Morgunblaðið - 07.09.1983, Blaðsíða 32
^^^skriftar-
síminn er 830 33
^/^skriftar-
síminn er 830 33
MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 1983
MorgunblaðiS/SImamynd Joop Fenstra, The Telegraaf.
Táp og fjör og frískir menn
• Þeir eru brosmildir íslensku atvinnumennirnir í knattspyrnu hér á myndinni sem tekin var á æfingu í
Groningen í Hollandi í gær. Jóhannes Eðvaldsson og Lárus Guðmundsson voru ekki komnir í hópinn, en frá
vinstri eru: Atli Eðvaldsson, Sævar Jónsson, Ásgeir Sigurvinsson, Arnór Guðjohnsen og Pétur Ormslev. Þeir
félagar halda svo á Pétri Péturssyni á milli sín.
Bráðabirgðalög um fbúðarlán:
Stimpilgjöld
felld niður
Vestmannaeyjar:
Áfengisvarnarnefnd
sagði af sér störfum
Vestmannaeyjum, 6. september.
UM SÍÐUSTU helgi sögðu allir nefndarmenn í áfengisvarnarnefnd Vest-
mannaeyja af sér störfum. Nefndin er skipuð átta mönnum, sjö kjörnum af
bæjarstjórn og formanni, tilnefndum af ráðherra. Ástæða afsagnar nefnd-
armanna er sögð sú, að bæjarstjórn tók ekki til greina það álit nefndarinnar
að ekki ætti að lengja opnunartíma veitingahússins Skansins, en bæjarstjórn
hafði á sérstökum aukafundi fyrir nokkru samþykkt með 5 atkvæðum gegn 4
að breyta vínveitingaleyfi Skansins, þannig að húsið mætti hafa vínveitingar
öll kvöld. Áður mátti húsið aðeins hafa vínveitingar á föstudags- og laugar-
dagskvöidum.
Afengisvarnarnefnd skoraði á nefndarmenn að endurskoða þessa
bæjarstjórn að endurskoða fyrri ákvörðun sína, en ekki er vitað
samþykkt og takmarka vínveit- hver viðbrögð verða við þeirri
ingaleyfi eins og áður, en þegar beiðni. Ákveði nefndarmenn að
bæjarstjórn féllst ekki á þessa standa við ákvörðun sína og hætta
áskorun nefndarinnar, ákváðu all- störfum, verður að kjósa nýja
ir nefndarmenn að segja af sér áfengisvarnarnefnd á næsta bæj-
störfum. Bæjarráð skoraði á arstjórnarfundi. hkj.
FJÁRMÁLARÁÐHERRA gaf í gær
út bráðabirgðalög um niðurfellingu
eða endurgreiðslur stimpilgjalda af
skuldbreytingalánum húsbyggjenda
og íbúðarkaupenda, sem lánastofn-
anir kunna að veita í samræmi við
samkomulag þeirra við ríkisstjórn-
ina. Húsnæðismál voru til umfjöll-
unar á ríkisstjórnarfundi i gærmorg-
Allir í heyskapinn
MorRunblaöiö/Friðþjófur.
Krakandi þurrkur var á Suðurlandi í gær og allir sem vettlingi gátu valdið voru komnir til starfa við heyskapinn.
Þar á meðal voru þessar ungu stúlkur að bænum Útey við Laugarvatn í Árnessýslu sem Friðþjófur Helgason,
Ijósmyndari Mbl., myndaði við heyskapinn. Á nokkrum bæjum voru sjáflboðaliðar á vegum Rauða kross íslands
að aðstoða bændur við heyskapinn og á öðrum bæjum fréttum við um að fyrrverandi vinnumenn hefðu brugðið
sér í sveitina og endurnýjað gömul kynni við baggana og dráttarvélarnar. Sjá „Sjálfboðaliðar í heyskap" bls. 17.
Ekið á 11 ára stúlku:
• •
Okumaður
kannaði
skemmdir
á bílnum
— en ók svo á brott
EKIÐ var á 11 ára gamla stúlku í
Ásbúð í Garðabæ um klukkan
21.40 á mánudagskvöldið. Stúlk-
an meiddist ekki alvarlega;
kvartaði um eyrasl í mjöðm og
klæðnaður hennar skemmdist.
Ökumaður kærði sig að því er
virðist kollóttan um það; hann
gekk fram fyrir bifreið sína
ásamt farþega til þess að kanna
skemmdir og ók við svo búið af
slysstað.
