Morgunblaðið - 26.10.1983, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 26.10.1983, Blaðsíða 34
66 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 1983 Fjárplógsmennska í áfengis- málum og mannasiðir eftir dr. Gunnlaug Þóðrarson hrl. Meðferð áfengis er og verður snar þáttur í menningu vestrænna þjóða og daglegum samskiptum manna og því er full ástæða til þess að stuðlað sé að upplýstri umræðu um þau mál og t.d. því hvernig neyta megi þess á þann hátt að heilsu manna stafi ekki hætta af og hversu fyrirbyggja megi skaðsemi af ofneyslu þess. Að vísu var það ekki megintil- gangur skrifa minna hér í blaði 29. júní sl., þar sem ráðist var gegn misnotkun áfengis og þjóðarátaks, því tilefni þeirra skrifa voru að- ferðir SÁÁ við öflun fjár hjá al- menningi til þess að koma upp hvíldarheimili fyrir ofdrýkkju- menn og síðan velta þeim rekstri yfir á bök almennings, þar sem unnt væri með því að leika á kerf- ið að fá mikla fjármuni úr ríkis- sjóði. Fjöldi manns, þar á meðal læknar, hefur þakkað mér þau skrif og framhald þeirra og meðal annarra margir forustumenn AA-samtakanna. Þeir síðasttöldu hafa harmað, að í skrifum mínum hafi ekki komið fram sá regin- munur, sem sé á starfsaðferðum AA-samtakanna, sem hafa að leiðarljósi að heimta ekki fé úr ríkissjóði eða sækjast eftir fé frá því opinbera starfi sínu til stuðn- ings, þar sem SÁÁ-samtökin hafa hið gagnstæða að grundvallar- atriðum í starfi sínu. Einn af þess- um forustumönnum sagði við mig að það væri smá kommufeill í skammstöfuninni, hún ætti að vera SAÁ, þ.e. samtök atvinnu- fjárplógsmanna um áfengismál. Nú hefur sýnt sig að ábendingar mínar voru réttar, hér var ekki fyrst og fremst um hugsjónir að ræða, heldur samvinnu manna, sem fengu nokkra valinkunna menn með sér undir yfirskini hug- sjóna til þess að hagnast beint eða óbeint á áfengisbölinu. — Það er móðgun við íslensku þjóðina og þó sérstaklega við íslenska iðnrek- endur, að þessir forustumenn skuli ætla að sniðganga þá og vera með „spekúlasjónir" við dönsk húsgagnafyrirtæki, til þess að geta hagnast á þessu sjálfir. Mér hefði fundist meira en nóg tilefni til þess að opinber rannsókn færi fram á þessari hlið máls þessa. Að slíkt skuli hafa átt sér stað rétt um það bil, sem íslenskir iðnrek- endur eru að halda upp á áfanga í rekstri sínum með mikilli iðnsýn- ingu, sem sýndi ótvíræða getu ís- lenskra iðnrekenda. Mér þykir ótrúlegt, að margt af því fólki, sem þvingað eða óþving- að lét fé af hendi rakna við þessi samtök hefði gert það ef það hefði vitað hvernig verja átti hluta þess fjár. Vafalaust hefði yfirgnæfandi meirihluti þessara stuðnings- manna hvíldarheimilisins viljað að mikið hefði verið reynt til að láta íslenska iðnrekendur fá verkið þó eitthvað eyddist meira af söfnunarfénu, heldur en að verulegur hluti þess gengi til er- lendra aðila og vekti þar með grunsemdir í garð forustumanna þeirra, sem hlut eiga að máli. Þá er hitt atriðið í sambandi við þetta þjóðárátak, en það er að gerð verði opinberlega grein fyrir hve mikið hafi komið inn, hve mikið milliliðir hafi fengið í sinn vasa og þó sérstaklega hve mikið safnaðist með átakinu í Banda- ríkjunum og Kanada og hvernig þeim gjaldeyri hafi verið ráðstaf- að. Almenningur á kröfu á því að fá þetta upplýst. Ofsatrúarmenn trylltust í þessari sömu grein var bent á þá staðreynd, að góðtemplara- reglunni hefði ekkert orðið ágengt í starfi sínu og að vafasamt sé að bindindishreyfingin