Morgunblaðið - 27.04.1983, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 1983
45
kröfu eiganda Skarðs og
Skarðshrepps, þá hefðu nokkur
hús á Sauðárkróki lent innan
hreppamarka Skarðshrepps, sem
þá hefði átt fasteignagjöld af
byggingunum, sem eru talsverð.
Einnig hafði kaupstaðurinn áætl-
að að reisa steinullarverksmiðj-
una á eyrum Gönguskarðsár, og
hefði það svæði sem fyrirhugað
var undir verksmiðjuna lent innan
Skarðshrepps.
Varðandi kröfu gagnáfrýjenda í
málinu, bóndans á Skarði og
Skarðshrepps, segir Hæstiréttur:
„Það er ósannað að á þeim tíma
sem hér getur skipt máli, hafi far-
vegur Gönguskarðsár verið þar
sem gagnáfrýjendur hafa markað
kröfulínu sína (A1, B, B°l., C). Þá
verður eigi ráðið af gögnum svo
öruggt sé, að áin hafi breytt far-
vegi sínum alla leið frá sjó til þess
staðar, sem auðkenndur er A1 á
uppdráttum, frá því að landa-
merkjaskrárnar voru gerðar, svo
sem gagnáfrýjendur halda fram.
Hitt er víst, að neðsta hluta far-
vegar árinnar var breytt árið 1948
að tilhlutun aðaláfrýjanda. Er þá
sérstakt álitaefni, hvernig áin
muni hafa runnið, áður en um-
rædd breyting var gerð.
Framburður vitnanna Gísla
Sigurðssonar, Guðjóns Sigurðs-
sonar og Sigurþórs Hjörleifssonar
bendir til þess, að malarkambur
hafi verið á ströndinni á þeim
slóðum, sem Gönguskarðsá féll
fram. Samkvæmt vitnisburði
þessara manna og öðru, sem fram
er komið, má ætla, að ofan kambs-
ins hafi áin sveigt til hægri (suð-
urs) eftir eyrunum og myndað þar
nokkurt lón, en síðan hafi hún
brotist út úr lóninu í ósi í gegnum
kambinn. Að öðru leyti er óljóst,
hvernig staðhættir hafa verið, þar
á meðal hversu langt lónið náði til
suðurs og hvar ósinn var.
í varakröfu sinni fyrir Hæsta-
rétti miðar aðaláfrýjandi við það,
að breytingin á farvegi Göngu-
skarðsár 1948 hafi ekki raskað
landamerkjum. Er þá nánar á því
byggt, að ós árinnar hafi áður ver-
ið þar sem punkturinn Z er mark-
aður á framlagðan uppdrátt og
hinn breytti farvegur ekki náð
lengra upp eftir eyrunum en að
punktinum Y á uppdrættinum.
Að því er varðar fyrra atriðið,
verður að telja Kklegra eftir
málsgögnum, að ósinn hafi verið
nokkru sunnar á eyrunum. Sýnist
vel geta staðist, að hann hafi verið
á þeim stað, er landamerkjadóm-
urinn taldi. Því til viðbótar er á
það að líta, að aðaláfrýjandi lét
breyta farvegi árinnar á sitt ein-
dæmi og án samþykkis eiganda
Skarðs. Verður hann því að bera
halla af vafa, er leika kann á þvi,
hvar ósinn var áður. Þykir af þess-
um ástæðum mega fallast á þá
niðurstöðu landamerkjadómsins,
að ós Gönguskarðsár fyrir breyt-
inguna á farvegi árinnar hafi ver-
ið á þeim stað, sem merktur er
með punktinum X á uppdrætti
dómsins.
Um það atriði, hversu langt upp
eftir eyrunum farvegi árinnar var
breytt árið 1948, er mikil óvissa.
Þess er þó að geta, að vitnið Gísli
Sigurðsson vísaði á stóran stein á
hægri bakka árinnar neðan núver-
andi steypustöðvar, er hann gekk
á vettvang með dómendum landa-
merkjadómsins. Kvað hann ána
renna á þeim stað, sem hún hafi
gert, er hann bjó á Bakka, en síðan
í Eyrarbæ, á árunum 1920—1932.
Vegna kunnugleika þessa vitnis á
Gönguskarðsáreyrum veitir vitn-
isburður þess líkur fyrir þvi, að
breyting á farveginum, sem gerð
var 1948, hafi a.m.k. ekki náð
lengra upp á eyrarnar en á móts
við stein þennan. Vætti Sigurþórs
Hjörleifssonar og Guðjóns Sig-
urðssonar standa ekki gegn þeirri
niðurstöðu. Þótt vera megi, að far-
veginum hafi einungis verið breytt
skemmra upp eftir eyrunum en að
umræddum steini, þykir eigi að
síður rétt að meta vafa í því efni
aðaláfrýjanda i óhag, af sömu
ástæðu og greint var um ós árinn-
ar og leggja til grundvallar, að
farvegi árinnar hfi verið breytt
neðan steinsins til sjávar.
Umráð aðaláfrýjanda yfir því
landi hægra megin Gönguskarðs-
ár, sem fyrir breytinguna hefur
verið vinstra megin ár samkvæmt
framangreindu, eru ekki til komin
með þeim hætti, að til eignar-
hefðar mætti leiða."
