Morgunblaðið - 18.08.1983, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. ÁGÚST 1983
5
Aldraðir í sumarferð
Rúmlega eitt hundrað sóknarbörnum af eldri kynslóðinni í Langholts-
kirkjusókn var í gær boðið í sumarferð með bílum frá Bæjarleiðum. Þetta
er árleg ferð sem öldruðum safnaðarmeðlimum í Langholtssókn er boðið í,
og í gær var haldið frá Reykjavík laust fyrir kl. 1 til Hveragerðis, þar sem
Garðyrkjuskólinn var skoðaður. 1‘aðan var farið í kaffi á Þorlákshöfn, en
að lokinni kaffidrykkju var haldið til Reykjavíkur aftur. Áður en farið var
af stað, var brýnt fyrir ferðalöngum mikilvægi beltanotkunar í bflum, og
fengu allir afhenta bflbeltahappdrættismiða frá Umferðarráði. Á innfelldu
myndinni veifar Margrét ísaksdóttir til Ijósmyndarans. Moreunbi.óii Kön.
Viðskiptavið-
ræður Tékka
og Islendinga
ÞESSA dagana standa yfir í
Reykjavík árlegar viðræður Tékka
og íslendinga um viðskipti land-
anna. Þrír Tékkar, undir forystu
Joseph Keller, skrifstofustjóra í
utanríkisviðskiptaráðuneytinu í
Prag, taka þátt í viðræðunum af
hálfu Tékka, auk sendifulltrúans
hér á landi.
Af íslands hálfu taka þátt í
viðræðunum fulltrúar ýmissa
landssamtaka í atvinnulífinú, en
Sveinn Björnsson, skrifstofu-
stjóri í viðskiptaráðuneytinu, er
formaður íslensku viðræðu-
nefndarinnar.
Undir lok mánaðarins fara
fram viðskiptaviðræður íslend-
inga við Pólverja í Reykjavík,
nánar tiltekið dagana 29. ágúst
til 2. september.
Ágúst Guðmundsson, kvikmyndaleikstjóri:
Harður árekstur
í Hafnarfirði
verð frá kr. 6.950,-
Smíðum glugga úr furu, oregonpine og teakviði. ®
Einnig smíðum við glugga úr gagnvarinni furu, s
sem fjórfaldar endingu glugganna. |
Ósvikinn gæðingur
Völundar gluggar
ALLHARÐUR árekstur varð á
Reykjavíkurvegi í Hafnarfirði um
sexleytið í fyrradag. Bíl var ekið
af Hraunbrúninni í veg fyrir bíl
sem ók norður Reykjavíkurveg,
með þeim afleiðingum að hann
valt við áreksturinn á hliðina.
Kona sem ók öðrum bílnum slas-
aðist á höfði, en meiðsl hennar eru
ekki talin alvarleg.
Handrit um hirðskáld Haralds
ÁGÚST Guðmundsson, kvikmynda-
leikstjóri, hefur undanfarið unnið að
gerð kvikmyndahandrits fyrir norskt
kvikmyndafyrirtæki, Norsk Film
a.s., sem er eitt stærsta kvikmynda-
Ágúst Guðmundsson, kvikmynda-
leikstjóri.
fyrirtæki í Noregi. Handritið fjallar
um þrjú hirðskáld Haralds hárfagra
og ferðalag þeirra. Handritið er nú í
þýðingu og verður svo sent út til
Norsk Film þar sem ákveðið verður
hvort myndin verður gerð eftir hand-
ritinu eður ei.
í samtali við Mbl., sagði Ágúst
að hann hefði að mestu lokið við
handritið fyrir Norðmennina, og
væri það nú í þýðingu. Ákvörðun
um gerð kvikmyndarinnar verður
væntanlega tekin í næsta mánuði,
en Ágúst sagðist halda að kostn-
aðurinn við gerð hennar yrði ef-
laust mjög mikill vegna þess hve
margar persónur kæmu fram í
myndinni og einnig vegna þess að
myndir úr fortíðinni væru alltaf
dýrar í framkvæmd. Taidi Ágúst
að kostnaðarhliðin gæti vaxið
Norðmönnunum í augum.
Ágúst sagði að ef myndin yrði
gerð yrðu leikarar að öllum líkind-
um norskir, en ef hann fengi að
taka að sér leikstjórn, hefði hann
áhuga á samvinnu við íslenska að-
ila og gera úr þessu eins konar
„samnorræna" mynd. Myndin ger-
ist á tímum Haralds konungs hár-
fagra, en fjallar aðallega um þrjú
hirðskáld hans, þá Þorbjörn
hornklofa, Auðun illskælda og
Ölvir hnúfu, sem falla í ónáð hjá
konungi og takast á hendur mikið
hárfagra
ferðalag. Greinir myndin m.a. frá
ferðalagi skáldanna til Svíþjóðar.
Það er því bara að bíða og sjá
hvort handrit Ágústs fær grænt
ljós hjá Norðmönnum og hvort
honum verði einnig falin leik-
stjórn verksins.
Gíralaust — 2ja gíra — 3ja gíra — 5 gíra — 10 gíra
og 12 gíra.
D.B.S. reiðhjól hafa margsannað yfirburöi sína viö
íslenskar aðstæður.
ÞEKKING - REYNSLA - ÞJÓNUSTA
FALKINN 105 REYKJAVÍK
SUÐURLANDSBRAUT 8 - SÍMI 91-84670
Stuttur afgreiðslufrestur. Hagstætt verð.
Valin efni, vönduð smíð og yfir
75 ára reynsla tryggir gæðin.
Gjörið svo vel og leitið tilboða.
Viö verðum á lönsýningunni.
Timburverzlunin Volundur hf.
KLAPPARSTÍG 1, SÍMI 18430 — SKEIFAN 19, SÍMI 85244