Morgunblaðið - 27.04.1983, Side 24
56
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 1983
MARGTBERVIÐ
ÁÖKUFERÐ
UM BRESKAR BYGGÐIR
Stóra Bretland er í rauninni
íremur smátt land. Þó hefur
þaó orðið vettvangur margra og
mikilla atburða á umliðnum
tveim árþúsundum.
Saga og hefðir marka því
hvern blett.
Þess vegna er ökuferð um
breskar byggðir svo hrífandi.
Sífellt er einhvers
ánœgjulegs að vœnta. Við
sveitavegina kúra syfjuleg lítil
þorp, en þar gnœfa líka
myndarleg óðalssetur breska
sveitaaðalsins og rústir fornra
klaustra og kastala.
Og vandalaust er aö komast um.
Hvort sem ekið er á
hraðbrautum eða hljóðlátum
hliðarvegum venst vinstri
umíerðin bœði íljótt og vel.
Dómkirkjuborgir eru hvarvetna í landinu. York er dœmigerð.
Höfuðkirkjan er frá 13. öld. Þrongu gömlu göturnar eru lika
fallegar, t.d. Shambles. í verslunum þar má fá margan góðan
gripinn - bœkur, myndir, tískufatnað, fornmuni. skartgripi,
leðurvörur, glervörur og postulín.
Háskólabœirnir eru frœgir um víða veröld. Á heitu síðdegi er
notalegt að verða sér úti um bát og láta reka niður ána Cam
meðíram öllum Cambridge háskólunum sem standa á
árbakkanum.
Annað sem undrar þig eí til vill
er hve alúðlegir Bretarnir eru. Fáðu þér
hressingu á einhverri kránni við veginn. Áður
en varir ertu kominn í pílukast við heimamenn.
Gistirými fœrðu auðveldlega á hóteli til sveita
eða í þorpskránni. Einnig er gott ráð að
stansa þar sem „Bed and breakfast, skilti
stendur í glugga eða hangir á garðshliði.
Á þann hátt kynnist þú fólkinu,
fœrð gott rúm að sofa í og ekta
breskan árbít nœsta morgun:
beikon, egg, ristað brauð og
marmelaði með kafíi eöa te.
FARSKIP
A EIGIN BlL m BRETLAND
Á eigin bíl ertu írjáls íerða
þinna og útgjöldunum
rœður þú mikið til sjálíur,
- rétt eins og hér heima.
Þú ekur um boró í ms. Eddu,
- og íerðin er haíin. í
Newcastle ekur þú í land.:
Allt Bretland liggur að
íótum þér.
ÓKEYPIS EINTAK AF UPPLÝSINGUM BRESKA FERÐAMALARAÐSINS, LEIÐA-
LÝSINGAR,KORT OG HVERS KONAR FERÐAAÐSTOÐ: SÍMI 25166.