Morgunblaðið - 26.10.1983, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 1983 05
Tengslin við ísland
— eftir Valdimar
Björnsson
Miuempolig, U. október.
Nánari sambönd milli Háskóla
íslands i Reykjavík og háskóla
Minnesotaríkis í Minneapolis hafa
farið vaxandi síðastliðið ár. C.
Peter Magrath, yfirmaður Minn-
esota-háskólans heimsótti ísland
fyrir rúmu ári til að koma á
tengslum kennaraskiptum og
námsmanna á svipaðan hátt og
gerst hefur með menntasetrum sjö
annarra landa. Vorið 1982 kom
Guðmundur K. Magnússon, rektor
Háskóla íslands, vestur og var
formlegur samningur gerður milli
stofnananna. Skiptin byrjuðu
núna í haust.
Má vel byrja á á Nýja íslandi í
Manitobafylki í Kanada, fyrir
norðan Winnipeg, með upptaln-
inguna, þó Minneapolis verði að
teljast með. Hér er um hjón að
ræða sem eiga heima í Excelsior,
fyrir vestan Minneapolis, en eru
bæði fædd og uppalin nálægt
Gimli. Lorenz Chanin heitir mað-
urinn og kona hans, Irene Þor-
björg Björnsdóttir Sigurðssonar.
Chanin kennir sérgrein í eðlis-
fræði við Minnesota-háskólann og
hóf kennslu í því fagi — biophys-
ics — við Háskólann í Reykjavik í
haust. Kona hans var tilbúin að
taka að sér kennslu í ensku þá um
leið, en fór í staðin í ættingjaleit á
Austurlandi og nemur íslensku við
Háskólann eins og stendur. Þau
verða þar bæði fram að jólun.
Hjónin voru nábúar sem ungl-
ingar og sóttu bæði barnaskóla í
Minerva-skólanum ekki langt frá
Gimli. Irene útskrifaðist úr Man-
itoba-háskólanum í listfræði,
maður hennar fékk Bachelors-
gráðu þar, svo meistaragráðu og
loks doktorsgráðu í eðlisfræði.
Chanin-hjónin fengu íbúð í stúd-
entagarðinum rétt við Háskólann.
Irene var formaður Heklu-klúbbs-
ins nýlega og varð það hlutverk
hennar að stjórna samsætinu sem
haldið var Vigdísi Finnbogadótt-
ur, forseta fslands, þegar hún var
viðstödd Scandinavia Today-at-
höfnina hér.
Foreldrar frú Chanin eru bæði
dáin, Björn Sigurðsson, bóndi á
bænum sem fékk að heita Bergs-
staðir í Víðinesbyggð í Nýja Is-
landi, og Hildur Snæbjarnardótt-
ir, kona hans. Irene á fimm syst-
kini, þrjár systur og tvo bræður,
annar þeirra er Raymond Lawr-
ence er haldið hefur embættinu
Reeve í Gimli-sveitinni í fleiri ár.
Björn faðir þeirra var fæddur í
Winnipeg Beach, Manitoba, en
foreldrar hans, Sigurður Sigurðs-
son og Járngerður Eiríksdóttir,
komu frá fslandi fyrir aldamót,
bæði að austan, úr Hjaltastaða-
þinghá og Vopnafirði, með ættar-
tengsl fyrir norðan og í Jökulsár-
hlíð. Björn var sveitarráðsmaður í
átta ár og i stjórn sparisjóðs.
Nábúi í stúdentagarðinum er
líka kennari við Minnesota-há-
skólann, Gary Athelstan, sonar-
sonur Gunnlaugs Tryggva Aðal-
steinssonar, bókbindara á Akur-
eyri, og ekkju hans, Svanhvítar
Jóhannsdóttur frá Seyðisfirði,
sem varð 92 ára í mars. Gary var á
fslandi fyrir fáeinum árum og
flutti sex fyrirlestra þar um starf
sitt sem sálfræðingur í endurhæf-
ingadeild við School of Medicine
Minnesota-háskólans. Hann hefur
kennt i því fagi síðan i haust og
verður við það starf fram að jóla-
fríinu.
Ung kona af sænskum ættum
frá Minneapolis er með þeim
fyrstu sem farið hafa til íslands
síðan áhersla var lögð á slik skipti
— Valborg Seaberg, er nemur nú
íslensku við Háskólann i Reykja-
vík.
Fleiri námsmenn frá fslandi
hafa bæst í hópinn i Minneapolis
og St. Paul og þar að auki tveir
prestar, séra Birgir Ásgeirsson,
sem er að athuga rekstur Hazeld-
en-hælisins við Center City fyrir
norðan St. Paul, og séra Sigfinnur
Þorleifsson við prestaskólann í St.
