Morgunblaðið - 07.09.1983, Síða 23

Morgunblaðið - 07.09.1983, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 1983 23 Gísli Jónsson menntaskólakennari: Mishermi leiðrétt Skipverjar á Gissuri og Vísi bera saman bækur sínar um spærlingsútbún- aðinn. Morgunbladid/ Steinar. Tregur afli Hafnarbáta Höfn, 4. september. MIKIL aflatregða hefur verid hér á Höfn í sumar eins og reyndar víöa annars staöar. Nokkrir bátar hafa siglt með afla sinn í sumar og þá flestir til Færeyja. Þar hefur fengist ágætt verð, en yfirleitt hefur magnið verið lítið. Tveir bátar, Visir og Gissur, hafa verið að gera klárt á spærlings- veiðar. Gissur er búinn að landa einu sinni, rúmlega 42 tonnum, en Vísir fer út næstu daga. — Steinar. Ráðstefna um vanda norrænna stjórnmála Föstudaginn 2. september sl. birtist hér i blaðinu grein eftir gamlan og góðan nemanda minn, Skúla Magnússon, sem kynntur er „Yoga-kennari og nuddari að at- vinnu“. í grein þessari er mis- hermi sem ég verð, sannleikans vegna að leiðrétta. Skúli segir: „Islenskufræðingar hafa unn- vörpum lýst því yfir að þeir séu ekki „sérfræðingar" í framburði og sneiði því fremur hjá því að gera slíkum málum skil. Má t.a.m. nefna Helga Halldórsson — sem lengst og best annaðist þáttinn Daglegt mál, eða Gísla Jónsson — þann er nú sér um islenskuþátt Morgunblaðsins. Hver er orsökin? Hver önnur en sú að Háskólinn vanrækir skyldur sínar?" Tilvitn- un lýkur. Ég ætla ekki að svara fyrir aðra en sjálfan mig, þótt ég minnist þess ekki að íslenskufræðingar hafi unnvörpum gefið gefið þá yfirlýsingu sem Skúli telur. Ég svara aðeins fyrir mig. Vel má vera að ég hafi einhvern tíma látið þau orð falla, að ég væri ekki sérfræðingur í framburði. Ekki rekur mig þó minni til þess, að ég hafi gefið mér nokkrar eink- unnir í því efni. Hitt er alrangt, að ég hefi sneitt hjá því að gera framburðarmálum skil. Það hef ég gert oft og mörg- um sinnum, í útvarpi, í sjónvarpi og hér í blaðinu. Ég ætla ekki að tína til öll dæmi þess. Það yrði langt mál. En svo vel vill til, að ég á gott handrit að síðasta þætti mínum um daglegt Hinn 29. ágúst síðastl. varð sjö- tug Björg Sæmundsdóttir, Aðal- stræti 87 á Patreksfirði. Hún er fædd í Litlu-Hlíð á Barðaströnd. Þar bjó hún um margra ára skeið með eiginmanni sínum, Jóhanni Jónssyni á Ytri-Múla. Nú um ára- bil hafa þau búið á Patreksfirði. Á þessum tímamótum ævi hennar sendi ég Björgu innilegar hamingjuóskir, um leið og ég bið þeim hjónum allrar blessunar. Vinur. mál í útvarpinu. Þar sagði ég orð- rétt: „Ég hef styrkst í þeirri trú, að talað mál sé fremur í hættu en ritað mál. Breytingar á áherslu og tóni eru í uppsiglingu, breytingar sem við hljótum að streitast á móti. Þessar breytingar séu meira viðfangsefni en breytingar á beyg- ingakerfi og orðaforða. Og kemur þá að heimilum og skólum, því að áherslur og tónbrigði lærum við ekki af bóklestri. Flestir menn tala miklu meira en þeir skrifa. Því held ég að í skólum þurfi nú að gera skipulegt átak til þess að þjálfa fólk í fram- burði, framsögn og ræðugerð. Það er íslenskur stíll ekki síður en rit- að mál. Þessar æfingar þarf að hafa á öllum stigum skyldunáms, svo og í framhaldsskólum, t.d. menntaskólunum. Reynsla mín kennir mér að nemendur hafi mjög mikinn áhuga á slíku og mikið yndi af að þjálfa sig í með- ferð talaðs máls. Ég er þeirrar