Morgunblaðið - 18.08.1983, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. ÁGÚST 1983 47
TVÖ HELDUR ódýr mörk á
fyrstu 19 mínútum í landsleik
íslendinga og Svía í gær-
kvöldi settu stórt strik í leik
íslenska liðsins. íslenska
landsliöið varð aö sætta sig
við stórt tap, 4—0, í leiknum
eftir aö staðan í hálfleik haföi
verið 3—0 fyrir Svía. Þaö var
strax eftir þrjár og hálfa mín-
útu sem fyrsta mark leiksins
kom. Þá skoruðu Svíar eftir
hrapallegan misskilning í ís-
lensku vörninni og á 19. mín-
útu varö aftur slysamark eftir
aö Þorsteinn hafði misst bolt-
ann fyrir fætur eins sænska
sóknarmannsins sem var
ekki í neinum vandræöum
með að renna honum í mann-
laust markið. Þessi tvö mörk
sem eru án efa með þeim
ódýrustu sem íslenskt lands-
liö hefur fengiö á sig um langt
árabil, urðu til þess aö mesti
móðurinn rann af íslensku
leikmönnunum og þeim gekk
illa að finna taktinn í leik sinn
og skapa sér færi svo heitið
gæti.
Island-A.*
Svíþjóð
á fullri ferð og sendi boltann í netið
meö miklum þrumuskalla. Mörk
eins og þau gerast hvaö fallegust.
Staðan 3—0 og aðeins 28 mínútur
liðnar af leiknum. Svíar voru svo
mjög nálægt þvi aö bæta sínu
Einstefna sænsku
leikmannanna
Eins og áöur sagði var leikur lið-
anna rétt hafinn er íslenska liðiö
var búið aö fá á sig mark. Góö
fyrirgjöf kom fyrir markiö, Þor-
steinn hikaöi viö aö fara út og
grípa boltann og eftir mistök
varnarmanna barst boltinn fyrir
fætur Mats Jingblad, sem gat
rennt boltanum í netiö meö innan-
fótarspyrnu af stuttu færi, 1—0.
Þrátt fyrir þetta mark var smá
neisti í íslensku leikmönnunum og
þeir reyndu aö byggja upp sóknir
fyrsta kortérið í leiknum. En á 19.
mínútu kom svo annaö slys fyrir.
Stungubolti kom innfyrir vörn ís-
lenska liösins og Þorsteinn hljóp út
í teiginn og náöi til boltans en
missti hann slysalega frá sér fyrir
fætur Sten Ove Ramberg sem
skoraöi örugglega. Staðan oröin
2—0 og tvö klaufaleg mörk staö-
reynd. Þaö sem eftir liföi hálfleiks-
ins var um einstefnu Svia að ræöa.
Þeir réöu lögum og lofum úti á
vellinum og geröu haröa hríö aö
íslenska markinu hvaö eftir annaö.
Vörn íslenska liösins virkaöi mjög
óörugg og hvaö eftir annaö voru
sóknarmenn Svía óvaldaöir.
Tommy Holmgren fór mjög illa
meö Ólaf Björnsson á 28. mínútu
er hann brunaöi upp allan kantinn
og náöi svo aö gefa listilega vel
fyrir markiö. Þar kom Glenn Husen
• Ragnar Margeirsson besti maður íslenaka liðsins á hór í höggi viö
sænskan varnarmann og hefur betur.
• Þriðja mark Svía í uppsiglingu. Þorsteinn markvörður missir boltann frá sér og framherjinn sænski nær til hans og afgreiðir boltann í netið.
Mbl./Fridþjófur Helgaton.
fjóröa marki í hálfleiknum viö á 41.
mínútu er Ramberg komst í gegn
og átti gullfallegt skot, sem fór
beint í vinkil marksins og hrökk
síðan út á völlinn. Þar var heppnin
með liði okkar.
Þau voru ekki mörg færin sem
íslenska liðiö átti í leiknum. Þó
kom mjög góö sókn á 11. mínútu.
Óli Þór átti heiöurinn af mjög góöri
sendingu inn á miðju vallarins til
Ragnars Margeirssonar þar sem
hann var viö vítateiginn. Ragnar
komst inn í teiginn og skaut góöu
skoti, en svo til beint á sænska
markvöröinn; var vel aö þessari
sókn staöiö. Á 33. mínútu átti
Sveinbjörn gott skot en þaö var
varið.
Svíar léku af öryggi
í síöari hálfleiknum
i síðari hálfleiknum lék sænska
liðiö af öryggi og geröi sér greini-
lega far um aö halda fengnum hlut.