Paul — Luther Theological Semin-
ary; þjónar hann sókninni þar sem
Valdimar Briem var einu sinni
prestur, á Stóra Núpi. Nokkrir ís-
lendingar hafa verið á Hazelden-
hælinu handa drykkjusjúklingum
og „dópistum",; einn þekktur mað-
ur er þar núna, sér til heilsubótar,
Robert F. Kennedy jr.
Séra Sigfinnur, sem er Austfirð-
ingur, er sá þriðji í röð að eyða
öllu árinu við prestaskólann, sem
norsk-lútherskir stofnuðu — Jón
Þorsteinsson var síðast, sem er
þjónandi prestur á Snæfellsnesi,
og séra Guðmundur óskar ólafs-
son, prestur Nessóknar í Reykja-
vík á undan honum.
Með nýliðum núna eru hjón,
bæði útskrifuð úr Háskóla fs-
lands, Margeir Gissurarson, sem
er við framhaldsnám í Agricultur-
al Biochemistry við St. Paul-deild
háskólans og á þeirri stofnun er
líka kona hans, Hulda Biering,
dóttir Gunnars Biering barna-
læknis, sem hefur fyrir stafni
aukanám i klæðnaði — Textiies í
Home Economics-deildinni. Ný-
kominn líka er óttar Rafn ólafs-
son, sonur Bergljótar Halldórs-
dóttur, bankastjóra á fsafirði, sem
er meinatæknir í Reykjavík og
ólafs Rafns Jónssonar, sem er
menntaskólakennari á Akureyri.
Hann er að læra tölvufræði —
Computer Science.
f skiptináminu nýbyrjuðu urðu
fyrir valinu á fslandi, frú Sölvína
Konráðsdóttir frá Höfn í Horna-
firði; eru tvær dætur og maður
hennar með, Garðar Garðarsson,
lögfræðingur í Reykjavík. Komin
aftur hingað á skólabekk eru
Finnur Sveinbjörnsson og Dagný
Halldórsdóttir. Árni Sigurðsson
úr Eyjafirðinum, skammt frá
Grund, er að nema búnaðarverk-
fræði — Agricultural Engineering
— á „St. Paul campus" háskólans
og Hildur Sigurðardóttir, kona
hans, úr Árnessýslu, leggur stund
á hjúkrunarfræði. Áfram heldur
við sitt nám í rafmagnsverkfræði
Ásgeir Þór Eiríksson, og þá verður
hér líka framvegis læknir sem
hefur verið á háskólaspítalanum
og öðrum sjúkrahúsum, Magnús
Kolbeinsson.
Friðrik Guðbrandsson læknir og
kona hans, Sóley Bender, hjúkrun-
arkona, munu fara heim til ís-
lands eftir framhaldsstörf í grein-
um sínum og byrjar Friðrik á
„praksis" í Reykjavík með háls,
nef og eyrnasjúkdóma sem sér-
grein.
Hreinn Líndal, óperusöngvari,
kemur fram sem einsöngvari við
ýmis tækifæri, alltaf við góðan
orðstír; síðast var hann með „re-
cital" sjálfur í Central Presbyteri-
an Church skammt frá ríkisráðs-
húsinu í St. Paul, kl. 4 e.h. sunnu-
daginn 16. október. Hann á heima
í íbúð í Kellogg Square í miðbæn-
um í St. Paul.
Frk. Ingibjörg Magnúsdóttir,
hjúkrunarfræðingur, Þorfinns-
götu 4, sem er deildarstjóri í Heil-
brigðisráðuneytinu í Árnarhvoli,
fór heim til fslands 15. október.
Hún hafði verið skamman tíma
hjá Braga Magnússyni, bróður
sínum, og Gail, konu hans, í Frid-
ley, fyrir norðan Minneapolis, á
meðan hún fylgdist með kennslu-
aðferðum í hjúkrunarfræði við
Minnesota háskólann.
Yaldimar Björnsson er íyrrrerandi
fjármálaráðherra í Minneapolis.
Erfiðar aðstæður á slysstað á Breiðholtsbraut:
„Mjög vandasöm skurð-
aðgerð á bifreiðinni"
— hægt að ná manninum út á skömmum tíma
ef þess hefði verið þörf, segir lögreglan
„EF NAUÐSYNLEGT hefði verið að koma manninum strax á
sjúkrahús hefði ekki þurft að taka langan tíma að ná honum út úr
bflnum. Það var hins vegar mat læknisins, sem var á staðnum og réð
ferðinni, að það lægi ekki á enda var maðurinn ekki mikið slasaður.
Hann var með fullri meðvitund og ekki með innvortis meiðsl, þann-
ig að allt kapp var lagt á að ná honum út úr flakinu án þess að valda
honum meiri skaða en orðinn var,“ sagði Gísli Þorsteinsson, lög-
reglumaður í slysarannsóknardeild lögreglunnar í Reykjavík, sem í
síðustu viku stjórnaði vattvangsrannsókn þegar slasaður ökumaður
var sagaður út úr bifreið er lent hafði á ljósastaur á Breiðholtsbraut.
