Morgunblaðið - 01.07.1983, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 01.07.1983, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. JÚLÍ1983 Mál póst- og símstöðvarstjórans á Reyðarfirði: Sýknaður í Hæstarétti NÝLEGA var kveðinn upp Hæstaréttardómur í máli því sem Póst- og símamálastofnunin höfðaði gegn Arnþóri Þórólfssyni, fyrrum póst- og sím- stöðvarstjóra á Reyðarfirði. Mál þetta var höfðað með stefnu birtri 8. nóvember 1977 vegna ætlaðrar óreiðu á sjóði stöðvarinnar. í aukadómþingi Suður-.Múlasýslu 8. maí 1980 var Arnþór sýknaður af kröfu Póst- og símamálastofnunarinnar og þessi dómur var staðfestur af Hæstarétti 6. júní síðastliðinn. í dómi Hæstaréttar segir svo m.a.:„Af gögnum málsins er ljóst, að óregla hefur verið á fjármálum Póst- og símstöðvarinnar á Reyð- arfirði á þeim tíma, sem máli skiptir. Á hinn bóginn er ekki sannað, að áfrýjandi (þ.e. Póst- og símamálastofnunin) hafi beðið fjárhagslegt tjón af þessum sök- um, en gögn þau, sem færð hafa verið fram af hans hálfu tjóni sínu til sönnunar, eru um margt ófullkomin. Samkvæmt því og að öðru leyti með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms, sem ekki hef- ur yerið gagnáfrýjað, ber að stað- festa hann.“ Forsaga máls þessa er í stórum dráttum sú, að Arnþór Þórólfsson veitti Póst- og símstöðinni á Reyðarfirði forstöðu frá árinu 1967 og allt fram á mitt ár 1975. þá var honum vikið úr starfi vegna ætlaðrar óreiðu á sjóði stöðvarinnar, en samkvæmt skýrslu endurskoðenda Póst- og símamálastofnunarinnar vantaði kr. 841.994.00 gkr. í sjóð stöðvar- innar. Með bréfi dagsettu 8. sept- ember 1975 veitti póst- og síma- málastjórnin Arnþóri því lausn frá starfi um stundarsakir og til- kynnti jafnframt að óskað yrði eftir opinberri rannsókn á máli hans. í október sama ár hófst saka- dómsrannsóknin og voru öll gögn þeirrar rannsóknar lögð fram í máli því sem hér greinir frá, §n í munnlegum málflutningi fyrir Hæstarétti kom fram, að opinbert mál hefur ekki verið höfðað gegn Arnþóri eftir þá sakadómsrann- sókn sem fram fór á árinu 1975. Með bréfi í desember 1975 til- kynnti síðan póst- og símamála- stjórnin Arnþóri, að dómsrann- sóknin hefði leitt í ljós ýmsar yf- irsjónir og vanrækslu í starfi, þess eðlis, að ekki væri rétt að hann gegndi starfinu áfram. Var honum sagt upp starfinu frá dagsetningu bréfsins að telja. Póst- og símamálastofnunin hélt því ekki fram í málinu, að Arnþór hefði dregið sér fé úr sjóði stöðvarinnar, heldur að sjóðsmis- munurinn hafi stafað af van- rækslu og eftirlitsleysi með starf- semi stöðvarinnar sem hann bæri ábyrgð á. Húseign Arnþórs var kyrrsett að kröfu Póst- og síma- málastofnunarinnar til trygg- ingar stefnufjárhæðinni. Arnþór hélt því fram, að ekki bæri að skoða skýrslu endurskoð- enda Póst- og símamálastofnun- arinnar sem opinbert vottorð, enda væru þeir starfsmenn stefn- anda og að hann hefði aldrei haft tækifæri til að fara yfir reikn- ingsuppgjörið með nauðsynleg gögn við hendina. Þá hélt hann því fram að fjárdráttur væri ekki sannaður og reyndar hefði ekki verið reynt að sanna hann. Hann hafi verið frá vinnu vegna veik- inda frá því í apríl 1975 og fram í ágúst það ár og því ekki óhlýðnast fyrirmælum stefnanda á þeim tíma og geti því ekki borið ábyrgð á sjóðsvöntuninni. í héraðsdómi var komist svo að orði m.a.: „Af gögnum málsins verður greinilega ráðið, að van- rækt hefur verið á umræddum tíma að halda reglulega þær bæk- ur á símstöðinni á Reyðarfirði sem halda bar. Vitna greinargerð- ir endurskoðendanna skýrast um þetta. Endurskoðendurnir fram- kvæmdu talningu á sjóði stöðvar- innar og gerðu reikninga hennar upp þrisvar sinnum á árinu 1975 og í öllum tilvikum