Morgunblaðið - 27.04.1983, Side 6
38
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 1983
Kvikmyndir
Ólafur M. Jóhannesson
Nafn á frummáli: Tootsie
Ilandrit: Larry Gelbart og Murray
Schisgal eftir sögu Don McGurie
og Larry Gelbart.
Kvikmyndun: Owen Roisman
Tónlist: Dave Grusin
Leikstjóri: Sidney Pollack
Sýningarstaður: Stjörnubíó
Það er eiginlega sama hvar
mann ber niður í sambandi við
Dustin Hoffman, drengurinn er
hreinst frábær. Svo frábær að
sumar myndir lifa eingöngu
hans vegna. Persónulega er ég á
þeirri skoðun að Dustin Hoff-
man sé einn allra fremsti kvik-
myndaleikari tuttugustu aldar.
Hann hefir að vísu ekki burði í
hlutverk sem menn á borð við
Marlon Brando eða Klaus Kinski
gætu leyst af hendi auðveldlega,
en á móti kemur að Dustin
Hoffman er einstakur á sínu
sviði. Hver eru þá endimörk þess
sviðs sem leikur Dustin Hoff-
man spannar? Ef ég lít í hugan-
um yfir þær myndir, þar sem
stjarna Dustin Hoffmans hefur
skinið hvað skærast, verða
fyrrgreind mörk harla óljós.
Hvað t.d. um myndina, sem gerði
Hoffman að þeirri heimsstjörnu
sem hann óneitanlega er í dag,
„The Graduate", sem gerð var
1967? Á ungi uppreisnargjarni
pabbastrákurinn í þeirri mynd
eitthvað sameiginlegt með
fréttamanninum í mynd Alan J.
Pakula „All the President’s
Men“, manni sem gegnir heims-
sögulegu hlutverki?
I fljótu bragði virðist sem
Hoffman hafði náð ótrúlegum
þroska sem leikari frá því '67 og
þar til hann kemur fram í „All
The President’s Men“ 1976. En
þegar betur er að gáð og leikfer-
ill Dustin Hoffmans rýndur nán-
ar er ekki svo mikill munur á
pabba-drengnum og fréttamann-
inum — báðar eru þessar per-
sónur knúðar áfram af eldhvöss-
um viljastyrk sem er slíkur að
hann smitar út frá sér og hefur
samleikaranastyrkur sem gerir
Hoffman að stórleikara — sama
hvaða hlutverki hann skrýðist —
og hrífur ekki aðeins samleikara
hans heldur og áhorfandann,
sem kemst ekki hjá því að taka
þátt í æðisgenginni glímu Dustin
Hoffmans við það hlutverk sem
hann færist í fang hverju sinni.
Þegar hins vegar áhorfandinn
Mynd no. 27: Þróun.
Friðarvika
Samhygðar
MIÐVIKUDAGINN 27. aprfl hefst
Friðarvika, sem hreyfíngin Samhygð
stendur fyrir.
í þessari vikur munu tugir Sam-
hygðarfélaga tala við fólk út um
allt land og gefa öllum kost á því
að taka þátt í skriflegri áskorun
til íslendinga um að miðvikudag-
urinn 4. maí verði dagur án
ofbeldis.
Þennan dag skorar Samhygð á
alla íslendinga að þeir sýni hver
öðrum umburðarlyndi, gagn-
kvæma virðingu og að þeir beiti
hvorki sjálfa sig né aðra þvingun-
Að skipta um kyn
SVEFNHERI
Vinsælu svefnherberg-
ishúsgögnin eru nú
komin afturí miklu úr-
vali.
Einnig geysigott úrval
af alls konar húsgögn-
um af ýmsum gerðum.
Opið 10—5
KM-
húsgögn,
Langholtsvegi 111,
sími 37010 — 37144.
Lífrænar víddir
varpsþætti. Dorsey, sem hefir
verið atvinnulaus í um það bil
tvo áratugi, grípur til þessa
bragðs í örvæntingu. Hyggst
hann stofna metnaðarfullan
leikhóp og kann því afar illa við
sig í gervinu. Hvað um það þá
tekst Dustin Hoffman frábær-
lega að smjúga inní Tootsie. Svo
frábærlega að ég stóð bókstaf-
lega á öndinni fyrst í stað. Hinu
er ekki að leyna að þrátt fyrir að
förðunin og gervishönnun
heppnist vel þá skín ætíð í
meistarann. Kannski vegna þess
að áhorfandinn veit að Hoffman
er bak við maskann.
Ég sagði áðan að hinn eld-
hvassi viljastyrkur Dustin
Hoffmans væri slíkur að hann
lyfti samleikurunum á hærra
plan. Ég held að þessi lýsing eigi
ágætlega við í Tootsie. I það
minnsta man ég ekki eftir að
Jessica Lange hafi staðið sig
jafn vel og í þessari mynd. Þessi
stórglæsilegi kvenmaður er að
vísu nokkuð óörugg í leit sinni að
hæfilegum túlkunarmáta og tel
ég fáránlegt að veita henni
Óskarsverðlaun fyrir frammi-
stöðuna. En það er víst ekki
kvikmyndaskríbents norðan við
Ballarhaf að ákveða slíkt. Sá
hefði talið að Sidney Pollack
sjálfur í hlutverki George Fields,
umboðsmanns hins ógæfusama
leikara Michael Dorsey, ætti
skilið Óskarinn. Um aðra leikara
myndarinnar er ekki nema gott
eitt að segja; þeir virðast smit-
aðir af þeim eldmóð sem Dustin
Hoffman ber með sér. Raunar er
eins og blessað fólkið hafi af-
klæðst hlutverkunum, svo mann-
leg, eðlileg og ástúðleg er fram-
koma þess í þessari mynd. En
mitt í hópnum trónar Dustin
Hoffman, skærasta stjarna vest-
ræns kvikmyndaiðnaðar þessa
stundina. Hafi menn áhuga á að
sjá raunverulega stjörnu skína á
hinum heiða himni Hollywood
ættu þeir að bregða sér á Tootsie
í Stjörnubíói. Stjarnan sú blind-
ar að vísu engan, en við missum
hvergi sjónar á henni — nema ef
til vill þegar Dustin Hofman
gleymir sér andartak á götum
New York-borgar og verður aft-
ur sá Dustin Hoffman sem við
þekkjum frá fyrri tíð. Höfum við
annars nokkuð á móti því að
hitta manninn í eigin persónu?
