Morgunblaðið - 09.08.1983, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 1983
19
Fjársjóðsleit
ber árangur
Menn úr hjilparsveitum og bæjarbúar umhrerfis sjúkrabfl í markaóstorginu ( hlnni fornu borg Baalbek í
Líbanon, þar sem 15 biðu bana af völdum bflsprengju og 133 slösuðust
„Sósíalískur agi“
hertur í Rússlandi
Moskvu, 8. ágúst. AP.
SOVÉSK yfirvöld hafa gert ráðstafan-
ir til að koma á „sósíalískum aga“ í
landinu, en síðan Yuri V. Andropov
Verkamenn, sem vilja skipta um
starf án góðrar ástæðu (vegna
heilsubrests, samgönguerfiðleika,
ynnu það illa. Þykir skýrslan
raunsæ á ástand mála.
South Welfleet, 8. ágúst. AP.
BARRY Clifford sagði í dag, að leið-
angur hans hefði fundið flak breska
seglskipsins Whidah, sem sökk undan
Cape Cod á austurströnd Bandaríkj-
anna 1717. Líklegt er talið, að farmur
þess hafi að geyma gull, silfur og
skartgripi að verðmæti um 200 millj.
dala.
„Við höfum fundið ýmsa hluti úr
skipinu og erum sannfærðir um, að
flakið sé hið eina rétta," sagði Clif-
ford.
Sagnfræðingurinn Valerie Tal-
madge sagðist ekki geta fullyrt
hvort leiðangur Cliffords hefði fund-
ið skipið, en sagan segir sjóræningja
hafa rænt því skömmu áður en það
sökk í stormi undan ströndum ríkis-
ins. „Af lýsingunni að dæma eiga
leiðangursmenn eftir að færa frekari
rök fyrir máli sínu.“
Bresk blöð segja að hópur breskra
og hollenskra kafara hafi fundið
fjársjóð í kistli í Austur-Indíafarinu
Uliegent Hart (Fljúgandi Hart), er
sökk í Norðursjó 3. febrúar 1735.
Skipið hafði þá nýlega lagt úr höfn í
Hollandi með farm nýsleginnar
myntar til hollensku Austur-Indía.
1 kistlinum voru 15 sekkir með
7.500 mexikönskum myntstykkjum
úr silfri og um 2.000 gulldúkötum.
Starf kafaranna hefur staðið í fjögur
ár.
Ný stefna
hjá IRA
Belf&st, 8. ágúst. AP.
ÍRSKI lýðveldisherinn IRA hefur nú
tekið upp nýja stefnu gegn uppljóstrur-
um, en hermdarverkamennirnir hafa
hingað til látið reiði sína aðeins bitna á
uppljóstrurunum sjálfum.
Nú hefur hins vegar eiginkonu,
stjúpföður og 13 ára dóttur Harry
Kirkpatrick, sem breska lögreglan
mun innan skamms láta vitna gegn
18 IRA-mönnum, verið rænt og er
Kirkpatrick hótað því, að þau muni
drepinn, vitni hann gegn hermdar-
verkamönnunum.
IRA hefur eytt mörgum árum í
það, að komast að fylgsni uppljóstr-
ara. Einn þeirra var drepinn á 7.
áratugnum í Bandaríkjunum, en
hann aðstoðaði bresku lögregluna á
3. áratugnum.
komst til valda í nóvember sl. hefur fjölskylduerfiðleika), verða að til-
mikil áhersla verið lögð á það að
herða aga meðal verkamanna og leiða
efnahaginn inn á betri brautir.
Kommúnistaflokkurinn sam-
þykkti í gær ráðstafanir, sem eru
fyrsta skrefið í átt til „sósíalísks
aga“. Þær fela í sér refsingar fyrir
drykkjuskap og leti, en verðlaun
fyrir iðjusemi og mikil afköst í
starfi.
