Morgunblaðið - 09.08.1983, Síða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 1983
| s UiAHfrU
FLÓKAGÖTU 1
SÍMI24647
Bújardir
til sölu i Arnessyslu, á sunnan-
verðu Snæfellsnesi og við
Hrútafjörö.
Hraunbær
2ja herb. rúmgóð og vönduö
íbúð á 2. hæð. Suöursvalir. Ákv.
sala.
Viö Miðbæinn
5 herb. rishæð. Laus strax.
Verð 1,1 millj.
Álfheimar
4ra herb. vönduð íbúð á 4.
hæð. 3 svefnherb. Svalir.
Mosfellssveit
Raðhús við Brekkutanga sem
er tvær hæðir og kjallari. Á 1.
hæð er dagstofa, boröstofa,
eldhús og snyrting. Á efri hæð 4
svefnherb., baðherb., tvennar
svalir. I kjallara 2 íbúöarherb.,
geymsla, þvottahús og snyrting.
Innbyggður bílskúr.
Helgi Ólafsson,
löggiltur fasteignasali.
Kvöldsími 21155.
2ja herb. íbúöir
60 fm hæð viö Barónsstig.
60 fm íb. í þrib.húsi v/ Grettisg.
60 fm kj.íb. v/ Barónsstíg.
3ja herb. íbúöir
80 fm 8. hæð v/ Hátún.
70 fm 2. hæð v/ Bragagötu.
90 fm 3. hæð ásamt 30 fm í risi
og fullfrág. bílskýli v/ Selja-
braut.
90 fm 2. hæð v/ Orrahóla.
Bilskúrsréttur. Suðursvalir.
4ra herb. íbúöir
120 fm jarðh. í tvíb.húsi
v/ Stapasel.
130 fm kj.íb. v/ Flókagötu.
100 fm 1. hæö í þríbýlishúsi viö
Miðtún. Sérhiti. Steinhús.
110 fm íb. ásamt bílskúr
v/ Austurberg.
115 fm efri hæð í þríbýlish.
v/ Auöbrekku. Bílskúrar.
5 herb. íbúöir
115 fm efsta hæð v/ Rauöalæk.
150 fm miðhæð í þríbýlish.
v/ Dyngjuveg.
125 fm 1. hæð í tvíbýlishúsi við
Bræðraborgarstíg. ibúöin er öll
nýstandsett. Sérhiti.
140 fm 2. hæð v/ Lindargötu.
117 fm 1. hæð ásamt bílskúr
v/ Skipholt.
Parhús
á tveimur hæðum, um 140 fm
samt geymslurisi við Kögursel.
Raöhús
Kjallari, tvær hæðir við Tungu-
veg. Vönduð eign.
í smíöum
Erum með á söluskrá eignir í
smíðum á ýmsum byggingar-
st. á Stór-Reykjavíkursvæöinu.
Höfum kaupendur
sem eru búnir að selja og eru
tilb. að kaupa eftirtaldar eignir:
3ja—4ra herb. íb. í Hliöum eöa
vesturbæ.
2ja íb. í Árbæ eða Seljahverfi.
2ja herb. íb. i Heima- eða Háa-
leitishverfi.
3ja herb. íb. í Fossvogi eöa þar
í grennd.
4ra herb. íb. í Árbæjarhverfi.
Raðhús í Bökkunum í Breiö-
holti.
Eignaskipti
Erum með á söluskrá mikiö af
eignum þar sem óskaö er eftir
alla vega eignaskiptum.
Ef þú átt eign og vilt skipta,
haföu þá samband. Kannski
höfum við eignina sem þig
vantar.
AUSTURSTRÆTI 10 A 5 HÆÐ
Sfmi 24850 og 21970.
Helgi V. Jónsson hrl.
Kvölds. sölum. 19674 - 24850.
