Morgunblaðið - 26.10.1983, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 26.10.1983, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 1983 47 Yrðlingar af hvíta íslenska heimskautarefakyninu. Betri skinn er svarið við harðnandi samkeppni - Söluhorfur nokkuð góðar Minkunum gefið hjá Grávöru á Grenivík. SÖLUHORFUR loðdýra- skinna á komandi uppboðum eru taldar góðar og von til að verð fari heldur hækkandi. Á aðalfundinum kom fram að þegar mikið framboð er eins og nú er á heimsmarkaði eru gerðar meiri kröfur um mikil gæði skinna og meiri verð- munur á milli góðra og lé- legra skinna en þegar eftir- FÓÐURSTÖÐVAR og skipulag fóð- urframleiðslunnar var eitt aðalmál fundarins, enda undirstaða loðdýra- ra ktarinnar. Samþykkt var að fara fram á aukningu á lánafyrirgreiðslu til uppbyggingar fóðurstöðva og aö við leyfisveitingar loðdýraræktar- leyfa verði framvegis tekið tillit til möguleika viðkomandi til fóðuröfl- unar. Þá var einnig samþykkt að reyna að koma upp virku fóðureftir- liti. Á fundinum kom fram að starf- andi hefur verið nefnd til að skipuleggja fóðurmál loðdýra- ræktarinnar en nefndin mun vera langt komin í sínum störfum. Jón Ragnar Björnsson, framkvæmda- stjóri SÍL, sem sæti á í fóður- stöðvanefndinni sagði að í nefnd- inni væru uppi hugmyndir um að megináherslan verði lögð á að byggja fullkomnar fóðurstöðvar þar sem loðdýraræktin er lengst komin. Menn þyrftu að passa sig á að dreifa loðdýraræktinni ekki of mikið um landið, því það hefði í spurnin er meiri en framboð- ið. Jón Ragnar Björnsson fram- kvæmdastjóri SÍL sagði á aðal- fundinum að refaskinnin frá Finnlandi sem seldust ekki á upp- boðunum í fyrra hefðu öll selst á septemberuppboðunum í haust og þá hefði orðið 5 til 6% raunhækk- un. Sagði hann að framleiðsla blá- refaskinna 1 Finnlandi og Noregi hefði nú minnkað og liti því vel út með sölu á þeim í vetur. Aftur á Komið verði á virku fóður- eftirliti för með sér of mikla dreifingu kraftanna og fjármagnsins, sér- staklega hvað varðar fóðurfram- leiðsluna en fullkomnar og stórar fóðurstöðvar væru undirstaða þess að vel tækist til með loðdýra- ræktina. Mikil nauðsyn væri á að fá fjármagn í uppbyggingu fóður- stöðvanna og út frá þeim yrði loðdýraræktin að þróast. Sagði Jón Ragnar að mikið vantaði á að fóðurframleiðslan væri nógu góð og hefðu menn orð- ið fyrir verulegum skakkaföllum þess vegna. Þetta yrði að laga. Sagði Jón að frjálst fóðureftirlit og útgáfa á samanburðarskýrslum móti hefði orðið aukning á fram- leiðslu silfurrefaskinna svo og shadow og blue silver. Þá sagði Jón Ragnar að útlitið væri ekki síður gott í sölu minkaskinna. Bú- ist væri við að þau seldust upp í vetur og að einhver verðhækkun yrði á þeim. Jón Ragnar sagði að íslenskir refabændur hefðu náð lélegustum árangri af Norðurlandaþjóðunum á uppboðunum á Norðurlöndunum á síðasta vetri, 870 krónum fyrir refaskinnið að meðaltali, en hinar um árangur bænda út frá hverri fóðurstöð myndi geta orðið hvati fyrir þær til að standa sig betur. Þá kom fram á fundinum að fyrstu bændurnir sem farið hefðu út í loðdýrarækt þar sem ekki hefðu verið möguleikar á fóður- framleiðslu væru nú að gefast upp og