Morgunblaðið - 18.08.1983, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. ÁGÚST 1983
19
1 1
y
Hvað ættum við að lesa
í sumarleyfinu?
texti JÓHANNA KRISTJONSDOTTIR
A Woman of her Times eftir GJ.
Scrimgeour
Útg. Pan Books 1983.
Það er mjög vinsælt að skrifa
eins konar fjölskyldu- eða ætt-
arsögur; þar hafa höfundar
sjálfsagt í huga að gera útekt á
þeim breytingum sem hver kyn-
slóð gengur í gegnum. Mér hefur
sýnzt að tíminn frá svona 1910
til 1950 og í hæsta lagi 1960 væri
afar girnilegur í augum margra
sem eru að skrifa bækur i út-
löndum.
A Woman of her Times er eft-
ir G.J. Scrimgeour nokkurn, sem
ég hef aldrei heyrt nefndan áður
og veit ekki til að hann hafi
skrifað aðrar skáldsögur. Hann
er nýsjálenzkur, fæddur árið
1934. Hann hefur verið prófessor
í Bandarikjunum síðustu tutt-
ugu og fimm árin og þykir hinn
merkasti vísinda- og fræðimað-
ur, m.a. á sviði bókmenntarann-
sókna. Það dugar honum greini-
lega ljómandi vel í þessari bók,
sem ber af öðrum þeim sem ég
hef lesið af þessu tagi. Aðalper-
sóna bókarinnar, ElizaSeth
Wingate, sem á lífsleiðinni upp-
lifir tvær heimsstyrjaidir, kynn-
ist þjáningu og gleði svona eins
og gengur og gerist — er kona
síns tíma, en aðlagar sig þó að-
stæðum hverju sinni. Bókin
hefst þegar Ceylon er nýlenda
Breta og umboðsmenn Breta-
kóngs voru meiriháttar rikis og
dáindismenn þar. En það er ekki
allt gull sem glóir. Elizabeth
kynnist því og þó að aðstæðurn-
ar á ytra borði séu fyrirferðar
miklar í bókinni er fýsilegast að
lesa um hugrenningar og við-
brögð Elizabethar sjálfrar og
lifa með henni breytingar og
byltingar á högum hennar og
hvernig hún bregst við þeim.
A Mother and Two Daughters eftir
Gail Godwin
Útg. Pan Books 1983.
Gail Godwin hefur áður sent
frá sér nokkrar bækur og margir
kannast væntanlega við Violet
Clay sem var tilnefnd til banda-
rísku bókmenntaverðlaunanna
1976 og The Odd Woman frá ár-
inu 1974 sem var tilnefnd til
bókaverðlauna ársins í Banda-
ríkjunum. I hvorugt skiptið
hreppti Godwin þó hnossið. Hún
hefur engu að síður fengið að-
skiljanlegar viðurkenningar
fyrir bækur sínar og A Mother
and Two Daughters hefur fengið
ákaflega góðar viðtökur í Banda-
ríkjunum. Hér er á ferðinni rétt
ein fjölskyldusagan enn, eins og
titillinn gefur til kynna, er fjall-
að um samskipti móðurinnar við
tvær dætur sínar. Það er reynd-
ar öldungis furðulegt, hvernig
við fórum að því að umgangast
mæður okkar hér áður meðan
við höfðum engar bækur til að
*
Pan
NOW ÍN PAPERBACK -
THE BESTSELLING SAGA OF
A WOMAN AND HER WORLD
--GJSCRiMGEOUR-
OF HER
Pan
Mothí
_ Ler
^&Two
JJaugnters
GAIL GODWIN
‘Funny, sad, provocative, ironic,
compassionate, knowing, true..
it is everything that a
novel should be’
washington
i\)st
segja okkur til. Því að í þessum
bókum eru áherzlupunktarnir að
mínum dómi býsna oft á sér-
kennilegum stöðum. En það sem
gefur Gail Gódwin vinninginn
umfram marga aðra höfunda er
fyrst og fremst rithæfni hennar
og næm og bráðskemmtileg
kaldhæðni, sem einhverjir
mundu sjálfsagt kalla kímni, en
er ívið of hrjúf til að ég nefni
hana svo.
Retten til sin far eftir Ole Salting
Útg. Heklaforlag 1983.
