Tíminn - 19.08.1965, Síða 2
FIMMTUDAGUR 19. ágúst 1965
ÞRIÐJUDAGUR 17. ágúst.
NTB—Saigon
Bandarískir hermenn um-
kringdu í dag 2000 manna her-
lið Víetkong nálægt Chu Lai.
Þetta er ein mesta hernaðarað
gerð, sem Bandaríkjamenn
hafa sett á svið í Víetnam.
Það voru landgönguliðar í
bandaríska flotanum, sem réð
ust á herlið Víetkong í frum
skógunum um 500 kílómetra
norðaustur af Saigon Mörg
hundruð skæruliðar féllu.
Bandaríkjamenn réðust á
fimm þorp, sem voru á valdi
Víetkong. Eru þau skammt
frá Vhu Lai-flugstöðinni, sem
varin er af 4000 bandarískum
hermönnum. Bandaríkjamenn
sendu lið til árásanna bæði
með þyrlum og skipum.
Stjórnarherinn í Suður-Víet-
nam heldur áfram sókn sinni
eftir Long-dalnum, sem liggur
norðan til í landinu. Hafa Víet-
kong-menn haft þar bækistöðv
ar árum saman.
Bar.daríska herstjórnin í
Saigon segir, að 1330 manns
hafi fallið af liði Víetkong í
síðustu viku. 215 hafa fallið
af ( liðj s^ órnarhersins. Hérs
erú taldir þeir 434 Víetkong-
menn, sem ’ féllu í bardögun-
um við Duc Co.
í Saigon er sagt, að banda-
rískir flugmenn, sem flogið
hafa yfir Norður-Víetnam hafi
fundið þrjá hálf-hreyfanlega
-ddflaugaskotpalla í grennd við
Hanoi. Hafa þá fundizt tiu slík
ir skotpallar i Norður-Víetnam.
Frá bandaríska sendiráðinu
í Saigon berast þær fréttir, að
Edward Lansdale, einn fremsti
sérfræðingur á Vesturlöndum
í skæruhernaði, ætli að að-
stoða Bandaríkjamenn í barátt
unni í Vietnam. Landsdale barð
ist við skærulið á Filippseyjum
og Víetnam á árum áður.
Hann er nú hættur herþjón- fts
ustu. Hann var í þrjú ár ráð tj?
gjafi Ngo Dinh Diem.
Stjórnarmynd-
un í
Aþena, NTB, míðvikudag.
Konstantín Grikkjakonungur fól
í dag Elias Tsirimokos að mynda
stjórn í Grikklandi. Tsirimokos
yfirgaf á mánudag Miðflokkasam
bandið, flokk Papandreou, ásamt
Stefanopolus fyrrum utanríkisráð
herra.
Ekki er talið víst að þeir njótí
stuðnings meirihluta þingmanna.
Tsirimokos mun styðjast við hina
99 hægri menn þingsins, 26 þing
menn Miðflokkasambandsins, sem
fylgdu Novas, er hann myndaði
stjórn, eftir að Papandreou var
vikið frá, og reiknað er með að
20 þingmenn fylgi þeim að auki.
sáttafundur
EJ-Reykjavík, miðvikudag.
Sáttafundur hófst í farmanna-
deilunni í kvöld kl. 9 og var hon
um ólokið, þegar blaðið fór í
prentun.
EKA HEIMTINGU Á FRIÐI
r
Stokkhólmi, NTB, miðvikudag.
Torsten Nilsson, utanríkisráð-
FANNST ÓSJÁLF-
BJARGA í HER-
BERGI SSNU
KJ—Reykjavík, miðvikudag.
Kona á níræðisaldri fannst í dag
liggjandi í herbergi sínu, matar-
laus, lömuð og ósjálfbjarga, og
hefur að öllum líkindum verið
í þessu ástandi frá því um helg-
ina.
Kona þessi, sem er rúmlega
áttatíu ára að aldri, bjó einsöm-
ul í herbergi í Hlíðunum hér i
Reykjavík. og voru nágrannar
hennar farnir að undrast að hafa
ekki séð hana á ferli í nokkra
daga. Sást hún síðast á ferli um
helgina og síðan ekki meir. Gerðu
nágrannar hennar lögreglunni við
vart, sem kom að konunni liggj-
andi í rúmi sínu og mjög aðfram
kominni. Var þegar náð í lækni
.og gamla konan síðan flutt á
sjúkrahús, þar sem hún liggur
núna. Hún var lömuð að nokkru
leyti og mun hafa fengið slag.
í>að mun ekki vera einsdæmi,
að gamalt fók búi eitt og sér án
þess að nokkrir ættingjar þess
hafi samband eða eftirlit með
því, eins og um er að ræða í
þessu tifelli hér að framan. Þarna
voru það athugulir nágrannar,
sem veittu því eftirtekt, að gamla
konan var ekki á ferli og gátu
náð í hjálp áður en yfir lauk.