Grenimelur
Falleg efri hæö og ris í þríbýli. Á
hæð 2 stofur, 2 svefnherb., hol,
eldhús og baö. i risi 2 góö herb.
og snyrting. Sér inng. Verö 2,2
millj.
Kópavogur
160 fm fokhelt parhús á tveim
hæðum með bílskúr. Afh. til-
búiö aö utan en ófrágengið aö
utan. Teikn. á skrifstofunni.
Völvufell
Rúmgott 147 fm raðhús á einni
hæð. Góðar innr. Fullfrágeng-
inn bílskúr. Verð 2,4 millj.
Furugeröi
Mjög vönduð og falleg 4ra herb.
íbúð á 2. hæð. Stórt þvottahús
innaf eldhúsi. Eign í sérflokki.
Eingöngu í skiptum fyrir 2ja
herb. íbúö í sama skólahverfi.
Fífusel
Falleg 4ra herb. íbúð á 2. hæð.
Vandaöar innr. Þvottahús innaf
eldhúsi. Gæti losnaö fljótlega.
Hrafnhólar
4ra herb. íbúð á 3. hæð i lyftu-
húsi. Snyrtileg og vel skipulögö.
Verð 1350 þús.
Baldursgata
3ja herb. íbúö á góöum stað. 2
samliggjandi stofur og svefn-
herb. Verð 1200 þús.
Veitingastaður
Til sölu gróinn og þekktur veit-
ingastaður í hjarta borgarinnar.
Lítill og kyrrlátur en mikiö af
föstum viðskiptavinum, velbú-
inn tækjum og góð vinnuaö-
staöa. Uppl. aðeins á skrifstof-
unni.
LAUFÁS
SÍÐUMÚLA 17
Magnús Axelsson
V^terkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamidill!
Ghandi-frumsýning á íslandi:
Agóðinn rennur til
indverskra barna
Á MIÐVIKUDAG verður frumsýnd í
Stjörnubíói kvikmyndin um Ghandi,
sem hefur vakið gífurlega athygli og
gengið í kvikmyndahúsum um allan
heim að undanrórnu. í tilefni af því
hafa Stjörnubíó og Columbía-kvik-
myndafélagið fallist á að gefa allan
ágóðann af frumsýningardeginura á
íslandi til hjálparstarfs á Indlandi, á
vegum Indlandsvinafélagsins, en
það kostar þegar fæði og uppeldi
nokkurra munaðarlausra barna í
Suður-Indlandi. Og gæti þá með
þessu fé bætt við einhverjum börn-
um, því uppeldið á ári kostar ekki
nema 200 dollara. Verður miðaverð-
ið hækkað ofurlítið í því skyni á
frumsýninguna.
Þóra Einarsdóttir, formaður
Indlandsvinafélagsins, sem verið
hefur á Indlandi og gengist fyrir
þessari hjálp til barna í neyð,
sagði að hver eyrir nýttist óskipt-
ur með þessari aðferð. Richard
Keiton, sem var mikill vinur
Ghandis og stóð fyrir fram-
kvæmdum á hans áhugamálum
eftir lát hans, er forseti íslands-
vinafélags i Kodaikanal, þar sem
nunnuregla í klaustri sér fyrir
þessum börnum, og hefur ís-
landsvinafélagið eftirlit með
hjálpinni þar. En Þóra kom þess-
ari hjálp við munaðarlaus börn á,
þegar hún var sjálf á staðnum.
Á miðvikudag verður fyrst boð-
sýning kl. 5 fyrir gesti, að við-
stöddum forseta íslands, en til
landsins koma af þessu tilefni
sendiherra Indlands á fslandi og í
Noregi M. Bhalla og kona hans,
sem er sendiherra í Danmörku og
verða þau viðstödd. Menntamála-
ráðherra, Ragnhildur Helgadóttir,
mun flytja ávarp. Síðar um daginn
verður kvikmyndin frumsýnd
fyrir almenning og þá selt inn til
ágóða fyrir munaðarlaus börn á
Indlandi.