skoðunar að hinn litla málýsku- mun, sem til er í landinu, eigi að virða, að svo miklu leyti sem hann er til kominn við varðveislu þess sem var sameiginlegur framburður allra landsmanna í fornöld. En þennan mállýskumun þarf að kenna, þannig að menn taki ekki upp einhverjar vitleysur, þegar þeir reyna að tileinka sér fram- burð sem þeir námu ekki við móð- urkné." Tilvitnun lýkur. Síðan ég sagði þetta hef ég styrkst í þessari trú og margoft látið hana i Ijósi. Ekki er lengra síðan ég ítrekaði hana en i þætti hér í blaðinu frá 13. ágúst sl. (204). Þar sagði ég: „Ljóst er að hefja verður mark- vissa framburðarkennslu i öllum skólum landsins til þess að varð- veita réttar áherslur, réttan hreim og rétta hrynjandi máls okkar.“ Tilvitnun lýkur. Mig undrar, ef Skúli Magnússon hefur ekki lesið þetta, þvi að ein- mitt í síðustu þáttum minum hér i blaðinu hef ég verið að gera ágæt- um bréfum hans þau skil sem ég hef talið boðleg. En hvað þá um Háskólann og vanrækslusyndir hans? Á mínum námsárum í skólanum var þar í hópi kennara dr. Björn Guðfinns- son, og kennsla hans var slík að ekki gleymist. Vegna einstæðra rannsókna sinna á islenskum framburði var hann óumdeilan- legur sérfræðingur í þeirri grein. Það er því ekki vanrækslu Háskól- ans um að kenna né kennslu dr. Björns, heldur okkur nemendum hans sjálfum, ef við erum illa að okkur eða tómlátir um framburð móðurmálsins. 3. september ’83. GJ „VANDI norrænna stjórnmála" var verkefni fundar Sambands nor- rænna stjórnmálafræðinga, sem haldinn var í Reykjavík nýlega. Voru á fundinum lagðar fram ritgerðir og greinargerðir um fundarefnið. Svanur Kristjánsson lektor kynnti ritgerð um Kommúnista- hreyfinguna á íslandi 1920—1938, þar sem þróun hennar var skýrð með hliðsjón af samskiptum við Alþjóðasamband kommúnista og innanlandsaðstæðum. Einnig er m.a. leitað skýringa á tiltölulega miklu fylgi Kommúnistaflokks fs- lands á þessu tímabili. Stefán ólafsson átti ritgerð um Flugvél nauðlendir LÍTIL flugvél með fjóra farþega nauðlenti á túni skammt frá flugvellinum á Selfossi um tvö- leytið á laugardag. Engan sakaði og litlar sem engar skemmdii urðu á flugvélinni. Flugvélin vai nýlega komin á loft, þegar bral heyrðist í vél hennar og mótorinr stöðvaðist, en flugvélin var þa< lágt á lofti að hún náði ekki ti flugvallarins aftur og því tók flug maðurinn þann kost að lenda a túninu. verðbólgu á íslandi, að því er segir í fréttatilkynningu frá Félagsvís- indadeild Háskóla íslands. Grunn- hugmynd Stefáns er að verðbólga eigi sér rætur í flóknu samspili ýmissa þátta og átökum þjóðfé- lagshóps. Þá kynnti Ólafur Þ. Harðarson fyrstu fræðilegu kosningakönnun- ina, sem gerð hefur verið hérlend- is. Gagnasöfnun er að mestu lokið og hefur verið rætt við um 1.000 manns á kosningaaldri víðsvegar um landið. Samband norrænna stjórnmála- fræðinga heldur uppi fjölbreyttri starfsemi og má þar nefna útgáfu tímaritsins Scandinavian Political Studies. Meginverkefni stjórnarfundar sambandsins, sem haldinn var í Reykjavík um leið og þingið, var að skipuleggja dagskrá næsta þings sambandsins, sem haldið verður í Svíþjóð að ári. NÁMSBÆKUR Bókabúö Braga Laugavegi 118, simi: 29311 HLEMMI VELA-TENGI Tryggingayfirlæknir: Ororkumatsgjörðir og hlutverk yfirlæknis Morgunblaðinu hefur borizt eftir- farandi athugasemd frá Birni