kom fram óskýranlegur mismunur á sjóði stöðvarinnar." Þá sagði í héraðs- dóminum að skýrslur endurskoð- endanna séu þó ekki fullnægjandi sönnun um stöðu sjóðsreiknings- ins, vegna þess, hve bækur voru óreglulega haldnar. Einnig segir í héraðsdómi að Arnþór hafi fengið leyfi yfirboð- ara síns til þess að ráða mann til aðkallandi verkefna á meðan hann fór á sjúkrahús í aprílmán- uði 1975. Þeirri fullyrðingu hans, að hann hafi síðan ekki komið til starfa, hafi ekki verið hnekkt, þótt sýnt hafi verið fram á, að hann undirritaði nokkrar ávísanir stöðvarinnar í maí, júní og júlí þetta ár. Loks sagði í héraðs- dómnum: „Sýnt er, að stefndi van- rækti fyrirskipaðar og lögboðnar bókhaldsfærslur stöðvarinnar áð- ur en hann leitaði læknis í apr- ílmánuði og ber skýrsla starfs- manna ríkisendurskoðunar í þeim mánuði um það glöggt vitni. Eftir gögnum málsins virðist sjóðs- vöntun þó ekki koma fram fyrr en við uppgjörið í júlí mánuði. Áður hafði óskýranlegur mismunur komið fram við talningu í apríl og júní-mánuðum, sem yfirboðurum stefnda mátti vera um kunnugt svo og um vanrækslu hans við bókhaldsfærslur og loks var kunnugt um, að hann varð veikur í aprílmánuði og frá störfum af þeim sökum. þegar framan rakið er virt, þykir stefnandi (þ.e. Póst- og símamálastofnunin) verða að bera hallann, af því að ekki liggja fyrir fullnægjandi gögn um tjón hans og ber þegar af þeirri ástæðu að sýkna stefnda af kröfu stefnanda út af vöntun í sjóð stöðvarinnar." Jafnframt var löghaldsgerðinni á húsi Arnþórs úr gildi felld. Sem fyrr getur var hérðasdómurinn staðfestur í Hæstarétti. Morgunblaðið/ RAX Slys af völdum dráttarvéla eru mjög tíð, á árunum 1970—1981 urðu til dæmis að meðaltali tvö dauðaslys á ári af þeirra völdum. Úr bæklingi sem Vinnueftirlitið hef- ur látið prenta og hefur verið dreift til allra bænda í landinu. Eftirlit með landbúnað- arstörfum að hefjast VINNUEFTIRLIT ríkisins mun í sumar hefja leiðbeiningarstarf og eftirlit með aðbúnaði, hollustuháttum og öryggi við landbúnaðarstörf. í fréttatil- kynningu frá Vinnueftirlitinu segir, að í sumar muni eftirlitsmenn Vinnueftirlitsins heimsækja nokkurn fjölda býla í hverjum landshluta, rúm- lega þrjú hundruð býli alls. Þetta er í fyrsta skipti sem slíkt eftirlit er framkvæmt á sveitabýl- um, en það var ekki fyrr en með lögunum um aðbúnað, hoilustu- hætti og öryggi á vinnustöðum, sem gengu í gildi fyrir tveimur og hálfu ári síðan, að landbúnaður féll undir slíka löggjöf. í framtíð- inni er stefnt að því að taka upp reglubundið eftirlit með öllum bændabýlum landsins. Til að byrja með verður megin- áherslan lögð á dráttarvélar og tæki tengd þeim, en reynslan sýn- ir að slys af völdum þessara véla eru mjög tíð, þannig hafa á árun- um 1970—1981 orðið 20 dauðaslys af þessum sökum. Jafnframt verð- ur bændum bent á ýmis önnur at- riði sem horfa til aukins öryggis og bættra hollustuhátta, en margt bendir til að atvinnusjúkdómar í öndunarfærum séu algengari með- al bænda en annarra starfsstétta. Má þar t.d. nefna heymæði. Til að hrinda þessu starfi af stað hefur Vinnueftirlitið sent öll- um bændum á landinu sérstakt kynningarbréf, með ráðleggingum um varnir gegn slysum og atvinnusjúkdómum, auk litprent- aðs bæklings um öryggi við notk- un drifskafta sem Vinnueftirlitið hefur nýverið gefið út. í leiðbein- ingum þessum er drepið á nokkur atriði sem bændur ættu daglega að hafa í huga til að fyrirbyggja slys og sjúkdóma af völdum at- vinnu þeirra, s.s. hlífðarbúnað bú- véla, meðferð varhugaverðra efna, frágang bygginga og mannvirkja, vinnu ungmenna og skyldur bónd- ans í þessum efnum. Skv. reglugerð sem sett er á grundvelli vinnuverndarlaganna frá 1980, starfar