hafi unnið þjóðinni nokkurt gagn. Þessi rétta ábending varð til þess að tveir ofstækisfullir bind- indismenn stukku fram á ritvöll- inn í þeim megintilgangi að vega að persónu greinarhöfundar og að ausa fúkyrðum og brigslum úr skálum reiði sinnar, þegar þeir fundu að þeir gátu ekki rætt málin á þeim vettvangi sem um var að tefla. Annar þeirra lagðist svo lágt í skrifum sínum að svívirða löngu látna listamenn íslensku þjóðarinnar með gróusögum, á þann hátt, sem ekki hefur áður sést hjá okkur á prenti. Virtist sá víðlesni maður ekki kunna skil á merkingu Sólarljóða, „dauðum ró“. Ein. af þessum frásögnum var um eitt af höfuðskáldum þjóð- arinnar þar sem fylgikona skálds- ins var sögð hafa bjargað skáldinu dauðadrukknu frá því að verða úti á götum höfuðborgarinnar. Mér þætti ólíklegt að þessi valinkunna kona hefði viljað, að þessi „hetju- dáð“ hennar yrði höfð í flimting- um skáldinu til háðungar. Aðalatriði skrifa þessa manns voru þó þau, að reyna að koma þeirri sök á mig að hafa falsað heimildir um hann til þess að sýna fram á hvílíkur ofstækismaður hann væri. Hann klykkti út í skrifum sínum með því að segja: „En ég vil ekki liggja undir því að bera manni fölsun á brýn að ósekju, því að fölsun er slæmur hlutur.“ Auðvitað er ofstækið samt við sig, það er óhugsandi fyrir slíka menn að viðurkenna að þeir hafi viðhaft stóryrði um of. Hér var einfaldlega um mistúlkun að ræða, sem var eðlileg eins og á stóð, því ofstæki þessa manns, Halldórs Kristjánssonar frá Kirkjubóli, hafði verið miklu meira, en þess, sem spýtti vískíinu út úr sér i afmælisveislunni frægu, en varð seinna til þess að koma hinni fráleitu „bindindis- og banntillögu“ Halldórs Kristjáns- sonar fyrir kattarnef. Sumir af flokksbræðrum Halldórs Krist- jánssonar hafa bent mér á að skora á hann að birta staðfest af- rit af hinni „stífu bindindis- og banntillögu", sem áður getur og hann flutti á 8. flokksþingi Fram- sóknarflokksins og Bernharð Stef- ánsson vitnaði til i endurminning- um sínum. Að sögn þeirra var til- lagan þess efnis, að ekki mættu aðrir en bindindismenn skipa trúnaðarstöður fyrir flokkinn eða vera í framboði fyrir hann og að flokkurinn skyldi gera vínbann að aðal baráttumáli sínu. Menn geta leitt hugann að því hvað að baki því hafi legið að vilja útiloka alla aðra en bindindis- menn frá framboði. Vísindalegar staðreyndir Það mun ekki óalgengt, að nem- endur bindist vináttu- og tryggða- böndum við kennara sína. Slík hefur verið reynsla mín bæði í menntaskóla og háskóla og er reyndar enn, því setu minni á skólabekkjum er alls ekki lokið. Þessi vinátta lýsir sér m.a. í því að maður tekur nærri sér, ef kennari manns verður sér til háðungar og síst hefði ég viljað spilla áliti Ang- antýs H. Hjálmarssonar hjá nem- endum sínum. Eins og háttur er sjálfumglaðra manna þykist hann byggja skrif sín á vísindlegum staðreyndum, en telur mig fara með staðlausa stafi. Hið rétta í þessu máli er hins vegar það, að skrif mín eru byggð á vísindalegum rannsóknum lækna, sérfræðinga í greininni, sem m.a. kenna og starfa við einn viðurkenndasta læknaskóla heims, Harvard-háskólann. Einnig stuðst við athuganir íslenskra lækna og franskra, allir nafngreindir, sem ástæðulaust er að endurtaka. Til viðbótar skal hér vitnað til The Johns Hopkins Medical Journal, nr. 148/1981, þar sem læknanefnd þessa heimsþekkta háskóla birtir niðurstöður á rannsóknum undir yfirskriftinni „The Beneficial Side of