Morgunblaðið - 01.07.1983, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 01.07.1983, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR1. JÚLÍ 1983 Lensidælur Lensi- og sjódælur fyrir smábáta meö og án flot- rofa. 12 og 24 volt. Einnig vatnsdælur (brunndælur) fyrir sumarbústaöi, til að dæla út kjöllurum o.fl. 220 volt. Mjög ódýrar. Atlas hf Armula 7. simi 26755. Reykjavik LEGUKOPAR Legukopar og tóörlngar- efni í hólkum og heilum stöngum. Vestur-þýzkt úrvals efni. Atlas hf Armúli 7 — Simi 26755. Póstholf 493, Reykjavík WAGNER- sjálfstýringar Wagner-sjálfstýringar, komplett meö dælusettum 12 og 24 volt, kompás og fjarstýringum fram á dekk, ef óskaö er, fyrir allar stæröir fiskiskipa og allt niöur í smá trillur. Sjálf- stýringarnar eru traustar og öruggar og auöveldar í uppsetningu. Höfum einn- ig á iager fiestar stæröir vökvastýrisvéla. Hagstætt verð og greiösluskilmálar. Atlas hf Ármúli 7 — Sími 26755. Pósthólf 493, Reykjavík Hvalveiðibannið ekki á rökum reist Tókíó, 30. júní. AP. JAPANSKIR umhverfisverndarmenn hafa efnt til ráðstefnu í Tókíó, þar sem tekin voru til meðferðar hin vísindalega, efnahagslega og umhverfis- lega hlið hvalveiða. í hópi þeirra, sem ráðstefnuna sitja, eru háskólakenn- arar, menn frá rannsóknastofnunum og embættismaður frá hvalveiðiborg- inni Trichi. Þá er einn rithöfundur á meðal þátttakenda. Það er álit ráðstefnumanna, að andmælin gegn hvalveiðum frá ýmsum öðrum umhverfisvernd- araðilum í Japan og öðrum lönd- um, einkum Bandaríkjunum, „séu ekki byggðar á föstum, vísinda- legum grundvelli". Sem kunnugt er, þá hefur Alþjóðahvalveiðiráð- ið samþykkt að banna allar hval- veiðar og á bannið að ganga í gildi 1986. Ef bannið verður látið ná til Japans, eiga 50.000 starfsmenn japanska hvaliðnað- arins eftir að missa atvinnuna. Japan hefur ásamt Sovétríkj- unum, Noregi og Perú mótmælt samþykkt Alþjóðahvalveiðiráðs- ins frá því í apríl 1982 og eiga Reagan og Carter: Alríkislögreglu falin rannsókn Washington, 30. júní. AI*. BANDARÍSKU alríkislögregl- unni hefur verið falið að rann- saka hvernig aðstoðarmönnum Ronald Reagans, Bandaríkja- forseta, áskotnuðust undirbún- ingsgögn Jimmy Carters fyrir kappræðufund þeirra í kosn- ingabaráttunni 1980. Banda- ríska dómsmálaráðuneytið til- kynnti um rannsóknina í dag. Ákvörðunin ber þess vitni að bandarískum yfirvöldum er mjög áfram um að komast til botns í málinu sem fyrst og sagði talsmaður dómsmálaráðu- neytisins, Tom Decair, í dag, að formleg rannsókn hefði verið hafin þegar á miðvikudagskvöld. Fulltrúi alríkislögreglunnar, Reagan Carter Lane Bonner, segir, að ekki hafi verið ákveðið í smáatriðum hvernig rannsókninni verði hátt- að, en dómsmálaráðuneytið mun að jafnaði fara þess á leit við alríkislögregluna að hún taki viðtöl í klögumálum sem til kasta þess koma. Engin opinber skýring hefur verið gefin á hvers vegna svo kröftuglega er á málinu tekið í byrjun, en Reagan mun hafa óskað eftir að dómsmálaráðu- neytið fylgdi málinu.eftir. Japanir það nú á hættu að missa fiskveiðiréttindi sín innan 200 mílna landhelgi Bandaríkjanna, þar sem bandaríska stjórnin hef- ur lýst yfir þeim ásetningi sínum að skera niður fiskveiðikvóta Japana innan bandarískrar land- helgi, neiti Japanir að virða sam- þykkt ráðsins. Veður víða um heim