Morgunblaðið - 30.08.1983, Blaðsíða 30
38
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. ÁGÚST 1983
t . Móöir okkar, , ASTA JÓNSDÓTTIR, Túngötu 43, lézt á heimili sínu, laugardaginn 27. ágúst. Börnin.
t Eiginmaöur minn og faöir okkar, EIRÍKUR GARÐAR GÍSLASON, ralvirkjameistari, Kleppsvegi 140, : lést í Landakotsspitala aöfaranótt 27. þ.m. Margrét Eyþórsdóttir og börn hins látna.
t Maöurinn minn, ÁRNI ÞORSTEINN ÁRNASON, fv. lóöaskrárritari, lést sunnudaginn 28. ágúst. Hanna V. Gísladóttir.
t RAGNHEIÐUR STEFÁNSDÓTTIR frá Starmýri, Hátúni 10A, í andaöist í Landspítalanum 5. ágúst. Jaröarförin hefur fariö fram í kyrrþey aö ósk hinnar látnu. Helga Sigfúsdóttir.
t Eiginkona mín, móöir, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÍÐUR GUOJÓNSDÓTTIR, Langagerði 126, ? andaðist í Landspítalanum 28. ágúst. Höröur Steinþórsson, Ingibjörg Haröardóttir, Reynir Jósepsson, barnabörn og barnabarnabarn.
t Eigikona mín og móöir okkar, GUORÚN SÖRENSEN, Kleifarvegi 8, 'i andaöist í Borgarspitalanum 27. ágúst. Ólafur Þ. Pálsson, Georg Ólafsson, Hafsteinn Ólafsson, Ágúst Ólafsson, Jónína Ólafsdóttir.
t Eiginmaöur minn, faöir, tengdafaöir og afi, ERNST GEORG BERNDSEN, andaöíst aö heimili sínu Karlsskála, Skagaströnd, 21. ágúst sl. Jaröarförin hefir fariö fram í kyrrþey að ósk hins látna. Þökkum öllum auösýnda samúö og vináttu. Guörún Helgadóttir Berndsen, Helga Berndsen, Gunnlaugur Árnason, Karl Þ. Berndsen, Fríöa Hafateinsdóttir, Adolf J. Berndsen, Hjördis Siguröardóttir og barnabörn.
t Minningarathöfn um RAGNHEIÐI HANSEN ÞORSTEINSSON, Úthlíö 4, Reykjavík, fer fram í Dómkirkjunni í Reykjavík, fimmtudaginn 1. sept. og hefst kl. 10.30. Jarösett veröur aö Húsafelli siödegis sama dag. Freymóöur Þorsteinsson, María Guömundsdóttir.
t Útför fööur okkar, GUNNARSPÉTURSSONAR, Selvogsgrunni 29, fer fram frá Fossvogskirkju í dag, 30. ágúst, kl. 3. Þeir sem vilja minnast hans eru vinsamlegast þeönir aö láta líknar- stofnanir njóta þess. Sigríöur Halldóra Gunnarsdóttir, Sigrún Gunnarsdóttir og fjölskyldur.
Sólveig Bjarnadóttir
Ansnes — Minning
Fædd 24. maí 1909
Dáin 21. ágúst 1983
Frú Sólveig Bjarnadóttir Ans-
nes andaðist í Landakotsspítala
eftir nokkurra mánaða stranga
sjúkdómslegu. Sólveig var fædd í
Vík í Mýrdal 24. maí 1909, dóttir
hjónanna Bjarna Kjartanssonar,
kaupfélagsstjóra, og Svanhildar
Einarsdóttur, sem öllum Skaft-
fellingum voru að góðu kunn. Föð-
urætt Sólveigar var frá Drangs-
hlíðardal undir Eyjafjöllum, en
móðurættin úr Mýrdalnum. Afi
hennar og amma, Einar Hjaltason
og Ingibjörg Sigurðardóttir, voru
frumbyggjar Víkurkauptúns, og
fluttu þangað frá Stóru-Heiði 1896
og bjuggu þar til 1913, er þau
fluttu að Kerlingadal í Austur-
Mýrdal. Einar stundaði jöfnum
höndum búskap og sjómennsku í
Vík og frá Kerlingadal, og var hið
mesta þrek- og dugnaðarmenm.
Þegar Einar var kominn í sjóklæð-
in minnti hann á hina fornu vík-
inga, eins og maður hugsaði sér
þá.
Sólveig ólst upp hjá foreldrum
sínum í Vík og fluttist með þeim
til Siglufjarðar 1928, þegar Bjarni
Kjartansson tók þar við forstjóra-
starfi hjá Áfengisverslun ríkisins
þar. Þau Bjarni og Svanhildur
nutu mjög almennra vinsælda í
Skaftafellssýslu og var fjölskyld-
unnar almennt saknað, þegar hún
fluttist burt úr héraðinu.
Þegar góðir samferðamenn eru
kvaddir, eftir langa samleið, koma
fram í hugann margar hugljúfar
minningar, ekki síst frá æskuár-
unum.
Ég var nýlega á ferð austur í
Vík á björtum og fögrum sól-
skinsdegi. Þá gat ég ekki annað en
hugsað um þær miklu breytingar,
t
Eiginmaður minn og faðir okkar,
KRISTBJÖRN TRYGGVASON,
laaknlr,
verður jarösunginn frá Fossvogskirkju, miövikudaginn 31. ágúst
kl 13 30 Guðbjörg Helgadóttir,
Helgi Kristbjarnarson,
Fanney Kristbjarnardóttir,
Halla Kristbjarnardóttir.
t
Eiginkona min, móðir okkar og tengdamóðir,
STEFANÍA SIGUROARDÓTTIR,
dvalarheimilinu Hlíð,
Akureyri,
verður jarösungin frá Akureyrarkirkju á morgun, miövikudaginn
31. ágúst kl. 13.30.