Moderate Alcohol Use“ eða „Bætandi áhrif hóflegrar áfengis- neyslu". Þar segir um niðurstöður rann- sókna þessarar nefndar eftirfar- andi í lauslegri þýðingu: „Rannsóknanióurstöður gefa til kynna að hófleg neysla fullorðinna á áfengum drykkjum kann að draga úr hættu á kransæðastíflu, bæta lífs- gæði aldraðra, draga úr streitu og er næring ... Stungið er upp á eftir- töldum efri mörkum hóflegrar neyslu áfengis: 0,8 gr á kg líkams- þunga (algjört hámark 80 gr) á dag Dr. Gunnlaugur Þórðarson Bindindishreyfingin er orðin stórrík m.a. fyrir bein og óbein framlög frá því opin- bera. Meginverkefni hennar hefur verið skemmtanahald fyrir meðlimi sína... 0,7 gr pr. kg (líkamsþ.) yfir þriggja daga tímabil. Hins vegar liggja ekki fyrir næg gögn til þess að útiloka þann möguleika að slík neysla kunni að spilla ökuhæfni unglinga og full- orðinna og vera áhættusöm fyrir fóstur (þ.e. barnshafandi konur). Eigi ber að líta svo á að veittar upp- lýsingar mæli gegn því að ofdrykkja sé skaðleg fyrir heilsuna og yfirleitt ættu alkóhólistar að gæta sín í sam- bandi við áfengisneyslu á hvaða stigi sem er.“ í fáum orðum sagt er þetta í samræmi við það, sem sagði í skrifum mínum. Einstök vísindamennska Aftur á móti vitnar þessi sjálfskipaði sérfræðingur um meðferð áfengis í eigin skrif í Tímanum, sem er nánast hans eig- in trúarjátning og í þýðingu sem ungur læknir gerði fyrir 14 árum gagnrýnislaust á skrif í einhverju lítt þekktu tímariti „Listen“ að nafni, sem birtist þar nafnlaus og hafði inni að halda fullyrðingar, sem þessi sami læknir myndi ekki treysta sér til að standa við í dag og engir læknar, sem ég hef borið málið undir, myndu vilja leggja nafn sitt við. Þar segir m.a.: „Stöðug notkun áfengis skemmir og beinlínis eyði- leggur heilafrumur þar eð áhrif þess eru sexfalt öfiugri á taugafrumur en aðrar líkamsfrumur." Allir læknar, sem ég hef rætt um þessi mál við, segja að það sé algjörlega út í hött að meta slík áhrif líkt og gert er í greininni. Hitt mætti þessi maður vita, að rannsóknum á áfengisneyslu og áhrifum hennar hefur fleygt mjög fram á undanförnum árum og að menn eru stöðugt að komast að nýjum niðurstöðum í því efni, til dæmis að þar hafi umhverfi, ætt- arfylgjur og velgengni í lífinu miklu meiri áhrif en t.d. sálfræð- ingar hafa viljað viðurkenna. í nýjustu rannsóknum virðast at- huganir benda til þess að um 5% af fólki hafi einhvern innbyggðan meðfæddan galla eða e.t.v. má kalla það ofnæmi gagnvart áfengi, þannig að margt styður nýjar til- gátur um að það geti alls ekki um- gengist áfengi og ætti að halda sig frá því líkt og t.d. sykursýkis- sjúklingar frá sykri og sætindum. Hins vegar væri miklu æski- legra að læknar fjölluðu meira um þessi mál almenningi til fróðleiks og viðvörunar, heldur en leikmenn líkt og undirritaður. Mér kemur hins vegar til hugar, að þeir forð- ist að skrifa um þessi mál af því að þeir vilja sneiða hjá því að lenda e.t.v. í ritdeilum við slíka menn og ráðist hafa að skrifum mínum af dæmafáu offorsi en eru ekki á sömu bylgjulengd og flest venjulegt fólk. Það væri líkt og að mér dytti í Aðalfundur Menningarsamtaka Norðlendinga: Rithöfundar á Norðurlandi ekki ánægðir með Akureyrarútvarpið Altureyri, 13. október. AÐALFUNDUR Menningarsam- taka Norðlendinga var haldinn á Aknreyri í síðasta mánuði. Til fundarins mættu rúmlega 40 full- trúar hinna ýmsu listgreina í fjórð- ungum, auk annars áhugafólks um þau mál. Auk venjulegra