íslensku leikmennirnir léku heldur
betur en í fyrri hálfleiknum en þaö
dugöi skammt. Annaö slagiö brá
jú fyrir sæmilegum sóknarlotum,
en marktækifærin létu standa á
sér. Svíar voru mjög nálægt því aö
skora sitt fjóröa mark á 56. mínútu
en Bjarni bjargaöi meö úthlaupi.
Fjóröa og síöasta mark Svía
kom úr vítaspyrnu á 83. minútu.
Framherjinn Mats Jungblad komst
aleinn í gegn og átti ekkert eftir
nema markvöröinn þegar honum
var brugöiö og dæmd vítaspyrna.
Stig Fredriksson skoraði örugg-
lega úr vítinu og innsiglaöi stóran
sæsnkan sigur. Helgi Bentsson átti
eina umtalsveröa færi íslenska
liðsins í síöari hálfleiknum en hann
missti boltann of langt frá sér inn í
vítateignum og færiö rann út í
sandinn.
Liöin:
Aö fá á sig tvö ódýr mörk strax í
upphafi landsleiks setur leikmenn
út af laginu og dregur úr baráttu-
viljanum. Sér í lagi þegar leikið er
gegn jafn sterku liöi og því
sænska. Og sú varð raunin á í gær.
Þaö er erfitt aö hrósa einstöku
leikmönnum í islenska liöinu.
Ragnar Margeirsson átti einna
bestan leik svo og Óli Þór Magn-
ússon. Sveinbjörn Hákonarson og
Siguröur Grétarsson áttu spretti
en hurfu þess á milli. Bjarni Sig-
urösson sem kom í markiö og lék
síðari hálfleikinn komst líka ágæt-
lega frá leiknum.
Þaö sem var einna helst aö hjá
íslenska liöinu í gær var varnarleik-
ur liðsins. Hann virkaði óöruggur
og þrátt fyrir að einstaka leikmenn
reyndu aö berjast þá vantaði meiri
og betri heildarsamvinnu. Full mikil
viröing var borin fyrir sænsku leik-
mönnunum. Þá var miösvæði vall-
arins gefiö alltof mikiö eftir. Þrátt
fyrir aö leikiö sé gegn sterku
landsliöi þá má ekki draga leik-
mennina of mikiö aftur.
Þorsteinn Bjarnason, sem leikiö
hefur margan góöan landsleikinn,
var mjög mistækur í markinu í fyrri
hálfleiknum og var honum skipt út-
af í hálfleik og Bjarni Sigurösson
kom í hans staö.
Sænska liöið sýndi góöa takta í
leiknum í gær. Leikmenn héldu
boltanum vel og skiluðu boltanum
mjög vel frá sér. Samleikur þeirra
var stuttur en haröur og hvaö eftir
annaö voru íslensku varnarmenn-
irnir slegnir út af laginu. Tommy
Holmgren, Glenn Hysen, og Sten
Ove Ramberg léku allir mjög vel,
en þaö var fyrst og fremst sterk
liðsheild sem vann öruggan og
stóran sigur.
I stuttu máli: Landsleikur:
ísland — Svíþjóö 0—4 (0—3)
Mörk Svía: Jinghlad, Ramberg,
Hysen, Fredriksson.
Gul spjöld: Engin.
Dómari: David Richardsson og
dæmdi hann leikinn mjög vel
ásamt linuvörðum sínum, þeim Óla
P. Ólsen og Sævari Sigurðssyni.
islenska landsliöiö var þannig
skipaö: Þorsteinn Bjarnason, Viöar
Halldórsson fyrirliöi, Ólafur
Björnsson, Siguröur Lárusson,
ómar Rafnsson, Ragnar Margeirs-
son, Árni Sveinsson, Siguröur
Grétarsson, Óli Þór Magnússon,
Sveinbjörn Hákonarson.
í hálfleik komu inná Bjarni Sig-
urðsson, kom í mark og lék allan
síöari hálfleikinn. Þá kom Gunnar
Gíslason inná i staö Árna Sveins-
sonar og Helgi Bentsson kom inná
í staö Sigurðar Jónssonar.
— ÞR.
KSÍ tilkynnir
þátttöku í HM
Á FUNDI Knattspyrnusambands islands í gær var ákveðið að tilkynna
þátttöku í undankeppni heimsmeistarakeppninnar í knattspyrnu en
úrslitaleikir hennar fara fram í Mexíkó árið 1986. Að þessu sinni verður
dregið í byrjun desember og geta liðin fengiö aö semja sín á milli um
leiktíma og við gætum hugsanlega leikiö okkar leiki næsta sumar ef
við lendum á liði sem er dottiö út úr Evrópukeppninni; þaö er aö segja
ef samningar nást um það.
T vö ódýr mör k S vía komu
íslenska liðinu úr jafnvægi