Akureyri Amsterdam Aþena Barcelona Berlín Brussel Buenos Aires Chicago Oyflinni Feneyjar Frankfurt Faereyjar Genl Helsinki Jerúsalem Jóhannesarborg Laa Palmas Líssabon London Los Angeles Madrid Malaga Mallorca Miami Moskva New York Osió Paris Reykjavík Róm San Francisco Stokkhólmur Tókýó Vancouver Vín 15 lóttakýjaó 17 rigning 31 heióskírt 24 mistur 22 skýjaó 19 skýjaó 12 heióskírt 26 skýjaó 16 skýjað 24 heióskírt 20 rigning 9 alskýjaó 22 heióskirt 16 skýjaó 29 heíðskírt 16 heióskirt 23 skýjaó 31 heiðrfkt 19 skýjaó 25 rigning 32 heióskirt 26 mistur 27 lóttskýjaó 30 rigning 25 skýjaó 27 heióskírt 20 rigning 21 skýjaó 12 skýjaó 29 heiðskirt 19 heiöskírt 19 skýjaó 26 skýjaó 21 skýjað 23 skýjaó Færri fá atvinnu- leysis- styrk London, 30. júní, AF. FJÖLDI þeirra, sem njóta atvinnu- leysisstyrks í Bretlandi, minnkaði aöeins í júnímánuði og var nú 2.983.921 eða 12,5% í stað 3.049.351 eða 12,8% í maí. Var frá þessu skýrt af hálfu brezka atvinnumálaráðu- neytisins í dag. Ráðuneytið viðurkenndi samt, að við hina opinberu tölu þeirra, sem atvinnuleysistyrk þiggja, megi bæta 128.433 manns, sem luku skólanámi í þessum mánuði og vantar vinnu, en hafa ekki rétt til þess að sækja um atvinnuleys- isstyrk fyrr en í september nk. Sovézk njósna- bauja Providence, Rhode Island, 30. júní. AP. BAUJA, sem bar áletrunina „USSR, Academy of Science“ og sjómenn fundu fyrr á þessu ári fyrir utan austurströnd Banda- ríkjanna, hefur rcynzt vera sov- ézkt njósnatæki, sem beint var að kafbátum. Skýrði blaðið The Providence Journal frá þessu í dag og kveðst hafa eftir áreiöan- legum heimildum, að bauja þessi hafi verið sett á flot í því skyni að safna upplýsingum um banda- ríska kafbáta, sem kæmu til hafnar í Groton í Connecticut. Bauja þessi var flutt á land í marz sl., eftir að hún hafði komið í vörpuna hjá togara, sem var að veiðum fyrir utan Block Island. Samkvæmt frá- sögn The Providence Journal var baujan búin tækjum til þess að hlera öll hljóð, sem bárust frá kafbátum og senda þessar upplýsingar frá sér sennilega til skipa í nágrenni eða gervihnatta. ftalía: Vill stjórn mið- og vinstriflokka — sem njóti stuðn- ings kommúnista Róm, 30. júní. AP. RINO FORMICA, einn af forystu- mönnum ítalskra jafnaðarmanna, hvatti í dag kristilega demókrata, stærsta stjórnmálaflokk landsins, til þess að fallast á samsteypustjórn mið- og vinstri flokkanna í landinu, sem nyti stuönings kommúnista á þingi. Stjórn þessi hefði umboð til þess að stjórna landinu í að minnsta kosti þrjú ár og hæfist strax handa við að leysa aðsteðjandi vandamál landsins, sem þyldu enga bið, og þá fyrst og fremst efnahagsmálin. Formica, sem af mörgum er tal- inn hægri hönd Bettino Craxi, leiðtoga jafnaðarmanna, bar fram áskorun sína í viðtali við blaðið „La Republica", sem er vinstri sinnað. Engin viðbrögð komu í dag fram við áskorun Formica, hvorki af hálfu kristilegra demókrata ná af háifu kommúnista. Jafnaðar- menn telja sig vera í lykilstöðu varðandi myndun nýrrar stjórnar á Ítalíu, þar sem kristilegir demó- kratar neita að vinna með komm- únistum, sem eru næst stærsti flokkur landsins. „Sú stjórn, sem á eftir að taka við, verður að njóta stuðnings kommúnista," segir Formica í viðtalinu við La Repu- blica.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.