var það talið sýna nauðsyn þess að loðdýraræktin verði látin þró- ast út frá fóðurstöðvunum. Þá kom einnig fram í máli ýmsra fundarmanna að þeir töldu brýna nauðsyn bera til að endur- bætur á útkeyrslu fóðursins yrðu gerðar jafnhliða því sem fóður- stöðvarnar sjálfar yrðu byggðar upp. Var nefnt í því sambandi að í stað þess að hver bóndi færi á bíl sínum að fóðurstöðinni og næði í fóður í dall fyrir sitt bú þyrfti að koma upp tankbílum sem ækju fóðrinu heim til bænda. Bændurn- ir þyrftu þá að koma sér upp fóð- ursílóum við loðdýrahúsin. Myndi þetta auðvelda vinnuna og auka hreinlæti og öryggi. þjóðirnar hefðu náð meðalverði frá 920 (Svíar) og upp í 1086 krón- ur (Norðmenn). Hafa ber þó í huga að bestu dýrin hér voru sett á í fyrra og fóru því einungis skinnin af lélegustu dýrunum á markað. Staðan i gæðamálum minkaræktarinnar er enn verri og má þar um kenna sjúkdóminum sem herjar á hluta stofnsins og hefur staðið allri minkaræktinni hér fyrir þrifum undanfarin ár. Jón Ragnar sagði að 36—38% af minkaskinnunum hefðu ekki selst fyrr en á haustuppboðunum og hefðu öll verið í lélegustu gæða- flokkunum. Sagði Jón Ragnar að þetta sýndi lélega stöðu minka- ræktarinnar. Haukur Halldórsson formaður SÍL ræddi um þá erfiðleika sem steðjuðu að loðdýraræktinni vegna verðfalls á afurðunum og stöðugu gengi samfara innlendri verðbólgu. Sagði hann að svar bænda við þessu þyrfti að vera það að bæta gæði framleiðslunnar. Aldrei væri jafn mikill verðmunur á góðri og lélegri vöru þegar mikið framboð væri á mörkuðunum. Öllu máli skipti í slíku ástandi að framleiða góða vöru, hún seldist betur og á hærra verði en tilkostn- aðurinn væri sá sami. Ræddi hann í þessu sambandi nauðsyn þess að flytja inn fleiri afbrigði refa svo og refi til kynbóta. Erfiðleikar væru á á því vegna sjúkdóma sem komið hefðu upp í nágranna- löndunum og hefði leyfi enn ekki fengist fyrir refainnflutning í ár. í lok aðalfundarins var sam- þykkt að fela stjórn SÍL að vinna að því að gefinn verði út topplisti fyrir loðdýrabúin. Með topplista er átt við að gerður verði listi yfir árangur einstakra bænda í loð- dýraræktinni og gerður listi yfir þá sem standa sig best. Vonuðust menn til að það gæti orðið mönnum hvatning til að standa sig vel og myndi auk þess auka samkeppnina á milli bænda. Loödýraræktin þróist út frá fóðurstöðvimum Leiðbeiningaþjón- ustan heim í héruðin SKORTUR á leiðbeiningaþjónustu stendur frekari þróun loðdýraræktar- innar fyrir þrifum," sagði Haukur Halldórsson formaður SIL í skýrslu sinni til aðalfundarins. Sagrti hann að vegna þess hve margir nýir bændur hefðu hafið loðdýrarækt á undanforn- um árum væri mikil nauðsyn á að fá meiri sérfræðiþjónustu þannig að menn héldu velli í þeirri miklu sam- keppni sem þessi atvinnugrein þyrfti að búa við á heimsmarkaði. Sagði Haukur að sérstök nauðsyn bæri til að ráða sérfræðing í flokk- un skinna en einnig væri dýra- læknaþjónustan veikur hlekkur. Þyrfti að ráða sérmenntaðan dýra- lækni til að sinna loðdýraræktinni eingöngu. Ráðunautaþjónustan er nú i höndum Búnaðarfélags fslands sem er með loðdýraræktarráðunaut og fóðurráðunaut, sem sinna öllu landinu, í sinni þjónustu. Aðalfund- ur