Morgunblaðið - 01.07.1983, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 01.07.1983, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. JÚLÍ 1983 31 Kemur Bogdan ekki?: Hefur enn ekki fengið leyfi BOGDAN Kowalzcyk hefur enn ekki fengiö leyfi frá pólsk- um yfirvöldum til að koma hingað til lands í haust og ger- ast þjálfari íslenska landslið- sins í handknattleik. Morgunblaðiö hefur það eftir áreiðanlegum heimildum að bréf sem berast átti til Póllands frá Handknattleikssambandinu hafi ekki borist þangað í tæka Jafnt í Firðinum FH-INGAR geröu jafntefli viö Njarövíkinga í Hafnarfiröi í 2. deild íslandsmótsins í fyrrakvöld. Njarövikingar skoruöu fyrsta markiö og var þaö Ólafur Björns- son sem þaö geröi á fyrstu mín. leiksins. Hafnfiröingum tókst aö jafna skömmu síöar og var þaö Jón Erling Ragnarsson sem sá um aö skora, en þaö stóö ekki lengi, því Njarövíkingar komust aftur yfir meö marki Hauks Jóhannssonar. Helgi Ragnarsson tryggöi FH síðan jafntefii þegar hann skoraöi á 55.min. Fleiri uröu mörkin ekki í þessum leik þrátt fyrir nokkur sæmileg færi. SUS • Billy McNelll McNeill til City BILLY McNeill, framkvæmdastjóri skoska stórliösins Celtic síöustu sex árin, skrifaði í gær undir þriggja ára samning viö Manchester City í Englandi, sem féll niöur í 2. deíld í vet- McNeill sagöi á blaöa- mannafundi í Manchester í gær aö þaö væri auövitað viss söknuöur aö fara frá Celtic, en bætti við: „Þaö heföi vantað eitthvaö í knattspyrnulíf mitt ef ég heföi ekki reynt mig í ensku knattspyrnunni.“ „Þaö verður ekkert nýtt fyrir mig aö reyna aö koma City út úr skugga Manchester United," sagöi hinn 42 ára gamli McNeill í gær. Hann kannast viö ríginn úr fótbolt- anum milli Celtic og Rangers í Glasgow. tíð, hvort sem það var sent of seint, eða hver ástæðan er, og Bryndís færði UBK sigur Breiöablik sigraöi ÍA 1:0 í 1. deild kvenna á Akranesí í gær- kvöldi, og eru Blikastelpurnar því einar í efsta sæti deildarinnar, hafa unnið alla leiki sína, fjóra aö tölu. KR er í öðru sæti meö sex stig eftir fjóra leiki. Bryndís Einarsdóttir geröi eina mark leiksins í gærkvöldi úr víta- spyrnu í fyrri hálfleik, sem dæmd var er ein úr liöi ÍA handlék knött- inn. Blikarnir voru heppnir aö sleppa meö sigur á Skaganum þvi heima- stúlkurnar fengur nokkur mjög góö tækifæri til aö jafna metin en tókst ekki aö skora. Staðan er nú þannig í 1. deild kvenna: Breíðablik 4 4 0 0 9:2 8 KR 4 2 2 0 8:2 6 ÍA 4 12 1 6:3 4 Valur 4 1 2 1 6:3 4 Víkingur 4 1 0 3 2:10 2 Víöir 4 0 0 4 3:14 0 Hjólreiðakeppni Hjólreiðafélag Reykjavíkur heldur hjólreiðakeppni laugar- dagínn 2. júlí í minningu Guö- mundar Baldurssonar sem var einn af frumkvöölum hjólreiöa- íþróttarinnar hér á landi, en hann lést í umferöarslysi 1982. Keppni þessi hefst við íþrótta- húsiö í Keflavík kl. 10 f.h. og end- ar við Kaplakrikavöll í Hafnarfiröi. Keppt veröur í þrem flokkum 13—14 ára, 15—16 ára og 17 ára og eldri. Þátttökugjald er kr. 150 fyrir félagsmenn og 200 fyrir aöra. Skráning keppenda fer fram kl. 9.30 viö rásmark. Staðan VEGNA þrengsla ( blaðinu kom- um viö stööunni (1. deild ekki inn í blaöið (gær en hún er nú þessi: ÍBV 8 4 2 2 15—7 10 ÍA 8 4 13 12—5 9 UBK 8 3 3 2 7—5 9 KR 8 2 5 1 8—9 9 Valur 8 3 2 3 13—15 8 ÍBÍ 8 2 4 2 8—10 8 Þór 8 15 1 8—9 7 Þróttur 8 2 3 3 9—13 7 Víkingur 7 1 4 2 5—7 6 ÍBK 7 2 1 4 8—13 5 Næstu leikir í 1. deild veröa á morgun en þá leika ÍA og Þróttur á Akranesi og hefst hann kl. 14.30. Á ísafirði leika ÍBÍ og ÍBK og hefst leikurinn kl. 14. Á sama tíma leika í Kópavogi UBK og Þór en Víkingur og Valur leika í Laug- ardalnum kl. 16. hefur það því tafist að Bogdan fái tilskilin leyfi til að koma hingað til lands. Bogdan á að koma til lands- ins 2. ágúst næstkomandi, en eins og málið stendur nú, gæti farið svo að þaö dragist eitt- hvað. Illar tungur segja að Pólverj- ar séu ekkert á því að hleypa Bogdan hingað til lands, heldur vilji hafa hann heima og nýta krafta hans í handboltanum þar í landi. Fyrir hönd íslensks handknattleiks verður að vona að ekki verði af því. Það ætti að skýrast á næstu dögum hvort Bogdan kemur eða ekki, það er sem sagt ekki öruggt ennþá, því miður. — SH • „Come on, let’s twist again.