Yfirlýsing frá Sigmund Jóhannssyni:
Vegna framleiðslu á
Sigmundsbúnaðinum
YFIRLÝSING frá Sigmund Jóhannssyni í Vestmannaeyjum vegna ummæla
yfirmanna í öryggismálum sjómanna varðandi Sigmundsbúnaðinn og fram-
leiðslu á honum, en Siglingamálastofnun ríkisins hefur viðurkennt þann
búnað og gert er ráð fyrir honum í lögura um öryggisbúnað íslenzka flotans.
Sigmund gaf íslenzkum sjómönnum hugmynd sína, sem hefur verið þróuð og
reynd með svo góðum árangri í Vestmannaeyjum að Siglingamálastofnun
hefur samþykkt búnaðinn og erlendir aðilar hafa sýnt honum mikinn áhuga.
„Varðandi Sigmundsgjöfina
svokölluðu, gálga þann sem ég
hannaði til aukins öryggis í sjó-
setningarbúnaði björgunarbáta og
gaf íslenzkum sjómönnum, vil ég
taka fram eftirfarandi: Ég hef set-
ið undir þeim áburði yfirmanna í
öryggismálum sjómanna að ég
hafi einokað framleiðsu á
Sigmundsgálganum, svokallaða, í
Vélsmiðjunni Þór í Vestmanna-
eyjum. Eg vil því að gefnu tilefni
geta þess að mín gjöf fólst í því að
gefa íslenzkum sjómönnum hug-
myndina að þessu björgunartæki
og þar í fólst vinna mín í tvö og
hálft ár og auk þess vinna margra
aðila sem hafa lagt hönd á plóg-
inn. Ég fór ekki fram á neina
álagningu af minni hendi við
framleiðslu á búnaðinum, en hef
ávallt verið boðinn og búinn til
þess að fylgjast með framleiðsl-
unni, sem ég taldi bezt komna í
Vélsmiðjunni Þór, þar sem sú
smiðja hefur smíðað þennan bún-
að frá upphafi og verið með í öll-
um tilraunum með hann. Ég
harma því að mér hafi verið borið
það á brýn að ég hafi stuðlað að
einokun á framleiðslu öryggisbún-
aðarins. Ég gerði það sem ég taldi
bezt fyrir íslenzka sjómenn og
þykir leitt til þess að vita að Sigl-
ingamálastofnun hefur ekki enn
fengizt til að ganga frá björgun-
arbátum í umræddan búnað eins
og ég geri ráð fyrir, en allar til-
raunir hafa sýnt að sú aðferð sem
ég hef þróað sé sú bezta.
Hér er um nýjung að ræða, sem
vankantar hafa verið sniðnir af og
það þekkja þeir menn bezt sem
hafa fylgzt náið með öllum til-
raunum. Framleiðsla á þessum
búnaði varðar líf manna og á
miklu veltur að rétt sé að verki
staðið. Ég tilkynnti yfirmönnum í
öryggismálum sjómanna á sínum
tíma að ég væri reiðubúinn að
skipuleggja smíði á öryggisbúnað-
inum með það fyrir augum að
fleiri smiðjur kæmu inn í fram-
leiðsluna, en undir eftirliti Vél-
smiðjunnar Þórs í Vestmannaeyj-
um. Engin ósk hefur hins vegar
komið frá sjómönnum eða sam-
tökum þeirra að þessi búnaður
væri framleiddur annars staðar.
Hér er um að ræða mál sem mér
finnst ástæða til að sýna meiri al-
vöru í framkvæmd en gert hefur
verið og ég endurtek mótmæli mín
gegn dylgjum embættismanna
sem virðast stefna að því að
klúðra þessu öryggismáli sjó-
manna. Sigmund Jóhannsson
Vestmannaeyjum.
H
Bladid sem þú vaknar vió!