Morgunblaðið - 15.04.1983, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. APRlL 1983
41
VEÐSKULDABRÉF
Jón Jónsson
Skipagötu 500
600 Akureyri
1111-1111
viðurkennir hér með að skulda handhafa bréfs þessa
Kr 100.000 -eitthundraóþúsund 00/100-
og skuldbmdur sig til að endurgreiða skuld þessa með f jórum afborgunum á tólf mánaða fresti i
fyrsta skiþti 01.03.81 kr 25.000 hvert skiDti . . , ..
í vexti af skuld þessan, eins og hún er á hverjum tima, greíðist 20 % -tuttugu ar nunaraoi-
i ársvexti frá 01.03.1980 að telja og skulu vextirmr greiddir eftir á. i hinum somu gialddogum og
afborganirnar
Verði ekki staðið i skilum með greiðslu vaxta eða afborgana á réttum gialddogum, skal greiða hæstu
lógleyfða dráttarvexti af vanskilaskuldmni Jafnframt er þá heimilt að fella alla skuldina i gialddaga fyrirvaralaust
og án uppsagnar.
Til tryggmgar skilvisri og skaðlausri greiðslu höfuðstóls og vaxta ofangreindrar skuldar. svo og til trygg-
mgar greiðslu alls kostnaðar, sem af vanskilum skuldara kann að leiða og skuldara ber að greiða að skaðlausu. er
skuldareiganda hér með veðsett
Eignin er veðsett með
HAGTÖLUR
MÁNAÐARINS
V>v
Foxsv-T. 1« '"^ hrfur
l>»« <”oS
lánið sem minnst var á undir kafl-
anum „útreikningur greiðslna".
Eins og þar sést reyndist sam-
tals greiðsla á öðrum gjalddaga
lánsins vera kr. 27.669,00. Þar af
nam afborgun án verðbóta kr.
10.000,00. Gjaldfallnir vextir og
gjaldfallnar verðbætur á afborgun
og vexti nema því kr. 17.669,00.
Reiknaðir vextir af eftirstöðv-
um án verðbóta (kr. 80.000,00) frá
1. mars 1982 til 31. desember
1982 reynast vera kr. 1.944,00.
Vert er aö undirstrika hór að
samkvæmt túlkun á núgildandi
skattalögum er ekki heimilt að
reikna upp vexti til frádráttar af
verðbættum eftirstöðvum.
Samtals vaxtagjöld til frádráttar
á skattframtali 1983 vegna þessa
láns nema þvi kr. 19.613,00.
Uþpreiknaöar eftirstöövar
vegna þessa láns eru hins vegar
kr. 263.496,00, þar sem lánskjara-
vísitala desembermánaðar 1982
reyndist vera 471 stig.
Samtals skuld til frádráttar á
skattframtali 1983 er því kr.
265.437,00 (kr. 263.495,55 +
1.944,45).
Greiðslubyrði
Þegar verötryggt lán er tekiö
skiptir höfuömáli aö gera sér grein
fyrir hversu mikiö þurfi aö greiða á
hverjum tíma í afborgun og vexti
og er þá gjarnan talaö um
greiöslubyröi. Flestir afla aöeins
tekna meö vinnu sinni og því eðli-
legt aö meta greiöslubyröi sem
hlutfall af launum hverju sinni. í
fyrri greinum og á öörum vettvangi
hefur veriö sýnt fram á aö laun
haldi í takt viö vísitöluna þegar til
lengra tíma er litiö. Þaö er því auö-
veldast til aö átta sig á greiöslu-
byröi aö miöa hverju sinni viö þann
dag þegar lán er tekiö. Reikna þá
út hver árleg afborgun er ásamt
vöxtum og hvert hlutfall þaö sé af
árslaunum. Þannig þarf ekki aö
spá í hver veröbólguþróun veröi
næstu árin og framreikna miöaö
viö þaö og meö þeim hætti fá út
stjarnfræðilegar tölur.
Miöaö viö gefnar forsendur
lækkar hlutfalliö þegar líöur á, því
vextir eru reiknaðir af sífellt lægri
höfuöstól aö raungildi.
Dæmi: Ung hjón eru aö velta því
fyrir sér aö taka 1 milljón króna
verðtryggt lán til 10 ára meö 3%
vöxtum á ári til kaupa á fasteign,
en staðgreiösluverð hennar er
einnig 1 milljón króna.
