Morgunblaðið - 07.09.1983, Qupperneq 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 1983
hlaðinn verðlaunum Játvarðs. Hundaræktarfélaginu hafa borist að gjöf margir farandverðlaunagripir sem bestu
íslensku fjárhundarnir hljóta á hverri sýningu.
Dómsýning Hundaræktarfélags íslands:
Tveir beztu úr
sömu fjölskyldunni
HUNDAR hjónanna Þórðar Þórð-
arsonar og Emilíu Sigursteinsdóttur
úr Garðabæ urðu sigursælir á dóm-
sýningu Hundaræktarfélags íslands,
sem haldin var að Félagsgarði í Kjós
sl. laugardag. Golden-retriever-tík
Þórðar, Vörðu-Lísa Margrét, hlaut
fyrstu verðlaun sýningarinnar, en
hún er tæplega tveggja ára. í öðru
sæti varð hundur Emilíu af pug-kyni,
Albert Guðmundsson að nafni.
Hann er rúmlega þriggja ára.
íslenzkur fjárhundur, Játvarð-
ur, varð í þriðja sæti. Hann er í
eigu Daníels Daníelssonar og í
fjórða sæti varð poodle-hundurinn
Erró. Bezti hvolpur sýningarinnar
var labradorhundurinn Amor, eig-
andi Guðsteinn Eyiólfsson, besti
öldungurinn Islendingurinn
Röskvi frá Ólafsvöllum, eigandi
Sigríður Pétursdóttir. Dómari á
sýningunni var breskur, Jean
Lanning, en hún dæmdi nú hér-
lendis í þriðja sinn. 91 hundur var
skráður til keppni.
Tíu tegundir hunda mættu til
keppni og var fyrst keppt innbyrð-
is milli tegunda og hverri tegund
skipt í flokka eftir kynferði, auk
Vörðu-Lísa stillti sér upp og lagði loppuna hreykin á kné eiganda síns eftir að
hafa grandskoðað verðlaunin sem hún hlaut í fyrsta sæti. Albert tók útnefn-
ingunni í annað sætið með stóískri ró og hafði meiri áhuga á tiltektum
Ijósmyndaranna en verðlaunabikarnum. Ljósm. Mbi. fp.
þess sem keppt var sérstaklega í
hvolpa- og öldungaflokki. Bezti
hundur hverrar tegundar tók síð-
an þátt í úrslitakeppninni, auk
þess sem útnefndur var bezti
hvolpur og bezti öldungur sýn-
ingarinnar.
Þetta var sjötta sýningin sem
Hundaræktarfélagið stendur
fyrir, en hin fyrsta var haldin í
Hveragerði 1973 með tilstyrk ís-
landsvinarins dr. Mark Watson.
Watson styrkti íslenzka hundaeig-
endur ötullega á meðan hann lifði
og gaf hann íslendingum m.a.
Dýraspítalann.
Á sýningunni á laugardag var
einnig sérstök sýning á vegum
hlýðninefndar Hundaræktarfé-
lagsins, en félagið vinnur nú að
því að halda fyrstu hlýðnisýn-
ingarkeppnina hérlendis en slíkar
sýningar njóta mikilla vinsælda
meðal hundeigenda erlendis. í
Hundaræktarfélaginu eru nú um
1.000 félagar.
og
notaöir
Lada 1300
Lada Safír
Lada Canada
Lada Sport
kr. 142.000
kr. 162.000
kr. 192.000
kr. 271.000