Morgunblaðið - 18.08.1983, Síða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. ÁGÚST 1983
Sveinbjörn fekk
tveggja leikja bann
— nær þo i
Skagamaðurinn Sveinbjörn
Hákonarson fékk í vikunni
tveggja leikja bann vegna þess
að hann hafði fengið 15 refsistig í
sumar og mun hann því ekki
leika meö Skaganum á móti ÍBÍ
né ÍBK, en hann sleppur aftur á
móti í bikarúrslitaleikinn sem
verður 28. ágúst.
Þrótfarar fengu slæma útreið að
þessu sinni þegar aganefndin hélt
fund. Þeir fengu þrjá menn dæmda
i eins leiks bann hvern. Ársæll
Kristjánsson, Sverrir Pétursson og
bikarurslitin
Siguröur Hallvarðsson veröa þvi
ekki með í leiknum gegn Víkingum
þann 24. ágúst. Sverrir og Ársæll
fengu banniö vegna 10 refsistiga
en Sigurður vegna brottrekstrar.
Það sama var uppi á teningnum
varðandi Hörö Hilmarsson úr Val,
hann fékk einn leik í bann vegna
brottvísunar úr leik, en Ragnar
Gíslason úr Víking fékk einn leik
vegna 10 refsistiga og mun hann
því ekki leika á móti ÍBV og Höröur
missir líklega af leiknum viö Þór,
nema þeir leiki við iBV í millitíðinni.
Enginn úr Reykjavík
í landsleiknum í gær viö Svíþjóö vakti það athygli sumra þeirra sem
mættu á völlinn aö enginn leikmaður úr Reykjavík var í landsliðinu
sem lék, Hafþór Sveinjónsson úr Fram var varamaður en hann kom
ekkert inná í leiknum. Knattspyrnuáhugamaður laumaöi því að mér að
það væri ef til vill alveg í samræmi við hvernig knattspyrnan væri í ár
því í undanúrslitum bikarkeppni KSÍ hefði ekkert lið héðan verið, það
heföu allt verið utanbæjarmenn og sagöi hann aö greinilegt væri aö
knattspyrnan væri á mikilli uppleið „úti á landi“.
• Eitt af fáum marktækifærum íslenska landsliðsins í leiknum gegn Svíum í gærkvöldi. Helgi Bentsson
missir boltann aðeins of langt frá sér í dauðafæri við sænska markið. Markvörðurinn sænski hefur hlaupið
út á móti og kastað sér á fætur Helga.
Arnór lék vel með liði
BELGISKA knattspyrnan hófst í
fyrradag og voru þá leiknir þrír
leikir í 1. deildinni. Arnór Guð-
johnsen lék vel með Anderlecht t
sínum fyrsta leik með þeim, en
þaö dugöi þó skammt því þeir
töpuðu, 2—1, gegn Beerschot.
Lokaren lék frábærlega vel þegar
þeir mættu Beringen og eftir að-
eins 20 mínútur var staöan orðin
3—0. Van der Elst, sem áður lék
með West Ham, skoraði fyrsta
markið í leiknum strax á fyrstu
mínútunni og var það jafnframt
fyrsta markið í deildinni í sumar.
Loks gerðu Waregem og Mechel-
en jafntefli, hvort lið skoraði eitt
mark.
í gærkvöldi var keppninni haldiö
áfram og lék Antwerpen, lið Péturs
Péturssonar. við Molenberg á úti-
velli og varð markalaust jafntefli.
Að sögn Péturs var þetta ágætis
leikur og heföu þeir mátt vinna
hann, því hinir björguðu þrívegis á
Pétur Pétursson:
„Við erum með nokkuð
sterkt lið í ár“
EINS OG fram kemur hér á síð-
unni þá lék Antwerpen í belgísku
deildinni í gærkvöldi og gerðu
þeir markalaust jafntefli viö Mol-
enberg. Pétur Pétursson lék meö
í leiknum, en honum tókst ekki
að skora frekar en öðrum á vell-
inum.
Pétur sagði í samtali við Mbl. í
gærkvöldi að hann hefði ekki átt
neitt sérstakan dag, en þó heföi
hann ekki verið neitt lélegur held-
ur, Hann kvaðst alveg vera hættur
við aö fara til Spánar og taldi lík-
legt að hann yrði hjá Antwerpen í
vetur að minnsta kosti.
„Ég er ekki kominn í nægilega
gott form ennþá, ég byrjaöi seinna
en aðrir leikmenn hér en þetta
hlýtur allt aö koma hjá mér. Við
erum með gott lið í ár og ég spái
því að okkur gangi vel," sagði Pét-
ur Pétursson að lokum.
— sus
• Hér má sjá tvö kunnugleg andlit og ef myndin gæti talað þá þekkti
örugglega hvert mannsbarn á íslandi þessa kappa. Siguröur Sigurðs-
son, fyrrverandi íþróttafréttamaður Ríkisútvarpsins, og Hermann
Gunnarsson, sem gegnir því starfi í dag. Siguröur var með Hermanni á
landsleiknum við Svía í gær og hefur hann eflaust vonast eftir sigri
eins og þegar hann lýsti leiknum áríð 1951, sem við unnum 4—3, en
það mun vera fyrsti leikurinn sem Sigurður lýsti í útvarpinu. Nú eru 13
ár síðan hann hætti að lýsa og eflaust hafa vaknað margar minningar
hjá honum þegar hann settist á ný í þularsætiö á Laugardalsvellinum,
en því miður dugði þaö ekki tit sigurs.