sérstök stjórn vinnueftirlits í landbúnaði. f henni eiga sæti einn fulltrúi til- nefndur af Stéttarsambandi bænda, einn tilnefndur af Búnað- arfélagi fslands og tveir tilnefndir af stjórn Vinnueftirlitsins, auk stjórnarformanns þess sem jafn- framt er formaður stjórnarinnar. Það er von Vinnueftirlits ríkis- ins að gott samstarf megi takast með stofnuninni og bændum um að vinna að þessu markmiði. Opinbert eftirlit, hversu öflugt og vel mannað sem það kann að vera, getur ekki komið í stað árverkni og samviskusemi þeirra sem stjórna verkunum á vinnustað og þeirra sem verkin vinna. „Leikfangið“ í Stjörnubíói STJÖRNUBÍÓ frumsýnir í dag bandarísku gamanmyndina „Leik- fangið“. Myndin fjallar um atvinnu- lausan blaðamann sem ræður sig í starf þvottakonu í stórverslun en er snarlega tekin úr því starfi þegar sonur verslunareigandans kemur í heimsókn og fær að velja þaö sem hann langar í úr búðinni. Með aðalhlutverk fara þeir Richard Pryor og Jackie Gleason ásamt Scott Schwarz, sem leikur drenginn. Tónlistin í myndinni er samin af Patrick Williams en leik- stjóri er Richard Donner. Minning: Ágúst A. Snæbjörns- son fv. skipstjóri Fddur 8. apríl 1909. Dáinn 15. júní 1983. Ágúst Snæbjörnsson, Dalbraut 25, Reykjavík, lést í Borgarspítal- anum miðvikudaginn 15. júní sl., 74 ára að aldri. Ágúst var fæddur í ólafsvík 8. apríl 1909. Foreldrar hans voru Ólöf Jónsdóttir og Snæbjörn Bjarnason skipstjóri. Hann fórst með báti sínum, Hersi frá Reykja- vík, í fiskiróðri frá Sandgerði árið 1919. Þau hjón áttu fjögur börn: Ágúst, sem hér er minnst og þrjár dætur, Margréti, Jónínu og Bjarn- ínu. Ólöf giftist síðar Þorgrími Guðnasyni, Miðengi í Garði, og áttu þau fjögur börn. Ólöf lést 1. júlí 1946. Ágúst kvæntist eftirlifandi konu sinni, Fríðu Zakkariu. Hún er af færeyskum ættum. Móðir hennar var Elsebet og faðir Hans Jakob. Þau bjuggu á Asgir í Þórshöfn. Hans stundaði sjó við fsland á yngri árum, en síðar á ævinni vann hann við síldarsöltun á Siglufirði á sumrin. Hann var mörgum íslendingum að góðu kunnur. Börn þeirra Ágústar og konu hans eru: Elsa, fædd 2, mars 1939, Snæbjörn O., vélstjóri, fæddur 23. maí 1940 og Ágúst S., múrari, fæddur 8. apríl 1948. Öll eiga þau góð og myndarleg börn, sem voru hænd að afa og ömmu, ekki síst ainafni hans. Um fermingaraldur fór Ágúst í vegavinnu sumartímann en næsta vetur á bát á vetrarvertíð og varð hans ævistarf upp frá því sjó- mennska. Tvítugur að aldri tók Ágúst skipstjórapróf, hið minna. Árið 1946 fór Ágúst í Sjómanna- skólann og lauk skipstjóraprófi hinu meira (öldungnum) með ágætum. Árið 1931 byrjaði Ágúst for- mennsku og reri frá Sangerði á mb. Trausta frá Gerðum. Utgerð- armaðurinn var hinn síðar þjóð- kunni útgerðarmaður, Finnbogi Guðmundsson, og mun þetta hafa verið hans fyrsta útgerð. Þar á eftir var Ágúst með mb. Kára fyrir Sveinbjörn Árnason frá Kothúsum í Garði, og þar næst mb. Stakk fyrir hinn kunna út- gerðarmann, Óskar Halldórsson. Ollum þessum bátum reri Ágúst frá Sandgerði og vegnaði vel á þá alla. Ég var öllum fyrrnefndum útgerðarmönnum vel kunnugur og veit að þeir áttu til hans hreina tryggð og vináttu meðan þeir lifðu. Árið 1942 kom Ágústi og undir- rituðum saman um að reyna að eignast eigin útgerð. Þá höfðum við hvorugur átt bát áður. Skipið sem við keyptum, 22ja tonna bátur, kölluðum við „Örn“ . Ágústi vegnaði vel á bátnum. Þetta var á miðjum stríðsárun- um sem fyrr er getið. Okkur kom saman um að selja þennan bát og kaupa annan stærri. Við kölluðum hann Ingólf Arnarson. Ágúst var með hann þann bát í 6 ár. Hann aflaði vel að vanda, en á þessum árum varð mörgum útgerðin þung

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.