Morgunblaðið - 26.10.1983, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 26.10.1983, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 1983 35 Hellufundur kartöflubænda: Bjargráðasjóði verði útvegað fé til aðstoðar kartöflubændum Aðstoð í formi lána kæmi að tak- mörkuðum notum Á fjölmennum fundi kartöflu- bænda sem haldinn var aft til- hlutan landbúnaðarráðherra á Hellu fyrir skömmu kom fram að tjón kartöflubænda vegna uppskerubrests í haust er um 85 milljónir og nýtanleg uppskera þegar útsæfti til næsta vors hef- ur verift tekift frá samsvarar eins mánaðar sölu á kartöflum í landinu. í máli landbúnaftar- ráðherra kom fram að engar aft- gerftir hafa verift ákveftnar til stuðnings bændum en starfandi væri nefnd á vegum fjögurra ráðuneyta til að athuga málið. í lok fundarins var samþykkt til- laga þar sem skorað var á al- þingi og ríkisstjórn að útvega fé til aðstoðar kartöflubændum. Á fundinum gerði Magnús Sig- urðsson í Birtingaholti, formaður Landssambands kartöflubænda, grein fyrir þeim vanda sem kart- öflubændur eiga nú við að etja. Sagði hann að ástandið væri það versta sem komið hefur fyrir kart- öfluræktina síðan þessi ræktun hófst hér á landi fyrir alvöru, og hefði reynst enn verra en svart- sýnustu menn hefðu spáð. Sagði hann að nýtanlegt magn af kart- öflum hefði reynst um 27 þúsund tunnur og ef miðað væri við að tekið yrði frá jafn mikið útsæði fyrir næsta vor og sett var niður í ár, um 20 þúsund tunnur, þá kæmu varla nema 7 þúsund tunn- ur til sölu á almennan markað sem er um 10% af meðalárssölu, eða rúmlega einsmánaðar sala á kartöflum i landinu. Magnús sagði að tjónið hjá kartöflubændum í heild væri um 85 milljónir. Sagði hann að hér væri um að ræða svo augljóst og mikið fjárhagslegt tjón fyrir bændur að ekki yrði hjá því kom- ist fyrir ríkisstjórnina að sjá Bjargráðasjóði fyrir fjármunum til að hann geti aðstoðað bændur með lánum og styrkjum. Gerði hann einnig að umtalsefni þann vanda sem ástandið hefði í för með sér fyrir heilu sveitarfélögin og framtíð kartöfluræktunarinnar í landinu. Hluti fundarmanna á fjölmennum fundi kartöfluframleiðenda með landbúnaftarriðherra á landbúnaðarráðherra í ræðustól. Hellu. Jén Helgason Morgunblaðið/ HBj. Möguleikar á aöstoð athugaðir Jón Helgason landbúnaðarráð- herra sagði að unnið væri að at- hugun á möguleikum á aðstoð við kartöflubændur vegna uppskeru- brestsins í haust. Skipaður hefði verið starfshópur í málið með full- trúum frá landbúnaðar-, félags- mála-, fjármála- og viðskiptaráðu- neytunum. Sagði landbúnaðar- ráðherra að nú væri erfitt í þjóð- arbúinu, uppskerubrestur hefði orðið víðar í þjóðfélaginu en í kartöflugörðunum en þó yrði það gert sem mögulegt væri til að greiða úr þessum málum þannig að kartöflurækt geti áfram verið gildur þáttur í landbúnaði íslend- inga. Engin ákvörðun hefði þó ver- ið tekin um hvernig úr málum yrði leyst. Ræddi landbúnaðarráðherra um Bjargráðasjóð og hvernig hann hefði komið til aðstoðar á undan- förnum árum. Bjargráðasjóður hefur veitt aðstoð vegna verulegs uppskerutjóns fjórum sinnum á liðnum áratug. Áðstoð var í flest- um tilfellum veitt í formi óverð- tryggðra lána til 5 ára. Sagði ráð- herra að allmargir lántakendur væru með þessi lán í vanskilum nú, sérstaklega þeir sem orðið hefðu fyrir áföllum ár eftir ár. Sagði hann að þegar áföllin væru jafn mikil og menn stæðu frammi fyrir nú kæmi til greina að veita þeim sem verst hefðu orðið úti að- stoð á annan hátt en með lánum, það er með beinum styrkjum, þar sem fyrirsjáanlegt væri að önnur hjálp kæmi ekki að notum nema i takmarkaðan tíma ef menn hefðu ekki möguleika á að greiða lánin þegar að skuldadögum kæmi. Þá ræddi ráðherra einnig um að nauðsyn væri á að kanna mögu- leika á betri tryggingu gegn upp- skerutjóni þar sem menn gætu gengið að