Morgunblaðið - 18.05.1983, Page 14

Morgunblaðið - 18.05.1983, Page 14
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. MAÍ 1983 BREIÐABLIK 45 „Yona að við völdum ekki vonbrigðum" MAGNÚS Jónatansson, 34 ára kennari, er þjálfari Breiðabliks í ár. Hvernig leggst mótið í þig, Magnús? „I>að leggst nú ekki illa í mig.' l>að má segja að Breiðabliksliðið sé spurningarmerki í byrjun móts- ins og óvíst hvernig gengur þegar út í slaginn er komið. Þó ekki hafi gengið vel í vorleikjum tel ég að við séum á réttri leið og mætum óhræddir í mótið." Nú er þeta fyrsta árið þitt hjá Breiðabliksliðinu. Hver er helsti munurinn að þjálfa hjá þeim og t.d. hjá ÍBÍ? „AAstaðan er auðvitað mikið betri hér. Hérna er ég með alla leikmennina á sama stað en ekki á tveim, eins og hjá ÍBÍ, fram að móti. Leikmenn Breiðabliks eru upp til hópa teknískari og yngri en ég hef áður haft. Meðalaldur Breiðabliksmanna er t.d. 21 ár en var 24 ár hjá ísfirðingunum. Það Magnús Jónatansson er auðvitað meiri hætta á að svo ungir leikmenn þoli ekki mikla pressu en því má ekki gleyma að þrátt fyrir ungan aldur hafa þeir margir reynslu með t.d. landsliði." Viltu spá um stöðuna í sumar? „Það stefnir allt í það að Vík- ingarnir verði sterkir eins og í fyrra og ÍA mun einnig verða sterkt. Valsarar munu verða verðugir andstæðingar ef þeir spila eins og seinni part sumars í fyrra. ÍBV og KR standa þess- um liðum ekki langt að baki en það mun líklegast verða hlut- skipti ÍBK, ÍBI, Þórs og Þróttar að berjast í neðri hluta deildar- innar. Þó gætu Keflvíkingar komið á óvart og blandað sér í toppbaráttuna. Ég kýs að halda hlutleysi mínu og halda Breiðablik fyrir utan þessa spá. Við mætum í mótið með ákveðið markmið í huga og munum gera okkar besta til að ná því. Tíminn mun síðan leiða í ljós hve langt þetta fleytir okkur í deildinni. „Tel að við séum á réttri Ieiö“ Ólafur Björnsson 24 ára há- skólanemi er fyrirliði Breiðabliks- liðsins. Fyrsta spurningin sem við lögðum fyrir Ólaf var hvernig mót- ið legðist í hann: „Það leggst ágæt- lega í mig. Við erum líkamlega vel undir það búnir og göngum ótrauð- ir til baráttunnar. Undirbúningur- inn hefur verið markviss þannig að ég vona að við völdum ekki eins miklum vonbrigðum og í fyrra.“ Nú hafa gengið í raðir ykkar Breiðabliksmanna nýir leikmenn, á þetta ekki eftir að styrkja liðið? „Jú, það er gefið mál og breidd- in í liðinu í dag er mjög mikil. En við megum ekki gleyma því að við höfum misst menn síðan í fyrra sem voru meira og minna í liðinu.“ Nú hefur gengið fremur illa hjá ykkur í vorleikjunum t.d. Litlu bikarkeppninni. Hver er ástæðan? Ólafur Björnsson „Ætli það sé ekki helst af því að litið hefur verið á þessa leiki sem upphitun og æfingu fyrir ís- landsmótið. Æfingar hafa verið jafn stífar jafnvel þótt leikir væru á dagskránni. Magnús hef- ur lagt meiri áherslu á æfingar og fá fullt út úr þeim frekar en leikjunum. En hinu er ekki að leyna að árangurinn hefur verið slappur en við skulum vona að þetta sé bara vorslen sem hverfi með sumrinu." Myndirðu vilja spá um röð lið- anna í deildinni? „Ég myndi vilja fá að sleppa Breiðabliki en hinum liðunum myndi ég skipta í tvo hópa sem ég tel að muni berjast á toppnum og á botninum. I fyrri hópnum myndi ég telja ÍA, Víking, ÍBV,. KR, Val og í seinni ÍBK, ÍBÍ, ÞóiÁ og Þrótt." „Mótið leggst vel í migu Jón Ingi Ragnarsson, málara- meistari á besta aldri, er formaður knattspyrnudeildar Breiðabliks. Við lögðum fyrir hann hina klass- ísku spurningu, hvernig mótið legðist í hann: „Það leggst vel í mig enda er ég bjartsýnismaður að eðlisfari. Ég vona að liðið mitt eigi eftir að standa sig og strákarnir sýni hvað í þeim býr.“ Ef við snúum okkur aðeins frá meistaraflokknum og að yngri flokkum félagsins þá er Breiða- blik ekki lengur það veldi sem það var fyrir nokkrum árum í unglingaknattspyrnu. Hvað veldur? „Breiðablik vann það einstæða afrek árið 1974 að vinna ís- iandsmótið í 3., 4. og 5. flokki og er mikið af þeim strákum kjarn- inn í meistaraflokknum í dag. Það má segja að við höfum sofn- að á verðinum eftir þetta og Jón Ingi Ragnarsson haldið að þetta myndi ganga af sjálfu sér. Ekki var staðið nógu vel að unglingastarfinu og brátt vöknuðum við upp við það að yngri flokkarnir voru orðnir mjög slakir. Þá var reynt að snúa vörn í sókn og má segja að í fyrra hafi það byrjað að gefa ávöxt þegar 2. flokkurinn varð íslandsmeistari. 6. flokkur Breiðabliks er nú líklegast einn sá sterkasti á landinu og í 5. flokknum eru margir mjög efni- legir leikmenn." Ef við snúum okkur nú aftur að 1. deildinni. Viltu spá um stöðuna? „Ég vil sem minnst um það spá. A síðustu árum hefur okkur Breiðabliksmönnum verið spáð velgengni en það dæmi hefur ekki gengið upp. Ég hef nú samt trú á því að bæði Víkingur og ÍA komi sterkt út úr mótinu eins og í fyrra og ég vona auðvitað að Breiðablik geti blandað sér í toppbaráttuna. Ég vil engu liði það að falla í 2. deild, því mun ég ekki spá meiru um röðina." Heiðar B. Heiðarsson, 20 ára, nemi, miðjuleik- maður Þorsteinn Hilmarsson, Sigurjón Kristjánsson, 21 árs, háskólanemi, 21 árs, nemi, miðjuleik- miðjuleikmaður maður Guðmundur Ásgeirsson, Hákon Gunnarsson, 23 Sævar Geir Gunnleifs- 24 ára, húsgagnasmiður, ára, háskólanemi, sókn- s®11. 20 ára, verslunar- markvörður armaður, maður, sóknarmaður Benedikt Guömunds- Björn Þór Egilsson, 22 Ingvaldur Gústavsson, son, 21 árs, bókagerðar- ára, háskólanemi, bak- 19 ára, nemi, sóknar- maður, bakvörður vörður maður Sigurður Grétarsson, 21 Þorsteinn Geirsson, 19 Vignir Baldursson, 27 árs, rafvirki, sóknarleik- ára, nemi, miðjuleik- ára, trésmiður, miðju- maður maður leikmaður Jóhann Grétarsson, 21 Ómar Rafnsson, 20 ára, árs, kerfisfræðingur, húsasmiður, bakvörður miðjuleikmaður Valdimar Valdimarsson, Jón Gunnar Bergs, 20 Theódór Guðfinnsson, 25 ára, skrifstofumaður, ára, háskólanemi, 24 ára, tæknifræðingur, miðvörður miðjuleikmaður miðvörður Trausti Ómarsson, 20 ára, nemi, miðjuleik- maður Haraldur Stefánsson, 23 Pétur Ómar Ágústsson, ára, bankastarfsmaður, liðsstjóri miðvörður S fi!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.