Morgunblaðið - 26.10.1983, Blaðsíða 46
78
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. OKT0BER 1983
Vestfirðingafjórðungur:
Rækjuaflinn á sumarvertíðinni
nær fjórfalt meiri en í fyrra
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
eftirfarandi yfirlit um sjósókn og
aflabrögó í Vestfirðingafjórðungi f
september 1983. Kemur þar meðal
annars fram, að botnfiskafli hefur
verið heldur minni en á sama tíma í
fyrra, en mikill fjörkippur hefur ver-
ið í rækjuveiðum. Rækjuaflinn í
Vestrirðingafjórðungi á sumarvertfð-
inni var í septemberlok orðinn nær
fjórum sinnum meiri en á sama tíma
í fyrra:
Tregfiski var hjá togurunum
allan mánuðinn og héldu þeir sig
mest á karfaslóð, en margir togar-
ar voru einnig frá veiðum vegna
viðhalds og viðgerða lengri eða
skemmri tíma í mánuðinum.
Nokkrir bátar voru byrjaðir róðra
með línu, og öfluðu þeir þokka-
lega, en handfærabátarnir hættu
flestir veiðum fyrir mánaðamótin.
Botnfiskaflinn í mánuðinum var
4.432 lestir, en var 4.965 lestir á
sama tíma í fyrra.
Góður rækjuafli var allan mán-
uðinn, og stunduðu 40 bátar
rækjuveiðar á Vestfjarðamiðum f
september, en flestir hættu í lok
mánaðarins. Rækjuaflinn í mán-
uðinum var 846 lestir og varð sept-
ember þar með bezti aflamánuður
sumarsins. Rækjuaflinn á sumar-
vertíðinni er þá orðinn 3.652 lestir,
en var 969 lestir í fyrra. Aflinn á
haust- og vetrarvertíðinni í vetur
(október/apríl) var 3.959 lestir,
þannig að aflinn frá upphafi
haustvertíðar 1982 er nú orðinn
7.611 lestir, sem er mesti rækju-
afli, sem hér hefur komið á land á
þessu tímabili.
Níu bátar stunduðu skelfisk-
veiðar í Arnarfirði og Isafjarð-
ardjúpi og öfluðu 417 lestir í mán-
uðinum. f fyrra var skelfiskaflinn
147 lestir í september.
í byrjun mánaðarins varð vart
síldar í ísafjarðardjúpi og stund-
uðu nokkrir bátar síldveiðar í lag-
net i mánuðinum.
Botnfískaflinn í einstökum verstöðvum:
Patreksfjörður: Þrymur 10,0 lestir í 2 ferðum
Færabátar 150,1 lest
Tálknafjörður: Tálknfirðingur tv. 117,4 lestir 11 ferð
Bíldudalur: Sölvi Bjarnason tv. 222,0 lestir í 3 ferðum
Þingeyri: Sléttanes tv. 197,3 lestir í 3 ferðum
Framnes I tv. 184,6 lestir í 2 ferðum
Færabátar 28,4 lestir
Flateyri: Gyllir tv. 181,6 lestir í 2 ferðum
Ásgeir Torfason tv. 31,8 lestir í 3 ferðum
Færabátar 19,9 lestir
Suðureyri: Elín Þorbjarnard. tv. 288,1 lestir í 3 ferðum
Sigurvon 48,1 lestir í 8 ferðum
Byr 28,7 lestir í 12 ferðum
Ingimar Magnússon 27,5 lestir í 9 ferðum
Jón Guðmundsson 18,8 lestir í 13 ferðum
Færabátar 36,7 lestir
Bolungarvík: Heiðrún tv. 285,9 lestir í 3 ferðum
Dagrún tv. 197,8 lestir í 2 ferðum
Hugrún 98,1 lestir í 18 ferðum
Páll Helgi n. 65,5 lestir í 25 ferðum
Uggi 13,4 lestir í 14 ferðum
Hafrún 10,0 lestir í 12 ferðum
ísafjörður: Færabátar (23) 101,6 lestir
Júlíus Geirmundsson tv.362,1 lest í 3 ferðum
Guðbjartur tv. 297,7 lestir í 3 ferðum
Páll Pálsson tv. 225,5 lestir í 2 ferðum
Guðbjörg tv. 183,2 lestir í 2 ferðum
Sléttanes tv. 94,2 lestir í 1 ferð
Orri 79,2 lestir í 12 ferðum
Framnes I tv. 76,0 lestir í 1 ferð
Víkingur III 69,1 lest í 11 ferðum
Örn f. 29,8 lestir
Handfærabátar 53,2 lestir
Súðavfk: Bessi tv. 127,3 lestir í 2 ferðum
Fleygur f. 11,0 lestir
Aflatölur togara og handfærabáta eru miðaðar við slægðan fisk, en afli
línu- og netabáta við óslægðan fisk.
