur upp
með. Um Hazk vitum við næsta
lítið, en kannski þeim mun
meira eftir tónleikana á morg-
un.
Samkvæmt upplýsingum
Hallvarðs Þórssonar, umba
meö meiru, hefur verið ákveöið
fast verð á tónleika á Borginni.
Verður þaö kr. 120 hverju sinni
fyrir 18 ára og eldri.
Á laugardagseftirmiðdag er
ætlunin að fara af staö með
nýjung, sem eru tónleikar ætl-
aðir unglingum. Ekki lá Ijóst
fyrir hvaða sveit myndi ríöa á
vaðið á þeim vettvangi, en að-
eins mun kosta kr. 80 á þá. Ef
vel tekst til veröur þetta fastur
liður á Borginni.
Shy boy — Einar örn.
Breski vin-
sældalistinn
1 ( 2) Billie Jean/
MICHAEL JACKSON
2 (14) Total Ecliþse of the
Heart/BONNIE TYLER
3 ( 1) Too Shy/
KAJAGOOGOO
4 ( 3) Africa/TOTO
5 (—) Sweet Dreams/
EURYTHMICS
6 ( 8) Never Gonna Give You
Up/MUSICAL YOUTH
7 ( 4) Change/
TEARS FOR FEARS
8 ( 9) Tomorrow’s Just An-
other Day/MADNESS
9 (12) Love on Your Side/
THOMPSON TWINS
10 (11) Tunnel of Love/
FUN BOY THREE
11 ( 7) Up Where We Be-
long/JOE COCKER OG
JENNIFER WARNES
12 (—) Rock the Boat/
FORREST
13 (—) Get the Balance
Right/DEPECHE MODE
14 (10) Wham Rap/WHAM
15 (—) Communication/
SPANÐAU BALLET
16(5) Sign of the Times/
BELLE STARS
17 (17) Hey Little Girl/
ICEHOUSE
18 (19) Baby Come to Me/
PATTI AUSTIN OG
JAMES INGRAM
19 (—) She Means Nothing to
Me/CLIFF RICHARD
OG PHIL EVERLY
20 (16) Shiny Shiny/
HAUSI FANTAYZEE
„Að flutningi Taugadeildarinn-
ar loknum tók viö hljómsveitin
Q4U. Það er erfitt aö hafa mörg
orð um þá hljómsveit, hreint og
beint lélegir hljóðfæraleikarar,
stefnulausa tónlist og hræöilega
„mónótóniska". Ekki bætti það
þeitt þótt tvær mjög svo skraut-
legar söngkonur bættust í hóp-
inn. Þrátt fyrir íburöarmikla máln-
ingu, önnur gat reyndar sungið
aðeíns, tókst þeim ekki að veita
Q4U þá andlítslyftingu, sem til
þurfti."
Þannig skrifaöi umsjónarmaöur
Járnsíðunnar um Q4U í fyrsta
skipti sem hann baröi sveitina aug-
um á Hótel Borg fyrir tæpum
tveimur árum. Reyndar var hann
þá blaöamaöur á Dagblaðinu, en
ummælin eru engu aö síöur góö og
gild. Frá því þetta var fest á þrent
hefur ansi mikiö vatn runniö til
sjávar og eitt og annaö undan rifj-
um meðlima Q4U. Heilmargt hefur
á daga þeirra drifiö, en merkasti
áfanginn á ferlinum er vafalítið um
þessar mundir er fyrsta plata
flokksins lítur dagsins Ijós. Járn-
síöan hitti fjórmenningana aö máli
fyrir skömmu.
„Hljómsveitin hefur verið í nú-
verandi mynd frá því í haust er
Árni Daníel gekk til liðs við okkur.
Hann var áöur í The Swinging
Zombies, en sú sveit hét reyndar
Tea For Two í fyrsta sinni sem hún
kom frarn."
Þau Gunnþór, Danny, Ellý og
Árni Dan taka strax til viö aö leysa
frá skjóöunni. Árni Dan er reyndar
þeirra þöglastur, en þegar hann
opnar munninn hefur hann ætíö
eitthvað djúphugsaö aö segja.
Ekki svo að skilja, aö ummæli
hinna séu eitthvert innihaldslaust
hjal, síöur en svo. Árni hefur lag á
aö tjá sig á sannfærandi hátt.
Á tæplega tveggja ára ferli hafa
ýmsir gist hljómsveitina í lengri
eöa skemmri tíma. Skötuhjúin
Steinþór og Linda voru lengi vel í
slagnum, en þeir Kormákur Geir-
harösson og Óöinn, sem báöir
voru eitt sinn saman í Taugadeild-
inni, gistu sveitina um skemmri
tíma.
Reyndar lét umsjónarmaöur
Járnsíöunnar þau orð falla eftir aö
Q4U haföi komiö fram á Melarokk-
inu í sumar, aö hljómsveitin væri
mun betri án Kormáks trommara,
sem þá var á sjúkrahúsi, en með
hann innanborðs. Hvort örlög hans
voru þá þegar ráöin, eöa hvort
þessi ummæli voru e.t.v. kveikjan
aö brottför hans skal ósagt látiö,
en hann átti aldrei afturkvæmt í
flokkinn. Fjórmenningarnir voru
sammála um þaö, aö þegar vesl-
ings Kommi var loks oröinn frískur
á ný haföi svo margt breyst í
hljómsveitinni, að hann átti enga
samleið meö henni lengur. En
vindum okkur í spjalliö.
— Hvernig var þaö, var Q4U
ekki bara „djók“ í byrjun?
