Morgunblaðið - 09.08.1983, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 1983
3
Blaðberar Morgunblaðsins í Kaupmannahöfn:
Dýflissurnar í Krón
borgarkastala þóttu
merkilegastar
„KRAKKARNIR voru svo
spenntir að við vorum komin í
Tívolí klukkutíma áður en tæk-
in þar voru opnuð,“ sagði Viktor
Urbancic, starfsmaður Morgun-
blaðsins, sem fylgir blaðberum
Morgunblaðsins á ferð þeirra í
Kaupmannahöfn í boði blaðs-
ins.
„Við vorum komin í Tívolí
klukkan 11 og dvöldum þar
allan sunnudaginn til klukkan
níu um kvöldið. Þá voru þau
líka orðin svo uppgefin að það
lá við að þau sofnuðu á leið-
inni heim á hótelið. Farið var
í öll helstu tækin sem boðið er
upp á í Tívolíinu og krakkarn-
ir vildu helst fara aftur og
aftur í tækin," sagði Viktor
ennfremur.
Blaðburðarfólkið fór út á
laugardaginn og þegar komið
var til Kaupmannahafnar var
farið beint á hótelið sem dval-
ið er á, enda þá orðið kvöld-
sett. Á sunnudeginum var Tí-
volíið heimsótt eins og fyrr
sagði og í gær var Krónborg-
arkastali úti á Helsingör
skoðaður og sagði Viktor að
þar hefði krökkunum þótt
merkilegast að sjá dýflissurn-
ar undir kastalanum, þar sem
fangar voru geymdir fyrrum.
í gærkveldi var farið á kvik-
myndina Flash-Dance, sem er
dans- og söngvamynd í svip-
uðum dúr og Saturday Night
Fever. í dag verða ritstjórn-
arskrifstofur Politiken heim-
sóttar. Síðar í vikunni verður
dýragarðurinn meðal annars
heimsóttur, hús Jóns Sigurðs-
sonar skoðað og fleira.
Selja kola beint
á ferskfiskmarkad
NeskaupsUd, 5. ágúst.
NÝLEGA var keyptur hingað 26
tonna bátur frá Bakkafirði, Már NS
87. Kaupandi er Karl Jóhann Birg-
isson.
Báturinn er gerður út á dragnót
í sumar og verður kolinn fluttur út
í kæligámum til Bretlands og seld-
ur þar á ferskfiskmarkað. Með því
að selja kolann beint á markað í
Englandi, fæst um tífalt meira
verð fyrir hann, heldur en fengist
með því að selja hann til fiskkaup-
anda hérlendis. Að sögn Karls Jó-
hanns eru útgerðarmenn minni
báta mjög óánægðir með það, að
ekki skuli leyfðar veiðar með fisk-
troll í Héraðsflóanum, en þar fæst
eingöngu koli og ekki verður öðr-
um veiðarfærum komið við.
Sigurbori!.
Aðeins tveir íslendingar
á hvern ferkílómetra
ÞETTBÝLI landsins er ekki mikið
eins og kunnugt er, en ef tölur um
íbúa á hvern ferkflómetra eru skoð-
aðar kemur í Ijós, að 2 íslendingar
eru um hvern.
Til samanburðar má nefna, að í
Danmörku eru 119 íbúar á hvern
ferkílómetra, en þar er þéttbýli
mest á Norðurlöndunum. í Svíþjóð
eru íbúarnir 18 á hvern ferkíló-
metra og í Noregi eru íbúarnir 13
á hvern ferkílómetra.
Þá má geta þess, að í Bandaríkj-
unum eru 24 íbúar á hvern ferkíló-
metra, en í Bretlandi er þéttbýlið
hins vegar hvað mest í nágranna-
löndunum, en þar eru 230 íbúar á
hvern ferkílómetra.
Af framansögðu er ljóst, að lið-
lega 100 sinnum fleiri íbúar eru á
hvern ferkílómetra í Bretlandi en
á íslandi.
Það kostar aðeins 3.306,00 krónur
að taka hann Sigga
með í Tívolíferð
til Kaupmannahafnar.
Sumarið er löngu komið í Kaupmannahöín og
Tívoligarðurinn er kominn í „íuld sving" með
leiktœkjum, leiksýningum, tónleikum og
veitingastöðum við allra hœíi.
Ef þú vilt taka börnin með þér og leyfa þeim að njóta
œvintýra í hinu eina sanna Tívolí, þó er tilvalið að bjóða
þeim með í Kaupmannahafnarferð með Flugleiðum.
Þriggja-daga-ferðir
Flogið á laugardagseftirmiðdegi til Kaupmannahafnar.
Komið heim d þriðjudag.
Verð írá kr. 11.318.- íyrir fullorðna.
Verð frá kr. 3.306.- fyrir börn 2-11 ára með íullorðnum
í herbergi.
Vikuferðir
Verð frá kr. 15.568.- fyrir íullorðna,
en kr. 4.988.- íyrir born.
Gengl 2.8. '83
Innifalið í báðum feróum: Flug, gisting í 2ja
manna herbergi, morgunverður. Flugvallar-
. skattur og íerðir til og frá llugvöllum ekki
innifaldar. Brottför alla laugardaga.
Allar nánari upplýsingar hjá sölu Flu ’ J" -
erðaskrifstofum og umboðsmönnum um all
FLUGLEIÐIR
Gott fólkhjá traustu félagi