aðalfundar- starfa var aðalmál fundarins uppbygging og innra starf sam- takanna, sem eru hin einu sinnar tegundar í landinu og hafa að meginmarkmiði að vera vett- vangur umræðu og starfs í list- um og menningarmálum í Norð- le n d i ngafj ór ðu ngi. Stjórn samtakanna var öll endurkjörin, en hana skipa: Kristinn G. Jóhannsson, formað- ur, Þórey Aðalsteinsdóttir, vara- formaður, Bragi Sigurjónsson, ritari, Atli Guðlaugsson, gjald- keri, og Valgarður Stefánsson. í varastjórn eru: Guðmundur Ármann, Guðmundur L. Frið- finnsson, Hrefna Jónsdóttir, Guðmundur Norðdahl og Sveinn Kjartansson. Listamenn og heimamenn Menntamálaráðuneytið skip- aði á sl. ári nefnd til þess að gera tillögur um skipulagningu á tónleikahaldi íslenskra tónlist- armanna hér á landi. Nefndin sendi frá sér bréf sl. sumar og þótti tónlistarmönnum á aðal- fundinum ýmislegt við það að at- huga. í bréfinu er m.a. að finna þessa forkostulegu málsgrein: „Einnig mætti hugsa sér að listamenn tækju þátt í tónleik- um ásamt heimamönnum." Þá kemur og fram í bréfinu, að nefndin hefur skrifað félags- mönnum í Félagi íslenskra tón- listarmanna þar „sem óskað er eftir tillögum um tónlistar- dagskrár, er þeir væru tilbúnir að flytja úti á landsbyggðinni". í tilefni af þessu gamansama bréfi var eftirfarandi ályktun samþykkt: „Aðalfundur Menn- ingarsamtaka Norðlendinga lýs- ir furðu sinni á því að ekki skuli hafa verið leitað eftir tónlistar- fólki úr Norðlendingafjórðungi til tónleikahalds á sama grund- velli og tónlistarfólki á höfuð- borgarsvæðinu hefur verið gef- inn kostur á, sbr. bréf frá Bjarna Gunnarsyni, stjórnarráðsfull- trúa, dagsett 22.7.1983.“ „Gróflega útundan“ Rithöfundar, sem búsettir eru á Norðurlandi og mættir voru á aðalfundinn, voru afar ósáttir við það hvernig háttað er greiðslum úr sjóðum rithöfunda. Þótti þeim sem fjármunir úr þeim sjóðum ættu ógreiða leið norður yfir heiðar. Af því tilefni var eftirfarandi ályktun sam- þykkt á aðalfundinum: „Félag rithöfunda innan Menningar- samtaka Norðlendinga ályktar að það sé óeðlilegt hve rithöf-1 undar úti á landi verða gróflega útundan í sambandi við greiðsl- ur úr sjóðum rithöfunda og er stjórn Menningarsamtakanna falið að vinna að úrbótum á því.“ Þá kom einnig fram á fundin- um, að norðlenskum rithöfund- um þykja samskipti sín við Rík- isútvarpið hafa lítið eflst með tilkomu Akureyrarútvarpsins og samþykkt var eftirfarandi álykt- un: „Félag rithöfunda á Norður- landi samþykkir að nauðsyn beri til að rithöfundar á félagssvæð- inu tengisi Ríkisútvarpinu á Ak- ureyri betur en nú er.“ Myndlistarsýningin „Haust ’82“ í sambandi við aðalfundinn var efnt til samsýningar norð- lenskra myndlistarmanna og var skipuð nefnd innan hóps mynd- listarmanna til að velja mynd- verk til sýningarinnar, en alls bárust um 100 verk til nefndar- innar og voru valin 46 til sýn- ingar. Eftirtalin áttu verk á sýn- ingunni: Dröfn Friðfinnsdóttir, Rut Hansen, Kristinn G. Jó- hannsson, Guðmundur Ármann, Samúel Jóhannsson, Guðmundur Oddur Magnússon, Kristján Steingrímur Jónsson, Gústaf Geir Bollason, Hörður Jörunds- son, Örlygur Kristfinnsson, Að- alsteinn Vestmann, Gunnar Dúi Júlíusson, Sigurbjörn Jónsson, Valgarður Stefánsson, Einar Helgason, Helgi Vilberg, óli G. Jóhannsson, Svavar Gunnars- son, María Hjaltadóttir, ólafur H. Torfason, Emil Sigurðsson og Þráinn Karlsson. Góð aðsókn var að sýningunni. GBerg

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.