„Nei, ég held ekki,“ segir Gunn-
þór. „Ástæöan fyrir því aö t.d. þér
fannst viö vera svo léleg þarna á
sínum tíma og var reyndar alveg
laukrétt, viö vorum drulluléleg, var
aöallega sú, að viö áttum engin
tæki til aö spila á. Þaö segir sig
sjálft, aö á meðan maöur á engar
græjur er ekkert hægt aö æfa. Viö
komum fram í 11 fyrstu sk'iptin án
þess aö hafa æft nokkuö. Þaö er
kannski ekki skrýtiö að viö höfum
verið litin hornauga af sumum.
Okkar rætur liggja í pönkinu, allra
saman. Pönkiö er ekki dautt eins
og margir eru aö halda fram, þaö
hefur bara breyst mikiö.“
— Hvaöa stefnu hefur tónlist
ykkar tekiö á ferli sveitarinnar og
hvernig tónlist er þaö, sem að-
dáendur ykkar mega eiga von á á
þessari fyrstu plötu ykkar?
„Tónlistin hjá okkur þróaöist
ansi mikiö á meöan Kommi var á
sjúkrahúsinu. Smám saman fór
hún aö taka á sig nýrómantíska
mynd í breiðum skilningi þess
orös. Áhrifin koma héöan og þaö-
an og einhverjir kunna e.t.v. aö
Q4U-flokkurinn eins og hann stillti sér upp fyrir Ijósmyndarann, öll sæt og hugguleg.
„Við eigum eftir að gefa al-
mennilegt högg frá okkur“
heyra brot af Joy Division eöa
Simple Minds í okkar lögum.”
— Hver ykkar semja lögin?
„Strákarnir sjá um aö semja lög-
in,“ segir Ellý og bætir svo viö: „Ég
sé um textana. Dæmiö er einfalt.
Þeir sjá um að semja þaö sem þeir
spila og ég sem þaö sem ég þarf
að syngja.“
— Hvernig gengur að setja
saman lög?
„Þaö er svakalega misjafnt.
Stundum semjum viö 3—4 lög í
einni skorpu og stundum ekki
neitt. Stundum rífumst viö bara
svakalega.“
— Er slæmur mórall innan
sveitarinnar?
„Nei, nei. Hann er alls ekki
slæmur, þetta er bara allt saman
ákveðið fólk og hefur sínar fast-
mótuöu skoöanir. Þegar þær rek-
ast á er ekkert eölilegra en menn
rífist. Hérna áöur fyrr áttum viö
þaö til aö grýta hljóöfærunum á
milli í æsingi, en viö erum hætt því
núna því græjurnar eru svo dýrar.
Sennilega höfum við brotið meira
en viö höfum keypt í gegnum tíö-
ina.“
— En ef viö víkjum aftur aö
plötunni, hvaö veröa mörg lög á
henni og hvaö voru þiö lengi aö
vinna hana?
„Þetta eru sex lög og við vorum
ekki nema um 50 tima aö taka
þetta upp. Um leiö tókum viö eitt
og annaö upp á segulband til þess
aö nota meö á tónleikum, þannig
aö við erum vel i stakk búin til þess
aö flytja þessi lög „live“. Viö erum
á því, aö flest laganna séu þess
eðlis, aö fólk þurfi aö leika þau
3—4 sinnum áöur en þau falla í
kramiö. Ætli viö veröum ekki
stimpluö „commercial“-band ef
Fréttir af breska
vinsældalistanum
— og eitt og annaö úrvals góömeti
Hinn 24 ára Michael Jackson
náði í vikunni efsta sætinu í Bret-
landi, en mun þó varla halda því
lengi því Bonnie gamla (?) Tyler
er komin á skrið með hálfrar
sjöttu mínutu langt lag, samið af
Jim Steinman. Hann er þekktast-
ur fyrir að semja lög Meatloaf.
Rétt fimm ár eru síðan Tyler sást
síöast á listanum, en þá komst
hún í 4. sæti með lagið „It’s a
Heartache’.
í 4. sæti breska listans er Toto-
flokkurinn, en þeir félagar unnu sér
þaö til frægöar á dögunum, aö
krækja í fimm Grammy-verölaun í
samnefndri útnefningu í Bandaríkj-
unum. Á meðal þeirra voru þrenn
þau eftirsóttustu; besta hljóm-
sveitin, besta lagið og besta smá-
skífan (Rosanna). Toto er skipuö
sex þaulreyndum session-hljóö-
færaleikurum og er taliö aö þeir
hafi til samans leikið á um 900
breiöskífum.
Þetta er vissulega ótrúlegur
fjöldi, en ekki met samt. Herbie
Flowers í Sky er sagöur hafa kom-
iö viö sögu á yfir 500 breiöskífum
og ööru eins af smáskífum og aö
sjálfsögöu nægir þaö m.a. til þess
aö skapa Sky algera sérstööu.
Fjörkálfarnir í Madness eru
komnir í 8. sæti breska vinsælda-
listans meö sína 15. smáskífu á
ferlinum. Sú fyrsta þeirra kom út
áriö 1979, já, þaö er svona langt
síöan. Allar hafa smáskífur þeirra
komist inn á topp-20, þrettán
þeirra inn á topp-10 og ein í efsta
sætiö. Breiöskífurnar hafa hins
vegar ekki gengiö eins vel, ef frá er
talin safnplatan „Complete Mad-
ness“, sem kom út síöasta sumar
og varö þriöja mest selda breiö-
skífan í Bretlandi á síðasta ári.
Á hæla Madness koma Thomp-
son-tvíburarnir, Thompson Twins,
i 9. sætinu. Þrátt fyrir nafniö er
sveitin skipuö tveimur karl-
mönnum og einni konu. Fróöir
menn segja okkur, aö þessir
krakkar eigi vafalítiö eftir aö gera
stóra hluti í framtíöinni.
Musical Youth hefur slegið í
gegn.