Morgunblaðið - 09.08.1983, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 1983
7
Útsala útsala
Mikil verölækkun
Dragtin
Klapparstíg 37
ARHAPLAST
Brennanlegt og tregbrennanlegt.
Sama verö.
Steinull — glerull — hólkar.
Armula 16 sími 38640
ÞORGRlMSSQN & CO
Gombi-Camp
á haustverói
Eins og undanfarin ár bjóöum viö nú haustverö á
Combi-Camp tjaldvögnum og búnaði.
Verð ffrá 40.000.-
BENCO
Bolholti 4, sími 91-21945/ 84077
Konur
starfi innan
stjórnmála-
flokkanna
Auður Auðuns, fyrsti
kvenlögfræðingur, fyrsti
kvenborgarstjóri og fyrsti
kvenráðherra landsins,
sagði m.a. í viðtali við
Morgunblaðið sl. sunnu-
dag:
„Ég get tekið undir það,
að konur verði að koma sér
áfram innan flokkanna. Ég
tel núverandi ástand kon-
um sjálfum að kenna. Auð-
vitað geta konur látið
meira að sér kveða innan
flokkanna og úti í þjóðfé-
laginu yfirleitL Hins vegar
verð ég að segja það, að
eftir því sem ég eldist og
umræður um jafnrétti
harðna, verður mér æ oftar
hugsað til bamanna.
Hvernig er hægt að koma
því við, að foreldri geti
sinnt börnunum hvort um
sig? Það verður að finna
grundvöll, sem slík
verkaskipting á að byggja
á. Við núverandi aðstæður
verður ekki hjá því komist,
að böm séu að talsverðu
leyti alin upp a stofnunum.
Þetta á ekki að vera stefn-
an. Það þarf að finna
annan gmndvöll verka-
skiptingar karla og
kvenna, svo hjá þessu
verði komist.
Ástæða þess, að ég
nefndi að konur eiga að
koma sér áfram innan
flokkanna er sú, að í póli-
tískum kosningum er kosið
í pólitískar stöður. Svo-
nefnt þverpólitískt kvenna-
framboð leysir ekki vanda
kvenna. I pólitík verða
menn að taka afstöðu til
hinna ólíkustu málefna,
ekki bara til mála sem sér-
staklega varöa konur. Um
sérframboð, kvennafram-
boð, sem fram kynnu að
koma innan stjórnmála-
fiokkanna gegnir öðru
máli. Þar væri um að ræða
hóp með sömu pólitíska af-
stöðu.“
Karlaveldi í
launþegasamtökum
„Hinsvegar tel ég eðlilegt að t.d. innan
stéttarfélaganna tækju konur meö ólíkar
stjórnmálaskoðanir höndum saman til þess
að vinna að framgangi hagsmunamála
sinna innan samtakanna og hnekkja því
karlaveldi, sem þar viðgengst. Hugsaðu þér
t.d. allan þann fjölda kvenna, sem starfar
hjá því opinbera og lætur karla ráöskast
meö kjaramál sín. Þar, eins og í pólitíkinni,
eru konurnar almennt of hlédrægar. Ella
væri því launajafnrétti, sem við höfum á
pappírnum, ekki jafn ábótavant í fram-
kvæmd og reyndin er.“ (Auöur Auöuns,
fyrrv. ráðherra, í viötali viö Morgunblaðið 7.
ág. sl.)
Enginn kven-
ráðherra í
vinstri
stjórnum
Hlutur kvenna í sveitar-
stjórnum og á Alþingi hef-
ur verið rýr gegnum tíðina.
Þó hefur miðað nokkuð f
rétta átt. Sjálfstæðisfiokk-
urinn hefur brotið ís að
þessu leyti, bæði í sveitar-
stjórnum og á AlþingL
Fyrsta konan, sem kjörin
var á Alþingi, Ingibjörg
I Bjarnason, árið 1922, var í
hópi stofnenda Sjálfstæðis-
flokksins. Auður Auðuns
varð fyrst kvenna til að
taka sæti í borgarráði
Reykjavíkur, gegna borgar-
stjórastarfi og ráðherra-
starfi, en hún var dóms- og
kirkjumálaráðherra í ráðu-
neyti Jóhanns Hafstein,
sem myndað var 1970.
Ragnhildur Helgadóttir,
menntamálaráðherra, er
önnur í röð kvenna til að
gegna ráðherraembætti á
Islandi.
Engin kona befur átt
sæti í vinstri stjórn á ís-
landi, sem hafa þó verið
fleiri en hollt hefur verið
«
fyrir þjóðarbúskapinn. Þar
kom áhugi vinstri manna á
jafnstöðu kvenna og karla
fram í verki. Vinstri menn
eru meira fyrir að tala en
framkvæma; sýnast en
vera. Þeir tala eins og
hríðskotabyssur um kven-
réttindi, einkum og sér í
lagi síðustu vikur og daga
fyrir kosningar. Lengra
nær áhugi þcirra ekki. Þeg-
ar vinstri stjórnir ganga í
stjórnarráðið er aldrei
kona í hópi ráöherra.
Vinstri menn gera sig og
gildandi í verkalýðshreyf-
ingunni. En hver er hlutur
kvenna í stjórn ASÍ, VMSÍ
eða BSRB? Hvert er launa-
jafnréttið í reynd? Vinstri
menn, sem gjarnan vilja
telja sig ráðandi afi í mót-
un launastefnu í landinu
og í forystu launþegasam-
taka, verða þá einnig að
axla ábyrgð af launastöðu
kvenna; „veldur hver á
heldur", segir máltækið.
Konur sem
þingmenn
Konur, sem setið hafa á
Alþingi, hafa sízt verið eft-
irbátar í störfum eða
stefnufestu. Ingibjörg
Bjarnason, fyrsta þingkon-
an, fór fyrir þeim sem
stuðluðu að byggingu
Landspítala. Guðrún Lár-
usdóttir, kjörin 1930, var
ieiðandi þingmaöur i
menningar- og mannúð-
armálum. Aðrar sjálfstæð-
iskonur, sem setið hafa
sem aðalfulltrúar á þingi,
eru m.a. Kristín Sigurðar-
dóttir, Ragnhildur Helga-
dóttir, Auður Auðuns, Sig-
urlaug Bjarnadóttir, Sal-
ome Þorkelsdóttir, auk
þeirra sem setið hafa
íengri eða skemmri tíma á
þingi sem varaþingmenn.
Aðrir flokkar hafa einnig
haft ágætum þingmönnum
úr röðum kvenna á að
skipa, en Sjálfstæðisflokk-
urinn hefur þó vinninginn,
þegar grannt er að gáð að
hhit kvenna í íslenzkum
stjórnmálum. Líkur benda
til að hlutur kvenna í
stjórnmálum fari vaxandi ■
næstu framtíð.
GHLRNT
STATION
SÆTAAKLÆÐI
NÝ GERÐ
vönduö og
falleg
„ATLANTIC“
Litir: Brúnt, blátt og rautt.
„EXPRESS"
Litir: Brúnt, blátt og grátt.
Verð frá kr. 297.000