Morgunblaðið - 07.09.1983, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 1983
7
ÞÝZKAN
Málaskólinn Mímir vill vekja athygli á þýzkukennslu
skólans. Talmáliö er þjálfaö allt frá byrjun. Málfræöin er
kennd meö æfingum og þannig gerö auöveldari.
Sími 10004 og 11109 1.1—5 e.h.) I
TOYOT A-SAUM AVEL AR
KOSTABOÐ Á KJÖRGRIPUM
PÁLÍNA KR. 8438
TOYOTA-VARAHLUTAUMBOÐIÐ
ÁRMÚLA 23 — SÍMI 81733
Bladburöarfólk
óskast!
Úthverfi Vesturbær Austurbær
Nökkvavogur Fálkagata, Lindargata frá 40—63A
Langholtsvegur 151—208 Faxaskjól
fWi>r0iiii#Xfi$>ífr
Sérstæð
verkaskipting
Áhrifamenn ( Alþýöu-
bandalaginu hafa skipt
með sér verkum með dálít-
ið sérsta'ðum hætti. Á rík-
Lsstjórnaráruni flokksins
voru verkalýðsforingjar
hans kúgaðir til þess að
hafa hægt um sig. Þeir
höfðu átt mestan þátt í
kosningaúrslitunum 1978
með því að beita verka-
lýðssamtökunum gegn þá-
verandi ríkisstjórn. Að
kosningum loknum var
þeim hins vegar sagt að
þegja og því hlýddu þeir.
Það er td. athyglisvert, að
Ásmundur Stefánsson lét
aldrei sverfa til stáls í deiF
um við Svavar Gestsson á
ríkisstjórnarárum hans, og
var augljóst, að forseti AF
þýðusambandsins hafði
ekki kjark til þess.
Nú er Alþýðubandalagið
ekki lengur í ríkisstjórn og
þá bregður svo við, að Ás-
mund Stefánsson skortir
ekki lengur hugrekki til
þess að þeysa fram á víg-
völlinn. Hann stendur fyrir
auglýsingum í blöðum,
hann skrifar greinar í blöð
og lætur ófriðlega með
ýmsum hætti. Þessi breyt-
ing á atferli Ásmundar
Stefánssonar frá því fyrir
kosningarnar 1978, er
hann var enn einn helzti
sérfræðingur ASÍ f efna-
hagsmálum, síðan á ríkis-
stjórnarárum Alþýðu-
bandalags og loks nú, þeg-
ar Alþýðubandalagið er
komið í stjórnarandstöðu,
sýnir svo ekki verður um
villzt, hver verkaskiptingin
er. I>egar Alþýðubandalag-
ið er í stjórnarandstöðu,
má Asmundur Stefánsson
láta til sín taka og beita
áróðursmætti ASI gegn
þeirri ríkisstjórn, sem við
völd er. I>egar Alþýðu-
bandalagið er í ríkisstjórn,
á ASÍ að hafa hægt um sig.
Guðmundur J. Guðmunds-
son hagar sér á sama veg,
Heimilisböl
Framsóknar
Eitt helzta vandamál forystumanna Fram-
sóknarflokksins um þessar mundir er
megn óánægja þeirra fyrrverandi ráö-
herra, sem Steingrímur Hermannsson
forsætisráöherra útilokaði frá ráöherra-
stólum í vor. Þetta heimilisböl Framsókn-
arflokksins er slæmt og erfitt viðureignar,
en þó kannski ekki jafn afleitt og Alþýðu-
flokksins, sem hefur hreinlega týnzt. í Al-
þýöubandalaginu hafa foringjarnir hægt
um sig í von um, að verkalýðsforingjarnir
vinni verkin fyrir þá.
en spurningin nú er sú,
hvort Þröstur Olafsson,
framkvæmdastjóri Dags-
brúnar, hefur þrek til þess
að standa gegn þessari
misnotkun Álþýðubanda-
lagsins á verkalýðssamtök-
unum. Hitt er svo önnur
saga, að ekki er mikil reisn
yfir þeim forseta ASÍ, sem
lætur nota sig og verka-
lýðssamtökin með þessum
hætti.
Ólafur
óánægður
Það er opinbert leynd-
armál, að eitt helzta vanda-
mál forystumanna Fram-
sóknarflokksins um þessar
mundir er að fást við fyrr-
verandi ráðherra flokksins.
Olafur Jóhannesson er
sáróánægður með að vera
ekki lengur ráðherra og
lætur það koma skýrt fram
með margvíslegum hætti.
Ingvar Gíslason getur með
engu móti leynt því, hversu
mikið hann sér eftir ráð-
herrastólnum. Líklega
mundi ný Búlgaríuferð
ekki duga til þess að hugga
hann! Tómas Árnason
krefst sárabótar á þann
veg, að hann verði gerður
að bankastjóra Seðlabank-
ans, þegar Framsóknar-
flokkurinn á þess kost.
Menn spyrja, hversu
traustir stuðningsmenn
ríkisstjórnarinnar þeir þre-
menningar verði, þegar
þing kemur saman. Heim-
ilisböl stjórnmálaflokk-
anna er margvíslegt, en
þetta er áreiðanlega með
þeim verri, þótt hljótt fari.
Er Alþýðu-
flokkurinn
týndur?
Áhugamenn um stjórn-
mál hafa velt því fyrir sér
síðari hluta sumars hvað
hafl orðið um Alþýðuflokk-
inn. Til hans hefur ekki
spurzt frá því hann hrökkl-
aðist út úr stjórnarmynd-
unarviðræðum ( maímán-
uði sl.
CITROÉN*
Cltroén C 35
árgerð 1983
Vegna hagstæöra samninga getum viö
útvegaö örfáa bíla á frábæru veröi ca.
495.000 kr. til atvinnubílstjóra.
Innifalinn eftirtalinn útbúnaður: Rennihurð á hægri hlið — 5 gíra gírkassi.
Sæti fyrir 2 farþega viö hliö ökumanns.
Mjög þægíleg vinnuaðstaöa. Framhjóladrif. Mjög góð greiðslukjör. Stuttur
afgreiðslufrestur.
Globus/
LAGMUl I 5.
Blaðid sem þú vaknar við!