“ Leikmenn Fylkis og Víöis taka sporiö í gærkvöldi. Morgunblaðið/ KÖE Oheppnin eltir Fylkismenn „ÞETTA ER lélegasti leikur okkar í sumar og ég heföi þakkaö fyrir annaö stigið miöaö viö gangs leiksins," sagöi Haukur Haf- steinsson þjálfari Víöis eftir aö hans menn höföu sigraö Fylki, 4—2 í 2. deildinni. Fylkismenn voru betri aöilinn í leiknum, þeir spiluöu oft á tíöum skemmtilega saman en voru alltof seinir aö losa sig viö boltann en þaö er algjör óþarfi fyrir þá því þeir eru meö mjög netta spilara og ættu að geta veriö fljótari aö senda knöttinn. Víöismenn eru meö mjög fljóta menn og eru þeir sérstaklega fljót- ir aö breyta vörn í sókn meö löng- Einherji áfram EINHERJI vann Val, Reyöarfirói, í bik- arkeppninni, 5—2, i Vopnafiröi í gær- kvöldi. Kristján Davíðsson, Ólafur Ár- mannsson, Páll Björnsson, Gísli Davíös- son og Vigfus Davíösson skoruöu fyrir heimamenn, en Gustaf Ómarsson og Sigmar Methúsalemsson fyrir Val. Ein- herji mætir KR í 16-liöa úrslitum. Oli Ben aftur í Val ÓLAFUR Benediktsson, fyrrum landsliðsmarkvöröur ( hand- knattieik, hefur nú tilkynnt félagaskipti yfir í sitt gamla félag, Val, en undanfariö hefur hann leikið með Þrótti. Frágengið með Laudrup NU hefur veriö endanlega gengið frá því aö Michael Laudrup, Dan- inn ungi, veröi lánaöur til Lazio næsta keppnistímabil, en eins og kunnugt er þá keypti Juventus hann frá Brendby fyrir skömmu. Laudrup sagöi eftir aö þetta var um sendingum og eftlr aö þeir byrjuöu aö nota kantana í síöari hálfleik þá gekk dæmiö upp hjá þeim. Fyrsta mark leiksins skoraði Jón Guömundsson fyrir Fylki og var þaö eina mark fyrri hálfleiks. Því- næst skora Víöismenn þrjú mörk, fyrst Baldvin Gunnarsson og síöan Jónatan Ingimarsson og loks Guö- mundur Knútsson. Annaö mark Fylkis skoraöi Sighvatur Bjarnason meö skalla eftir hornspyrnu en Jónatan, sem kom inn á sem vara- maöur, skoraöi síöasta mark leiks- ins á loka mínútunni. Dómari var Magnús Jónatansson.og var hann mjög góöur. orðið Ijóst aö hann teldi sig hafa gott aö því aö leika meö Lazio eitt keppnistímabil og venjast þannig ítölskum fótbolta, og einnig aö hann hlakkaöi mikiö til aö leika meö mönnum eins og Batista frá Brasilíu, en hann var keyptur á dögunum til Lazio. Gréta græðir í götuhlaupunum Norska hlaupadrottningin Gréta Waitz hefur gert þaö gott á hlaupabrautinni í áratug, og um helgina gildnuöu sjóöir hennar enn frekar er hún hlaut 10 þúsund dollara aö launum fyrir sigur í götuhlaupi í Port- land í Oregon-ríki Bandaríkj- anna. Varla eru haldin þau götuhlaup í Bandaríkjunum aö ekki séu há- ar fjárupphæðir í verölaun, allt niður í 10. sæti, en peningana veröa íþróttamennirnir aö af- henda landssambandi sínu til vörzlu þar til þeir hætta keppni, ellegar yröu þeir úrskuröaöir sem atvinnumenn og útiiokaöir frá frekari keppni. Mega þeir þó draga úr þessum sjóöum útlagö- an kostnað vegna æfinga- og keppnisferöa, samkvæmt tiltölu- lega nýlegum samþykktum Al- þjóöafrjálsíþróttasambandsins. Nú er einnig farið aö hafa pen- ingaverölaun í boöi á frjáls- íþróttamótum í Evrópu og víöar, auk þess sem greiddur er góöur þátttökueyrir, en hingaö til hafa greiðslur undir boröið veriö stundaöar í mjög stórum stíl, þar sem mótshaldarar hafa veriö fegnir aö borga þeim beztu fleiri þúsund dollara fyrir aö mæta til leiks. Gréta hefur á síðustu árum fariö oft til Bandaríkjanná til þátttöku í götuhlaupum og haft vel upp úr, því sigursæl hefur hún veriö meö eindæmum, m.a. margsinnis sigraö í New York- • Grota Waitz maraþonhlaupinu. Hún er einnig fimmfaldur heimsmeistari i víöa- vangshlaupi. Hún keppir vestra um næstu helgi í 10 km götu- hlaupi í Atlanta og bætir eflaust í budduna þar. í hlaupinu í Oregon varö danska stúlkan Dorthe Rass- mussen í ööru sæti, 25 sekúnd- um á eftir Waitz, og hlaut 5000 dollara fyrir vikiö. Hlaupiö var 15 kílómetrar aö lengd, hljóp Gréta á 49:50 og Rassmussen á 49:15 mín. — ágás. Vörumarkaðurinnhf

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.