Morgunblaðið - 07.09.1983, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 07.09.1983, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 1983 27 Elín Björnsdóttir — Minningarorð Fædd 10. aprfl 1894 Dáin 30. ágúst 1983 Elín frænka er dáin, svo svip- lega og óvænt. Árafjöldi eða eili- kröm áttu þar engan hlut að held- ur umferð á grárri götu höfuð- borgarinnar. Hún hrifsar sínar fórnir hvort sem höggið hittir ungan eða aldinn. Elín fæddist á Narfastöðum í Skagafirði 10. apríl 1894. Foreldr- ar hennar voru hjónin Björn Gunnlaugsson bóndi og smiður Gunnlaugssonar Björnssonar prests að Hvammi í Laxárdal, og Halldóra Magnúsdóttir, Gunn- laugssonar bónda á Enni í Viðvík- ursveit. Elín ólst upp ásamt systkinum sínum á heimili foreldra sinna. Á uppvaxtarárum hennar varð ungt fólk að vinna fyrir framfærslu sinni strax og það hafði mátt til og stundum fyrr. Þetta varð einnig hlutskipti Elínar. Hún var í kaupavinnu á ýmsum bæjum og einnig starfsstúlka á Hólaskóla. Hún var greind stúlka og hafði hug á að kontast til náms í hjúkr- unarfræðum en átti í því efni ekki annarra kosta völ en að ráðast starfstúlka við sjúkrahúsið á Sauðárkróki hjá Jónasi Krist- jánssyni lækni. Þar voru störf hennar svo vel virt að hún var að þeirri vist lokinni ráðin bæjar- hjúkrunarkona á Akureyri. Þá kynntist hún Páli Þóroddssyni stýrimanni frá Sjávarbakka í Eyjafirði. Þau felldu hugi saman og gengu í hjónaband. Ekki löngu seinna bauðst henni að sigla til Kaupmannahafnar og læra hjúkr- un en nú fannst henni skyldurnar binda sig og fór hvergi. Líklega hefur hún þó alla ævi síðan litið til þess með nokkurri eftirsjá. Árið 1927 fæðist þeim hjónum dóttirin Hallgerður, sem ber nafn föðurmóður sinnar. Nú virtist bjart framundan, en fyrr en varði dró ský á heiðan himin. Páll veikt- ist og náði sér aldrei fyllilega eftir þann sjúkleika — lá margar þung- ar legur á næstu árum. Árið 1930 fluttust þau til Reykjavíkur en þá fóru í hönd erf- iðir tímar — kreppuár — atvinnu- leysi og fátækt settu mark á mörg alþýðuheimili. Elín fékk þó fljót- lega vinnu við verslun og starfaði síðan á þeim vettvangi fram til sjötíu ára aldurs. Hún var vörpu- leg kona og vel gerð bæði í sjón og raun, dugmikil og trú við hvert verk sem henni var ætlað að inna af höndum. Páll, maður hennar, varð starfsmaður hjá Skipaútgerð ríkisins og vann þar við afgreiðslu meðan þrek hans entist. Hann stóð framarlega í verkalýðsmálum og var lengi stjórnarmaður í Verkamannafélaginu Dagsbrún. Þau hjón börðust bæði fyrir bætt- um hag verkafólks — þeirra sem oft bera hita og þunga af fram- færslu þjóðarbúsins en hljóta minna af arði uppskerunnar. Þessi barátta var þeirra hjartans mál og af heilindum unnin. Öll störf Elínar einkenndust af hlýhug og alúð sem henni voru eðlislægar eigindir. Þótt vinnudagurinn væri langur og oft drjúgt til dagsauka sótt, þegar syrti í álinn sökum sjúkleika Páls, virtist hún alltaf hafa tóm til að fórna áhugamálum sínum nokkrum tíma og eins taka vel á móti fjölmörgum gestum sem áttu erindi á heimili þeirra hjóna. Hjá þeim var aldrei auður í garði en húsmóðirin var hagsýn og kunni vel með að fara og miðla þó ekki væri af miklu að taka. Við frændfólkið, sem allir aðrir, nut- um þess að blanda geði við Elínu og Pál. Þar biðu okkar ávallt „vin- ir í varpa". Páll andaðist 20. maí 1978 og hafði þá verið mjög sjúkur síðustu fimm árin. í þeirri raun naut hann líknarhanda Elínar sem verið hafði hans trúfastur förunautur og létt honum hálfrar aldar ævi- göngu. Þótt árin færðust