Morgunblaðið - 18.08.1983, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. ÁGÚST 1983
21
AÐGÆSLA
— VÖRN
GEGN VÁ
UMSJÓN:
LANOSSAMBAND
HJÁLPARSVEITA SKÁTA
Öryggi
barna
innandyra
Ánægjulegt er að horfa á börn
leika sér og sjá þau gefa ímynd-
unaraflinu lausan tauminn við
að skapa eitthvað. Gefum þeim
tækifæri til að athafna sig í ör-
uggu umhverfi!
Sum herbergi íbúðarinnar
henta tæplega sem leiksvæði
fyrir börn. Þvottaherbergi og
böð með útbúnaði sínum og vél-
um geta hreinlega verið slysa-
gildrur. Sömuleiðis er eldhúsið
síst hættuminna leiksvæði fyrir
börn. Þeir fullorðnu, sem þar
eru, eiga oftast nóg með sin störf
og hafa ekki alltaf vakandi auga
með börnunum. óhappið gerist á
augnabliki.
Settu því smábörn í leikgrind
eða barnastól þegar þú ert upp-
tekin(n) við eigin störf. Hafðu
dyr að baði og þvottaherbergi
lokaðar og settu grind fyrir
stigaop. Láttu ekki hnífa og önn-
ur bitvopn liggja þar sem börn
ná til.
Stærri börnum getum við leið-
beint — smábörnin verðum við að
vernda.
Gangi ykkur vel.
Næat: öryggi barna utandyra.
Sumar-
veður
á Síðu
Á þessari mynd er fallegt
sumarveður. Myndin er tekin
austur á Siðu í fyrri viku, en
þar var þá sól, blankalogn og
hið bezta veður. Á meðan sátu
íbuar suðvesturhornsins í rign-
ingu og kulda. Heyskapur á
þessum slóðum hefur gengið
dável, en þó segja bændur að
spretta hafi ekki verið upp á
það bezta, þar sem nætur hafi
verið fremur kaldar í júlímán-
uði. Myndin er tekin upp
hamragilið við Mögá á Síðu,
sem er rétt við túnfótinn hjá
Siggeir Björnssyni bónda og
varaþingmanni Suðurlands-
kjördæmis.
ngar þig í ítölsk
Þú færð þau
hjá okkur.
Gullverðlaun
fyrir hönnun
og stíl
HUSGÖGN Langholtsvegi 111 R. simar 37010 — 37144