Morgunblaðið - 27.05.1983, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. MAÍ 1983
47
Frímerkjasýning
í september
Svo sem venja hefur veriö um
allmörg ár, verður fr(merk|asýning
haldin í tengslum vlö 16. landsþing
Landssambands íslenzkra frí-
merkjasafnara. Bæöi sýning og
þing veröur haldiö í Hafnarfiröi í
september næstkomandi aö Dals-
hrauni 9B. Sýningin veröur opnuö
fimmtudaginn 22. sept. í sýn-
ingarsalnum Háholti og stendur til
sunnudagskvölds 25. sept. Sjálft
þingiö veröur haldiö aö morgni 25.
sept. Verður brátt unnið aö því aö
tilkynna aöildarfélögum L.Í.F. þetta
formlega.
Aö sjálfsögðu hefur væntanlegt
sýningarhald veriö ákveöiö fyrir
alllöngu og sýningarnefnd kosin.
Hefur hún þegar haldiö fundi og
rætt ýmis mál, sem sýninguna
varöar. Einkum er nefndinni í mun,
aö sem flestir safnarar innan vé-
banda L.Í.F., sem eiga sýningar-
hæft frímerkjaefni og hafa ekki
sýnt áöur, taki þátt í sýningunni í
haust. Þaö veröa líka síöustu for-
vöö fyrir samnorrænu frímerkja-
sýninguna NORDIU 84, sem haldin
veröur í júlímánuði 1984 hér í (
Reykjavik. Eins og safnarar vita,
þurfa söfn þeirra aö hafa hlotiö
silfurverölaun á innlendum sýning-
um eöa erlendum til þess aö veröa
talin hæf til sýningar á samnor-
rænum sýningum eða öörum sam-
bærilegum frímerkjasýningum.
Stjórn L.Í.F. veit mætavel, aö
þeir eru allmargir innan vébanda
sambandsins, sem eiga vel fram-
bærilegt sýningarefni og meira en
þaö. Þess vegna vill hún hvetja
SKAFTÁRELDAR 1781
FINNUR )Óm*Ök vtAK ACflCÍAR
ÍSLAND 1500
Frímerki
Jón Aöalsteinn Jónsson
endur til þátttöku í samkeppnis-
deild sýningarinnar, enda verður
þessi sýning síöasta tækifæriö fyrir
þá, sem hug hafa á þátttöku í sam-
norrænu sýningunni NORDIA 84,
til þess aö afla sér tilskilinna rétt-
inda til sýningar þar. Sem kunnugt
er þurfa sýnendur aö hafa fengiö
a.m.k. silfurverölaun fyrir söfn sín
á sýningu innanlands eöa erlendis
til þess aö öðlast rétt til þátttöku á
samnorrænni sýningu.
Til þess aö auka fjölbreytni sýn-
ingarinnar FRÍMERKI 83 mun sýn-
ingarnefndin reyna að fá til hennar
söfn erlendis frá.
Pósthús veröur opiö á sýning-
unni og í notkun þar sérstakur
stimpill meö mynd af húsi Bjarna
riddara, elsta húsi Hafnarfjaröar.
í tengslum viö sýninguna veröur
haldiö frímerkjauppboð þar sem
boöin veröa upp 300—350 númer.
Veröur sérstaklega vandaö til upp-
boðsefnisins.
Sérstök sýningarblokk verður
gefin út í takmörkuöu upplagi með
mynd af frímerki úr Alþingishátíð-
arseríunni frá 1930.
Merki sýningarinnar hefur Hálf-
dan Helgason gert.
safnara til þátttöku i FRÍMERKI 83,
en þaö nafn hefur væntanleg sýn-
ing hlotiö. Er það ekki lítiö atriöi
fyrir íslenzka frímerkjasafnara aö
sýna erlendum söfnurum — og þá
ekki sízt norrænum —, hvers viö
erum megnugir hér heima.
Nýlega samdi sýningarnefnd
FRÍMERKIS 83 fréttatilkynningu til
fjölmiöla. Sjálfsagt er aö birta
hana í þessum þætti, en hún hljóö-
ar svo:
„Dagana 22.-23. september í
haust gengst Landssamband ís-
lenzkra frímerkjasafnara (LÍF) fyrir
frímerkjasýningu undir nafninu
FRÍMERKI 83. Sýning þessi veröur
í tilefni af 16. landsþingi LÍF og
veröur hún haldin í sýningarsaln-
um Háholti aö Dalshrauni 9B t
Hafnarfiröi. Stjórn LÍF hefur kosiö
sýningarnefnd til undirbúnings
sýningarinnar og eiga eftirtaldir
menn sæti í henni: Siguröur R.
Pétursson, formaöur, Guömundur
Ingimundarson, Jón Egilsson, Jón
Aöalsteinn Jónsson, Páll H. Ás-
geirsson og Sverrir Einarsson.
Sýning þessi veröur meö hefö-
bundnu sniði, en þó í stærra lagi,
miöaö viö fyrri sýningar á vegum
LÍF. Er rúm fyrir allt aö 170 sýn-
ingarramma í salnum og stefnt að
því að fylla þá tölu. Veröur nú lögö
meiri áhersla en oft áöur aö fá sýn-
Að lokum vill sýningarnefndin
hvetja aila frímerkjasafnara til þess
aö taka þátt í sýningunni FRÍ-
MERKI 83 og afla sér réttinda til
aö mega sýna söfn sín á samnor-
rænu sýningunni NORDIA 84 i
Laugardagshöll sumarið 1984. Til-
kynningum um þátttöku skal koma
á framfæri viö sýningarnefnd og
munu nefndarmenn gefa allar nán-
ari upplýsingar.“
(Frétlatilkynning frá LÍF.)
