Morgunblaðið - 27.04.1983, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 27.04.1983, Qupperneq 20
52 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 1983 „ EÍ9 Kef a.ld'ej sOcgt némom frú Jvi fyrr; en ég miðcubi o. krókódiL '1 O ^A) ■ -. að liggja saman í leti og njóta þess að vera til. TM fteg. U.S. Pat. Oft —all rlqhts raserved ®1983 Loa Angatos TknOT Syndlcate Sérðu ekki að ég er sofandi, spurðu mömmu þína! Með mor^unkaffinu Ég sæti ekki hér í leiðindum ef það væri einhver annar. Það er öruggt! HÖGNI HREKKVlSI „Og nú hrópa þessir furðufuglar allir í kór: Álver, sem er svo ósvífið að afla þjóðinni stórtekna, jafnvel þótt það tapi, skal aflagt. Þess í stað skal koma álver ríkisins, þar sem stórtap má telja öruggt, eins og allar ríkisreknar verksmiðjur sýna þjóðinni nú svo skýrt sem verða má.“ „Okkar útvarp?“ Ingjaldur Tómasson skrifar: „Enn þá einu sinni flyt ég þakk- ir til Péturs Péturssonar fyrir ágæta og upplífgandi tónlist í morgunútvarpi, nú síðast laugar- dag fyrir páska. Sú spurning hlýt- ur að vakna, hvaða öfl innan stjórnarliðs útvarpsins ráða því að ýta ágætum útvarpsmanni út í horn og taka í staðinn þrjá starfsmenn er virðast í öngu fremri þulunum, nema síður sé. Fram hefur komið gagnrýni á hina nýju stjórn morgunútvarps. Áður verkalýðsforingi fyrir aust- an hringdi og fann að hinum miklu tónrokum, sem oft gysu upp milli laga og talaðs máls. Svarað var eitthvað á þá leið, að þessu yrði alls ekki breytt, því að viss stemmning þyrfti að vera í morg- unútvarpi, sem aðeins þeir (út- varpsmenn) hefðu vit á. Árni Björnsson þjóðháttafræð- ingur gat um þetta ásamt ýmissi annarri réttmætri gagnrýni, bæði á fjölmiðla og fjölmargt annað, í ágætum fyrri hluta erindis í þætt- inum Um daginn og veginn 31. mars. Líka var talað um vitfirr- ingslega hávaðamengun, sem vart nokkurs staðar væri skjól fyrir, úti eða inni. í síðari hluta erindisins setti Árni á fulla ferð á vinstra braut- arsporið með því að lofa þá menn og flokka upp í hástert, sem telja það æðsta baráttumál sitt að loka álverinu, sem dælt hefir í efna- hagskerfi þjóðarinnar geysilegum fjárhæðum allt frá opnun þess. Það væri ekki úr vegi að spyrja iínudansarana meðal komma og vinstri manna, hvert væri orku- verð nú, ef þeim hefði tekist að rjúfa samstöðu og stuðning þjóð- arinnar við viðreisnarstjórn og stórvirkjanir. Og nú hrópa þessir furðufuglar allir í kór: Álver, sem er svo ósvífið að afla þjóðinni stór- tekna, jafnvel þótt það stórtapi, skal aflagt. Þess í stað skal koma álver ríkisins, þar sem stórtap má telja öruggt eins og allar ríkis- reknar verksmiðjur sýna þjóðinni nú svo skýrt sem verða má. Segja má, að fréttaflutningur útvarps og sjónvarps sé vægast sagt vafasamur. í þætti Páls Heið- ars var spurt um leiðinlegustu frétt vikunnar. Svarað var, að hún hefði verið sú, að nú væri mikil rányrkja í gangi á íslensku fiski- miðunum. Ekki fannst stjórnanda taka því að segja eitt orð um þetta alvarlega vandamál þjóðarinnar nú. Frétt kom frá Kaupmanna- höfn um að íbúar Kristjaníu hefðu tekið sig saman um að reka þaðan á brott eiturlyfjasölupakk. Hvorki útvarp né sjónvarp hafa séð ástæðu til að minnast einu orði frekar á þetta. Svo er staglast á sömu fréttunum vikum, mánuðum og jafnvel árum saman, ef þær snerta Víetnam, Nixon, Hitler. En morðæði Stalíns, þrælavinnubúðir og kvalavist ógnvekjandi fjölda fólks, sem ekkert hefir til saka unnið nema sýna stjórnvöldum andstöðu, það heyrir undir einusinnifréttir hjá fréttastjórn „útvarpsins okkar". Mörg hinna erlendu útvarps- leikrita eiga illa heima í íslensku andrúmi, en vægast sagt lítið er ausið af þeim mikla þjóðlega sjó, sem við eigum í þjóðsögum og ævintýrum, svo að ekki sé minnst á íslendingasögur, sem eru nú al- gert bannorð hjá stofnuninni. Þar er bruðlið í heiðurssæti, eins og reyndar hjá flestum ríkisreknum fyrirtækjum. Öll áhersla er lögð á að koma sem flestum dyggum vinstri mönnum á ríkisjötuna. Er ekki kominn tími til að efna til samtaka hér eins og gerðist hjá fólkinu í Kristjaníu og sýna hin- um slöppu og dáðlausu yfirvöld- um, að hinn almenni íslenski borg- ari lætur ekki lengur bjóða sér þá óstjórn, sem hér ríkir nú á flestum sviðum þjóðlífsins." Heimurinn lifir af misgóð- ar borgaralegar stjórnir Húsmóðir skrifar: „Svo til daglega berast frétt- ir af árásum Suður-Víetnama á Kampútseu og núna síðast á flóttamannabúðir í Laos, þar sem fyrir var vopnlaust fólk, mest konur og börn, sem fíúið höfðu kúgunina og harðréttið hjá árásarmönnunum. Þegar nú heimurinn veit af hverju stríðið í Suður-Víetnam var hafið, þá finnst manni að timi sé kominn til þess að fólk- ið, sem sveipaði sig friðar- og réttlætisskikkjum, fari nú og geri hreint fyrir sínum dyrum. Þá verða þeir sem hæst göluðu um manngæsku Ho Che Minhs, átrúnaðargoðs Svíaveldis, að byrja á því að biðja okur, sem vildum frelsi Suður-Víetnama, fyrirgefningar á blindum átrúnaði sínum á útþenslu- stefnu heimskommúnismans, því að það var það eina, sem fólst undir friðar- og réttlæt- isdulum þeirra. Úlfurinn getur ekki alltaf verið sveipaður helgihjúpnum. Sannleikurinn er sá, að Suður-Víetnam var með bestu lífskjörin í Austur-Asíu, ef undan er skilið Taiwan. Rússar vildu hins vegar fá flotahafnir í Suður-Víetnam og kommún- istarnir voru auðvitað reiðu- búnir að framselja þjóð sína, eins og þeir gerðu á sínum tíma í Austur-Evrópu. Og vopnin áttu Rússar eins og ævinlega þegar vinna skal óhæfuverkin. Þá er aldrei spurt um hversu mikið böl fylgir. Suður-Víet- namar báðu hinn frjálsa heim um aðstoð og lengst héldu Bandaríkjamenn út, en þá sveik pressan og fjölmiðlar margra landa og Suður- Víetnam varð Rússum að bráð. Núna eru þeir að slátra kon- um og börnum þjóðar sinnar. Enginn gleymir áróðrinum í útvarinu hér. Það er stórfurðu- legt hvernig fjölmiðlarnir okkar mega haga sér, því að afnotagjöldin koma þó frá lýð- ræðisþjóð. Látlaust dynja á manni fréttirnar af striðsátök- unum, en þegar svo kommún- istarnir, sem mest fá af vopn- unum og stuðning frá morð- sveitum Kastrós, eru orðnir allsráðandi, þá hættir fróðleik- urinn og íslenskur almenning- ur fær aldrei að vita hvernig fólkinu líður undir nýju vald- höfunum. Var það almenningi til góðs, sem kostað hafði mikil stríðsátök? Það virðist ekki skipta fréttamennina máli. Allir ættu að vita, að þar sem kommúnistar ráða, þar á al- þýðan bara eina ósk, og hún er sú að geta flúið. Er ekki herstjórnin í Pól- landi besta dæmið um blessun kommúnismans? Það er komin út skýrsla upp á 400 síður, þar sem sést að pólska herstjórnin fangelsar og pyntar vopnlausa verkamenn, lista- og mennta- menn, en berklar og hörgul- sjúkdómar hrjá þjóðina eftir 40 ára kommúnistastjórn. Þetta fékk þjóðin fyrir að láta kommúnistana gefa Rússum landið. Heimurinn lifir af misgóðar borgaralegar stjórnir og kosn- ingarétturinn getur alltaf bjargað. Kommúnisminn er hins vegar búinn að sanna það, að honum fylgir bara tortím- ingin."

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.