Morgunblaðið - 18.08.1983, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. ÁGÚST 1983
13
Hótel Föroyar:
Leggjum mesta áherzlu á
Norðurlönd og Þýzkaland
— segir Harald Eirikstoft, gjaldkeri
HINN 2. maí síðastliðinn var í
Þórshöfn í Færeyjum opnað nýtt og
glæsilegt hótel, Hótel Föroyjar, og
leysir það af hólmi gamalt hótel með
sama nafni. Bygging hótelsins tók 2
ár og voru Phil og sön aðalverktakar
við bygginguna. Hótelið er 6.000 fer-
metrar og í því eru 108 tveggja
manna herbergi auk veitingasalar,
veizlusala og fleira. Byggingarkostn-
aður er um 215 milljónir íslenzkra
króna. Hótelið er í eigu banka og
tryggingafélaga í Færeyjum.
Blaðamaður Morgunblaðsins var
þar á ferð fyrir skömmu og bað
gjaldkera hótelsins, Harald Eiriks-
toft, að lýsa hinu nýja hóteli.
„Af þessum 108 herbergjum eru 8
svítur með sér setustofum og öðrum
nýtízku búnaði. öll herbergin eru
með baði, síma og útvarpi með fjór-
um rásum og búin vönduðum hús-
gögnum. Þá erum við með þrjá
ráðstefnusali með öllum nýtízku
búnaði. veitingasalur tekur um 100
manns í sæti og síðan er veizlusalur,
sem rúmar 500 manns, en má skipta
niður í þrjár smærri einingar. Þá er
í hótelinu bar fyrir lokaðar veizlur
og verða þá veizluhaldarar að koma
með áfengið, sem síðan er afgreitt á
barnum. Afengislöggjöfin hér í Fær-
eyjum er ekki beinlínis hliðholl hót-
elrekstri og erlendir ferðamenn eiga
ákaflega erfitt með að skilja það, að
ekki skuli vera hægt að fá létt vín
með veizlumat. Við erum að öðru
leyti mjög vel í stakk búnir til að
annast veizluhöld hér og má geta
þess, að meðan Paul Schlúter, for-
sætisráðherra Danmerkur, var hér í
Færeyjum, bjó hann hjá okkur og
héidum við allar veizlur hans í
Þórshöfn."
En hvernig gengur reksturinn?
„Þrátt fyrir að við séum nýbyrjað-
ir og höfum ekki auglýst mikið enn-
þá, hefur þetta gengið vel og nú er-
um við fullbókaðir. Mikið af Norð-
mönnum og Dönum hefur verið hér
auk slæðings ferðamanna frá öðrum
löndum. Meðal annars höfum við
haft einn íslenzkan ferðamannahóp
hér. Við ætlum okkur að leggja meg-
in áherzluna á Norðurlöndin og
Þýzkaland og eru farþegaskipið
Norröna og Norræna húsið mikil-
vægir þættir í því að fá ferðamenn
hingað til Færeyja. Það er mjög
fjárfrekt að auglýsa hótel eins og
þetta og ferðamannaþjónustu upp og
höfum við því slegið okkur saman
við Smyril-Line og Ferðamannastov-
una í því sambandi. 1 samvinnu við
Ferðamannastovuna bjóðum við upp
á hópferðir um eyjarnar og einstakl-
ingar geta gengið inn í fastar skoð-
unarferðir Ferðamannastovunnar.
Séum við beðnir björgum við nánast
öllu, sem gesturinn biður um.
Hvað fjárhaginn varðar og vænt-
anlega afkomu er erfiðara að gera
sér grein fyrir. Við Færeyingar erum
nýlega byrjaðir að laða ferðamenn
til eyjanna og það fer allt eftir því,
hvernig það gengur. Við reiknum þó
með því að 5 til 6 fyrstu árin verði
okkur erfið," sagði Harald Eiriks-
toft.
Gott útsýni er úr ölhtm herbergjum hótelsins. Hér sést yflr hhita Þórshafnar.
v *,*»)&*,
Úr móttöku hótelsins.
Með drifi á öllum hjólum!
• Spameytinn 1500cc vél
• Dríf á öllum hjólum
• 6gíraráfram
• Þægindi fólksbílsins
• Notagildi jeppans
• Útlit framtíðarbílsins
TOYOTA
P. SAMÚELSSON & CO. HF.
UMBOÐIÐ
NÝBÝLAVEGI 8
KÓPAVOGI
SIMI44144