yfir Elínu og hún væri ekki lengur í hópi þeirra sem þjóðfélagið metur starfsgilda var henni i engu brugðið sem móð- ur og ömmu. Hún vakti yfir vel- ferð barna sinna allt til hinstu stundar. Hvert verk sem hún vann var vel og fallega gert. Oft var henni trúað fyrir gildum sjóðum veraldlegra verðmæta, til þess trúnaðar hafði hún dyggilega unn- ið og brást í engu. Höfundur til- verunnar hafði líka gefið henni gildan sjóð góðvildar og hjarta- hlýju. Þann sjóð ávaxtaði hún samferðamönnum sínum til góðs. Skömmu eftir að Elín missti mann sinn kom yngri Páll, dótt- ursonur hennar, heim frá námi. Hann settist að með ungu konuna sína, Sólveigu, og barn þeirra heima hjá ömmu sinni. Það sam- býli veitti skjól æsku þeirra og elli hennar. Elín hélt fullum andlegum styrk til hinsta dags. Hún hafði trútt minni og var fróðlegt að heyra Kristján Guðmunds- son — Minningarorð Fæddur 14. nóvember 1954. Dáinn 27. ágúst 1983. Þegar góður vinur hverfur á braut, koma upp í huga mér þær stundir sem við áttum saman í glaðværum vinahópi, þegar þær stundir gáfu mér mikla gleði. 1 þessum hópi var Krissi ávallt vinsæll vegna glaðværðar sinnar og sterkrar kímnigáfu, sem alltaf kom okkur í gott skap. Svo ég tali ekki um hagmælsku hans sem hann notaði óspart til að tjá til- finningar sínar til okkar. Því að tilfinninganæmur og rómantískur var hann mjög. Kristján var traustur vinur og traustari vin var ekki hægt að finna. Með þessum fátæklegu orðum kveð ég nú Kristján Guðmunds- son, vin minn. Ég vil biðja góðan Guð að styrkja eiginkonu Krist- jáns, foreldra hans, systkini og aðra ættingja. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðasta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er aö sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (V. Briem). Blessuð sé minning góðs drengs. Kristín hana rifja upp og segja frá bar- áttu fyrri tíma þegar hún sjálf stóð í eldlínunni. Augun leiftruðu og raddhitinn óx. Hún var nýkomin að norðan þegar lífsþráðurinn brast. Þar hafði hún verið á æskuslóðum hjá ættingjum og vinum. Ennþá kunni hún að njóta glaðra stunda. Dóttirin Hallgerður stundaði nám í Verslunarskóla Íslands og giftist Halldóri Stefánssyni loft- skeytamanni. Þau eiga fjögur börn. Þau eru: Páll, jarðeðlisfræð- ingur, Ásta, fatahönnuður, Elín, hjúkrunarfræðingur, og ólöf, nemi. Ljóst er að Elín hefur séð æsku- drauminn rætast á menntabraut afkomenda sinna. Nú eru leiðarlok — Elín frænka er horfin af sviðinu. Hún skilur eftir margar ljúfar og kærar minningar. Við systurnar frá Mið- sitju í Skagafirði fórum ungar að heiman til náms og starfa. Þá lá leiðin suður til Reykjavíkur. Dval- arstaðurinn var heimili Páls og Elínar. Ég, sem sendi þessa fá- tæklegu kveðju, var þar síðust á ferð. Mér var skipað á bekk með fjölskyldunni og fannst kannske stundum að ég væri önnur dóttir hennar og Elín önnur amma barna minna. Þessi vinnusama góða kona hef- ur skipt um starfsvettvang. Hvar sem anda hennar er búinn staður mun bjart yfir. Þar sem góðir menn ganga eru guðs vegir. Hafi Elín frænka hjartans þökk. Elsku Gerða, Halldór og börn, samúðarkveðjur til ykkar allra. Helga Þorkelsdóttir I sxcn ofcV 3' aoövfi' lare* 67 er'tð o n AUCLÝSINCASTOFA MYNDAMÖTA HF Réttir í haust NÚ LÍÐUR að réttum og hér á eftir er sveitum Íandsins: birtur listi yfir helstu fjárréttir í Auðkúluréttir í Svínadal, A-Hún. föstud. 16. og laugard. 