Morgunblaðið - 04.11.1983, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 04.11.1983, Blaðsíða 10
HVflÐ ER AÐ 6ERAST UM HEL6IHA? 58 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. NÓVEMBER 1983 Kjarvalsstaðir: Crafts USA Á Kjarvalsstööum opnar á sunnudag sýningin „Crafts USA“. Þar sýna um 80 bandarískir handverkslistamenn ýmsa muni sem unnir eru í gler, leöur, tré, málma og önnur efni. Sýningin stendur í þrjár vikur og veröa ýmsar uppákomur, tískusýningar og opnar vinnu- stofur listamanna á staönum. LEIKHÚS Þjóðleikhúsíö: Fjögur leikrit um helgina Þjóöleikhúsió sýnir nú um helgina fjögur leikrit. i kvöld og á sunnu- dagkvöld verður leikrit Odds Björnssonar „Eftir konsertinn“ sýnt, en þaö segir af Reykjavíkurfjöl- skyldu. Skvaldur eftir Michael Frayn veröur sýnt á laugardagskvöld og er uppselt á þá sýningu. Kl. 15.00 á sunnudag veröur sýn- ing á fjölskylduleiknum Línu lang- sokk og á sunnudagskvöld veröur leikrit Svövu Jakobsdóttur, Lokaæf- ing, sýnt á Litla sviöi Þjóöleikhússins. Leikfélag Reykjavíkur: Guðrún í síðasta sinn Síðasta sýning Leikfélags Reykja- víkur á leikriti Þórunnar Siguröar- dóttur, Guörúnu, veröur i kvöld, föstudag. Leikritiö er byggt á Lax- dæla sögu og segir af ástum og ör- lögum Guðrúnar og fóstbræöranna Kjartans og Bolla. Aðalhlutverk eru í höndum þeirra Ragnheiðar Arnardóttur, Jóhanns Sigurössonar og Haralds G. Haralds, en Þórunn Siguröardóttir leikstýrir verkinu. „Úr lífi ánamaðkanna" veröur sýnt annað kvöld i lönó og „Forseta- heimsóknin" í Austurbæjarbíói. Þá veröur 20. sýning á „Hart í bak“ á sunnudagskvöld. Leikbrúöuland: Sýning í Iðnó og á Fríkirkjuvegi Leikþættirnlr „Leikiö meö liti“ og „Á sjó“ sem sýndir voru úr brúöubíln- um, veröa sýndir á Fríkirkjuvegi 11 á laugardag kl. 15.00. Hefst miöasala kl. 13.00. Þá veröa Tröllaleikir, fjórir einþátt- ungar, sýndir í lönó kl. 15.00 á sunnudag. Leikfélag Akureyrar: My Fair Lady Leikfélag Akureyrar sýnir söng- leikinn My Fair Lady öll kvöld helgar- innar Sýningunni leikstýröi Þórhildur Þorleifsdóttir, en með aöalhlutverk fara þau Ragnheiöur Steindórsdóttir, Arnar Jónsson, Þráinn Karlsson og Marinó Þorsteinsson. Leikfélag Kópavogs: Gúmmí-Tarsan Leikfélag Kópavogs sýnir um helg- ina söngleikinn „Gúmmí-Tarsan" sem saminn er uppúr samnefndri bók eftir Ole Lund Kirkegaard. Leik- stjóri er Andrés Sigurvinsson, en Kjartan Ólafsson hefur samiö tónlist sérstaklega fyrir þessa sýningu. Leikmynd og búningar eru eftir Karl Aspelund. Sýningar byrja kl. 3.00 bæöi á laugard. og sunnud. FERÐIR Ferðafélag íslands: Gönguferð á Miðdalsheiði Ferðafélagið fer á sunnudag kl. 13.00 í gönguferð um Miödalsheiöi. Ekiö verður upp á Sandskeiö. Geng- iö á Lyklafell, þaöan um Miödalsheiöi að Selvatni og síðan aö Gunnars- hólma. Miövikudaginn 9. nóvember kl. 20.30 verður myndakvöld á Hótel Heklu. Siguröur Kristinsson mun sýna myndir úr feröum nr. 10 og 21 í feröaáætlun Fí 1983. Eftir hlé sýnir Davíö Ólafsson myndir teknar í ferð til Svalbarða í júlí sl. sumar og segir frá eyjunni. Tuulikki Lehtinen: Tónleikar í