Varla — sá er munurinn á Dust-
in Hoffman og þeim stjörnum
sem fyrrum skinu á því himin-
hvolfi sem hvolfist yfir Holly-
wood-borg.
sjónarmið, sjálft formið á sér
rætur í nútíma súrrealisma, og
þekki ég engan íslenskan mál-
ara, sem unið hefur á líkan hátt
og Vilhjálmur hefur gert undan-
farin ár. Hann hefur mikið átt
við myndlist og unnið af elju og
þrótti, enda eru verk hans
hnitmiðuð, einkum og sér í lagi
er það litameðferð hans, sem
vekur eftirtekt. Það mætti halda
því fram, að Vilhjálmur byggði
verk sín aðallega á þremur höf-
uðtónum: Bláum, grænum og
brúnum. Formið er ekki eins
fjölskrúðugt og litameðferð
Vilhjálms, og hann virðist verða
meir og meir háður afmörkuðu
svæði, sem hann endurtekur í
mismunandi litbyggingu. Það er
magnaður kraftur í sumum
þeirra verka, sem nú eru á
Kjarvalsstöðum, svo að á stund-
um verða áhrifin allt að því
óhugnanleg. Vilhjálmur Bergs-
son hefur náð afmarkandi
árangri, sem hann verður að
endurskoða á komandi tímum;
að öðrum kosti á hann það á
hættu að endurtaka viðfangsefn-
in um of. Ég minnist á þetta
vegna þess, hve augljós sú hætta
virðist, er þessi sýning er borin
saman við seinustu sýningu Vil-
hjálms.
Það má vel minnast á nokkur
verk á þessari sýningu og verður
það ekki löng rolla að sinni, þótt
fleiri verk verðskuldi ekki síður,
að athygli sé á þeim vakin. Þau
verk sem leita á hugann einna
ákveðnast eru: no. 22 Þrenna,
eitt af eftirminnilegustu verkum
á sýningu Vilhjálms, og no. 27,
28, 30, 42 og 65. Að mínum dómi
eru þetta verk, sem mynda
þungamiðju á sýningu Vil-
hjálms, og hafði ég ánægju af að
kynnast þeim.
stendur frammi fyrir Marlon
Brando þá hvarflar ekki að hon-
um að hér sé leikari sem þurfi
eitthvað að leggja á sig til að
samsamast hlutverkinu.
Það má vera að Dustin Hoff-
man hafi tekið að sér að leika
Tootsie í þeirri von að sanna
fyrir áhorfandanum í eitt skipti
fyrir öll að hann geti leikið
hvaða hlutverk sem er. Að hinn
eldhvassi vilji megni að færa
björg og jafnvel breyta konu í
karl. Hér ber þess að geta að
Dustin Hoffman er ákaflega fín-
gerður maður sem á mun auð-
veldara með að bregða sér í
kvenhlutverk en til dæmis raum-
ur á borð við Brando. En hvernig
tekst Dustin Hoffman að glíma
við kvenímyndina. Tekst honum
á áreynslulausan hátt að smjúga
í konulíkamann? Hér hjálpar
söguþráðurinn nokkuð því í
myndinni Tootsie vill þannig til
að leikarinn Michael Dorsey,
sem Dustin Hoffman leikur,
bregður sér í kvenmannsgervi í
þeirri von að fá hlutverk í sjón-
Dustin Hoffman
sem Michael Dor-
sey og Dorothy
Michels (Tootsie).
DUSTIN HOFTMÆM
Tootsie
Valtýr Pétursson
Vilhjálmur Bergsson hefur um
árabil nefnt sýningar sínar
„Lífrænar víddir“, og verð ég að
játa, að þetta hugtak hefur verið
heldur óljóst í huga mér og mér
hefur orðið erfitt fyrir að skil-
greina það til nokkurrar hlítar.
Én hvað um það, allir leggja sinn
persónulega skilning f hlutina,
og Vilhjálmur hlýtur að hafa
sýnar ástæður fyrir nafngift-
inni. Slíkar nafngiftir hafa ekki
úrslitagildi, en það eru verkin
sjálf, sem annaðhvort standa
fyrir sínu eða ekki.
I vestursalnum að Kjarvals-
stöðum hefur Vilhjálmur komið
65 olíumálverkum fyrir að þessu
sinni. Hann hefur haldið því
striki, sem hann hafði dregið er
hann hélt sýningu á verkum sín-
um seinast og engar teljandi
breytingar hafa átt sér stað í
myndgerð hans. Vilhjálmur er
með nokkra sérstöðu sem málari
hér á landi. Hann vinnur lit-
byggingu verka sinna á klassísk-
an hátt, ef svo mætti til orða
taka. Hann sver sig í ætt við
hina öldnu meistara og sækir
dulúð til að mynda til hina
gömlu Spánverja. Það er Iiturinn
fyrst og fremst, sem túlkar þessi
Myndlíst
(Úr fréttatilkynningu.)