Tíminn - 19.08.1965, Page 3
FIMMTUDAGUR 19. ágúst 1965
TÍMINN
óeirðimar í Los Angeles
Óeirtíirnar miklu í svertingja-
hverfum Los Angeles hafa vakið
heimsathygli og hér eru nokkrar
myndir frá þessum geigvænlegu
atb'urðum. 1. dl. myndin sýnir rík
isstjórann í Kaliforníu, Edward
Brown, þar sem hann kemur
heim með flugvél frá Aþenu til
að aðstoða við lausn málsins. Þrí
dl. myndin til hægri er af rúst'um
íbúðarhúss, sem sprengt var í
loft upp, og þar fyrir neðan sjást
lögreglumenn verjast byssukúlum
leyniskyttu. Neðst til vinstri sjást
svertingjar bera föt og pakka úr
verzlun, og til hægri miðar lög-
reglumaður og nýtur stuðnings
hurðar lögreglubílsins.
-----«K*VJS)
Á VÍÐAVÁNGI
Heimskan uppmáluð.
í fáránlegri árás eins rit-
stjóra Morgunblaðsins á Menn
ingarsjóð í forystugrein í gær,
er ráðizt gegn þeim hugsanlega
möguleika með offorsi, að
Menningarsjóður gefi út bók
ina „Rejse pá Island“ eftir
danska rithöfundin Martin A.
Hansen í íslenzkri þýðingu, og
sagt, að nær væri að Menn-
ingarsjóður sæi um, að sú
bók væri gefin út á heimsmál
um til þess að kynna ísland og
íslendinga. Þetta geti forystu-
menn Menningarsjóðs ekki skil
ið og megi þakka fyrir, meðan
þeir gefi ekki „Facts about Ice
land“ út á íslenzku.
Þessi þvættingur sýnir bezt,
hve glórulaus heimska og
skilningsleysi ræður þcssum
skrifum. AUir sem lesið hafa
„Rejse pá Island“ vita, að sú
Ibók er ekki til þess fallin að
gefa hana út til kynningar á
íslandi í öðrum löndum sem
fræðslurit um ísland eða ferða
mannaáróður. Til þess standa
■ mörg önnur rit um ísland miklu
? framar. En „Rejse pá Island“
er epískt listaverk í bókmennt-
um sem á erindi til íslendinga
sjálfra öðrum fremur vegna
þeirrar glöggskyggni gestsaug
ans, sem þar kemur fram. Ef
nægilega góður þýðandi fengist
að þessari bók væri íslenzkum
lesendum mikill fengur að
henni. En að gera því skóiia, að
rétt væri að gefa þá bók út
sem kynningarpésa um ísland
á heimsmálum sýnir aðeins þá
botnlausu heimsku, sem ræður
otfstæfeisskrifum Mbl. gegn
Menningarsjóði og útgáfu hans.
Er furðulegt, ef þar er að
vcrki sá ritstjóri blaðsins, sem
varasæti á í Menntamálaráði.
Smygl
Alþýðublaðið ritar uin
smyglmálið í gær og segir m.
a.:
„Yfirvöld toll- og dómsmála
hafa enn einu sinni valið þann
kost að segja lítið sem ekkert
frá málinu opinberlega. Verður
að virða til betri vegar, þótt
vangaveltur blaða og almenn
ings séu miklar, því varla er
ætlunin að þagga málið niður.
| Nokkur atriði virðast flestir
| vera sammála um, en þau eru
’ þessi:
1) Enginn trúir því, að
þetta sé í fyrsta sinn, sem
smygl er reynt í stórum stíl.
Hefur það tekizt oft áður? Er
rétt, að áfengi og annarri smygl
vöru sé komið á land í bílförm
um?
2) Það vekur athygli, að
farmur skipanna liefur verið
rannsakaður. Þetta styður þann
grun manna, að smyglvarning
ur sé ekki aðeins borinn á
Iand að næturlagi, heldur skip
að upp úr lestum sem hverju
öðru góssi og einhvern veginn
komið til skila án þess að toll
yfirvöld verði þess vör.
3) Allir virðast sammála um
að í Langjökulsmálinu nægi
ekki að dæma nokkra óbreytta
skipsmenn, heldur verið að
rannsaka málið bctur og komast
fyrir rætur þess. Vaknar þá
fyrst sú spurniug, hvaðan sjó
menn hafi svo mikið fé, sem
þarf til að kaupa góssið. Hér
er sýnilega um mikið gjaldeyr
issvikamál að ræða auk smygls
ins.“
Bíðum og sjáum.
Ennfremur segir Alþýðublað
ið:
„Allt bendir til, að hér sé
Framhaid a bls 14
I