Frá þessu atviki sagði í Morgunblaðinu í gær.
Tveir af eigendum verslunarinnar „Y’innan". Arndís Halldórsdóttir og Reyn-
ir Björnsson.
Ný vinnufataverslun opnar
Gísli sagði það sitt mat, að að-
gerðin hefði tekist mjög vel þótt
hún hefði vissulega tekið langan
tíma. Maðurinn hefði verið mjög
illa fastur í bílflakinu og það
hefði ekkert mátt hreyfa ef tak-
ast átti að forða honum frá frek-
ari áverka. „Forvitnir áhorfend-
ur, allt að 200 manns, trufluðu
þetta starf talsvert," sagði Gísli.
„í þeim hópi voru fjölmargir
sjálfskipaðir sérfræðingar, sem
ekki vissu þó nákvæmlega hvað
var um að vera og um hve vanda-
sama „skurðaðgerð" á bílnum var
að ræða. Það er til dæmis al-
rangt, að það hafi verið nokkur
skortur á tækjum til að ná mann-
inum út. Við höfðum öll tæki,
sem hugsast gat en þau komu
bara ekki að gagni við þessar að-
stæður. Við vorum með þrjá at-
geira svokallaða, glussaatgeir
Hafnarfjarðarlögreglunnar,
boddítjakka, talíur, körfubíl, tvo
kranabíla og fleira. Kjarni máls-
ins er sá, að bílinn mátti ekkert
hreyfa svo að það hefði ekki vald-
ið aukinni pressu á manninn, sem
var klemmdur inni í honum. Bíll-
inn hafði nánast vafist utan um
ljósastaurinn, svo þrýstingur var
á manninum bæði af staurnum og
mælaborði bílsins. Eyjólfur Guð-
mundsson læknir og Sigríður
Hjaltadóttir hjúkrunarkona á
Borgarspítalanum viku aldrei frá
manninum. Honum var haldjð
heitum og hann fékk deyfilyf.“
Til að komast að ökumanninum
þurfti að saga toppinn af bílnum,
saga sílsa á báðum hliðum í sund-
ur, hurðapóstar voru sagaðir í
sundur, stýrið sagað af og gír-
stöngin sömuleiðis í burtu. „Það
var ekki fyrr en þessu var lokið
að hægt var að komast að mann-
inum til að losa hann,“ sagði
Gísli. „Öllum verkfærum varð að
beita mjög varlega og stöðugt
þurfti að halda við bílinn, sem
ekkert mátti hreyfast. En aðal-
atriðið er að þetta tókst mjög
giftusamlega. Ef á hefði þurft að
halda hefði verið hægt að ná
manninum út á mjög skammri
stundu — þess gerðist einfaldlega
ekki þörf.“
Hann sagði að auk ónæðis, sem
fólksfjöldinn í kring hefði valdið,
hefðu öll ummerki á staðnum
verið tröðkuð út, þannig að vett-
vangsrannsókn væri útilokuð.
Ekki hefði linnt hringingum til
lögreglunnar frá hinum sjálfskip-
uðu sérfræðingum á slysstað og
sömuleiðis hefðu lögreglumenn
haft af því fregnir, að mikið hefði
verið hringt í útvarp og aðra fjöl-
miðla, þar sem „seinagangur" við
björgunina hefði verið gagnrýnd-
ur. „Sá „seinagangur" var ein-
faldlega sú leið sem var valin og
það þarf enginn að efast um það
núna, að hún var rétt,“ sagði
Gísli.
Ökumaðurinn gerir sér ekki
fulla grein fyrir því hvernig slys-
ið vildi til. Hann missti skyndi-
lega stjórn á bílnum, sem rann
upp á umferðareyju og lenti síðan
með vinstri hlið á staurnum.
Ökuskilyrði voru slæm á Breið-
holtsbraut í fyrrakvöld, rigning
og slæmt skyggni. ökumaðurinn,
sem er um tvítugt, slasaðist
minna en á horfðist í upphafi,
hann er með slæmt sár á kálfa,
þar sem hemlafetillinn hafði
stungist í hann, með mar á lunga
og brákaðan hrygg. Hann mun
jafnvel væntanlegur heim af
sjúkrahúsinu í dag.
NÝ VERSLUN, sem aðallega verslar
meó vinnufatnað, hefur verið opnuð
að Síöumúla 29, Reykjavík.
í frétt frá hinni nýju verslun
segir m.a.: „Verslunin mun leggja
áherslu á að hafa á boðstólum all-
an vinnufatnað, hlífðarföt, skó-
fatnað, hlífðargleraugu, hjálma og
annað sem notað er í flestum
greinum iðnaöar, þjónustu og al-
mennrar vinnu. Verslunin sér
einnig um merkingu á vinnuföt-
um, sé þess óskað. Lögð verður
áhersla á að bjóða jafnt innlenda
framleiðslu og innfluttar vörur.“