Siguröur
Siguröur Báröarsson,
Rannveig Siguröardóttir,
Haukur Sigurósson,
Kolbrún Siguróardóttir,
Rósmundsson,
Sigríöur Einarsdóttir,
Höröur Sigtryggsson,
Þyrí Jónsdóttir,
Skarphéóinn Gunnarsson.
t
Eiginmaöur minn, faöir okkar, tengdafaöir og afi,
GUDMUNDUR ÁGÚST GÍSLASON,
pípulagningameistari,
Hjaltabakka 28,
veröur jarösunginn frá Fríkirkjunni, miövikudaginn 31. ágúst kl.
13 30
Stefanía Guömundsdóttir,
Jörundur S. Guðmundsson, Anna Vigdís Jónsdóttir,
Jón Guómundsson, Kristjana Eiösdóttir,
Finnur Guömundsson, Margrét Sveinbjörnsdóttir,
Sigríöur S. Guömundsdóttir, örn Steinar Sigurösson,
Gísli S. Guómundsson, Þórdís Baldursdóttir
og barnabörn.
Lokað
frá kl. 1 í dag vegna jaröarfarar
Gunnars Péturssonar.
MALNINGAR
VÖRUR
Lokað
í dag frá 2—4 vegna jaröarfarar
Gunnars Péturssonar.
GRENSÁSVEG II -
Lokað
frá hádegi á morgun, miövikudag, vegna jaröarfarar.
H.A. Tulinius heildverslun.
Lokað
í dag vegna jaröarfarar
Jóhannesar Ó. Guömundssonar, forstjóra.
Magnús Th. S. Blöndal h/f.
sem orðið hafa í Víkinni, síðan
Sólveig, bræður hennar og við
æskufélagar þeirra vorum að alast
þar upp. Sandurinn er að mestu
upp gróinn, og byggðin hefur
færst nær ströndinni, þar sem áð-
ur þótti lítt byggilegt, og klettarn-
ir í urðinni, undir hlíðum Reynis-
fjalls, þar sem við unglingarnir
lékum okkur, eru nú flestir horfn-
ir í sand, og Víkuráin er nú ekki
lengur það fljót, sem okkur sýnd-
ist í æsku. En það er víst, að okkur
hlýnar um hjartaræturnar, þegar
við komum á æskustöðvarnar þar
eystra, og virðum þær fyrir okkur
og minnumst glaðra og góðra
æskufélaga. Og víst var það, að
aldrei var Sólveig Bjarnadóttir
glaðari, en þegar talið barst að
þessum minningum. Og oft hafa
atvikin hagað því svo, að æskufé-
lagarnir frá Vík hafa haldið áfram
að vera manni samferða, þótt í
öðrum byggðarlögum væri og
samfundir færri en áður.
Sólveig bar um margt einkenni
ættar sinnar, myndarskap í fasi
og framkomu. Hún var glöð í vina-
hópi, gestrisin og frábærlega
trygg í lund.
í Siglufirði giftist hún Þorvaldi
Ansnes, verslunarmanni, og
bjuggu þau fyrstu árin í Siglufirði,
en síðar hér í Reykjavík. Þorvald-
ur var hjálpsamur og drengur góð-
ur. Hann lést hér í Reykjavík árið
1971. Börn þeirra eru Guðrún,
húsmóðir í Kópavogi, gift Harry
Steinsson, stýrimanni, og Bjarni
Hörður, skólastjóri á Flúðum í
Árnessýslu, kvæntur Rut
Guðmundsdóttur. Ungan son,
Hörð, misstu þau á Siglufirði.
Frú Sólveig Bjarnadóttir verður
vinum sínum jafnan minnisstæð,
ekki síst fyrir myndarskap sinn og
trygglyndi- Hvar sem hún átti
heimili, bar allt vott um snyrti-
mennsku og myndarskap og þótt á
móti blési í lífinu, mætti hún erf-
iðleikunum með festu og stillingu.
Hún átti líka góða bræður, þá Ein-
ar, Kjartan og Björgvin, sem
reyndust henni tryggir og trú-
fastir. Og innan fjölskyldunnar og
meðal vina sinna naut hún ást-
ríkis, vinsælda og virðingar. Það
er aðeins tæpt ár síðan Kjartan
bróðir hennar lést, svo skammt
var milli þeirra systkinanna.
Einu mætti síst gleyma, þegar
Sólveigar er minnst, en það var
órofa tryggð hennar við æsku-
stöðvarnár austur í Vík. Þar átti
hún góða vini, allt frá barnæsku,
og sjaldan var hún glaðari en þeg-
ar hún hafði dvalið þar eystra og
fengið gott veður, sem minnti
hana á bjarta æskudaga.
Síðasti áfanginn á lífsleið Sól-
veigar var sérstaklega erfiður,
eins og oft vill verða, en þótt hún
vissi hvert stefndi, tók hún öllu
með ró og festu. Hún var þakklát
ástvinum sínum, sem báru byrð-
arnar með henni og fylgdust með
baráttu hennar og hugsuðu til
hennar.
Við hjónin þökkum Sólveigu
fyrir trúfasta vináttu á liðnum ár-
um og fjölskyldu hennar fyrir alla
tryggð og biðjum henni blessunar
í nýjum heimi og ástvinum hennar
öllum styrks og verndar.
„Dæm svo mildan dauða,
Drottinn, þínu barni,
eins og léttu laufi
lyfti blær frá hjarni,
eins og lítill lækur
Ijúki sínu hjali
þar sem lygn í leyni
liggur marinn svali." (M.Joch)
Óskar J. Þorláksson.