Morgunblaðið - 27.04.1983, Page 24

Morgunblaðið - 27.04.1983, Page 24
56 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 1983 MARGTBERVIÐ ÁÖKUFERÐ UM BRESKAR BYGGÐIR Stóra Bretland er í rauninni íremur smátt land. Þó hefur þaó orðið vettvangur margra og mikilla atburða á umliðnum tveim árþúsundum. Saga og hefðir marka því hvern blett. Þess vegna er ökuferð um breskar byggðir svo hrífandi. Sífellt er einhvers ánœgjulegs að vœnta. Við sveitavegina kúra syfjuleg lítil þorp, en þar gnœfa líka myndarleg óðalssetur breska sveitaaðalsins og rústir fornra klaustra og kastala. Og vandalaust er aö komast um. Hvort sem ekið er á hraðbrautum eða hljóðlátum hliðarvegum venst vinstri umíerðin bœði íljótt og vel. Dómkirkjuborgir eru hvarvetna í landinu. York er dœmigerð. Höfuðkirkjan er frá 13. öld. Þrongu gömlu göturnar eru lika fallegar, t.d. Shambles. í verslunum þar má fá margan góðan gripinn - bœkur, myndir, tískufatnað, fornmuni. skartgripi, leðurvörur, glervörur og postulín. Háskólabœirnir eru frœgir um víða veröld. Á heitu síðdegi er notalegt að verða sér úti um bát og láta reka niður ána Cam meðíram öllum Cambridge háskólunum sem standa á árbakkanum. Annað sem undrar þig eí til vill er hve alúðlegir Bretarnir eru. Fáðu þér hressingu á einhverri kránni við veginn. Áður en varir ertu kominn í pílukast við heimamenn. Gistirými fœrðu auðveldlega á hóteli til sveita eða í þorpskránni. Einnig er gott ráð að stansa þar sem „Bed and breakfast, skilti stendur í glugga eða hangir á garðshliði. Á þann hátt kynnist þú fólkinu, fœrð gott rúm að sofa í og ekta breskan árbít nœsta morgun: beikon, egg, ristað brauð og marmelaði með kafíi eöa te. FARSKIP A EIGIN BlL m BRETLAND Á eigin bíl ertu írjáls íerða þinna og útgjöldunum rœður þú mikið til sjálíur, - rétt eins og hér heima. Þú ekur um boró í ms. Eddu, - og íerðin er haíin. í Newcastle ekur þú í land.: Allt Bretland liggur að íótum þér. ÓKEYPIS EINTAK AF UPPLÝSINGUM BRESKA FERÐAMALARAÐSINS, LEIÐA- LÝSINGAR,KORT OG HVERS KONAR FERÐAAÐSTOÐ: SÍMI 25166.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.