„Niðurstaða Hæstaréttar er síð-
an eftirfarandi:
Samkvæmt öllu því, sem að
framan er rakið, þykir bera að líta
svo á, sbr. 2. tl. 3. gr. laga nr.
15/1923, að Gönguskarðsá eins og
hún nú fellur, ráði ekki merkjum
milli Skarðs og Sauðárkróks
lengra niður eftir ánni frá punkt-
inum A1 en á móts við áðurgreind-
an stein. Síðan ráði bein lína í
punktinn X í fjörumáli svo sem
hann er markaður á uppdrátt
þann er Jónas Snæbjörnsson verk-
fræðingur gerði fyrir landa-
merkjadóminn. Hefur Ragnar
Árnason mælingaverkfræðingur
að tilhlutan Hæstaréttar markað
línu þessa, sem verður dómlína
Hæstaréttar, inn á siðast greind-
an uppdrátt ásamt kröfulínum
málsaðilja. Er dómlína þessi dreg-
in milli punktanna A1, M og X á
fyrrgreindum uppdrætti Ragnars
Amasonar, hæstaréttardómskjali
M.
Eftir þessum úrslitum er rétt að
aðaláfryjandi greiði gagnáfrýj-
anda Ólafi Lárussyni 25.000,00
krónur i málskostnað samtals i
héraði og fyrir Hæstarétti."
Ný stjórn hjá
úrsmiðafélaginu
AÐALFUNDUR Ursmiðafélags fs-
lands var haldinn á Hótel Loftleið-
um 12. aprfl sl.
Fráfarandi stjórn gaf ekki kost
á sér til endurkjörs og var Axel
Eiríksson kosinn formaður félags-
ins og með honum í stjórn þeir
Óskar Óskarsson og Viðar Hauks-
son. Eitt meginverkefni hinnar
nýju stjórnar er símenntun úr-
smiða og eru námskeið i því sam-
bandi að hefjast.
Hveragerði:
Hjálparsveitin fær góða gjöf
Hveragerdi, 13. aprfl.
HJÁLPARSVEIT skáta í Hveragerði
barst nýlega peningagjöf að upphæð
kr. 50.000.- frá Gísla Sigurbjörnssyni,
forstjóra Dvalarheimilisins Áss í
Hveragerði og Grundar í Reykjavík,
en hann hefur árum saman sýnt hjálp-
arsveitinni mikinn velvilja og fjárhags-
aðstoð.
Fréttaritari Mbl. lagði leið sína i
litla hjálparsveitarhúsið og hitti þar
stjórn hjálparsveitarinnar. Kváðust
þeir félagar innilega þakklátir fyrir
þessa höfðinglegu gjöf, sem kæmi
sér mjög vel, því sveitin væri jafnan
fjárþurfi. Þeir eru sífellt að auka
búnað sveitarinnar og hefur hann
eflst mikið á undanförnum árum.
Húsnæðisþrengsli há starfseminni,
en sveitin hefur afnot af litlu húsi
sem er í eigu Hveragerðishrepps.
Hjálparsveitin var stofnuð 1975
og eru félagar 22, og halda þeir uppi
reglubundnu starfi og eru fastar æf-
ingar 4—5 sinnum I mánuði, auk
námskeiða. Einnig eru sameiginleg-
ar æfingar með öllum hjálparsveit-
um skáta á landinu, 1—2 á ári. Sóttu
þeir félagar samæfingu á Akureyri í
mars sl.
Hjálparsveitin hefur sinnt mörg-
um útköllum í vetur, einkum þegar
illviðri hafa geysað, nú síðast til
leitar á Hellisheiði um páskana.
Bagalegt er fyrir sveitina að eiga
ekki snjósleða þegar þannig atvik
ber að höndum.
Helsta fjáröflunarleið sveitarinn-
ar er flugeldasala, sem hefur gengið
nokkuð vel síðustu árin.
Þá annast þeir sjúkragæslu I
Galtalækjarskógi, á útisamkomum
um verslunarmannahelgina.
í stjórn HSSH eru þessir menn:
Sveinn Sigurjónsson, formaður,
Helgi Ársælsson, Holgeir Hansen,
Kjartan Bjarnason, Þórarinn Garð-
arsson og Alfreð Maríusson. En
Sæmundur Pálsson annast bifreið
sveitarinnar.
Sigrún
Nýr bíll frá DAIHATSU - Nýr bíll frá DAIHATSU
DAIHATSU 850
háþekjusendibíll
Nýr og frábær valkostur fyrir þá sem þurfa lítinn, sparneytinn en
rúmgóðan sendibfl vegna eigin atvinnureksturs eða annarra nota.
I
OAIHATSU
Þetta er DAIHATSU 850
3 heleösludyr
3 strokka 850cc 41 hö din vól
(hin frábæra DAIHATSU CHARADE vól
í nýrri útfærslu)
Elgln þyngd 740 kg
Buröarþol 660 kg
12“ hjólþaröar
Snúningsradíus 4,0 m
Lengd 3,20 m
Breidd 1,40 m
Hæö 1,90 m
Hæö undlr lægsta punkt 17,5 cm
Sýningarbíll á staönum.
Fyrsta sending á leiöinni.
Viöurkennd gæði, viöurkennd þjónusta.
DAIHATSU-umboðið,
Ármúla 23, 85870 — 81733.