SLÍTA NIÐUR
RAFLÍNUR
KJ—Reykjavík, miðvikudag.
Það ætlar aldrei að vera of j
brýnt fyrir stjórnendum stórra i
vinnuvéla að fara varlega, þegar :
rafmagns- og símalínur eru ann- j
ars vegar. Síðast í dag skeði það, i
að kranabíll sleit niður rafmagns ;
línu í Sæviðarsundi, og varð eitt i
hvað af hverfinu því rafmagns- i
laust á tímabili. Heldur er það I
sjaldgæft, að loftlínur slitni, en j
hitt var á tímabili nokkuð algengt ;
að stórvirkar vinnuvélar slitu j
jarðstrengi.
herra Svía hélt ræðu í Stokkhólmi
í dag, og sagði þar, að leiðin til
lausnar á Víetnamdeilunni væri
að allir aðilar hæfu samningavið
ræður. Hann sagði, að Víetnam
deilan hefði gert erfiðara fyrir
um lausn allra annarra alþjóð-
legra vandamála. Það væri engin
Iausn að skipta löndum í tvo helm
inga, slíkt hlyti að leiða til
vandræða.
Nílsson hélt Því fram, að grund
völlur samningaumleitana í Víet
nam væri Gentfarsamkomulagið
frá 1954, en samkvæmt því er
gert ráð fyrir sameiningu Suður-
og Norður-Víetnam, eftir að frjáls
ar kosningar hafa verið haldnar í
landinu. Einnig er tekið fram, að
erlend ríkí megi ekki hafa bæki
stöðvar í Vietnam.
Nilson sagði, að Sþ hefðu á
síðari árum falið Svíum æ fleiri
vandasöm verkefni í þágu sam-
takanna, en þrátt fyrir hlutleysið
væri Svíum skylt að láta í Ijósi
skoðun sína á alþjóðlegum deilu
málum og benda á leiðir til lausn
ar þeim. Hann sagði, að fólkið í
Víetnam ætti heimtingu á friði,
sameiningu ríkjanna, sjálfstæði,
félagslegu öryggi og bættum lífs
kjörum.
Nýtt kjöt komið
r
\
EJ—Reykjavík, miðvikud.
Sumarslátrun er hafin og
kom nýtt íslenzkt kjöt í
verzlanir í dag. í gær-
kvöldi auglýsti Framleiðslu
ráð landbúnaðarins verð á
nýja dilkakjötinu, og er það
sem hér segir:
Heildsöluverð kjötsins
er 77.75 kr. pr. kg. Smásölu-
verð á súpukjöti er kr. 99.90
kr. kjöt í heilum lærum
kr. 114.10, kjöt í hryggjum
kr. 117.25 og kjöt í kótelett
um kr. 130.00.
J
FULLTRUAR FÆREYSKRA
STÚDENTA í HEIMSÓKN
Stúdemtaráð Iláskóla íslands
bauð nýlega tveimur fulltrúum
Meginfélags föroyskra studenta
hingað til lands, og dvöldu þeir
í boði Stúdentaráðs dagana 14.
—16. ágúst s.1. Gestirnir voru
Hans J. Debes, formaður Megin-
félagsins, o-g Árni Olafsson, for-
maður utanríkisinefndar þess. Til-
gangur Stúdentaráðs með boðinu
var að stuðla að auknum skilningi
milli þessara tveggja stúdenta-
samtaka og samvinnu þeirra að
ýmsum sameiginlegum áhugamál-
um.
Á fundi Færeyinganna með full-
trúum Stúdentaráðs og utanríkis
málanefndar þess mánudaginn 16.
ágúst ríkti mikill samhugur. Var
samþykkt, að báðir aðilar könn-
uðu möguleika á að hefja fljót-
lega stúdentaskipti á milli Háskóla
íslands og Fróðskaparseturs í
Tórshavn, en það er nafn hins ný
stofnaða vísis að færeyskum há-
skóla. Yrði gert ráð fyrir. að
einstakir stúdentar dveldust i 3—
4 vikur við nám í hinu landinu
fyrir milligöngu stúdentasamtak
anna. Þá var samþykkt að kanna
möguleika á að halda færeysk-
islenzkt stúdentamót e.t.v. hið
fyrsta næsta sumar i sambandi
við Ólafsvökuna í Færeyjum eða
17. júní-hátíðahöldin hér. Enn
fremur var ákveðið, að samtökin
skyldu í framtíðinni leitast við
að skiptast á hagnýtum upplýsing
um í ríkari mæli en verið hefur
í sambandi við þennan fund
Stúdentaráði að gjöf færeyskan
borðfána frá félagi sínu.