vissri aðstoð þegar áföll yrðu. Grænmetisverslunin óþarfa milliliður? Að loknum framsöguræðum voru almennar umræður þar sem nokkrir kartöflubændur og fleiri létu skoðanir sínar í ljósi. Kom meðal annars fram að mönnum er eindregið ráðlagt að halda eftir útsæði til næsta vors, selja það ekki nú upp á vonina um að fá útsæði keypt næsta vor því það yrði þá illfáanlegt og á óhagstæðu verði. Óskir komu fram um aukn- ar rannsóknir á kartöfluafbrigð- um til að reyna að rækta harðger- ari afbrigði og hugmyndir um uppskerutryggingu voru mikið ræddar. Þeir sem tóku til máls lýstu áhyggjum yfir mikilli greiðslubyrði á næstu árum vegna aðstoðar nú yrði hún í formi lána. Kom fram í máli sumra að miðað við þær tekjur sem kartöflubænd- um væru „úthlutað", eins og það var orðað, hefðu menn ekki nokkra möguleika á að standa undir greiðslum af lánum vegna stórfelldrar lántöku vegna þessa uppskerubrests í haust. Þá kom hörð gagnrýni fram á flokkunar- reglur kartaflna og Grænmetis- verslun ríkisins í máli sumra fundarmanna. Tryggvi Skjaldar- son úr Þykkvabæ vildi leggja Grænmetisverslunina niður eða setja hana undir beina stjórn bænda. Sagði hann að eðlilegast væri að bændur og neytendur tækjust beint á um verð og flokk- un kartaflna og væri Grænmetis- verslunin þar óþarfa milliliður. í lok fundarins var eins og áður sagði samþykkt tillaga þar sem skorað er á ríkisstjórn og alþingi að útvega Bjargráðasjóði fé og leita annarra leiða til stuðnings kartöflubændum vegna hins al- varlega uppskerubrests í haust. Um 100 manns sátu þennan fund kartöflubænda á Hellu og var haft á orði að aldrei fyrr hefðu jafn margir kartöflubændur á íslandi komið saman til fundar og var það haft til marks um hvað vandi þeirra væri mikill. HBj. Byggingarvísitala hækkar um 2,90% Árshækkunin tæplega 41% HAGSTOFA Islands hefur áætlað vísitölu byggingarkostnaðar miðað við verðlag í byrjun októbermánaðar, í samræmi við ákvörðun ríkisstjórnarinnar frá í sumar. Hækkunin frá síðustu áætlun er 2,90%. Vísitala byggingarkostnaðar, samkvæmt áætlun Hagstofunnar, er 153,70 stig, en var til saman- burðar 149,37 stig, reiknuð út samkvæmt verðlagi í byrjun septembermánaðar. Verðbólguhraðinn, metinn á hraða vísitölu byggingarkostnað- ar, miðaður við hækkunina milli mánaðanna september og október, er 40,92%. í frétt Hagstofunnar segir, að hækkunin sé aðallega tilkomin vegna 4% hækkunar á útseldri byggingarvinnu frá októberbyrjun og hins vegar önnur innlend verð- 'hækkun, en ekki varð teljandi breyting á verði innfluttrar bygg- ingarvöru. „Það skal tekið fram, að við uppgjör verðbóta á fjárskuldbind- ingar samkvæmt ákvæðum í hvers konar samningum um, að þær skuli fylgja vísitölu byggingar- kostnaðar, gilda aðeins hinar lög- formlegu vísitölur, sem reiknaðar eru á þriggja mánaða fresti. Áætl- aðar vísitölur fyrir mánuði inn á milli lögákveðinna útreiknings- tíma skipta hér ekki máli,“ segir ennfremur í frétt Hagstofu Is- lands. Vetur nálgast... Nú þegar haustar og allra veðra er von vill Hafskip hf. benda viðskiptavinum sínum á eftirfarandi: 1. 2. 3. Að þeir séu á verði um hagsmuni sína t.d. með því að tryggja vörum sínum viðeigandi umbúðir og gera allar þær ráð- stafanir fyrir sitt leyti, til að auka flutningsöryggi vörunnar á komandi árstíma. Bent er einnig á ótvírætt öryggi þess fyrir farmeigendur, að vátryggja á frjálsum markaði farm sinn í flutningi og geymslu, þar sem ábyrgð farmflytjenda er á margan hátl takmörkuð, t.d. vegna veðurfars og ófullnægjandi umbúða. Sérstaklega skal gæta þess að frostlögur sé á kælikerfum véla og tækja og huga þarf að öryggi farms í vöruskemmum eða á útisvæðum sem kynni að vera hætt vegna frosts, foks eða annarra óviðráðanlegra aðstæðna. Með kveðjum. HAFSKIP HF. HAFSKIP

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.