Ekki er ástæða til að bæta
nokkru viö þessa tilkynningu fram
yfir þaö, sem hér hefur veriö gert
að framan. Mér er aöeins óhætt aö
segja þaö, aö sú er einlæg ósk
stjórnar L.Í.F., aö sem flestir ís-
lenzkir frímerkjasafnarar taki vel
undir beiöni hennar um þátttöku i
báöum þeim sýningum, sem
haldnar veröa hér á landi á næstu
14 mánuðum.
Færeysku „frímerkin“
verða ekki boðin upp
í þætti 29. f.m. var sagt frá fær-
eyskum „frímerkjum“, sem sloppið
höföu úr vörzlu færeysku póst-
stjórnarinnar 1980, eftir aö ákveö-
iö var aö eyöileggja þau vegna
mistaka viö prentun. Samkv. til-
kynningu póststjórnarinnar haföi
þetta gerzt af aögnzluleysl f sorp-
eyöingarstöð Þórshafnar. Haföi
Jörgen Junior, danskur frimerkja-
kaupmaöur, sem rekur uppboðs-
fyrirtæki í Sviss, fengiö stimpluö
eintök af þessum tveimur „frí-
merkjum" til uppboðs nú í júní og
auglýst þau alveg sérstaklega sem
mikiö fágæti.
Nú er Ijóst, aö færeyska póst-
stjórnin hefur komiö því í kring,
svo sem um getur í tilkynningu
hennar, aö þau hafa veriö „dregin
til baka“, því aö þeirra er ekki get-
iö í uppboðsskrá Jörgens Juniors,
sem nýlega hefur borizt hingað til
lands.
Ég hygg, aö frímerkjasafnarar
geti almennt fagnaö þeim málalok-
um. Aö mínum dómi og margra
annarra hafa safnarar um of sótzt
eftir þeim „frímerkjum", sem
sloppiö hafa úr höndum póst-
stjórna eöa kannski ekki siöur
prentsmiöja, þegar eyöileggja varö
upplag þeirra eöa hluta þess
vegna mistaka eða galla, sem
komið höföu fram viö prentun.
Vissulega hafa þess konar „merki"
aldrei haft nokkurt gildi sem kvitt-
un fyrir buröargjald og ættu þess
vegna ekki aö vera meira viröi en
pappírsins, sem í þeim er, og tæp-
lega þaö. Sama má í raun segja
um alls konar prentgalla og annað,
sem upp kemur viö mannleg mis-
tök. En söfnunareöliö er samt viö
sig, og margur hefur gefiö stórar
fúlgur fyrir þessa hluti. Auövitaö
getur oft veriö mjótt á munum,
hvar draga á mörkin hér á milli. Ég
lít svo á, að það, sem kallast á
erlendum málum „makulatur" og
notaö er i frímerkjamáli um úrkast
í prentsmiðjum og fariö hefur i
brennsluofna, ef eftir hefur veriö
tekiö í tæka tíö, eigi ekki aö vera
sérlega eftirsóknarvert. Annaö mál
getur raunar veriö um þaö, sem út
hefur farið og beinlínis veriö notaö
af póststjórnum til buröargjalds.
Nægir þar aö minna á frímerki
með öfug vatnsmerki, galla við
gröft merkja, sem komiö hefur
fram í ákveönu merki í örk o.s.frv.
Þetta eru allt viöurkennd afbrigði
og oft skrásett í veröskrám og
handbókum. Þó má vel segja, aö
þetta hafi allt oröið til fyrir mann-
leg mistök í upphafi.
Ný frímerki 8. júní nk.
Næstu frímerki Póst- og síma-
málastofnunarinnar eru væntanleg
8. júní, þ.e. eftir tæpan hálfan
mánuö. Eru þrjú frímerki á ferðinni
aö þessu sinni. Tvö þeirra eru
„helguö" fiskveiöum og aö verö-
gildi 1100 og 1300 (aurar). Eru þau
prentuö í Frakklandi meö stál-
stunguaöferö. Þriöja frímerkiö,
1500 (aurar), er minningarfrímerki
og prentaö í Sviss. Er þaö meö
mynd af málverki Finns Jónssonar
listmálara af Lakagígum og gefiö
út i tilefni þess, aö 200 ár eru liðin,
siðan mesta hraungos á íslandi
eftir landnám, úr Lakagígum,
hófst. Hefur þetta mikla hraun-
flæmi veriö nefnt Skaftárhraun eöa
Skaftáreldahraun. Eldgosiö hófst
einmitt 8. júní 1783, en þá var
hvítasunnudagur. Hefur Póst- og
símamálastofnunin því valiö þenn-
an mánaöardag til útgáfu þessa
frímerkis og fer vel á því. Segja má
aö vísu, aö útkoma „fiskveiöi-
merkjanna“ sama dag dragi nokk-
uö úr þeirri minningu, sem „Skaft-
áreldamerkiö" á aö vekja meö ís-
lendingum um þennan ógnarat-
burö í sögu þjóðarinnar. En þörf
póststjórnarinnar spyr ekki aö
siíku.
BÆTIEFNA
AFGREIDUM OG ÖKUM HEIM
ÖLLUM PÖNTUNUM.
SÍMI 71386.
T.GISLASON
skrúógaróyrkjumeistari
LÉTTUR, STERKUR OG VANDAÐUR.
EFNIÐ ER BRENNI.
VALINN VIÐUR.
SENDUM GEGN PÓSTKRÖFU
VALHÚSGÖGN
ÁRMÚLI4 SÍMI82275