Morgunblaðið - 24.11.1983, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. NÓVEMBER 1983
Peninga-
markaöurinn
GENGISSKRÁNING
NR. 217 — 17. NÓVEMBER
1983
Kr. Kr. TolU
Kin. Kl. 09.15 Kaup Sala gengi
1 Dollar 28,140 28,220 27,940
1 SLpund 41,626 41,744 41,707
1 Kan. dollar 22,744 22,809 22,673
1 Don.sk kr. 2,9022 2,9104 2,9573
1 Norsk kr. 3,7612 3,7718 3,7927
1 Sren.sk kr. 3,5503 3,5604 3,5821
1 Ki. mark 4,8837 4,8976 4,9390
1 Fr. franki 3,4355 3,4452 3,5037
1 Belg. franki 0,5148 0,5163 0,5245
1 S». franki 12,9522 12,9890 13,1513
1 Holl. gyllini 9,3361 9,3627 9,5175
1 V-þ. mark 10,4513 10,4810 10,6825
1 ÍL líra 0,01729 0,01734 0,01754
1 Austurr. sch. 1,4854 1,4896 1,5189
1 Port escudo 0,2190 0,2196 0,2240
1 Sp. peseti 0,1816 0,1821 0,1840
1 Jap. yen 0,11944 0,11978 0,11998
1 írskt pund SDR. íSérst 32,558 32,651 33,183
dráttarr.) 16/11 29,5534 29,6377
1 Belg. franki V 0,5113 0,5128 /
Vextir: (ársvextir)
Frá og með 21. nóvember 1983
INNLÁNSVEXTIR:
1. Sparisjóösbækur.............. 27,0%
2. Sparisjóösreikningar, 3 mán.1*. 30,0%
3. Sparisjóösreikningar, 12. mán. 1>... 32,0%
4. Verötryggöir 3 mán. reikningar. 0,0%
5. Verötryggöir 6 mán. reikningar. 1,0%
6. Ávísana- og hlaupareikningar.. 15,0%
7. Innlendir gjaldeyrisreikningar:
a. innstæöur í dollurum......... 7,0%
b. innstæöur í sterlingspundum. 7,0%
c. innstæöur í v-þýzkum mörkum... 4,0%
d. innstæöur i dönskum krónum.... 7,0%
1) Vextir færöir tvisvar á ári.
ÚTLÁNSVEXTIR:
HÁMARKSVEXT1R
(Veröbótaþáttur í sviga)
1. Víxlar, forvextir..... (22,5%) 28,0%
2. Hlaupareikningar ..... (23,0%) 28,0%
3. Afuröalán, endurseljanleg (23,5%) 27,0%
4. Skuldabréf ........... (28,5%) 33,0%
5. Vísitölubundin skuldabréf:
a. Lánstími minnst 6 mán. 2,0%
b. Lánstími minnst 2% ár 2,5%
c. Lánstími minnst 5 ár 3,0%
6. Vanskilavextir á mán...........4,0%
Lífeyrissjóðslán:
Líleyritsjóöur starfsmanna rikisins:
Lánsupphæö er nú 260 þúsund ný-
krónur og er lániö vísitölubundiö meö
lánskjaravísitölu, en ársvextlr eru 2%.
Lánstími er allt aö 25 ár, en getur veriö
skemmri, óski lántakandi þess, og elns
ef eign sú, sem veö er i er lítilfjörleg, þá
getur sjóöurinn stytt lánstímann.
Lífeyrissjóöur verzlunarmanna:
Lánsupphaeö er nú eftir 3ja ára aöild aö
lífeyrissjóönum 120.000 nýkrónur, en
fyrir hvern ársfjóröung umfram 3 ár
bætast viö lániö 10.000 nýkrónur, unz
sjóösfélagi hefur náö 5 ára aöild aö
sjóönum. Á tímabilinu frá 5 til 10 ára
sjóösaöild bætast viö höfuöstól leyfl-
legrar lánsupphæöar 5.000 nýkrónur á
hverjum ársfjóröungi, en eftir 10 ára
sjóösaöild er lánsupphæöin oröin
300.000 nýkrónur. Eftir 10 ára aölld
bætast viö 2.500 nýkrónur fyrir hvern
ársfjóröung sem líöur. Þvi er í raun ekk-
ert hámarkslán í sjóönum.
Höfuöstóll lánslns er tryggöur meö
byggingavísitölu, en lánsupphæöin ber
2% ársvexti. Lánstíminn er 10 til 32 ár
aö vali lántakanda.
Lánskjaravíeitala fyrir nóvember
1983 er 821 stig og fyrir desember 1983
836 stig, er þá miöaö viö vísitöluna 100
1. júni 1979.
