Morgunblaðið - 18.05.1983, Síða 21

Morgunblaðið - 18.05.1983, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. MAÍ 1983 53 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 10100 KL. 11—12 FRÁ MÁNUDEGI ^ TIL FÖSTUDAGS ‘Irwi/jArni&an'jJV Þessir hringdu . . . AC/DC á listahátíð Símon og Emil í Vestmannaeyj- um hringdu og höfðu eftirfar- andi að segja: — Okkur langar endilega að fá AC/DC á listahá- tíð. AC/DC er langbesta þunga- rokkhljómsveitin í dag og hefur langskemmtilegustu sviðsfram- komuna. Einnig nýtur hún geysimikilla vinsælda hér á landi. AC/DC eða Iron Maiden Ingvar Hafbergsson hringdi og hafði eftirfarandi að segja: — Ég tek undir það sem einhver skrifaði um Smokie hérna í þættinum. Ég vildi ekki fá þá á listahátíð. Ég vildi frekar fá Iron Maiden eða AC/DC. Hins vegar tel ég að fáir mundu koma á tónleika með Frank Zappa eða Bruce Springsteen. Sérlega góður þáttur Kona hringdi og hafði eftirfar- andi að segja: — Mig langar til að þakka fyrir þáttinn um Nínu Tryggvadóttur í sjónvarpinu fyrra sunnudag. Einkum vil ég færa stjórnandanum, Hrafnhildi Schram listfræðingi, þakkir fyrir góð tök hennar á efninu. % Er þetta ekki rangt með farið? 1817-4952 hringdi og hafði eft- irfarandi að segja: — Ég er með hérna fyrir framan mig úrklippu úr Morgunblaðinu fimmtudag 12. þ.m., en þar er minnt á kaffi- sölu í nýja safnaðarheimilinu í Laugarnessókn. f þessum orðum er m.a. nefndur sr. Sigurbjörn Einarsson og hann titlaður bisk- up. Er þetta ekki rangt með far- ið, eftir að hann hefur látið af embætti og nýr biskup tekinn við? Átti ekki að standa þarna „fyrrverandi biskup"? Ég spyr, af því að ég hef tvisvar eða þrisvar heyrt þetta í útvarpinu, en aðeins einu sinni var það leið- rétt. Annað sem mig langaði að nefna er lagstefið sem leikið er milli þátta í fréttaflutningi út- varpsins. Mér finnst það þreyt- andi og óþarft, og ég veit að það finnst fleirum en mér. Þarna má aiveg hefja fréttalesturinn milli- liðalaust. Hrafnhildur Schram. Þetta var sérlega góður þáttur, sem vert væri að endursýna hið fyrsta. AC/DC GÆTUM TUNGUNNAR Spurt var: Fékkstu nokkuð góðgæti að borða? Rétt væri: Fékkstu nokkurt góðgæti að borða? Hins vegar væri rétt: Fékkstu nokkuð að borða? Einnig væri rétt: Fékkstu nokkuð gott að borða? Kraftverk snillinga eins og David Bowie, Kraftwerk, Brian Eno og jafnvel Iggy Pop og Mike Oldfield. I sambandi við þetta vil ég benda á, að David Bowie og hljómsveitin Kraftwerk hafa verið í fremstu röð í músíkinni, Bowie í nýbylgjunni og Kraftwerk í tölvu- tónlist. Bowie gaf t.d. út einhverja þá bestu nýbylgjuplötu, sem heyrst hefur, árið 1974, en það er platan Diamond Dogs. Sama ár gaf hljómsveitin Kraftwerk út hreint út sagt fyrsta nýjabrumið í tölvutónlist, þ.e. plötuna Auto- bahn, eina af þeim bestu, sem komið hafa út í þessum tónlist- arstíl. Platan var rökkuð niður af þýskum gagnrýnendum. Og það var ekki fyrr en sex eða sjö árum síðar, þegar þetta tónlistarform var búið að festa rætur í alþýðu- tónlist, að plötur Kraftwerk voru hafnar upp til skýjanna og sagðar listaverk. Það er líka þegar Gary Numan og Ultravox hafa fengið þann stimpil á sig að vera sagðir brautryðjendur í tölvutónlist. Þetta sýnir, hvað Kraftwerk hefur verið langt á undan sinni samtíð. Að lokum vil ég bæta því við, að það eru þessir aðilar sem geta tal- ist verðugir fulltrúar á listahátíð, því að það eru þeir sem ráðið hafa þróun þeirrar tónlistar, sem er hvað vinsælust í dag.“ Duran Duran og Michael Jackson á listahátíð Ingvar Leifsson, 12 ára, skrifar: „Velvakandi. Ég vil að Duran Duran og Michael Jackson komi á listahátíð. DD og MJ þyrftu að halda útitónleika hér á Is- landi vegna gífurlegra vinsælda þeirra. T.d. er Rio með DD uppseld í mörgum plötubúðum. P.s. Birtu einhverja flótta mynd af Michael Jackson." Þökk sé rúm- bestu versl- un landsins Helgi Steingrímsson skrifar: „Það hefur lengi verið aðalsmerki Velvakanda að ræða bæði jákvæð og neikvæð mál, og hér eru nokkrar jákvæðar línur. Fyrir nokkrum árum keyptum við parið hjónarúm, mjög vandað og flott. Síðan höfum við í þrígang þvælt því á milli íbúða, fyrir utan það að rispa það, t.d. með hjáliggj- andi barnarúmi. í bjartsýni okkar sögðum við framleiðendunum frá því, að farið væri að sjá á rúminu og það þyrfti smá aðhlynningu. Og þeir gerðu það ekki endasleppt við okkur. Ekki aðeins sóttu þeir rúmið heim til okkar, heldur gerðu það upp sem nýtt, komu með það aftur, settu það upp og harðneituðu að taka eyri fyrir vikið. Þökk sé rúmbestu verslun lands- ins.“ BROSTU! MYNDASÖGURNAR KOMA ÁnJVDRGUN Vikuskammtur af skellihlátri SÍMASKRÁNA íhlíföarkápu! Símaskráin er allsstaðar nauðsynleg. En eftir nokkra notkun vill hún verða snjáð. Stundum rifna blöð úr og þá geta skapast vandræði. Forðum því. Hlífðarkápan frá Múlalundi er lausnin. Endist ár eftir ár og er ódýr í þokkabót. Fæst í öllum bóka- og ritfangaverslunum Múlalundur Símar: 38400 - 38401 - 38405 og 38667

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.