Miðstjórn Kommúnistaflokksins
samþykkti meðal annars, að verka-
maður, sem væri fjarverandi í
meira en 3 klukkustundir án þess að
hann gæti gefið góða ástæðu fyrir
fjarvist sinni, yrði sviptur allt frá
einum sumarleyfisdegi upp í tvær
vikur af fjögurra vikna árlegu leyfi
sínu.
Þá munu þeir verkamenn sem eru
oft fjarverandi eða drukknir verða
fluttir í verr launað starf í þrjá
mánuði og geta þeir ekki óskað eftir
flutningi á meðan.
kynna það með tveggja mánaða
fyrirvara í stað tveggja vikna áður.
Verkamenn, sem skemma fram-
leiðsluvarning eða ef framleiðsla
þeirra stenst ekki gæðakröfur,
verða látnir greiða allt að þriðjungi
mánaðarlauna í bætur. Meðallaun
verkamanns eru 181 rúbla á mán-
uði, eða um 6.400 íslenskar krónur.
Skemmdir, sem drukkinn verka-
maður er valdur að, verður hann að
greiða að fullu.
Verksmiðjustjóri hefur nú leyfi
til að reka verkamann án samráðs
við yfirvöld, hafi viðkomandi verið
drukkinn í vinnu, en það álítur mið-
stjórnin versta glæpinn.
Vestrænir fréttamenn í Moskvu
komust yfir skýrslu hóps hagfræð-
inga í Novosiþirsk, þar sem þeir
lýstu núverandi efnahagsástandi I
landinu. Sögðu þeir m.a. að margir
verkamenn byggju við lítinn aga,
hefðu engan áhuga á starfi sínu og
Olíuskipið dregið
lengra frá landi
Hördaborf{, Suóur-Afríku, 8. ágúst. AP.
STARFSMENN á vegum stjórnar-
innar unnu í nótt við að draga þann
hiuta skrokks spænska risaolíu-
skipsins Castillo de Bellver, sem
enn var á floti, lengra frá iandi.
Helmingur skipsskrokksins er
sokkinn í sæ og streymir olía stöð-
ugt úr þeim hluta. Hefur talsverð
olíumengun orðið vegna þessa og
stækkar olíuflekkurinn óðum.
Eldur kom upp í olíuskipinu,
þar sem það var á siglingu, og það
brotnaði síðan í tvennt. Engin
skýring hefur enn fengist á því
hvað olli eldsvoðanum. Þrjátíu og
einum úr áhöfn skipsins var
bjargað, svo og tveimur farþeg-
um. Þriggja úr áhöfninni er sakn-
Stóð Sir Arthur Conan Doyle
að baki gabbi aldarinnar?
Eftir 7 ára rannsóknir á fundi
Piltdown-mannsins, sem svo var
nefndur á sínum tína og reyndist
eitthvert stærsta gabb sögunnar,
hefur þekktur bandarískur vísinda-
maður, Dr. John Hathaway Winsl-
ow, komist að þeirri niðurstöðu að
bæta beri nýjum aðila við nöfn
þeirra, sem taldir eru hafa getað
staðið að baki gabbinu.
Sá sem Winslow vísar til er eng-
inn annar en Sir Arthur Conan
Doyle, hinn heimskunni höfundur
bókanna um Sherlock Holmes.
Setur hann skýringar sínar fram í
grein, sem birtast mun í septemb-
erhefti tímaritsins Science.
Conan Doyle lést árið 1930 og
hafði yndi af því að blekkja fólk.
Piltdown-gabbið komst hins vegar
ekki upp fyrr en á sjötta áratugn-
um, breskum fornleifafræðingum
og sérfræðingum til mikillar
hneisu, meira en tveimur áratug-
um eftir andlát hans.
Winslow telur það styðja kenn-
Piltdown-maðurinn, eins og hann kom safngestum fyrir sjónir.
