Morgunblaðið - 01.07.1983, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 01.07.1983, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. JtJLÍ 1983 7 BANGSI Flytur aö Bankastræti 11 Bankastræti 11 Bankastræti 11 Bankastræti 11 Bankastræti 11 Bankastræti 11 Bankastræti 11 Bankastræti 11 Bankastræti 11 Bankastræti 11 Bankastræti 11 Opnum í dagl Ég vil þakka hjartanlega öllum þeim sem glöddu mig með heimsóknum gjöfum, blómum og heillaskeytum á 70 ára afmæli mínu. Guð blessi ykkur. . Lydia Knstofersdottir, Hjarðartúni 2, Ólafsvík. LETTVIN fyrir lítinn pening ÁMAN ÁRMÚLA 2 1 Combi Camp Alþjóðatengsl framsóknar Eins og lesendum Staksteina er kunnugt eru alþjóöatengsl Framsóknarflokksins forvitnilegt rannsókna- og íhugunarefni. Hefur oftar en einu sinni veriö vakið máls á þeim málum í Staksteinum og er gert enn í dag vegna þess aö ávallt bætast nýir þættir viö þessa furðulegu sögu. Framkvæmda- stjóri á „friðarþingi“ Haukur Ingibergsson, framkvæmdastjóri Fram- sóknarflokk.sins, sótti „friðarþing“ heimskomm- únismans sem haldið var í Prag á dögunum. Var hann þar fylgdarmaður nafna síns Hauks Más Haralds- sonar, formanns „íslensku friðarnefndarinnar", úti- bús heimsfriðarráðsins á íslandi, sem gegnir því hlutverki að veita mönnum fé til ferðalaga. Það skil- yrði er fyrir slíkum fjárveit- ingum að ferðirnar nýtist heimskommúnismanum áróðurslega með einum eða öðrum hætti. Er ekki að efa að vegur „íslensku friðarnefndarinnar" hefur vaxið við að geta lokkað framkvæmdastjóra Fram- sóknarflokksins á „friðar- þingið" í Prag. Haraldur Ólafsson, fyrsti varaþingmaður Framsóknarflokksins í Reykjavík, skrifaði um „friðarþingið" í Prag f Tímann á miðvikudag. Hann sagði meðal annars: „Fregnirnar frá „Friðar- þinginu" í l’rag eru þó ekki uppörvandi. IJndir slagorðum um eilífa tryggð við risaveldið í austri stendur einn fulltrúinn á fætur öðrum upp og ræðst með ókvæðisorðum á Bandaríkjamenn fyrir að undirbúa útrýminguna endanlegu. Og þeir sem biðja um frið og frelsi utan- hallt við ríkisrekinn frið- aráhuga, eru umsvifalaust teknir úr umferð.“ Ekki fer neinum sögum af þvf að þeir Haukur Ingi- bergsson og Haukur Már Haraldsson hafi verið „teknir úr umferð“ á „frið- arþinginu" í Prag. Með hliðsjón af niðurstöðu Har- alds Ólafssonar vaknar því spurningin um það, hvor þeirra hafi staðið upp til að ráðast á Bandaríkin og votta Sovétríkjunum holl- ustu. Væri æskilegt að niðurstaða fengist í því máli sem fyrst. Sambandið styrkt Sú árátta framsóknar- manna aö eigna sér fræga menn í útlöndum vekur verðskuldaða athygli enda er leikurinn til þess gerður. f hinu orðinu tala fram- sóknarmenn að vísu um sig sem séríslenskt fyrir- brigði án alþjóðlegra tengsla. Þetta á auðvitað ekki við um burðarás flokksins, SÍS, sem er virk- ur þátttakandi í alþjóðlegu samvinnustarfi eins og vera ber og hefur auk þess lagt sig undarlega mikið I fram um að rækta tengsli við Sovétríkin. Á meðan Ingvar Gíslason var menntamálaráðherra var hann formaður í afmælis- hátíðarnefnd til að efla tengslin við hið forstokk- aða einræðisríki kommún- ista, Búlgaríu. Með hlið- sjón af tengslum SÍS við Sovétríkin og Framsóknar- flokksins við Búlgaríu kemur í sjálfu sér ekki á óvart, aö framkvæmda- stjóri Framsóknarflokksins telji sér skylt að sækja „friðarþing" heimskomm- únismans í Prag. Hvers á páf- inn að gjalda? f tilefni af Póllandsferð Jóhannesar Páls páfa II ritaði Ingvar Gíslason grein í blað framsóknar- manna og SÍS á Akureyri, Dag, og er hluti hennar endurprentaður í Tímanum í gær. Ingvar vitnar í bandaríska vikuritið Newsweek sér til trausts og halds og segir: „Hann (páfinn, innsk. Mbl.) hefur opin augu fyrir ranglæti auðvaldsskipu- lagsins. f nýútkomnu hefti bandaríska fréttaritsins Newsweek fjallar greinar- höfundur að nafni Kenn- eth Woodward allýtarlega um stjórnmálaskoðanir páfa og viðhorf hans til launþegastéttar, ekki síst iðnverkafólks. Þar er augljóslega ekki verið aö lýsa viðhorfum aftur- haldsmanna. heldur félags- hyggjumanns og húman- ista. Woodward segir m.a. að páfi virðist hneigjast að „sósíalisma með sam- vinnusniði" (cooperative form of socialism), þar sem verkamenn eigi hlut í framleiðslutækjunum og hlutdeild í stjórn þeirra, jafnframt því sem ríkið tryggi réttláta skiptingu lífsnauðsynja ... Páfi bendir á kaldlyndi auð- hringanna og arðrán þeirra gagnvart verkalýð þróun- arlandanna og fordæmir þá efnahagsstefnu, sem við lýði er. m.a. í Bandaríkjun- um, Kanada og Bretlandi að tryggja hag atvinnu- rekstrar með stórfelldu at- vinnuleysi." í blöðum hins frjálsa heims birtist ógrynni af svona hugleiðingum og les- endur hljóta að velta því fyrir sér, hvaða tilgangi þær þjóni. Augljóst er, að fngvar Gíslason er að höföa til iönverkafólks hjá Sambandi íslenskra sam- vinnufélaga (SÍS) í fjöl- mennustu byggð kjördæm- is síns, Akureyri. Hann er aö árétta þá skoðun sem Tíminn hefur oftar en einu sinni boðað, aö Jóhannes l’áll páfi II sé framsóknar- maður! Eitt er þó víst: Páfi gengi aldrei í vináttufélag með harðstjórunum í Búlg- aríu. 2 útgáfur GC150 Háfættur fjallavagn, sem kemst um allt há- lendiö. Svefnpláss fyrir 4. Verð kr. 48.800.- CC 202 Lúxusútgáfan sem tek- ur viö af hinum vinsæla Easy. Svefnpláss fyrir 5—8. Gott farangursrými. (Tæst einnig meö 2 öxlum til fjallaferöa.) Verð kr. 64.900.- BENC0 Gengi 10/6 ’83 Bolholti 4, sími 91-21945/84077. WISAPANEL Rasaður krossviöur til inni- og útinotkunar líxtqcfincfcivörucerzluni^^ Þykkt 10 mm. Stærö 121x250 cm. Finnsk gæðavara á hagstæðu vorði BJORNINN Skúlatúni 4. Simi 25150. Reykiavík

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.