Byggingavíaitala fyrir október—des-
ember er 149 stlg og er þá miöaö við
100 í desember 1982.
Handhafaakuldabréf f fastelgna-
viöskiptum. Algengustu ársvextir eru nú
18—20%.
Sterkurog
hagkvæmur
auglýsingamiöill!
Útvarp kl. 22.35:
„í hindberjabrekk-
unni liggur lykill“
„Stina Edblad er ung leikkona
og Ijóðskáld. Hún fæddist í Solf í
Austurbotni en er nú búsett í Sví-
þjóð. Svíar kalla hana „Hina nvju
Gretu Garbo“. Hún er leikkona og
einnig mjög gott Ijóðskáld." Þetta
sagði Nína Björk Árnadóttir,
skáld, er hún var spurö um efni
þáttarins „f hindberjabrekkunni
liggur lykill“, en honum verður út-
varpað í kvöld kl. 22.35.
„Kristín Bjarnadóttir.leik-
kona, les með mér í þættinum,“
heldur Nína Björk áfram. „Hún
var með Stinu Edblad í leiklist-
arskóla í Óðinsvéum í Dan-
mörku. Ég fjalla aðallega um
Stinu sem ljóðskáld og við lesum
ljóð eftir hana, sem ég þýddi yfir
á íslensku.
Stina hefur leikið mörg stór
hlutverk og í Danmörku lék hún
m.a. Nóru í „Brúðuheimilinu" og
hlaut Henkelverðlaunin fyrir
leik sinn. Hún hefur einnig leikið
Júlíu í „Rómeó og Júlía". Núna
er nýlokið við upptökur á sjón-
varpsþáttaseríu um ævi Strind-
bergs, þar sem Stina leikur Siri
Stina Edblad, sem Svíar kalla „Hina nýju Grétu Garbo".
Von Essen, eiginkonu Strind- ínar Bjarnadóttur er sem áður
bergs." segir á dagskrá útvarpsins
Þáttur Nínu Bjarkar og Krist- klukkan 22.35 í kvöld.
Fimmtudagsleikritið kl. 20.00
„Tólfkóngavita
Útvarpsleikritið í kvöld,
sem heitir „Tólfkóngavit", er
eftir Pál H. Jónsson. Leikritið
er gert eftir samnefndri sögu
Guðmundar Friðjónssonar og
að sögn Gyðu Ragnars hjá
leiklistardeild ríkisútvarpsins,
er þetta í fvrsta sinn sem verk
eftir Guðmund er fært í leik-
form.
í formála leikritsins segir
höfundur: „Þótt sagan „Tólf-
kóngavit" sé allgömul, má
mikið vera ef hugsanlegir
hlustendur leikritsins kann-
ast ekki við slagorð, kosn-
ingaloforð og kosningaáróð-
ur, sem tekinn er beint úr
sögunni. Sé svo, er það sönn-
un þess sem löngu er viður-
kennt, að sagan er sígild. Að
pólitískt skop hennar með
þungum undirstraumi al-
vöru, fjölbreyttar mannlýs-
ingar og þjóðlífslýsingar,
eiga erindi við nútímafólk."
„Tólfkóngavit" er fyrsta verk Guð-
mundar Friðjónssonar, sem fært
er í leikgerð.
Sagan „Tólfkóngavit“ eft-
ir Guðmund Friðjónsson
birtist í smásagnasafni
hans, „Tíu sögur", sem kom
út árið 1918.
Leikstjóri leikritsins í
kvöld er Hallmar Sigurðs-
son og leikendur eru: Jón
Hjartarson, Margrét Helga
Jóhannsdóttir, Valur Gísla-
son, Sigurveig Jónsdóttir,
Guðmundur Ólafsson, Gísli
Rúnar Jónsson, Jón Sigur-
björnsson, Árni Tryggvason,
Þorsteinn Gunnarsson,
Valdemar Helgason, Pétur
Einarsson, Pálmi Gestsson
og Helgi Skúlason.
„Tólfkóngavit" verður
flutt í útvarpi klukkan 20.00.
Útvarp kl. 17.10
„Síðdegisvaka“
„Síðdegisvakan er á dagskrá
fimm daga vikunnar og heita má
að við Páll Magnússon séum báðir
í fullu starfi í vinnu við þessa
þætti,“ sagði Páll Heiðar Jónsson,
í spjalli við Morgunblaðið í gær.
„I þættinum fjöllum við um
efnahagsmál og þá ekki ein-
göngu á íslandi heldur reynum
við einnig að líta aðeins í kring-
um okkur og í átt til nágranna-
landanna," segir Páll Heiðar. „í
dag ræðum við við Friðfinn
Daníelsson, iðnráðgjafa á Norð-
urlandi, um iðnþróun þar
nyrðra.