Sameiginleg laun hjónanna á
mánuði eru kr. 40.000.
Greiðsla af láninu á fyrsta ári er
því samtals kr. 130.000 (afborgun
kr. 100.000 og vextir kr. 30.000)
eöa sem nemur 3,25 mánaöar-
launum hjónanna.
Á síöasta ári er greiösla lánsins
aftur á móti kr. 103.000 (afborgun
kr. 100.000 og vextir kr. 3.000) eöa
sem nemur 2,58 mánaöarlaunum
hjónanna.
Ungu hjónin eru því búin aö
binda sig sem nemur 2,58 til 3,25
mánaðarlauna í afborganir og
vexti næstu 10 árin.
Þaö er síöan aö sjálfsögöu per-
sónubundið hvaö hver og einn þol-
ir í greiðslubyrði, því lifsmáti
manna er mismunandi. Aöalatriöiö
er þaö aö greiöslubyröin helst;
meö töku verðtryggös láns hefur
lántaki raunverulega ráöstafaö
hluta launa sinna þann tíma sem
lániö er til.
Lán — til hvers?
Ástæöur þær sem liggja til
grundvallar töku verötryggöra lána
eru æöi misjafnar.
Sumir hugsa sér aö ráöstafa
andviröi þeirra til fasteignakaupa,
aðrir til bifreiöakaupa og enn aörir
til sólarlandaferða, svo dæmi séu
tekin.
Þá eru þeir einnig til sem taka
verötryggð lán einungis til þess aö
græöa á gengisfellingum.
Mörgum gleymist aö nú á gamli
veröbólguhugsunarhátturinn ekki
lengur viö — veröbólgan bjargar
ekki lengur. Nú skiptir þaö höfuö-
máli aö andviröi verötryggðra lána
sé variö til einhvers sem heldur
verögildi sínu. Því er varhugavert
aö taka verötryggð lán til almennr-
ar neyslu.
Til frekari útskýringar skulu tek-
in tvö dæmi:
Dæmi A: Hugsum okkur aö viö
höfum keypt japanska bifreið árg.
1979 fyrir 4 árum á nýkr. 44.000 og
fjármagnaö kaupin aö öllu leyti
meö verötryggöu láni. Sams konar
ný bifreið í dag kostar kr. 212.000.
Bifreiöin hefur því hækkaö í veröi
sem nemur 381%. Verötryggða
lániö sem tekið var fyrir 4 árum er
aftur á móti komiö upp í kr.
270.000 með vöxtum eöa hefur
hækkaö um 513%. i dag fengjum
viö fyrir bílinn okkar sem viö
keyptum fyrir 4 árum kr. 100.000 á
borðið.
Þaö hefur því kostað okkur aö-
eins í fjármagnskostnaöi kr.
170.000 eða kr. 42.500 ó óri aö
eiga bílinn í þessi 4 ár, fyrir utan
allan venjulegan rekstrarkostnaö
s.s. bensín, viöhald o.þ.h.
Dæmi B: Hugsum okkur aö viö
höfum keypt 4ra herbergja íbúö
fyrir 4 árum á nýkr. 200.000 og
fjármagnaö kaupin aö öllu leyti
meö verötryggöu láni. Sams konar
íbúö í dag kostar kr. 1.350.000.
íbúöin hefur því hækkaö í veröi
sem nemur 575%. Verötryggöa
lániö sem tekiö var fyrir 4 árum er
aftur á móti komið upp í kr.
1.225.000 meö vöxtum eöa hefur
hækkaö um 512%. íbúöin hefur
því hækkað nokkuð meira en lán-
ið.
3
Lokaorð
Hér að framan hefur veriö reynt
aö varpa nokkru Ijósi á helstu
breytingar á lánskjörum sem átt
hafa sér staö hér á landi á undan-
förnum árum og er þá átt við verö-
tryggingu lána.
Hvernig til hefur tekist er þitt,
lesandi góöur, aö dæma um.
Von okkar er þó sú aö þessi
umfjöllun um verötryggingu í
lánsviöskiptum megi veröa til þess
aö kveikja umræöur og hvetja til
umhugsunar um þessi mál. Ef
þessi umfjöllun veröur til þess, þá
er tilganginum náö. Því það er stad-
revnd sem ekki er hægt að horfa
framhjá, að öld verðtryggingarinnar
er runnin upp.