Anderlecht
línu en áttu ekkert færi sjálfir.
Antwerpen skoraði eitt mark og
var það löglegt aö allra dómi en
dómarinn sá eitthvaö athugavert
og dæmdi það af. Pétur sagði að
þetta hefði verið allt í lagi því þeir
hefðu tapað þarna undanfarin
fimm ár.
Standard sigraði Gent á útivelli,
2—0, Lierse tapaöi á heimavelli
fyrir Kortrijk, 0—1, og sama
markatala varð í leik Brugge og
Beveren, Laug tapaði einnig fyrir
Seraing, 0—1, þannig að það var
mikiö um útisigra í Belgíu i gær-
kvöldi.
„íslenska liðið
lék prúómannlega“
David Richardson dómari frá Englandi: „Þetta var mjög
ánægjulegur leikur og góö æfing áður en deildin byrjar hjá
okkur eftir 2 vikur. Ég hef aldrei séö ísland leika áöur, þannig að
ég get ekki dæmt um frammistöðu þeirra í kvöld og þaö sama
má segja um Svíana, maöur horfir ekki þannig á leikinn að
maður sjái hverjir séu góðir og hverjir ekki, þannig að ég treysti
mér ekki til að segja til um það. Mig langar aö taka eitt fram og
það er að ég er mjög ánægöur hversu drengilega liðin léku,
sérstaklega Island, því það vill oft brenna við þegar liö er undir
að þaö leiki alltof stíft eöa jafnvel gróft, en það gerðu þeir ekki,
heldur léku þeir mjög prúðmannlega“.
„Við höfum leikið betur“
— sagði þjálfari Svía, Arnesson
Tommy Holmgren, besti maður
Svía í leiknum: „Þetta var alls
ekki léttur leikur hjá okkur. Viö
vorum mjög heppnir að skora tvö
fyrstu mörkin og þaö var það sem
við þurftum. Þessi leikur hjá
okkur í kvöld var ekkert verri en
þeir leikir sem viö höfum leikið
að undanförnu þannig að það er
misskilningur að við höfum leikið
öðruvísi hér en viö höfum gert að
undanförnu.
Lars Arnesson þjálfari: „Þaö er
alltaf gott að vinna leik meö
svona mörgum mörkum og því er
ég mjög ánægóur. Viö höfum
leikiö betur og ef viö hefðum haft
3—4 leikmenn sem ekki voru hér
í kvöld þá væri liðið sterkara en
viö lékum mjög vel núna þrátt
fyrir þaö. Fyrri hálfleikurinn var
mun betri hjá okkur en í þeim
síðari lékum við af öryggi. Leik-
maður nr. 9 hjá ykkur (Ragnar
Margeírsson) var besti maður ís-
lands og einn af bestu mönnum
vallarins og ég vildi gjarnan hafa
hann í mínu liði. Hjá mér var
Tommy Holmgren bestur.“
Sagt eftir leikinn:
„Þetta var grátlegt“
— sagði Viðar Halidórsson fyrirliði
Viöar Halldórsson fyrirliði ís-
lands: „Þetta var agalega grátlegt
en Svíarnir voru mjög sterkir og
þeir fá tvö gjafamörk snemma í
leiknum og það slær okkur al-
gerlega út af laginu. Svíarnir
koma greínilega mjög sigurvissir
tíl þessa leiks og þeir voru góðir
en það bætir ekki fyrir það að
leíkur okkar var alls ekki nógu
góöur.“
Ragnar Margeirsson besti
maður íslands: „Ég er nokkuð
ánægður með mig persónulega
sérstaklega í fyrri hálfleik en ég
var orðinn ansi þreyttur undir lok
leiksins. Þessi tvö mörk voru al-
veg hræöileg, þeir eru meö mjög
sterkt lið og voru einfaldlega
miklu betri. Okkar lið er mjög
ungt, við erum með sex leikmenn
sem leika í landsliðinu undir 21
árs og það vantar auövitað hjá
okkur leikreynslu."
Jóhannes Atlason þjálfari ís-
lands: „Viö fáum á okkur tvö út-
sölumörk mjög fljótt í leiknum og
það kom eins og gusa framan í
okkur. Við byrjuðum vel og þaö
virtist vera stemmning í strákun-
um en mörkin uröu til þess aö sú
stemmning datt niður. Miðað viö
gang leiksins þá hefðu Svíarnir
mátt skora tvö mörk og við feng-
um nokkur færi, aö vísu ekki
mörg, en okkur tókst ekki aö nýta
okkur þau. Tommy Holmgren var
langbestur hjá þeim en þeir eru
með geysilega sterkt liö og mjög
jafnt."
Þorsteinn Bjarnason mark-
vöröur: „Mér fannst margt gott í
þessum leik en fyrsta markið var
mjög klaufalegt, það var mikill
misskilningur hjá okkur. Það
hefði verið sanngjarnt að staðan í
hálfleík heföi verið 1—0 fyrir þá
en ekki 3—0. Jú, þetta er í fyrsta
skipti sem ég er tekinn útaf í leik
en það er ekkert viö því aö segja
annað en aö standa sig betur
næst.“