Á sunnudaginn var færeysku
gestunum boðið til Þingvalla,
Geysis og Gullfoss. Daginn eftir
áttu þeir viðræður við rektor Há
skóla fslands, próf. Ármann Snæ-
varr. Þá var þeim boðið að skoða
íslenzka útvarpið, en annar þeirra
vinnur einmitt við færeyska út-
varpið í sumar. í heild var koma
hinna færeysku gesta mjög á-
nægjuleg og allur árangur við-
ræðna einkar jákvæður. Þess má
að lokum geta, að Stúdentaráð
hefur sent Stúdentahandbókina,
sem það gaf út í fyrra, að gjöf
til allra þeirra, sem taka stúd-
entspróf í Færeyjum að ári, til
kynningar á kennsluháttum við
Háskóla íslands, en fáir Færey-
ingar hafa verið hér við háskóla-
nám undanfarið.
(Frá Stúdentaráði Háskóla ísl.)
A myndinni eru, talið frá vinstri:
Sigurður Björnsson, yfirmaður
utanríkismála í Stúdentaráði,
Ánni Olafsson, form. utanríkis-
nefndar færeysku stúdentasamtak-
anna, Hans J. Debes, form. Megin
félags færeyskra stúdenta og
Helgi Guðmundsson, formaður
utanríkismálanefndar Stúdenta-
ráðs Háskóla íslands. Myndin er
tekin í herbergi Stúdentaráðs.
ir sökk en
Mót norrænna Stór- mannbjörg varð
kaupmanna í Rvík
EJ-Reykjavík, þriðjudag.
Dagana 6-9. september n.k. verð
ur háð ráðstefna norrænna stór-
kaupmanna hér í Reykjavík, og
verða þar rædd ýmis hagsmuna-
mál stórkaupmanna og viðkom-
andi landa. í frétt frá Félagi ísl.
stórkaupmanna í dag segir m. a.:
Ráðstefnur þessar hafa verið
haldnar á tveggja og þriggja ára
fresti síðan árið IS'58, en þá var
ráðstefnan haldin í Kaupmanna-
höfn, 1960 í Helsingfors, 1962 i
Stokkhólmi og nú hér í Reykja
vík.
Félag íslenzkra stórkaupmanna
gerðist aðili að samtökum hinna
norrænu stórkaupmannafélaga
1962.
Þótt hin Norðurlöndin séu kom-
in nokkuð lengra en við á íslandi,
hvað snertir þróun og hagræðingu
í verzlunarmálum, höfum við not
ið ómetanlegs gagns af samvinnu
við hin stórkaupmannafélögin.
ísland er þó eina landið á Norð
urlöndum, sem enn býr við ströng
verðlagsákvæði, sem löngu hafa
verið afnumin á hinum Norður-
löndunum. Þó mun vera nokkur
vísir af verðlagseftirliti i Finn-
landi og Noregi, þótt verðlags-
ákvæði hafi verið afnumin þar
með öllu.
Þróunin hefur verið nokkur ner
á landi i sambandi við hagræðing
armál og vörudreifingu síðan 1960.
en það ár var mikill hluti af inn-
flutningi landsmanna gefinn
frjáls. Má nú segja, að um 80%
Framhald á 14. síðu
| MB-Reykjavík, miðvikudag.
Vélbáturinn Hilniir, KE 17,
jsökk í nótt á heiinleiö úr róðri.
i Áhöfnin, sex menn, komst í gúm-
| björgunarbátinn og var bjargað
| þaðan um það bil klukkustund
j síðar.
Blaðið átti í dag tal við Bald
ur Júlíusson, skipstjóra og eig
anda bátsins og sagðist honum
svo frá:
— Við höfum undanfarið verið
á handfæraveiðum á útilegu. Við
vorum í gærkvöldi á heimleið úr
róðri og höfðum siglt í um það bil
klukkustund frá Eldeyjarboða í
stefnu á Garðsskaga, þegar við
urðum varir við það, að mikill
leki var kominn að bátnum. Sjó
lag var þá > allslæmt, en veður
sæmilegt Við kölluðum á nálæga
báta og fengum svar frá einum,
sem var í um það 10 mílna fjar-
lægð frá okkur. í nálega klukku
stund stóðum við í austri og við
dælur. ah bað var áransurxlanst na
klukkan 23.35 fóru mvið svo í
björgunarbátinn og tíu mínútum
síðar var báturinn sokkinn.
— Um það bil klukkustund síð
ar kom vélbáturinn Freyja úr
Sandgerði til okkar og tók okkur
upp. Skipverjar þar heyrðu ekki
út köll okkaT, en sáu neyðarblys
in, sem við skutum upp áður en
við fórum í gúmbátinn. Fleiri
bátar, sem voru þarna á humar
svæðinu sáu blys okkar, en þessi
varð sem sagt fyrstur á vettvang.
— Og það hefur engum orðið
meint af volkinu?
— Nei, gúmbáturinn reyndist á
alla staði vel, en menn blotnuðu
vitanlega. Þar sem við vorum á
útilegu vorum við með fatnað
og ýmislegt dót um borð og urðu
menn því fyrir tilfinnanlegu
tjóni.
Vélbáturinn Hilmir var 18
tonn, smíðaður 1934. Baldur Júl-
íusson hafði átt hann í ellefu ár
beear óhaDnið varð.