Morgunblaðið - 18.08.1983, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. ÁGÚST 1983
25
Texti: H(i — Myndir: Ragnar Axelsson
Nokkur þúsund kassar af freðfiski voru í frystiklefum auk beitu og smokkfisks og mun
það allt að mestu ónýtt.
■ ■■■
jjl i*'
lust upp og tóku á sig ýmsar torkennilegar myndir í hitanum. Það var rétt eins og bárujárnið leki niður. Til að komast að eldinum varð að rjúfa þakið og unnu menn síðan kappsamlega að því
að dæla vatni á eldinn.
Lúðvlksson við slökkvistörf.
ístir í reykmistri í baksýn
Eldurinn
gaus upp
eins og
hendi væri
veifað
— segir Ómar Lúövfksson,
slökkviliðsstjóri
„SLÖKKVISTARFIÐ hefur gengið
vonum framar miðað við aðstæður,
það hefur ekki skort vatn eða
mannskap. Eldurinn gaus upp á
mjög skömmum tíma og barst um
allt húsið. Það var því lítið hægt að
gera annað en að slá á eldinn. Þeg-
ar enginn slasast skipta fjármunir
ekki svo miklu máli,“ sagði Ómar
Lúðvíksson, slökkviliðsstjóri, er
Morgunblaðið ræddi við hann rétt
eftir hádegið.
„Frá mínum bæjardyrum séð
hefur ekki verið spurning um það
hvort húsið brynni, heldur hve-
nær. Þetta er gamalt hús, sem
alloft hefur verið stækkað og í því
eru engir eldvarnarveggir og
mikið um gömul umbúðaloft. Það
var þó lán í óláni að þetta gerðist
við núverandi aðstæður. Nóg var
af vatni í læknum, sem rennur
hér hjá, en ef þetta hefði gerzt
um vetur, hefði ábyggilega orðið
vatnsskortur.
Eldurinn hefur að öllum líkind-
um komið upp í námunda við
gamalt umbúðaloft og svo snögg-
lega gaus hann upp, að fólkið
komst með naumindum niður af
kaffistofunni. Þetta var rétt eins
og hendi væri veifað," sagði ómar
Lúðvíksson.
Vordís Hafsteinsdóttir og Anna Birna Sigurbjörnsdóttir, starfsstúlkur í
frystihúsinu.
Er nánast algjör
stöðnun framundan
— segir Auðunn Olafsson, sveitarstjóri
„ÞAÐ er öll frystilínan brunnin og
viróist gjörsamlega ónýt. Hér unnu
um 60% vinnufærra manna á staðn-
um og nú virðist algjör stöðnun vera
framundan. Mikil bjartsýni hefur
ríkt hér á Hellissandi undanfarið og
mikið verið byggt upp á staönum svo
þetta er mikið áfall, en menn hér
eru ekki vanir að gefast upp,“ sagði
Auðunn Olafsson, sveitarstjóri á
Hellissandi, er Morgunblaðið ræddi
við hann á brunastaö í gær.
„Það er enn ekki séð fyrir end-
ann á þessu, það eru aðeins um
þrjár klukkustundir síðan eldsins
varð vart. Ljóst er þó að eyðilegg-
ingin er mikil og ekkert verður
farið að ræða um framhaldið fyrr
en síðar.
Eldsins varð vart um klukkan
10 og slökkvilið Neshrepps utan
Ennis kom nær þegar á staðinn.
Slökkviliðið frá Olafsvík kom
skömmu síðar og loks slökkvilið
Grundarfjarðar um klukkan 12.
Þá hafa þeir, sem unnið hafa við
frystihúsið tekið mikinn þátt í
slökkvistarfinu, en lítið hefur ver-
ið hægt að gera. Eldurinn breidd-
ist ótrúlega hratt út eftir þakinu,
enda var mikill vindur í morgun
og svo kappkostað var að bjarga
því, sem bjargað varð,“ sagði Auð-
unn Ólafsson.
Auðunn Ólafsson, sveitarstjóri.
Eins og allt
spryngi upp
og þá var
bara að
forða sér
— segir Vordís
Hafsteinsdóttir
„ÉG HEF verið að reyna að hjálpa
til við slökkvistarfið, bera út gas-
kúta og slökkva eldinn og það hef-
ur gengið sæmilega. Annars hef ég
unnið hér í 5 mánuði og það er
slæm tilFinning að missa vinnuna á
þennan hátt,“ sagði Vordís Haf-
steinsdóttir, starfsstúlka við frysti-
húsið.
Ég verð að fara að leita mér að
annarri vinnu en tel ólíklegt að
hún fáist hér. Ég verð líklega að
leita eftir henni inn til Ólafsvík-
ur. Ég vona bara að ég fái vinnu.
Ég var niðri í gömlu kaffistof-
unni, þegar eldurinn kom upp og
hélt fyrst að þetta væri bara
smáræði. Þegar ég fór að athuga
það betur, gaus mikill reykur upp
og rétt á eftir var eins og allt
spryngi upp og þá var bara að
forða sér,“ sagði Vordís Haf-
steinsdóttir.
„Ég fór upp á kaffistofu rétt
fyrir klukkan 10 til að glugga í
samninga og varð þá ekki vör við
neitt. Svo leit ég upp og sá mikinn
reyk koma inn af umbúðaloftinu,
þar sem kassarnir eru merktir.
Ég kallaði þá eitthvað inn í kaffi-
stofuna, ég man ekki hvað, svo
mikið brá mér. Síðan var ekki um
annað að ræða en að hlaupa út.
Það er vissulega slæmt að missa
vinnuna, en það dugar ekki að
gefast upp, ég verð bara að leita
að annarri vinnu,“ sagði Anna
Birna Sigurbjörnsdóttir, starfs-
stúlka í frystihúsinu.