Ön- undarsyni, tryggingayfirlækni. Til ritstjórnar Morgunblaðsins: „í blaði yðar 24. f.m. birtist opið bréf til mín frá Maríu Magnús- dóttur, húsmóður í Kópavogi. Vil ég þakka Maríu fyrir til- skrifið og það að gefa mér enn eitt tækifæri til að leiðrétta rótgróinn misskilning um hlutverk trygg- ingayfirlæknis og örorkumats- gjörðir embættisins. Að verulegu leyti er bréf Maríu veikindasaga og um göngur henn- ar milli lækna og stofnana, en snerta ekki sjálfa matsgjörðina, sem fer samkvæmt lögum um al- mannatryggingar nr. 67/1971, þar sem segir í 12. gr. laganna um að rétt til örorkulífeyris skuli þeir eiga sem: „eru öryrkjar til langframa á svo háu stigi, að þeir eru ekki færir um að vinna sér inn V* þess, er andlega og líkamlega heilir menn eru vanir að vinna sér inn í því sama héraði við störf sem hæfa líkamskröftum þeirra og verkkunnáttu og sanngjarnt er að ætlast til af þeim, með hlið- sjón af uppeldi og undanfarandi starfa." Þá segir einnig í 12. gr. téðra laga um almannatryggingar að Tryggingastofnun ríkisins sé heimilt, „að veita örorkustyrk þeim, sem skortir að minnsta kosti helming starfsorku sinnar ... ...Tryggingaráð setur reglur um örorkustyrki, og skulu þær staðfestast af ráðherra." Heilbrigðis- og tryggingamála- ráðherra staðfesti reglugerð skv. ofansögðu hinn 29. mars 1974 og er sú reglugerð nr. 116/1974. Reglugerð þessi hefur lagagildi sem aðrar- reglugerðir settar af ráðherra skv. heimild í lögum. í 2. gr. þessarar reglugerðar seg- ir að: „við úthlutun styrkja skal höfð hliðsjón af: 1. Eignum og tekjum umsækj- anda og MAKA HANS ... “ (leturbreyting mín). Húsmæður eru alls ekki í nein- um sérflokki við matsgjörð á ör- orku en embætti mínu er skylt að líta á félagslegar aðstæður þess er leitar eftir örorkumati, eins og til- vitnaðar lagagreinar bera með sér. Björn Önundarson, tryggingayfirlæknir." Allar geröir Öxull — í — öxul. Öxull — í — flans. Flans — í — flans. Tengið aldrei stál — í — stál, hafið eitthvað mjúkt á milli, ekki skekkju og titring milli tækja. Allar stærðir fastar og frá- tengjanlegar JmLL SöyoHaKyigjtuiir öJ<S)(n)©©®iR) <& Vesturgötu 16, sími 13280 /Hk Lestunar- áætlun Skip Sambandsins munu ferma til íslands á næstunni sem hér segir: HULL/GOOLE: Jan .. 5/9 Jan .. 19/9 Jan .. 3/10 Jan .. 17/10 ROTTERDAM: Jan .. 6/9 Jan .. 20/9 Jan .. 4/10 Jan .. 18/10 ANTWERPEN: Jan ... 7/9 Jan ... 21/9 Jan ... 5/10 Jan .. 19/10 HAMBORG: Jan ... 9/9 Jan ... 23/9 Jan ... 7/10 Jan ... 21/10 HELSINKI: Helgafell ... 12/9 Helgafell ... 6/10 LARVIK: Hvassafell ... 12/9 Hvassafell ... 26/9 Hvassafell ... 10/10 Hvassafell ... 24/10 GAUTABORG: Hvassafell ... 13/9 Hvassafel! ... 27/9 Hvassafell ... 11/10 Hvassafell ... 25/10 KAUPMANNAHÖFN: Hvassafell ... 14/9 Hvassafell ... 28/9 Hvassafell ... 12/10 Hvassafell ... 26/10 SVENDBORG: Amarfell ... 8/9 Hvassafell ... 15/9 Helgafell ... 16/9 Hvassafell ... 29/9 Hvassafell ... 13/10 ÁRHUS: Arnarfell ... 8/9 Hvassafell ... 15/9 Helgafell . 16/9 Hvassafell ... 29/9 Hvassafell ... 13/10 GLOUCESTER MASS.: Jökulfell ....... 10/9 Skaftafell ...... 20/9 Skaftafell ...... 22/10 HALIFAX, KANADA: Skaftafell ...... 22/9 Skaftafell ...... 24/10 SKIPADEILD SAMBANDSINS Sambandshúsinu Pósth. 180 121 Reykjavík Sími 28200 Telex 2101 Sterkurog hagkvæmur auglýsingamiöiU!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.