17. sept. Arnarhólsréttir í Helgafellssv., Snæf. þriðjudagur 20. sept. Brekkuréttir í Norðurárdal, Mýr. mánudagur 12. <« Fellsendaréttir í Miðdölum, Dal. mánudagur 19. M Fljótstunguréttir í Hvítársíðu, Mýr. mánudagur 12. << Fossréttir í Hörgslandshr., V-Skaft. Fossvallaréttir v/Lækjarbotna, sunnudagur 11. M (Rvík/Kóp.) sunnudagur 18. M Gjábakkaréttir í Þingvallasv., Arn. mánudagur 20. M Grímsstaðaréttir, Álftaneshr., Mýr. fimmtudagur 15. M Hafravatnsréttir í Mosfellssveit, Kjós mánudagur 19. “ Hítardalsréttir í Hraunhr., Mýr. miðvikudagur 14. << Hraunsréttir í Aðaldal, S-Þing. miðvikudagur 7. M Hrunaréttir í Hrunamannahreppi, Árn. fimmtudagur 15. *< w Hrútatunguréttir í Hrútafirði, V-Hún. laugardagur 10. M Húsmúlaréttir v/Kolviðarhól, Árn. mánudagur 19. << Kaldárréttir við Hafnarfjörð Kaldárbakkaréttir í sunnudagur 18. Kolbeinsst.,hr., Hnapp. mánudagur 19. << Kirkjufellsréttir í Haukadal, Dal. sunnudagur 18. << Kjósarréttir í Kjósarsýslu þriðjudagur 20. M Klausturhólaréttir í Grímsnesi, Árn. miðvikudagur 21. M Kollafjarðarréttir í Kjalarneshr., Kjós. þriðjudagur 20. << Langholtsréttir í Miklaholtshr., Snæf. miðvikudagur 21. M Laufskálaréttir í Hjaltadal, Skag. sunnudagur 11. M Laugarvatnsréttir í Laugardal, Árn. þriðjudagur Midfjarðarréttir í Miðfirði, V-Hún. sunnudagur Mýrdalsréttir í Kolbeinsst.hr., Hnapp. þriðjudagur Mælifellsréttir í Lýtingsstaðahr., Skag. sunnudagur Nesjavallaréttir í Grafningi, Árn. mánudagur Oddsstaðaréttir í Lundarreykjadal, Borg. miðvikudagur Rauðsgilsréttir í Hálsasveit, Borg, fostudagur Reyðarvatnsréttir, Rangárvallahr., Rang. laugardagur Reynistaðaréttir í Staðarhr.; Skag. mánudagur Selflatarréttir í Grafningi, Arn. miðvikudagur Selvogsréttir i Selvogi, Arn. miðvikudagur Silfrastaðaréttir í Akrahr., Skag. mánudagur Skaftártunguréttir í Skaftártungu, V-Skaft. miðvikudagur Skaftholtsréttir í Gnúpverjahr., Árn. fimmtudagur Skarðaréttir f Skarðshr., Skag. sunnudagur Skeiðaréttir á Skeiðum, Árn. fóstudagur Skrapatunguréttir í Vindhælishr., A-Hún. sunnudagur Stafnsréttir í Svartárdal, A-Hún. fimmtudagur Svarthamarsréttir á Hvalfjarðarstr., Borg.miðvikudagur Svignaskarðsrétt í Borgarhr., Mýr. Tungurétt í Svarfaöardal, Eyjaf. Tungnaréttir í Biskupstungum, Árn. Undirfellsréttir í Vatnsdal, A-Hún. V at nslcysust randarrétt ir, VatnsLstr., Gull. Víðidalstunguréttir í Víðidal, V-Hún. Þingvallaréttir í Þingvallasveit, Árn. Þórkötlustaðaréttir v//Grindavík Þverárréttir í Eyjahr., Hnappad. Þverárréttir í Þverárhlíð, Mýr. Ölfusréttir í Ölfusi, Árn. Ölkelduréttir í Staðarsveit, Snæf. Stóðréttir Auðkúluréttir í Svínadal, A-Hún. Undirfellsréttir í Vatnsdal, A-Hún. Víðidalstunguréttir í Víðidal, V-Hún. Skarðaréttir í Skaröshr., Skag. Reynistaðaréttir í Staðarhr., Skag. Laufskálarétt í Hjaltadal, Skag. Miðfjarðarréttir, Miðfirði, V-Hún. Silfrastaðaréttir, Akrahr., Skag. miðvikudagur 14. “ sunnudagur 11. “ miðvikudagur 14. “ föstud. 16. og laugard. 17. sept, miðvikudagur21. sept. fiistud. 16. og laugard. 17. sept. mánudagur 19. sept. mánudagur 19. “ mánudagur 19. “ þriðjud. 13. og miðv.d. 14. sept. fimmtudagur 22. sept. fimmtudagur 22. “ sunnudagur 25. sunnudagur 25. sunnudagur 25. sunnudagur 18. sunnudagur 18. laugardagur 24. mánudagur 12. sunnudagur 18. Vörubretti - Utboð Hf. Eimskipafélag íslands óskar eftir tilboöum í smíöi eöa kaup á 10.000 tilbúnum vörubrettum af stæröinni 100x120 cm til notkunar í hilluvæddum vörugeymslum félagsins. Útboösgögn eru afhent í tæknideild félagsins, Pósthússtræti 2, sími 27100. Tilboðum ber aö skila á sama staö fyrir föstudaginn 16. sept. 1983. Eimskip

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.