Borgar- nesi og Norræna húsinu Finnski píanóleikarinn Tuulikki Lehtinen heldur á morgun. laug- ardag, tonleika i Borgarneskirkju kl. 15.00. I Norræna húsinu heldur hún siöan tónleika á sunnudag kl. 17.00. A efnisskránni veröur italski konsertinn eftir J.S. Bach, Wald- stein-sónata Beethovens og són- ötur nr. 3 og 8 eftir Prokofieff. Þetta er í fyrsta sinn sem Tuul- ikki Lehtinen heldur tónleika hér á landi, en hún hefur leikiö í Finn- landi, Bandaríkjunum og Mexico, auk þess sem hún kennir þíanóleik við Kuula-stofnunina i Vaasa í Finnlandi Útívist: Ferð á Snæfellsnes Útivist fer í kvöld kl. 20.00 í ferö á Snæfellsnes og veröur gist í félags- heimilinu Lýsuhóli. Fariö veröur í göngu- og skoöun- arferöir um nesiö og á laugardags- kvöldiö verður kjötsúpuveisla og kvöldvaka. Ferðin er til heiöurs Eyj- ólfi Halldórssyni áttræöum. Á sunnudag kl. 13 verður gengið um gömlu þjóðleiöina yfir Hellisheiði. Gengið verður með vörðum aö Hellu- kofanum, en hann er topphlaðinn úr hraunhellum. Endaö veröur viö Draugatjörn, en þar eru rústir af gömlu sæluhúsi. Þetta er tilvalin fjöl- skylduferö. SAMKOMUR Bingó á Hótel Borg Kvennadeild Slysavarnafélags ís- lands í Reykjavík heldur bingó á Hót- el Borg sunnudaginn 6. nóvember kl. 15.00. Hlutavelta og flóamarkaður í Hljómskálanum Kvenfélag Lúörasveitar Reykjavík- ur heldur á morgun, laugardag, hlutaveltu og flóamarkað í Hljóm- skálanum viö Tjörnina. Hefst þaö kl. Hornstrendingavaka Hornstrendingavaka veröur í Frí- kirkjunni i Reykjavík sunnudaginn 6. nóvember kl. 15.00. Guöni Kolbeinsson, magister, spjallar um heimabyggö móöur sinn- Guðni Kolbeinsson ar, les þátt eftir Þórleif Bjarnason og segir sögur aö norðan. Aögangseyrir er til styrktar orgeisjóöi Fríkirkjunnar, því aö nú er fyrirhuguö rækileg viðgerð á hinu gamla hljóöfæri. Austfirðingamót á Hótel Sögu Austfiröingafélagiö heldur Aust- firðingamót í Súlnasal Hótel Sögu í kvöld, föstudag. Hefst mótið kl. 19.00 meö ávarpi Guörúnar K. Jörg- ensen, formanns félagsins. Síðan verða flutt skemmtiatriöi. Veislustjóri veröur Siguröur Blöndal og hljóm- sveit Magnúsar Kjartanssonar leikur fyrir dansi. SÝNINGAR Lístasafn íslands: Sýning á verkum Arngríms Gíslasonar í Listasafni islands veröur opnuð á morgun, laugardag kl. 14.00, sýning á verkum Arngríms Gíslasonar mál- ara. Á sýningunni eru 27 verk, mannamyndir, útsýnismyndir og alt- aristöflur. Elsta verkiö er frá árinu 1860, en Arngrimur dó frá því yngsta ófullgerðu árið 1887. Verkin eru í senn blýantsteikningar og olíuverk. Meö þessari sýningu sem haldin er jafnhliöa útgáfu bókar dr. Kristjáns Eldjárn um Arngrím vill Listasafniö í senn kynna þennan lítt þekkta lista- mann og heiöra minningu dr. Krist- jáns, sem varöi áralöngu starfi til rannsókna á ævi hans og list. Sýningin stendur til 27. nóvember og er opin alla virka daga frá kl. 13.30—18.00 ogfrákl. 