Rækjuaflinn í einstökum verstöðvum:
Bolungarvík: Erling GK 46,3 lestir
Þorsteinn GK 36,5 lestir
ísafjörður: Ingólfur 32,4 lestir
Vonin 53,9 lestir
Albert 44,8 lestir
Jón Þórðarson 38,8 lestir
Jón Jónsson 37,1 lest
Geirfugl 31,1 lest
Vatnsnes 30,9 lestir
Hafrenningur 30,5 lestir
Sigrún GK 28,2 lestir
Bryndís 27,9 lestir
Steinunn 27,1 lest
Gissur ÁR 26,7 lestir
Höfrungur II 25,0 lestir
Kári VE 24,1 lest
Búrfell 21,9 lestir
Ása 12,7 lestir
Sig. Þorkelsson 11,3 lestir
Bjarnarvík ÁR 10,9 lestir
Dagur 10,4 lestir
Súðavík: Sigrún ÍS 23,1 lest
Valur 18,4 lestir
Hólmavík: Donna 22,0 lestir
Ingibjörg 20,7 lestir
Ásbjörg 20,5 lestir
Jón Pétur 17,9 lestir
Sæbjörg 15,6 lestir
Drangsnes: Vonin II 21,0 lestir
Stefnir 13,1 lest
Grímsey 16,0 lestir
Skelfiskafíinn í einstökum verstöðvum:
Bíldudalur:
ísafjörður:
Stigandi
Pilot
Snæberg
Þröstur
Jörundur Bjarnason
Sæunn
Tjaldur
Bára
51,0 lestir í 21 ferð
49.5 lestir í 21 ferð
48,0 lestir í 21 ferð
47,7 lestir í 21 ferð
45,2 lestir I 20 ferðum
25.6 lestir í 12 ferðum
76,0 lestir í 20 ferðum
74,0 lestir í 19 ferðum.
Aflinn í hverri verstöð í september:
Botnfískur: Rækja: Skel:
1983: 1982: 1983 1982 1983 1982
Patreksfjörður 190 lestir ( 473 lestir)
Tálknafjörður 131 lest ( 227 lestir)
Bíldudalur 257 lestir ( 158 lestir) 267
Þingeyri 454 lestir ( 430 lestir)
Flateyri 268 lestir ( 344 lestir)
Suðureyri 473 lestir ( 377 lestir)
Bolungarvík 875 lestir ( 1.082 lestir) 115
Isafjörður 1.635 lestir ( 1.786 lestir) 531 150 (147)
Súðavík 143 lestir ( 50 lestir) 48 ( 40)
Hólmavík 3 lestir ( 25 lestir) 98 ( 21)
Drangsnes 3 lestir ( 13 lestir) 54 ( 8)
4.432 lestir ( 4.965 lestir) 846 ( 69) 417 (147)
Jan./ágúst 55.338 lestir (62.632 lestir) 2.806 (227) 227
59.770 lestir (67.597 lestir) 3.652 (969) 644 (147)
LjósmjiHl Mbl. Sigurgeir.
Ragnhildur Helgadóttir í ræðu-
stól á almennum fundi í Vest-
mannaeyjum.
