Morgunblaðið - 09.08.1983, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 1983
31
Réðst á bifreið
og dældaði hana
ÖKUMAÐUR einn, Viðar Pétursson að nafni, varð fyrir heldur
óskemmtilegri reynslu á laugardaginn er hann ók Keflavíkurveg-
inn, framhjá friðargöngunni á leið sinni suður með sjó.
Sumarhátíð þroskaheftra
EINS OG skýrt var frá í Mbl. 6.
ágúst sl. er hér á landi stödd banda-
ríska hljómsveitin „The River City
Good Time Band“, en hana skipa
fatlaðir tónlistarmenn og söngvarar.
í kvöld gefst svo tækifæri til að
hlýða á þessa sérstæðu hljómsveit
því hún skemmtir á Sumarhátíð
þroskaheftra og velunnara þeirra í
Broadway, sem Landssamtökin
þroskahjálp halda.
Á skemmtuninni koma auk
bandarísku gestanna fram þeir
Magnús Ólafsson og Konni kokk-
ur. Þá verður söngvakeppnin „Út
um hvippinn og hvappinn“ haldin,
gjafaafhending, ávörp flutt.
Kynnar á Sumarhátíð þroska-
heftra verða þeir Páll Þorsteins-
son og Þorgeir Ástvaldsson.
I ■ t 1 1 ■ 1
MMH
II I I II 1
simi: 27211
10
Austurstiæti
Poul Sehltiter, forsætisráðherra Danmerkur, og Olaf Palme, forsætisráðherra Svíþjóðar, fylgjast með heimsmeistara-
mótinu í frjálsum íþróttum sem fram fer í Helsinki um þessar mundir. Það fór vel á með þeim á fundi forsætisráð-
herra Norðurlanda í Helsinki um helgina, en fundinum lauk í gær.
Símamynd Nordfoto
Fundur forsætisráðherra Norðurlanda:
Deilurnar um Kattegat
settu svip á fundinn
— segir Steingrímur Hermannsson
FUNDI forsætisráðherra Norðurlanda lauk í gær. Að sögn Steingríms Her-
mannssonar settu deilur Svía og Dana um miðlínu Kattegat mikinn svip á
fundinn. „Hins vegar var lítið komið inn á það mál á sjálfum fundinum. Þeir
Palme og Schliiter áttu einkaviðræður um það og gerðu okkur síðan grein
fyrir því að þeir teldu sig vera að nálgast hugsanlegt samkomulag, en þetta
mál var lítið rætt á fundinum sjálfum," sagði Steingrímur Hermannsson.
til þess að miðla málum. Það hafði
enginn heyrt um þessa hugmynd
og þeir sögðu að það væri ekkert
um að ræða.“
Þurfti hann að stöðva bif-
reið sína við hlið göngunnar
vegna þess að tveir bílar
höfðu stansað fyrir framan
hann á veginum.
Viðar þeytti gjallarhorn
bifreiðarinnar þar sem hann
vildi komast leiðar sinnar.
Varð þetta til þess að einn
göngumanna tók sig út úr
hópnum og sparkaði í bifreið
hans í tvígang með þeim af-
leiðingum að hún dældaðist á
tveimur stöðum. Þessi þátt-
takandi friðargöngunnar
hafði gert sér lítið fyrir og
spyrnt í hægri framhurð bíls-
ins og hægra afturbretti
hans.
Viðar sagði í samtali við
Mbl. að framhurðin hefði
gengið inn og afturbrettið
hefði dældast og kvað hann
hafa stórséð á bílnum.
Viðar sagði að fjöldi fólks
hefði verið vitni að atburðin-
um, en þeir sem í friðargöng-
unni voru vildu ekki kannast
við að þetta hefði gerst þegar
leita átti að vitnum. Hins
vegar var þarna annar maður
í bifreið, sem hafði verið á
leið sunnan að og orðið vitni
að atburðinum og gaf hann
sig fram.
Viðar leitaði til lögreglunn-
ar um aðstoð við að hafa upp
á manninum, sem ekki
fannst.
Sagði hann að þetta hefð
borið svo brátt, að að hann
hefði vart haft ráðrúm til að
taka vel eftir hvernig maður-
inn leit út.
Viðari finnst þetta að von-
um ákaflega bagalegt, þar
sem hann þarf að bera tjónið
sem á bifreiðinni varð að
fullu ef ekki næst í manninn,
sem tók þátt í friðargöngunni
og réðist með fyrrgreindum
afleiðingum á bifreið hans.
Þegar haft var samband við
lögregluna í Hafnarfirði í
gærkvöldi hafði hún lítið um
málið að segja en kvað
skýrslu um atburðinn vera
komna til Rannsóknarlög-
reglunnar.
Hann sagði fundinn hafa verið
mjög óformlegan. Skipst hefði
verið á skoðunum um hin marg-
víslegustu mál sem borið hefði á
góma. „Rætt var um efnahagsmál-
in á öllum Norðurlöndunum og
gefnar upplýsingar um það hvern-
ig staðan er. Síðan var rætt um
ýmislegt sem viðkemur Samein-
uðu þjóðunum og nokkrar hug-
myndir sem hafa komið fram í
sambandi við norrænt samstarf.
Síðan var rætt töluvert um kjarn-
orkuvopnalaust svæði á Norður-
löndum, einkum af Olof Palme
sem gerði grein fyrir þeirri hug-
mynd sinni, sem hann hefur sett
fram, eins og allir vita. Þetta voru
nú svona meginatriðinsagði
Steingrímur.
Var eitthvað nánar rætt um
hugmyndina um kjarnorkuvopna-
laust svæði á Norðurlöndum?
„Já. Það var rætt um hana fram
og aftur. Þetta eru ekki fundir þar
sem ákvarðanir eru teknar, heldur
til upplýsingar. Það var mjög
fróðlegt að heyra -viðhorf manna
til þess. Þetta er nú í fyrsta sinn
sem ísland er ncfnt í þessu sam-
bandi, Palme hefur gert það. Það
var út af fyrir sig fróðlegt."
Hvernig var andrúmsloftið á
milli þeirra Schluters og Palme
vegna deilunnar um Kattegat?
„Það var ekkert að sjá að neitt
bæri þar á milli."
Það vakti mikla athygli um
helgina að Politiken skyldi í leið-
ara leggja til að Geir Hallgríms-
syni yrði falið hlutverk sáttasemj-
ara í þessari deilu Dana og Svía?
„Já, það kannaðist enginn við
þetta hér, enginn þeirra, og það
var nú bara brosað að því. Þeir
tóku það mjög skýrt fram að það
kæmi ekki til mála að neinn yrði
fenginn til að miðla málum á milli
þeirra. Þeir myndu leysa það
sjálfir. Svo ég veit ekki hvaðan sú
hugmynd hefur komið. Það var nú
í gamni sagt að við værum nú
kannski ekki hlutlausir því við
teljum nú Kolbeinsey vera
grunnpunkt, svo að það var nú
ekki talið, svona yfir kaffibollan-
um, að við værum bestu mennirnir
skódeild ★ dömudeikl ★ barnafatadeikl ★ herradeild ★ sportfatadeikl ★ heimiiisdeild