Morgunblaðið - 09.03.1983, Side 4
36
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. MARZ 1983
„Skólastjóramir
hlynntir íþróttinni
Það er ekki svo lítið atriði“
Hér er Björn Þór Ólafsson meö þeim Guðnýju Ágústsdóttur sem er aö
stíga sín fyrstu skref á gönguskíðum og Jóni Konráössyni sem er
margfaldur íslandsmeistari í göngu.
GREINAR OG MYNDIR: SKAPTI HALLGRÍMSSON
BJÖRN l*ór Ólafsson er nafn sem
oft heyrist þegar rætt er um skíAa-
íþróttina hér á landi. í það minnsta
ef rætt er um hana í tengslum við
Ólafsfjörð. Hann er margfaldur fs-
landsmeistari í skíðastökki og
íþróttakennari að mennt. „Já, titl-
aðu mig íþróttakennara og áhuga-
mann um skíðaíþróttir,“ sagði Björn
er ég hitti hann að máli nýlega í
skíðalandi þeirra Ólafsfirðinga.
Snjórinn var ekkert allt of mik-
ill — ekki var þó ástandið eins
slaemt og sums staðar annars
staðar á Norðurlandi, þar sem
gárungarnir sögðu að starfsmenn
skíðalandanna væru að gróður-
setja plöntur á skíðalandinu, slíkt
væri snjóleysið — en ólafsfirð-
ingar létu það ekki á sig fá, og er
ég leit við hjá þeim var að hefjast
svigmót fyrir krakka.
Björn Þór var þar á fullu við að
undirbúa mótið, þeyttist um svæð-
ið á snjótroðaranum, og sá um að
allt væri í lagi. Auk hans voru
nokkrir aðrir mættir á staðinn til
að hjálpa við að gera allt sem best
úr garði fyrir krakkana. Þegar
Björn hafði tíma aflögu fyrir
spjall földum við okkur inni í litl-
um skúr á svæðinu til að verða
ekki fyrir ónæði. „Gjörðu svo vel,
þetta er nú aðstaðan okkar," sagði
Björn og vísaði „til stofu“.
Fyrst hann minntist á aðstöð-
una lá beinast við að spyrja um
hana. „Nei, í alvöru, þá er aðstað-
an hér hjá okkur góð. Það er stutt
að fara á skíðasvæðið þannig að
ekki þarf mikinn húsakost hér.
Skíðalandið okkar er gott; efst eru
brattar brekkur fyrir þá sem það
vilja, og neðar eru brekkurnar
flatari. Hér er sem sagt eitthvað
fyrir alla,“ sagði Björn.
Ólafsfirðingar hafa í hugum
manna einkum tengst norrænu
greinum skíðaíþróttanna. Björn er
spurður hvort það sé á rökum
reist.
„Nei, það er nú kannski á mis-
skilningi byggt að við höfum alltaf
lagt meiri áherslu á norrænu
greinarnar heldur en alpagrein-
arnar. Við höfum lagt mikla
áherslu á alpagreinar og áttum
frábæra skíðamenn í þeim hér áð-
ur. En nú er það þannig að hér eru
yfirieitt ekki nema unglingar í
þessu því við missum oft okkar
bestu unglinga í framhaldsskóla.
Það fer oft saman að duglegasta
skíðafólkið er best í námi,“ sagði
Björn.
íbróttakennarinn Björn Þór
Olafsson frækinn skíðamaður um
langt árabil. Margfaldur ís-
landsmeistari í norrænum grein-
um og einn aðalhvatamaðurinn í
skíöaíþróttinni á Ólafsfiröi.
„Norrænu greinarnar
heldur í öldudal“
Hann sagði að krakkahópurinn
sem æfði núna væri efnilegur og
Norðmaðurinn sem æfði alpa-
greinarnar væri „góður strákur".
„Hann er mjög góður í umgengni
við börn, og það er ekki lítið atriði.
Starf hans hefur skilað geysileg-
um árangri. Aftur á móti verð ég
að viðurkenna að norrænu grein-
arnar eru heldur í öldudal hjá
okkur. Það er ekki eins margir
sem stunda þær og áður, en við
eigum samt marga sterka göngu-
menn. Við erum með yfirburða-
menn í 13—14 ára flokki, einn
mjög góðan eigum við í fjokki
17—19 ára og í elsta flokknum eru
okkar menn með þeim bestu. Hvað
varðar stökkið, þá hefur starfið í
því verið heldur dapurlegt í vetur.
