Morgunblaðið - 09.08.1983, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 1983
45
m hji'
VELVAKANDI
SVARAR f SÍMA
10100 KL. 11—12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Enn um
Listahátíð
Sjónvarpsþátt með Bowie
Þórunn Rut Kristjánsdóttir
skrifar:
Velvakandi.
Mig langar að koma á fram-
færi ósk minni um að hljómsveit-
in Culture Club gerði á Listahá-
tíð ’84.
Ég hef verið á tónleikum með
þessari hljómsveit í Noregi, Hol-
landi, Danmörku og Bretlandi og
liðsmenn Culture Club eru æðis-
legir á sviði, sérstaklega söngv-
arinn Boy George.
Þá þætti mér einnig gaman að
vita hvort Culture Club-merkið
fæst hér á landi og hvar.
Með von um að fá Culture Club
á næstu Listahátíð.
Ragna B. Garðarsdóttir skrifar:
Kæri Velvakandi.
Um tíma stóðu vonir til að
söngvarinn David Bowie kæmi
hingað til lands og urðu margir
fyrir sárum vonbrigðum þegar svo
fór ekki. Væri kannski hægt að
bæta það með sjónvarpsmynd af
ferðalagi hans eða viðtali?
Lesið í tún
Sigurður Þorkelsson skrifar:
„A ferð um landið sjáum við
hvernig grænar túnskákirnar
ganga út frá bændabýlunum og ná
víða landamerkja á milli, og hvað
græni liturinn getur verið mis-
grænn eftir því hvernig heyskapn-
um miðar. Á þessum árstíma sjá-
um við þetta örvandi græana lita-
spil hvar sem farið er um sveitir.
Við sjáum, hvað miðað hefur frá
ári til árs með ræktun túnanna.
Ein skákin leggst að annarri og
þær urðu stærri og stærri. Það er
hægt að lesa í túnin um ferð bónd-
ans úr fátækt til bjargálna. En
það sést líka hvað orðið hefur að
sitja á hakanum — bíða betri tíma
— það vantar í græna litinn lit-
brigði skógarins.
Én eftirvæntingin liggur í loft-
inu. Áratuga gamlir skógarreitir
ungmennafélaga og héraðsskóg-
ræktarfélaga eru orðnir leiðarljós
þeirrar farar sem bændur, rækt-
unarmenn landsins, eru að leggja
í. Að vekja til lífs á ný viðivaxið
land milli fjalls og fjöru.
Eins og með túnin, byrjið út frá
bæjum ykkar, heimilsgarðinum
sunnan undir í skjólinu við húsið.
Nægur áburður er heima við og
geislar sólarinnar ávallt reiðubún-
ir.
Bjargálna menn planta til
bændaskóga, megi það verða
Grettistak næstu aldamótakyn-
slóðar."
Lífgum upp á
Öskjuhlíðina
María hringdi:
Oft hef ég leitt að því hugann
hvort ekki megi lífga upp á borg-
ina okkar. Hér eru margir staðir
og mannvirki sem heldur betur
eru í bágbornu ástandi.
Vil ég sem dæmi benda á tank-
ana í Öskjuhlíðinni, sem fáum
finnast fallegir. Af hverju eru þeir
ekki málaðir með fallegum litum
og formum eins og gert hefur ver-
ið við svipaða tanka á Suðurnesj-
um. Mætti jafnvel koma af stað
samkeppni meðal listamanna af
yngri kynslóðinni og leyfa þeim að
spreyta sig á verkefninu.
Góð morgunorð
Margét Sigurðardóttir hringdi:
Velvakandi góður
Það voru sannarlega athyglis-
verð morgunorðin sem Hilmar
Baldursson flutti í útvarpinu að
morgni 5. ágúst s.l. um þögnina.
Væri möguleiki á að fá þennan
pistil Hilmars birtan á prenti?
Þannig er að margir eru á ferð til
vinnu á þessum tíma og heyra því
ekki þáttinn, sem var stórgóður.
Mikið væri Hilmar Baldursson
vænn ef hann yrði við þessari
beiðni.
GÆTUM TUNGUNNAR
Sagt var: Þeir þekkja hvorn annan.
Rétt væri. Þeir þekkja hvor annan.
Oft færi best: Þeir þekkjast.
Sölustörf
Handbókin íslensk fyrirtæki þarf aö ráöa nokkra
sölumenn í tímabundin störf.
Störfin veröa frá 15. ágúst—15. okt. 1983. Um er
að ræöa heilsdagsstörf. Umsækjendur þurfa aö
nota bifreiðar viö vinnu sína. Þeir menn og konur
sem áhuga hafa á þessum störfum, hafi vinsam-
legast samband viö hana Erlu hjá okkur.
Frjálst framtak, Ármúla 18,
sími 82300.
Nú mælum við
barnaherbergið
og gefum barninu okkar vönduö og hentug húsgögn.
Hér er tegund 2024, bekkur meö hillum yfir, til í furulit.
Stærö: hæö 167, lengd 197, breidd 75. Verö með dýnu
og 3 púöum 9.430.-, útborgun 2.000,- og rest á 6 mán-
uðum. Bekkurinn stakur kostar 6.290.-.
Hér er gagnlegur hlutur þar sem vantar klæöaskápa í
herbergi. Teg. 2033, er til í furulit. Stæröir eru: hæð 167,
lengd 274, breidd 75. Verð meö dýnu og þrem púöum.
13.290.-, útborgun 3.000.- og rest á 7 mánuöum.
Hringdu til okkar eöa líttu inn, við höfum geysilegt
úrval húsgagna sem henta vel í lítil barnaherbergi.
HAGSYNN VELUR ÞAÐ BESTA
HDSGA6NAHÖLLIN
BlLDSHÖFÐA 20-110 REYKJAVlK S 91-81199 og 81410