Morgunblaðið - 07.09.1983, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 1983
3
Götur víða hækkaðar til
að ná niður umferðarhraða
„AÐ UNDANFÖRNU hafa götur í
ibúðahverfum verið þrengdar og
hækkaöar á köflum til þess að draga
úr umferðarhraða. Þetta hefur verið
að tilstuðlan íbúa, þeir hafa haft
samband við umferðarnefnd Reykja-
víkur og lögregluna og lýst áhyggj-
um vegna mikils hraða bifreiða. Það
er ánægjulegt þegar fólk hefur frum-
kvæði í umferðarmálum,“ sagði
Óskar Ólason, yfirlögregluþjónn
umferðardeildar lögreglunnar í
Reykjavík í samtali við Mbl.
Víða í Breiðholti hafa götur ver-
Dæmdur í 15 mánaða
fangelsi fyrir fjárdrátt
í GÆR var kveðinn upp í Sakadómi
V-Skafafellssýslu dómur yfir Ingi-
mari Ingimarssyni, fyrrum sóknar-
presti í Vík í Mýrdal. Ingimar var
dæmdur í 15 mánaða fangelsi og
gert að greiða allan sakarkostnað,
þar með talin 60 þúsund krónur í
málsvarnarlaun og 60 þúsund krón-
ur í saksóknarlaun í ríkissjóð.
Hann var sakfelldur fyrir fjárdrátt
og skjalafals þegar hann var oddviti
í Ilvammshreppi.
Samtals dró hann að sér 9,2
milljónir gkróna á árunum 1976 til
1979. Upp komst um fjárdrátt á
miðju ári 1979 og í janúar 1980 var
málið kært og sætti síðan rann-
sókn Rannsóknarlögreglu rikisins.
Dómsrannsókn í málinu hófst 1
júní á þessu ári. Á árinu 1979
greiddi Ingimar hreppnum að
miklu leyti það fé, sem hann hafði
Lítil viðbrögð
hollenskra
fjölmiðla
„ÞAÐ VAR frétt í Volkskraet í
morgun þar sem sagt var frá því
að gullskipið heföi reynst vera
gamall þýskur togari, en það eru
einu viðbrögð fjölmiðla sem ég
hef ennþá orðið vör við vegna
þessara tíðinda," sagði Ásdís
Hildur Runólfsdóttir, sem nemur
lágfiðluleik í Amsterdam, í sam-
tali við Morgunblaðið í gær. Hún
var spurð hvernig hollenskir fjöl-
miðlar hefðu brugðist við fréttun-
um af Skeiðarársandi um helg-
ina.
Ásdís Hildur sagðist vera
nýkomin frá íslandi og því ekki
hafa fylgst með fréttaflutningi
hollenskra fjölmiðla i sumar,
en þó sagðist hún vita til þess
að eitthvað hefði verið fjallað
um leitina að gullskipinu þar
sem almenningur virtist
þekkja til málsins.
©'
INNLENT
tekið sér og hefur nú greitt fjár-
hæðina að fullu. Sigurður Hallur
Stefánsson, skipaður umboðsdóm-
ari í málinu, kvað upp dóminn.
Verjandi var Jón ólafsson, hrl. og
sókn málsins af hálfu ákæruvalds-
ins annaðist Bragi Steinarsson,
vararíkissaksóknari.
ið þrengdar óg hækkaðar; meðal
annars í Jaðarseli, Látraseli,
Klyfjaseli, Seljaskógum við Gróf-
arsel, en breytingar voru sam-
þykktar fyrir skömmu á opnum
fundi Umferðarnefndar Reykja-
víkur að Kjarvalsstöðum í tilefni
Reykjavíkurviku. Ibúar komu áð
máli við nefndina og lýstu áhyggj-
um sínum. Þá hefur Rofabær verið
þrengdur og hækkaður, svo og
Kleppsvegur, þar sem beygt er inn
af Elliðavogi.
„Fólk er vel vakandi um um-
ferðarmál og það er greinilegt aí.
óhug hefur slegið að fólki vegna
tíðra slysa á börnum. Hættan
stafar ekki af hinum almenna
ökumanni. Hann ekur gætilega —
það eru undantekningarnar sem
við erum að glíma við — ökumenn
sem aka of geyst," sagði Óskar
Ólason.
Víða hafa götur verið þrengdar og þær hækkaðar á kafla til þess að ná niður
umferðarhraða. Morgunbiaðið/Július.
Metaðsókn að Iðnsýningu
METAÐSÓKN varð að Iðnsýningu
1983, en tæplega 80 þúsund manns
gáfu sér tíma til að fara inn í Laug-
ardalshöll og skoða sýninguna. Milli
13 og 14 þúsund manns sóttu sýning-
una heim á laugardag og sunnudag.
Að sögn forsvarsmanna sýn-
ingarinnar kemur sýningin til með
að standa undir sér, þrátt fyrir
lágan aðgangseyri. Allir kostnað-
arliðir við sýninguna hafi þó
hækkað mikið, meðal annars
vegna þess að nýjum skemmtiat-
riðum hafi verið bætt inn í
dagskrá.
Ólafsvík:
Togarinn
Már frá vegna
vélarbilunar
Ólafsvík, 6. september.
TOGARINN Már kom til Ólafsvíkur
í dag með bilaða vél. Skipið kom þó
fyrir eigin vélarafii. Ekki er fréttarit-
ara kunnugt um hve alvarleg bilunin
er, en búast má við alllöngum tíma,
sem skipið verður frá veiðum. Kem-
ur þetta sér illa, ekki síst vegna þess
að nýbúið er að selja héðan tvö
togskip.
Hráefnið er þó nægilegt í fisk-
vinnslustöðvunum eins og er, því
netabátar hafa haft góðan afla að
undanförnu, jafnvel sex til tíu
lestir eftir nóttina og þokkalegan
afla hefur gefið f önnur veiðar-
f*ri- Fréttaritari.
ÓlíktfK)
iÍ*
með Lotus
• wusta örygg'1- Þay sig 'gevs"e9t
msssSsíss*1----------------
ma5"'eCeyKu< s»éu9'e"' .». » __ J
t»musemev« ,u... ..
flj
Bm*o «u^ *
„lastpoW tV'9" ’
auk ÞeSS