Það vantar að vísu ekki fólk til að
stökkva heldur er það veðrið sem
farið hefur illa með okkur. Veðr-
áttan hefur verið erfið — það hef-
ur verið mjög hvasst."
Að sögn Bjarnar Þórs hefur það
aukist til muna á ólafsfirði sem
annars staðar að almenningur
stundi skíðagöngu í frístundum.
„Hér er troðin göngubraut þegar
færi gefst. Gönguland okkar hér í
kring er mjög gott og við höfum
haft mjög mikinn snjó hér í vetur.
Hér hefur allt verið á kafi frá því
um miðjan nóvember þar til fyrir
hálfum mánuði," segir Björn er
við spjöllum saman fyrr í mánuð-
inum. „Það er mjög stutt fyrir
fólkið að fara á gönguskíðin og
m.a.s. er hægt að byrja inni í bæn-
um. Nú erum við komnir með
þriggja km. langan upplýstan
gönguhring og segja má að það sé
okkar líf í skammdeginu."
„Deyfð í undirbúningi
fyrir Ólympíuleikana“
Björn Þór var spurður um starf-
semi Skíðasambandsins, og sagði
hann Ólafsfirðinga ekki allt of
ánægða með hana. „Það hefur ver-
ið mikil deyfð í starfsemi SKÍ í
vetur, t.d. í sambandi við undir-
búning fyrir Ólympíuleikana. í
haust var ein samæfing í norrænu
greinunum og í vetur áttu að vera
tvær til viðbótar en af þeim hefur
ekkert orðið ennþá. í vetur hafa
nokkuð margir skíðamenn farið
erlendis til æfinga og keppni, bæði
keppnisfólk í norrænum og alpa-
greinum, og hefur þetta fólk þurft
að greiða allan kostnað sjálft. Svo
er verið að tala um undirbúning
fyrir ólympíuleika. Það er alveg
út í hött!
Ég er hræddur um að SKÍ verði
að hrökkva hastarlega við á næstu
dögum ef á að senda keppendur á
leikana. Samæfingin í haust var
til þess ætluð að koma ástandi
göngumannanna í sæmilegt horf,
„Aldrei hægt að treysta veðrinu“
Á ÓLAFSFIRÐI starfar nú
norskur skíðaþjálfari, Hávard
Saude að nafni og er hann 23
ára gamall. Þetta er þriðji vet-
urinn sem hann starfar sem
skíöakennari á Ólafsfirði.
Er é^ lagði þá heimskulega
spurningu fyrir hann hvernig
honum líkaði á Ólafsfirði
svaraði hann því auðvitað til
að honum líkaði vel — ann-
ars hefði hann varla komið
aftur. En hvernig atvikaðist
það að hann kom þangað til
starfa?
„Það var maður heima í
Kongsberg sem vildi fá mig
til að þjálfa hjá KR. Ég sagði
því upp vinnu minni í
Kongsberg en þegar til kom
fékk ég ekki vinnuna hjá KR.
Fyrst ég var kominn hingað
Norski skíðaþjálfarinn Hávard Saude meó hóp af vöskum nemendum slnum. Saude er búinn að
starfa þrjá vetur á Ólafsfirói og kann mjög vel viö sig á staönum.
til lands tók ég tilboði Ólafs-
firðinga um að koma hingað
til að fá eitthvað að gera.“
Saude þjálfar aðallega
krakka á Ólafsfirði, en sagði
að hann væri einnig með full-
orðinskennslu, og þá væru
það oft foreldrar krakkanna
sem væru í því. „En það er nú
mest í gamni," sagði hann á
sinni prýðilegu íslensku.
Hann sagði að það væri
erfitt að þjálfa á íslandi.
„Hér er aldrei hægt að
treysta veðri, kannski er allt
í einu komin stórhríð og
stormur, og þá er snjórinn
hér of linur. Það er erfitt að
æfa í linum snjó. Maður nær
tækninni ekki eins fljótt við
þær aðstæður," sagði hann.
- SH.
r