Morgunblaðið - 26.10.1983, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 26.10.1983, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 1983 77 TW VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 10100 KL. 11—12 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS M-MUl /l^\” Ubrí *U ll Höggormstungan í aldingarðinum Eden — þ.e. öll ásthönnunarfræðslan Rósa B. Blöndals skrifar: „Ég nota hér orðskrípið „hönn- un“, þennan enska stígvélabrokk. Vona að það skiljist. Hvernig voru áhrifin af upp- fræðslu höggormsins á hinar ungu, saklausu sálir í Eden? — Þar stendur: Þá lukust upp augu þeirra beggja og þau sáu að þau voru nakin. Horfin var að litlum tíma liðn- um þeirra alsæla barnæskupara- dís. Nokkur ár eru nú liðin síðan ég var stödd í húsi í Rvík, meðal ann- arra gesta. Þá sá ég bók, sem gefin mun hafa verið út handa foreldr- um að skenkja smábörnum sinum. Lítið barn var með litla bók, blöðin þykk. Á einni opnu bókar- innar voru tvö börn, sitt á hvoru blaðspjaldi, drengur og stúlka. Þau voru nakin. Og litla barnið, sem hélt á bókinni, var að greina sundur gestina eftir myndunum. Þá kom mér í hug sagan um ald- ingarðinn Eden. „Þau voru nakin, en þau sáu það ekki.“ Höggormur- inn tók að sér kynfræðsluna. — Og þau sáu að þau voru nakin. Allar götur frá því að þessi saga var rituð, kemur aðvörunin þaðan til vorra daga, kristinna manna á Norðurlöndum, aðvörun við því að opna augu saklausra barna fyrir þeim hlutum sem eiga að vera þeim huldir á bernskuskeiði. Höggormstungufræðslan hefur í seinni tíð komið upp um sig með því að vera æ opinskárri. Meira að segja stóð útvarpið opið tveimur persónum, á besta tíma kvölds, til þess að ausa sora og óþverratali yfir börn. Furðulegt að ekki skyldi fljótlega verða lokað fyrir tal þeirra. Ég fullyrði að ekkert bændafólk, sem ég hefi kynnst, hefði liðið nokkru hjúi slíkt tal við börn. Ég hygg, að það hefði verið talin brottrekstrarsök fyrirvara- laust. Jenna Jensdóttir á þakkir skilið fyrir að segja foreldrum frá einni klámbók, sem höggormsfræðslan í þessu landi ætlar nú smábörnum. Foreldrar, varið ykkur á því að láta höggormsfræðsluna liggja i eyrum barnanna og saurga bæði augu og eyru þeirra. Ég skora á alla sanna foreldra að taka höndum saman og krefjast þess, að höggormstungufræðslan verði lögð niður í barnaskólum. Krefjist þess að fá að fræða börn yðar sjálfir um þau sérstöku mál. Síðar meira um þessi efni.“ Þessir hringdu * . . Missa af efnilegum unglingum Amma hringdi og hafði eftirfar- andi að segja: — Barnabarn mitt - eitt á heima uppi í Breiðholti og hefur mjög mikinn áhuga á körfu- bolta. Viðkomandi er stúlka og er á starfssvæði ÍR. Kostar það hana 2400 krónur yfir árið að fá að taka þátt í þessari eftirlætisíþrótt sinni. Þetta finnst mér dýrt og er jafnframt kunnugt um, að hlið- stætt gjald hjá Val (drengir) er 450 krónur. Er það ekki sárgræti- legt, ef íþróttafélög þurfa að missa af efnilegum unglingum á starfs- svæðum sínum, vegna þess að ung- mennin hafa hreinlega ekki efni á að vera með? Sjónvarp og útvarp: Til hvaða aldurshópa höfða dagskrárnar? G.G. skrifar: „Velvakandi. Við hjónin, sem bæði erum ellilífeyrisþegar, reynum að horfa á sjónvarpið, þegar þar er eitthvað bitastætt að hafa, okkur finnst það nú orðið sjaldn- ar og sjaldnar. í gærkvöldi (sunnudagskvöld) horfðum við á þáttinn „Sjónvarp næstu viku“ og þótti okkur þá keyra um þverbak. Og ég hugs- aði með mér: Það er nákvæmlega ekkert einasta atriði af þeim sem kynnt voru, sem höfðar til manns eða vekur áhuga. Og þá er að leita á náðir „hins kassans", en ekki tekur betra við: Það má telja á fingrum ann- arrar handar þá þætti sem vekja áhuga manns. Þriðjudagsþætt- irnir eru góðir (voru a.m.k. á þriðjudögum fyrir missiraskipt- in), þættirnir hans Torfa skín- andi og að lokum eru þættir vinkvennanna, Eddu Björgvins- dóttur og Helgu Thorberg, alveg ljómandi skemmtilegir. Nú langar mig til að vita hvort þetta á við um fleiri en okkur. Finnur fólk almennt sáralítið við sitt hæfi í þessum fjölmiðlum eða er því öfugt farið? Það er búið að segja það hundrað sinn- um, að smekkur fólks sé misjafn, en þá spyr ég: Hvaða aldurs- hópar eru það þá sem dagskrár ríkisfjölmiðlanna höfða til, svona almennt? Víst var gengið fram hjá okkur ellilífeyrisþegum, þegar leitað var eftir áliti fólks á dagskrá þessara fjölmiðla, svo að e.t.v. er það ekkert undarlegt, þótt lítið tillit sé tekið til skoð- ana okkar. En ég spyr aftur: Hvaða aldurshópar eru það, sem dagskráin höfðar til? Ef ástæðan fyrir klénni dagskrá er peningaleysi, lýsi ég því yfir, að ég ynni fyrir að borga meira. Maðurinn minn vill óðfús segja upp sjónvarpinu, en það get ég ekki hugsað mér, þó að ekki væri nema vegna frétt- anna. En hvar ætli þær séu allar niðurkomnar kvikmyndirnar sem maður sá hérna í gamla daga og fannst skemmtilegar? Væri ekki hægt að krækja í eitthvað af þeim?“ Rjúpnaveiöimenn: Kynnið ykkur veðurútlitið áður en þið leggið upp í veiði- ferðina. Á fjöllum er allra veðra von. Klæðist ullarfötum, og hafið meðferðis léttan hlífðargalla í áberandi lit. Vandið fótabún- aðinn. Grandskoðið allan búnað áður en lagt er af stað í veiðiferð- ina og vandið hann af stakri umhyggju. GÆTUM TUNGUNNAR Sagt var: Hússein er í arabisku sendinefnd í Moskvu. Rétt væri:... í arabiskri sendinefnd ... Eóa:... í hinni arabisku sendinefnd ... Kða:.. .i arabisku sendinefndinni í Moskvu. ALLTAF Á FIMMTUDÖGUM BRO£TU! MYNDASÖGURNAR KOMA Ár MORGUN Vikuskammtur afskellihlátri HUGSAÐU þig tvisvar um áður en þú kaupir bakarofn. Blomberg býður fjölbreytt úrval af ofnum og kæliskápum til innbyggingar í innréttingar. Hægt er að staðsetja ofninn, eða kæliskápinn í réttri vinnuhæð og setja samskonar hurðir Blomberq Stilhrein hágæða heimilistæki. EINAR FARESTVEIT & CO. HF. BERGSTAÐASTRÆTI ÍOA Sími I6995

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.