Menntamála-
ráðherra heim-
sótti Eyjar
RAGNHILDUR Helgadóttir,
menntamálaráðherra, heim-
sótti Vestmannaeyjar fyrir
skömmu í boði sjálfstæðis-
kvennafélagsins Eyglóar og
ræddi menntamálaráðherra
stöðu þjóðmála á almennum
fundi í Samkomuhúsi Vest-
mannaeyja. Þá kynnti Ragn-
hildur sér sérstaklega stöðu
skólamála í Eyjum, en þar er
unnið að ýmsum brýnum mál-
um.
Vogar
á Vatnsleysuströnd:
Drengir fyr-
ir bifreiðum
Vofoun á Vatiulejsustriind, 24. október.
Á SKÖMMUM tíma hafa orðið hér
tvö umferðaróhöpp, þar sem börn
hafa orðið fyrir bifreiðum.
Föstudaginn 21. október varð
tólf ára drengur fyrir bifreið í
Vogagerði. Samkvæmt upplýsing-
um lögreglunnar í Keflavík, sem
kom á staðinn, var drengurinn
færður til læknis til skoðunar, en
fékk síðan að fara heim.
Um miðjan september varð
fjögurra ára drengur á hjóli fyrir
bifreið á Vatnsleysustrandarvegi
við Voga. Drengurinn fótbrotnaði.
— EG
Flatey á Breiðafirði:
Skelfiskveiðar hefj
ast um mánaðamót
SKELFISKVEIÐI hefst væntanlega í
Flatey á Breiðarfirði um næstu mán-
aðamót. Er það í fyrsta sinn sem
Flateyingar gera út á skelfisk, en í
nágrenni Flateyjar hafa bátar frá
Stykkishólmi og Brjánslæk stundað
Umferðar-
fræðslu lokið
Haustumferðarfræðslu fyrir 5 og 6
ára börn sem staðið hefur yfir á veg-
um Umferðarráðs, lögreglunnar og
sveitarfélaga lauk fyrir skömmu.
Var farið um Suður- og Suðvest-
urland og í fyrsta skipti haldinn
umferðarskóli í Vestmannaeyjum, á
Hellu, Hvolsvelli og í Hreppunum.
Fjöldi barna sótti þessa fræðslu og
víða fylgdust eldri systkini og for-
eldrar með, segir m.a. í frétt sem
Mbl. hefur borist frá Umferðarráði.
slíkar veiðar. Frá Flatey verður gerð-
ur út einn tólf tonna bátur, en eyjar-
skeggjum var úthlutaður 250 tonna
kvóti fyrir árið 1983.
Fimmtán manns búa nú í eynni
og sagði Hafsteinn Guðmundsson,
oddviti þar, að líklegast myndu sex
manns hafa atvinnu af skelfisk-
veiðunum, þar af tveir á bátnum,
en þegar vel aflaðist mætti búast
við að átta manns gætu unnið í
skelfiski í landi. Fiskurinn verður
unninn í frystihúsi staðarins, en
það hefur ekki verið notað undan-
farin ár.
„Þessi skelfiskveiði er meira en
tilraun til slíkra veiða,“ sagði Haf-
steinn Guðmundsson, „það er ekki
næg atvinna fyrir þá sem búa í
Flatey og ný atvinnutækifæri
verða að koma til. Þess vegna
bindum við miklar vonir við skel-
fiskveiðarnar þannig að fólk geti
búið við þokkaleg lífskjör hér á
komandi árum.“
í Álafosskórnum eru 52 félagar. Stjórnandi kórsins er Páll Helgason.
Alafosskórinn hefur vetrarstarf
ÁLAFOSSKÓRINN hefur hafið vetrarstarf að nýju eftir
sumarfrí. í fréttatilkynningu frá kórnum segir m.a. að
næsta sumar sé honum boðið í söngferð til Rússlands
og verði sú ferð líklega farin í júlí á næsta ári. Þar segir
ennfremur að raddþjálfari kórsins til áramóta verði
Dóra Reindal. Félagar í kórnum eru 52 og eru þeir
starfsmenn Álafoss hf., makar þeirra og börn. Stjórn-
andi Álafosskórsins er Páll Helgason.