Einnig verður spjallað við
Halldór Guðjónsson, kennslu-
stjóra Háskóla íslands, og Þor-
geir Jónsson hjá Tækniskólan-
um. Þeir eru báðir í starfshópi
nefndar, sem hefur það að
markmiði að samræma námið
betur þörfum í atvinnulífinu.
Þátturinn er í beinni útsend-
ingu og' í honum er fastur
fræðslupistill, sem í dag verður
tileinkaður málefnum útvegsins
og fiskvinnslu."
í Síðdegisvökunni í dag, verður
m.a. rætt við Halldór Guðjónsson,
kennslustjóra HÍ.
Útvarp Reykjavík
FIMMTUDkGUR
24. nóvember
MORGUNNINN_____________________
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn.
Á virkum degi. 7.25 Leikfimi.
8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15 Veð-
urfregnir. Morgunorð: — Gísli
Friðgeirsson talar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
„Katrín" eftir Katarina Taikon
Einar Bragi les þýðingu sína (8).
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynningar.
Tónleikar. 9.45 Þingfréttir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir.
Forustugr. dagbl. (útdr.).
10.45 „Ég man þá tíð“ Lög frá
liðnum árum. Umsjón: Her-
mann Ragnar Stefánsson.
11.15 Kann ekki við að tapa. Þór-
arinn Björnsson ræðir við Björn
Pálsson fyrrum bónda og al-
þingismann á Ytri-Löngumýri í
Austur-Húnavatnssýslu. Seinni
hluti.
11.45 Marlene Dietrich og Stanley
Black
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til-
kynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir.
Tilkynningar. Tónleikar
SÍODEGIO_______________________
14.00 Á bókamarkaðinum. Andrés
Björnsson sér um lestur úr nýj-
um bókum. Kynnir: Dóra Ingva-
dóttir.
14.30 Á frívaktinni. Margrét Guð-
mundsdóttir kynnir óskalög sjó-
manna.
15.30 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veð-
urfregnir.
16.20 Síðdegistónleikar
Kena Kyriakou leikur Píanó-
sónötu í E-dúr op. 6 eftir Felix
Mendelssohn / Frantz Lemsser
og Merete Westergárd leika
Flautusónötu í e-moll op. 71 eft-
ir Friedrich Kuhlau.
17.10 Síðdegistónleikar:
18.00 Af stað með Tryggva Jak-
obssyni.
18.10 Tilkynningar
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
Daglegt mál. Erlingur Sigurð-
arson flytur þáttinn.
Tónleikar
KVÖLDIÐ
20.00 Leikrit: „Tólfkóngavit" eftir
sögu Guðmundar Friðjónssonar
Leikgerð: Páll H. Jónsson.
Leikstjóri: llallmar Sigurðsson.
Leikendur: Jón Hjartarson,
Margrét Helga Jóhannsdóttir,
Valur Gíslason, Sigurveig
Jónsdóttir, Guðmundur Ólafs-
son, Gísli Rúnar Jónsson, Jón
Sigurbjörnsson, Árni Tryggva-
son, Þorsteinn Gunnarsson,
Valdemar Helgason, Pétur Ein-
arsson, Pálmi Gestsson og
Helgi Skúlason.
21.40 Einsöngur í útvarpssal
Eiður Á. Gunnarsson syngur lög
eftir Sigvalda Kaldalóns og Em-
il Thoroddsen. Ólafur Vignir Al-
bertsson leikur á píanó.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins. Orð
kvöldsins.
22.35 „í hindberjabrekkunni ligg-
ur lykill"
Þáttur um finnsk sænsku leik-
konuna og Ijóðskáldið Stinu
Edblad. Umsjón: Nína Björk
Árnadóttir. Lesari með henni:
Kristín Bjarnadóttir.
23.00 Síðkvöld
með Gylfa Baldurssyni.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
FÖSTUDAGUR
25. nóvember
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.45 Á döfinni
Umsjónarmaður Karl Sig-
tryggsson.
Kynnir Birna Hrólfsdóttir.
21.05 Kastljós
Þáttur um innlend og erlend
málefni. Umsjónarmenn: Ingvi
Hrafn Jónsson og Ögmundur
Jónasson.
22.15 Svindlararnir
(Les tricheurs)
Frönsk bíómynd frá 1958.
Leikstjóri Marcel Carné. Aðal-
hlutverk: Pascale Petit, Andrea
Parisy, Jacques Charrier og
Laurent Terzieff.
Myndin lýsir lifi ungmenna í
París, sem hafna smáborgara-
legri lífsstefnu og hræsni, og
leit þeirra að lífshamingju.
Þýðandi Ólöf Pétursdóttir.
00.20 Dagskrárlok