Einstæðir feður hafa á síðari
árum komið fram úr fylgsnum
sínum og margir hverjir gerzt
aðsópsmiklir: þeir vilja nú rétt
sinn varðandi börn sem þeir eiga
og telja sig ekki hafa haft eðli-
legan samgang við, í flestum til-
fellum vegna beizkju móðurinn-
ar og hefndarhugs. Um þetta
mál skrifar Ole Salting og það á
erindi til okkar, þó svo að margt
sé staðbundið fyrir hans heima-
land, hvað varðar löggjöf og
fleira. Hann segir í formála að
margir hafi varað hann við að
skrifa bók af þessu tagi, hann
myndi rægður og úthrópaður
hvarvetna. Það er í því undarleg-
ur tvískinningur: kariar hafa
kúgað konur og eru víst enn að
því, en samt hafa konur haft tögl
og hagldir í sambandi við börn
og forræði þeirra. En það bland-
ast engum hugur um, að hvað
svo sem veldur þessari tvöfeldni
hafa feður sýnt aukna ábyrgð-
artilfinningu gagnvart afkvæm-
um sínum og var tími til kominn.
Það leysir vitaskuld ekkert mál
að skella alltaf skuldinni á
hefndar- og heiftaraðgerir móð-
ur, karlmenn sjálfir hafa ekki
sótzt eftir forræði barna sinna
— vel að merkja með heiðarleg-
um undantekningum — og þeir
hafa svo sem ekki alltaf allir
rækt umgengni við börn sín af
neinum sérstökum sóma — einn-
ig með mörgum heiðarlegum
undantekningum. En í öllum
umræðum um þessi viðkvæmu
mál er grunnt á beizkjunni, það
er freistandi að varpa skuldinni
af sér. Galli bókar Salting er
hversu einlit hún er. Hann segir
það með vilja gert, þar sem
málstað móðurinnar hafi alltaf
verið hampað. Það getur verið
gott og blessað og nokkuð til í
því. Ole Salting leggur líka
áherzlu á að hann sé að tala um
rétt barnsins til að umgangast
báða foreldra. Um það eru allir
sammála. En einmitt þetta: rétt-
ur barnsins er stundum innan-
tómt hugtak. Það kemur svo oft í
ljós — hvort sem er í bók Ole
Salting, skrifum mæðra um
þessi mál og hvaðeina að báðum
foreldrum hættir ansi oft til að
hugsa fyrst um sinn rétt, áður en
að barninu er komið. Til þess er
sorglegt að vita.
Pabbi, mamma
og Siggi komust ekki öll í
Tívolíferðirnar tvær
Þess vegna bætum við
tveim ferðum við!
Inniíalið í allar ferðirnar: Flug, gisting í 2ja
manna herbergi, morgunverður. Flugvallaskaltur
og íerðir til og fró llugvöllum ekki innifaldar.
* Allar nánari upplysingar hjá söluskrifstoíu
Flugleiða, ferðaskrifstoíum og umboðsmönnum
um allt land.
Gengi 12/8 '83
FLUGLEIÐIR
Gott fólk hjá traustu félagi
Það eru greinilega margir sem eru áhugasamir um
ódýru Tívolíferðirnar í sólina og hitann
i Kaupmannahöfn. Vegna mikillar þátttöku í ferðirnar
20. og 26. ágúst höfum við ákveðið að bœta við
tveimur ferðum, 27. ágúst og 8. september.
Ef þú vilt taka börnin með þér og leyía þeim að
njóta œvintyra í hinu eina og sanna Tívolí, þá er tilvalið
að bjóða þeim með í Kaupmannahafnarferð með
Flugleiðum.
19.872 krónur fyrir pabba, mömmu og Sigga.
Fargjaldið fyrir íjölskyldu með bam í 3ja daga ferð er
eins og hér segir: Fyrsta íargjald 10.310 krónur, annað
íargjald 6.426 krónur og þriðja íargjald
(barn 2ja-l 1 ára) 3.138 krónur - samtals 19.872 krónur.
Brottfarir:
3ja daga íerð 20. - 23. ágúst
4ra daga íerð 26. - 30. ágúst
4ra daga ferð 27.-31. ágúst
3ja daga ferð 8. - 11. september
Innifalið: