Morgunblaðið - 18.05.1983, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 18.05.1983, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. MAÍ 1983 37 Bláa lónið í Svartsengi: Alþjóðleg heilsustöð? — eftir Valdimar Ólafs- son formann Samtaka psoriasis- og exem-sjúklinga Eins og ég gat um í grein minni um Bláa lónið í Svartsengi — baðstað psoriasis-sjúklinga — hafði ég áhuga á að skrifa um þau framtíðaráform sem upp hafa komið varðandi uppbyggingu heilsustöðvar við Svartsengi. Hugmynd okkar, sem um þetta höfðum fjallað, er sú að byggja við Svartsengi alhliða heilsustöð, ekki bara fyrir psoriasis-sjúklinga, heldur alla þá sem hugsanlega gætu haft not af vatninu í Bláa lóninu. Við viljum meina að þessi stöð þyrfti að vera allstór, ekki fyrir færri en 200—300 manns. Hótel og veitingarekstur ætti að vera á staðnum, svo og aðstaða fyrir hús- og tjaldvagna. Byggja þarf yfir aðstöðuna í Bláa lóninu svo og yfir útivistarsvæðið þar sem aðstaða væri fyrir ýmiskonar íþróttir og trimm. Þá þarf að vera aðstaða fyrir sólböð og ljósböð. Hjúkrunardeild þarf að starfa á staðnum og vera þar margvísleg önnur aðstaða, til þess að dvöl gestanna yrði sem allra árang- ursríkust, má þar nefna ýmsa af- þreyingaraðstöðu fyrir börn og fullorðna og barnagæslu. Af þessu má sjá að hér er um stórar hugmyndir að ræða, sem þurfa góðan undirbúning og skipulagningu. Þeir aðilar, sem forgöngu hafa haft um þetta mál eru auk samtaka psoriasis- og exemsjúklinga, Hitaveita Suður- nesja og Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum. Vegna umfangs málsins og áhrifa þess á ferðamál, umhverf- ismál og heilbrigðismál hafa þess- ir aðilar, þ.e. Samtök psoriasis- og exem-sjúklinga, Hitaveita Suður- nesja og Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum ákveðið að efna nú í vor til sérstakrar ráðstefnu um þessa uppbyggingu. Allir þeir sem áhuga kunna að hafa á þessu máli eru beðnir að hafa samband við skrifstofu Samtaka psoriasis- og exem-sjúklinga. Ráðstefnu þessari er ætlað ann- ars vegar að varpa ljósi á þá möguleika sem við höfum við Svartsengi fyrir heilsustöð, og hinsvegar með hvaða hætti ætti að standa að uppbyggingu hennar, stærð og umfangi öllu. Það er augljóst að slík heilsu- stöð yrði ekki einungis fyrir Reykvíkinga eða Suðurnesjabúa hedur fyrir alla íslendinga svo og útlendinga. Okkur hafa borist ýmsar fyrirspurnir víðsvegar að og til okkar hafa komið psoriasis- sjúklingar frá Norðurlöndum og Bandaríkjunum til að baða sig í Bláa lóninu. Það er ótrúlegt hvað fólk hefur lagt mikið á sig til að komast hingað, bæði hvað varðar tíma og fjárútlát. Formenn Samtaka psoriasis- sjúklinga á Norðurlöndum heim- sóttu okkar nú í haust og leist þeim mjög vel á Bláa lónið, sem heilsulind og má í því sambandi segja frá því að danski formaður- inn vildi vinna að því að senda nú í sumar 40—50 manna hóp frá Danmörku til að stunda Bláa lón- ið. Því miður er ekki hægt að svo stöddu að taka við svo stórum hóp. Að mörgu þarf að hyggja áður en hafist er handa um uppbygg- ingu stöðvarinnar. Ljóst er að uppbyggingin verður ekki gerð nema í áföngum, en við þurfum samt sem áður, að gera okkur ljóst hvert takmark okkar á að vera, því í upphafi skal endirinn skoða. Áður en ég læt lokið þessum hugleiðingum mínum vil ég benda á að við þurfum að leggja niður fyrir okkur strax í upphafi hverskonar félags- og rekstrar- form ætti að vera á slíku fyrirtæki sem svona heilsustöð á og rekur. Hvernig á að standa að söfnun fjármagns? Hvert er hægt og hvert á að leita eftir styrkjum o.s.frv? Við sem um þessi mál höfum hugsað fram til þessa erum þess fullvissir að hér er um að ræða gifurlegt hagsmunamál fyrir ótal aðila og heitum því á alla góða menn að veita okkur lið. Enn uppselt á rokkhátíðina KKKKKT lát er á vinsældum rokkhátíðarinnar sem verið hefur á Broadway nú um nokkurt skeið. A laugardagskvöldið var rokkað í 15. skipti fyrir troðfullu húsi og voru M 200 manns á biðlista. Það stóð til að þetta yrði síðasta rokkhátíðin að sinni, en Björgvin Halldórsson tónlistarmaður sagði { samtali við Mbl. í gær að uppi væru raddir um að endurtaka skemmtunina einu sinni til tvisvar { viðbót. „Það var geysileg stemmning á laugardagskvöldið," sagði Björgvin, „efnisskráin var lengd og undir lokin dönsuðu gestir í halarófu um allt húsið, sennilega um þúsund manns. Ragnar Bjarnason skemmti með okkur að þessu sinni og Ómar Ragn- arsson, en hann hefur fylgt okkur meira og minna. Þá var einn gestur heiðraður sérstak- lega en hann hafði komið á allar rokkhátíðirnar nema eina. Og í eitt skiptið lét hann sig hafa það að mæta með fjörtíu stiga hita. Þetta kallar maður áhuga." SVISSNESKA FORMUL4N.. Flestir vita hversu hagkvæmt það er að leggja peninga inn í banka í Sviss. En það er líka hagkvæmt að leggja inn í Sparisjóðina. Heimilislán Sparisjóðanna, sem veita rétt til láns eru svo hagstæð að við köllum útreikninginn á þeim „Svissnesku formúluna". Dæmi A: Þú leggur inn 1000 krónur í 3 mánuði og hefur að því loknu til ráðstöfunar 6.210 krónur. DæmiB: Þú leggur inn 1000 krónur í 6 mánuði og hefur að því loknu til ráð- stöfunar 14.235 krónur. Dæmi C: Þú leggur inn 1000 krónur í 9 mánuði og hefur að því loknu til ráð- stöfunar 24.225 krónur. Þetta köllum við svissneska formúlu! Þú getur líka lagt inn 2000 kr.f 3000 kr. eða 4000 kr. á mánuði og hefur þá ásamt því er sparisjóðurinn lánar þér til ráðstöfunar 2,3 eða 4 sinnum hærri upphæð en í dæminu að ofan. Athugaðu heimilislán sparisjóðanna svissneska formúlan svíkur ekki! «SAMBAND SPARISJÖÐA * Lántöku- og stimpilgjald dregst frá við afhendingu heimilislánsins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.