SÍL samþykkti að ráðunauta- þjónustan færðist heim í héruðin, til loðdýraræktarfélaganna eða búnaðarsambandanna, eins og nú er með aðra ráðunauta landbúnað- arins og yrðu laun þeirra greidd af ríki og bændum á sama hátt. iiiÍÍBfBBSBSjHilSBgggSli Frjósemi refanna er mikil. Hér eru 11 alsystkini í einum hóp á loódýrabúinu Böggvisstöðum á Dalvík. A förnum vegi Ekki er ofsögum sagt af dálæti íslendinga á kveðskap og því sem honum viðkemur eins og eft- irfarandi smásaga úr daglega líf- inu ber vitni um. Um jónsmessuleytið í sumar hafði ég þá ánægju að heim- sækja Louisu Ólafsdóttur frá Arnarbæli, en hún er á nítug- asta og þriðja aldursári og býr nú í Ási í Hveragerði. Louisa er ræðin og skemmtileg og kann á mörgu skil. Vísa ein sem marg- ir kunna var að ónáða hana og þá af því að hún vissi ekki hver var höfundurinn. Svona er vís- an eins og Louisa fór með hana: ..Kg hliut að sUuta bUuU braut, bikkjan skrykkjótt nokkuð gekk. Hún þaut og hnaut, ég hraut í laut, hnykk með rykk á skrokkinn fékk.“ Ég hafði góð orð um að grennslast fyrir um uppruna vísunnar, en segir nú ekki af þeim tilraunum fyi**r en Hall- dór Blöndal fer með vísuna fyrir mig í útvarþsþætti um mitt sumar. En ekki var hon- um kunnugt um höfundinn frekar en Louisu. Var ég nú helzt á því að þetta væri ein af þeim vísum sem enginn veit hvaðan koma eða hvert fara. Líður nú enn og bíður þar til í septemberbyrjun að Qrmur ólafsson, formaður Kvæða- mannafélagsins Iðunnar, lætur vísuna dynja á mér. Fór á sama veg sem fyrr — ekki var vitað um höfundinn, og þótti mér nú satt að segja nóg um. Það var líkast því sem vísu- skömmin væri farin að hund- elta mig. Enn líður og bíður. Fyrsta mánudag í október hringir Ormur og hefur nú heldur bet- ur fréttir að færa. Lengi vel höfðu ítrekaðar fyrirspurnir hjá fróðustu mönnum engan árangur borið en loks hafði hann borið niður hjá Finnboga Guðmundssyni landsbókaverði. Finnbogi hafði síðan spurt Nönnu Ólafsdóttur sem starfár í handritadeild safnsins. Minnti Nönnu að vísan væri eftir ólaf Gunlaugsson Briem, langafa Davíðs Stefánssonar skálds, og hélt sig jafnvel eiga skriflegar heimildir þar að lút- andi. Svo reyndist þó ekki vera og segir Nanna Finnboga frá því í anddyri safnahússins við Hverfisgötu að Tómasi Helga- syni húsverði áheyrandi. Tóm- as átti í fórum sínum slitrur úr Almanaki Þjóðvinafélagsins þar sem birtar voru dýrt kveðnar vísur. Slitrur þessar höfðu honum áskotnazt er hann var enn ungur maður. Og þar fannst vísan á bls. 70 í Al- manaki Þjóðvinafélagsins 1917 og þar er höfundarins, ólafs Gunnlaugssonar Briem, getið. Þarna er vísan höfð svona: „Hlmut ég stauta blauU braut. bikkjan skrykkjótt nokkud gekk. Hún þaut og hnaut, ég hraut í laut, hnykk meó rykk í skrokkinn fékk." Á öðrum stað fannst vísan, höfundarlaus, og nefnd Lausa- vísa, í Bragfræði Helga Sig- urðssonar, sem út kom árið 1891. Meðan á leit Orms ólafsson- ar að vísuhöfundi stóð kvað hann þessa vísu: ,.1'm ókunnar bækur ég augunum skima, af óþreyju knúinn í svefni og vöku. í Landsbókasafni um leyndustu kima. leiU aó höfundi gamallar stöku.“ Áslaug Ragnars

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.