13.30—22.00 laugardaga og sunnudaga. Gunnar Þorleifsson: Málverkasýningu lýkur um helgina Sýningu Gunnars í Húsgagnaversl- un Skeifunnar Kópavogi lýkur sunnu- daginn 6. nóvember kl. 18.00 og hef- ur þá staöið yfir í 9 daga. Á sýning- unni eru 33 olíumyndir og 14 past- elmyndir. Gallerí Lækjartorg: Sýningu Ragnars Lár lýkur um helgina Um þessar myndir sýnir Ragnar Lár í Galleri Lækjartorgi. Á sýning- unni eru 40 myndverk og hafa 16 þeirra selst. Sýningunni lýkur næst- komandi sunnudagskvöld kl. 22.00. Er hún opin frá kl. 14.00—18.00 virka daga, og 14.00 til 22.00 á sunnudag. Sovésk bókasýning í MÍR-salnum Sovésk hókasýning veröur opnuð í MÍR-salnum, Lindargötu 48, nk. laugardag kl. 16. Á sýningunni eru á fimmta hundraö bækur, sem gefnar hafa verið út í Sovétríkjunum á liön- um misserum um ýmis efni. Einnig eru á sýningunni sovéskar hljómplöt- ur, frímerki og auglýsingaspjöld. Bókasýningin í MÍR-salnum veröur opin út nóvembermánuö, daglega kl. 17—19, nema á laugardögum og sunnudögum kl. 15—19. Kvikmynda- sýningar veröa hvern sunnudag kl. 16. Ártöl á mynt Mynt Ragnar Borg Öll mynt nú á dögum hefir ártal útgáfuársins slegíö í peninginn. Hefir svo veriö frá því á 16. öld. Elsta skoska myntin með ártali er frá 1530 og enska frá 1548. Voru ártölin slegin rómverskum tölum. Eftir 1548 er öll enska myntin meö ártali í tölustöfum. En ártaliö á hinum ýmsu peningum í heim- inum í dag getur veriö ólíkt, þótt myntin sé slegin sama áriö. Liggja til grundvallar mismun- andi trúarlegar eöa pólitískar for- sendur. Flest lönd, utan Noröur-Afríku um Austurlönd, nota okkar tímatal, þótt í sumum löndum sé þaö háö stjórnartíð. Vatikaniö tengir ártöl myntar sinnar viö stjórnartíö páf- ans til dæmis. Arabalöndin miöa viö tíö Mú- hameös, sem hófst 16. júlí áriö 622, er Múhameö flýöi frá Mekka til Medina. Áriö hjá múslimum er tunglár, 354 dagar og 3,03% styttra en sólaríö sem viö notum. Þó er ekki einhlítt aö múslimar noti tungláriö. Bæöi i iran og Afganist- an var fariö aö miöa við sólárið um 1920. Á Indlandi nota menn okkar tímatal, AD, og ár múslima, AH, en auk þess eru þar í gangi önnur tímatöl. Eitt er Vikrama Samvat, sem hófst 18. október áriö 58 f.Kr. og Saka-tímatalið, sem hófst 3. mars áriö 78. Þrenns konar tímatal er notaö í Thailandi (Siam). Helsta er tímatal búddhatrúarmanna, sem hófst áriö 543 f.Kr. Næst er Bangkok eöa Rahanakosind-sok-tímataliö frá 1781. í því tímatali eru aöeins not- aöir 3 tölustafir. Svo er Chula- Sakarat-tímataliö, sem hófst áriö 638. Þetta tímtal var fundiö upp í Burma, og er þar enn notaö. í Eþíópíu hefst tímataliö 7 árum og 8 mánuöum seinna en tímatal vort. Gyöingar sækja sitt tímatal til ársins 3761 f.Kr. í Kóreu rekja sög- ur tímataliö til ársins 2333 f.Kr., og er tímatal byggt á þessum grunni notað í ártölum á sumum pening- um þar. Á eynni Jövu í Indónesíu er Aki Saka-tímataliö og annars staöar er Fasli-tímatalið. j Japan, Kóreu, Kína, Turkestan og Tíbet miöa menn oft viö hvenær ríkisstjóraár stjórnar, ættar eöa konungs hefjast og slá ártöl á mynt eftir því. Stundum eru ártölin lesin frá hægri til vinstri, og ártölin geta líka veriö slegin meö tvenns konar letri á sömu myntina og þá sitt hvort

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.