Sir Arthur Conan Doyle. Stóð hann
að baki gabbi aldarinnar?
ingu sína, að Conan Doyle hefði
notið þess til hins ítrasta að leika
á forvígismenn breskra vísinda-
manna, sem hent höfðu gaman að
kenningum hans um spíritisma á
efri árum. Conan Doyle var mikill
áhugamaður um andatrú.
Fundur höfuðkúpunnar í Pilt-
down Common árið 1912 varð
breskum vísindamönnum kær-
kominn í meira lagi. Var „týndi
hlekkurinn" margumræddi sagður
þarna kominn. Það var lögfræð-
ingur, mikill áhugamaður um
fornleifafræði, sem fann hauskúp-
una, þar sem hann var að róta í
gryfju í Piltdown Common.
Þegar loks komst upp að beinin
voru ekki ósvikin kom í ljós, að
gabbið var fremur einfalt og ekki
sérstaklega vel um hnútana búið.
Hins vegar var von breskra vís-
indamanna um merkan fornleifa-
fund svo mikil, að þeim yfirsáust
tiltölulega einföld atriði í gleðinni
yfir fundinum.
Lögfræðingurinn, Charles Daw-
son, var fljótlega grunaður um
græsku í málinu og síðan var jesú-
ítaprestur, Pierre Teilhard de
Chardin, sakaður um aðild að
gabbinu.
Conan Doyle fór gjarnan í lang-
ar gönguferðir frá heimili sínu,
sem var í um 14 kílómnetra fjar-
lægð frá Piltdown Common. Hann
vissi einnig umn áhuga lögfræð-
ingsins á fornleifafræði fyrir orð
kunningja síns, sem bjó gegnt
honum við sömu götu.
Hvort sem Conan Doyle stóð að
baki gabbinu í samráði við þessa
tvo áðurnefnda eður ei, telur
Winslow hann hafa haft ástæðu
til þess að hafa breska vísinda-
menn að leiksoppi með þessum
hætti eftir að þeir lýstu kenningar
hans um spíritisma ómerkar.
að. Skipið var á leið frá Persaflóa
með um 290.000 tonn af hráolíu.
Mikill og olíumettaður reykj-
armökkur steig upp frá skipinu
við brunann og barst hann til
strandar. Lagðist þunn slikja yfir
akurlendi bænda við ströndina og
óttuðust þeir að skemmdir yrðu á
uppskerunni. Mikil úrkoma í nótt
hefur að líkindum bjargað upp-
skerunni því slikjan var að mestu
horfin í morgun.
Líkur eru taldar á, að olíu-
flekkurinn kunni að berast til
lands og hafa ráðstafanir þegar
verið gerðar. Flekkurinn var í
gær enn um 40 kílómetra vega-
lengd frá ströndinni og á hagstæð
vindátt sinn þátt í því, að hann
hefur ekki rekið nær landi en
raun ber vitni.
Kínverskur
flugmaður
stakk af
Seoul, Suður-Kóreu, 8. ágúst.
FLUGMAÐUR úr kínverska flug-
hernum lenti í gærmorgun MIG-21
þotu sinni á flugvelli skammt frá
Seoul og bað um pólitískt hæli í
ónefndu þriðja landi.
Óvænt koma flugmannsins til
landsins setti viðvörunarkéfi hers-
ins í gang og kvað við sírenuvæl,
hið fyrsta í þrjá áratugi, um allt
landið. Öll umferð stöðvaðist víða
og fólk þusti í skjól í neðanjarð-
arbyrgjum.
Heimildir AP-fréttastofunnar
töldu að flugmaðurinn, Sun Ti-
enchin, vildi til Taiwan. Flugmað-
urinn mun fá jafnvirði 2,7 millj-
óna dala í gulli haldi hann til
Taiwan.
Þetta er í annað sinn á 10 mán-
uðum, að flugmaður úr flugher
Kína hefur flogið MIG-21 þotu
sinni til Suður-Kóreu.