Bifreiðin er af Volkswagen-
gerð, svokölluð bjalla, rauð að
lit. Þeir sem kunna að geta
veitt upplýsingar um atburð-
inn, eru vinsamlega beðnir að
gefa sig fram við lögregluna í
Hafnarfirði, að ekki sé talað
um ökumann Volkswagen-bif-
reiðarinnar.
Aðalfundur Stéttarsambands bænda:
Komið verði í veg
fyrir búvörusmygl
Fullyrt að Flugleiðir flytji inn tvö tonn af eggjum á viku
un og var þar m.a. samþykkt heimild
til fjármálaráðherra að gefa út
bráðabirgðalögin.
„Ég er ekki búinn að ganga frá
hvernig framkvæmd laganna
verður háttað, en mun gera það
strax í fyrramálið í samráði við
bankamálaráðherra," sagði Albert
Guðmundsson fjármálaráðherra,
er Mbl. spurði hann í gær hvernig
staðið yrði að framkvæmd bráða-
birgðalaganna.
Bráðabirgðalögin eru svohljóð-
andi: „Forseti íslands gerir kunn-
ugt: Fjármálaráðherra hefur tjáð
mér að í samræmi við samkomu-
lag ríkisstjórnar og lánastofnana
sé nú unnið að því að breyta
skammtímalánum húsbyggjenda
og íbúðakaupenda í lán til lengri
tíma. Til að greiða fyrir þessari
aðstoð ber brýna nauðsyn til að
falla frá innheimtu stimpilgjalda
af þeim nýju lánskjörum sem gefa
þarf út f þessu sambandi og
tryggja þar með enn virkari ár-
angur þessara aðgerða húsbyggj-
endum til hagsbóta. Fyrir því eru
hér með sett bráðabirgðalög sam-
kvæmt 28. grein stjórnarskrárinn-
ar á þessa leið:
1. gr.: Þrátt fyrir ákvæði laga
nr. 36/1978 um stimpilgjald sbr.
lög nr. 82/1980, er fjármálaráð-
herra heimilt að fella niður eða
endurgreiða stimpilgjald af
skuldbreytingalánum húsbyggj-
enda og íbúðakaupenda sem lána-
stofnanir kunna að veita í sam-
ræmi við samkomulag þeirra við
ríkisstjórnina og stjómarsáttmála
hennar frá 27. maí 1983. Fjár-
málaráðherra kveður nánar á um
framkvæmd niðurfellingar eða
endurgreiðslu þessarar.
2. gr.: Lög þessi öðlast þegar
gildi.
Á AÐALFUNDI Stéttarsambands
bænda 1983 var rætt um ólöglegan
innflutning landbúnaðarvara og var
samþykkt ályktun um að réttmæti
fullyrðinga þess efnis verði kannað
og var innfiutningur eggja og
vinnsluvara úr þeim sérstaklega
nefndur í því sambandi.
Því var beint til Framleiðslu-
ráðs landbúnaðarins að ef þesSar
fullyrðingar væru á rökum reistar
myndi það beita sér fyrir ráðstöf-
unum til að koma í veg fyrir slík
lögbrot með hertu eftirliti og beit-
ingu viðurlaga. Guðmundur Stef-
ánsson, sem var framsögumaður
tillögunnar fyrir hönd fram-
leiðslunefndar aðalfundarins,
skýrði frá því að það sem nefndin
væri með í huga væri meðal ann-
ars sú fullyrðing sem komið hefði
verið á framfæri við nefndina, að
Flugleiðir flyttu ólöglega til
landsins tvö tonn af eggjum í viku
hverri.
Gunnar Guðbjartsson sagði að
fullyrðingar sem þessar kæmu
alltaf fram öðru hverju en erfitt
reyndist að sanna þær. Sagðist
hann hafa rætt þessi mál við toll-
gæslustjóra og hefði hann sagt að
meðal annars væri kjöt í verslun-
um og veitingastöðum kannað
öðru hverju en oftast væri ómögu-
legt að rekja hvaðan kjötið kæmi
vegna þess að búið væri að fjar-
lægja af því stimpla og merkingar.
Ingimar Sveinsson sagðist vita til
þess að talsvert væri notað af
smygluðu nautakjöti á hótelum og
einnig væri miklu af kjöti smyglað
út af Keflavíkurflugvelli af starfs-
mönnum vallarins sem búa utan
hans.
Sjá bls. 22.