Morgunblaðið - 01.07.1983, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 01.07.1983, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR1. JÚLÍ1983 Landsbanki íslands hefur opnað nýtt útibú á Patreksfirði, Aðalstræti 75, sími: 94-1314. Útibúið veitir alla almenna bankaþjónustu, innlenda og erlenda. A fgreiðslutími: Mánudaga til föstudaga kl. 9.15 til 12.30 og kl. 13.30 til 16.00. LANDSBANKtNN Banki allra landsmanna Boðsmót Tafl- félags Rvíkur Skák Jóhannes Gísli Jónsson í fyrri viku lauk hinu árlega boðsmóti Taflfélags Reykjavfkur. Mót þetta var að vanda þéttskipað ungum skíkmönnum, sem að þessu sinni voru mjög atkvæðamiklir. Samt fóru leikar þannig að einn úr hópi „öldunga", Björn Þorsteinsson, bar hæstan hlut frá borði eftir harða keppni. Hann hlaut 6,5 vinninga, leyfði aðeins eitt jafntefli gegn Stef- áni Þórissyni. Sigur Björns í mótinu er nánast eins og eitt af lögmálum skáklist- arinnar, enda hefur hann verið í fremstu röð íslenskra skákmanna um tveggja áratuga skeið og lætur enn hvergi deigan síga. f öðru sæti varð Guðmundur Árnason TR með 6 vinninga. Hann er aðeins 14 ára gamall og vann það m.a. til afreka í mótinu að leggja „íslandsmeistarann" Dan Hansson að velli. Guðmundur er því greinilega gott skákmannsefni og lætur vonandi meira að sér kveða er fram líða stundir. Fast á hæla Guðmundar kom Stefán Þórisson TR með 5,5 vinn- inga. Hann var allan tímann í bar- áttu um efsta sætið, en tap gegn Guðmundi Árnasyni í síðustu um- ferð gerði sigurvonir hans að engu. Stefán er vaxandi skákmað- ur og þarf því ekki að sýta þótt ekki gangi allt að vonum. Röð næstu manna varð sem hér segir: 4.-6. Andri Áss Grétarsson, Óli Valdimarsson og Snorri Bergsson 5v. 7.-8. Dan Hansson og Þröstur Þórhallsson 4,5 v. Eftirfarandi skák var tefld í 6. umferð og eigast þar við skák- menn af yngri kynslóðinni. Þeir eru báðir í framför á þessu móti en eiga þó margt eftir ólært eins og þessi skemmtilega skák ber vitni um: llvítt: Stefán G. Þórisson Svart: Andri Áss Grétarsson Sikileyjarvörn 1. e4 — c5, 2. Rf3 — d6, 3. d4 —cxd4,4. Rxd4 — Rf6, 5. Rc3 — a6, 6. Be3 — e5, 7. Rb3 — Be6, 8. f3 — Be7 Traustara framhald er 8. — Rbd7, 9. Dd2 - b5,10. a4 - b4,11. Rd5 — Bxd5, 12. exd5 — Rb6 með góðum möguleikum til tafljöfnun- ar. Eftir 8. — d5, 9. exd5 — Rxd5, 10. Rxd5 — Rxd5, 11. c4 — Bb4+ 12. Kf2 - Be6, 13. Dxd8+ - Kxd8, 14. Hdl+ heldur hvítur hins vegar frumkvæðinu. 9. Dd2 — Rbd7, 10. g4 — Rb6 Aðrir og betri möguleik- ar eru 10. — Dc7 eða 10. — h6 11. 0-0-0-0-0 12. h4 — Rc4, 13. Bxc4 — Bxc4, 14. Kbl — b5, 15. h5 15. Bg5 kom einnig til álita. 15. — a5, 16. g5 — Rd7, 17. g6?! Nákvæmara er 17. Hdgl fyrst. 17. — a4, 18. Rcl — Da5? Rétt var að styrkja vörn og leika 18. — Rf6 með 19. — Re8 og 20. — Bf6 í huga og svartur getur að líkindum staðið af sér atlögu hvíts. 19. h6? Hvítur gerist of óþol- inmóður í sókn. Eftir 19. Hdgl er vandséð hvernig svartur getur varist er til lengdar lætur 19. — fxg6, 20. hxg7 — Hxf3, 21. Dh2 f fljótu bragði virðist 21. Bg5 væn- legri kostur, en eftir 21. — Bxg5, 22. Dxg5 — Dd8 hefur svartur lítið að óttast. 21. — h5, 22. Bd2 — b4, 23. Rd5 — Bxd5, 24. exd5 — a3!? Djörf ákvörðun. Svartur vonast til að holurnar í hvítu kóngsstöðunni veiti sér nægileg gagnfæri. Var- kárari sálir hefðu ugglaust leikið 24. — Dxd5 og unað hag sínum hið besta. 25. b3 — Hc8, 26. Dg2 — Dc5 Eftir 26. - Dxd5, 27. Dxg6 - Df7? 28. Dh6! vinnur hvítur. 27. Dxg6 27. — Dd4? Tapleikurinn. Betra var 27. Rf6! 28. Hh2 - e4, 29. Bel — Hfl með hótuninni 30. — Hxel! og 31. — Dc3, sem hvítur svarar með 30. Dg3 og staðan er mjög tvísýn. Aftur á móti gengur ekki 28. Bxb4 - Dxb4 29. Hxh5 - Rxh5, 30. De6+ - Kh7, 31. Dxc8 - Rxg7 og svartur getur varist. 28. De6+ — Hf7, 29. Rd3 — Hxc2!? Eftir 29. - e4, 30. Hxh5 - Dxg7, 31. Hdhl vinnur hvítur. 30. Hdgl Hvítur hótar nú 31. Dxf7+ — Kxf7, 32. g8D+ Ekki var ráðlegt að leika 30. Hxhö? vegna 30. — Rf6 30. — Hc8 Eftir 30. - Hb2+ 31. Kcl - Hbl+ 32. Kxbl - Dxd3+ 33. Kcl er öllum skákum lokið. 31. Hg3 — Bf6, 32. Hxh5 — Bxg7, 33. Bh6 Fljótvirkara var 33. Hxg7+ — Kxg7, 34. Dh6+ - Kg8, 35. Dh8 mát. 33. — e4, 34. Hxg7+ — Dxg7, 35. Bxg7 — exd3,36. Hh8+ — Kxg7, 37. Dh6 mát. „Það ei* flcira cn Kölnarvatu“ og súrkál, scm gert hefur garðiiin frægau lijá Þjóðverjum:44 t.d. Schiesser fyrirtœkid sem framleiðir m.a. kv^öld- og náttfatnað, baðföt og sloppa, undirföt, blússur, stuttbuxur og boli. — Og allt þetta er nú á boðstólum hjá okkur. Schiesser eykur sjálfstraust og við höfum heyrt að margar konur bjóði nú ögrandl gott kv'öld og góðan dag. Schiesser® undirföt eru ávallt til í birgðum okkar. lympíi Laugavegi 26 sítnl 13300 Glæslbœ sínii 31300

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.