Morgunblaðið - 24.11.1983, Blaðsíða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. NÓVEMBER 1983
Lítil athuga-
semd að vestan
— eftir séra Torfa
Stefánsson
Sunnudaginn 30. október síð-
astliðinn birtist í Reykjavíkur-
bréfi Morgunblaðsins athugasemd
við grein séra Jakobs Hjálmars-
sonar, sóknarprests á ísafirði, frá
26. október síðastliðnum.
Grein séra Jakobs var rituð
vegna meðhöndlunar Morgun-
blaðsins á ályktun Prestafélags
Vestfjarða um friðarmál frá því í
haust.
Höfundur Reykjavíkurbréfs
reynir að réttlæta þá ákvörðun
blaðsins að birta ekki ályktunina í
heild sinni. I því skyni slítur hann
grein séra Jakobs úr samhengi og
snýr útúr henni til þess að fá fram
þá niðurstöðu sína, að prestar á
Vestfjörðum ætlist til einhverrar
„sérmeðferðar" á ályktun sinni.
Þetta er vitaskuld alrangt. Varla
getur það talist sérmeðferð að fá
fréttatilkynningar frá sæmilega
ábyrgum aðiljum birtar í Morgun-
blaðinu. Ályktun Prestafélags
Vestfjarða var send blaðinu í
þeirri góðu trú, að um hana giltu
sömu reglur og um annað aðsent
fréttaefni. Að því leyti óska prest-
ar á Vestfjörðum einungis eftir að
njóta sömu þjónustu og aðrir.
Höfundur Reykjavíkurbréfs
heldur því fram, að með því að
mótmæla fyrirhugaðri uppsetn-
ingu ratsjárstöðvar hér á Vest-
fjörðum, „blandi Prestafélag Vest-
fjarða sér í mesta pólitíska hita-
mál á íslandi t þrjá áratugi" og
hann varar við afleiðingum þess á
starfsskilyrði okkar heima í hér-
aði. Með orðum sínum „mesta
pólitíska hitamál á íslandi"
skírskotar hann væntanlega til
deilunnar um veru bandaríska
hersins hér á landi og þátttöku
okkar í Atlantshafsbandalaginu.
Því er til að svara, að til þessara
deilumála tökum við enga afstöðu
I ályktun okkar. Við mótmælum
aðeins auknum hernaðarumsvif-
um. Við vísum því þessum að-
dróttunum til föðurhúsanna.
Alyktun okkar er ekki byggð á því
flokkspólitíska karpi sem hér hef-
ur viðgengist, heldur er hún byggð
á og í fyilsta samræmi við áskorun
Heimsþings kirkjunnar í Uppsöl-
um frá því í vor. Þar eru kirkju-
deildir þær sem stóðu að þessu
þingi, þar á meðal íslenska kirkj-
an, hvattar til þess að gefa frið-
„Varla getur það talist
sérmeðferð að fá frétta-
tilkynningar frá sæmi-
lega ábyrgum aðiljum
birtar í Morgunblaðinu.
Ályktun Prestafélags
Vestfjarða var send
blaðinu í þeirri góðu trú,
að um hana giltu sömu
reglur og um annað að-
sent fréttaefni. Að því
leyti óska prestar á
Vestfjörðum einungis
eftir að njóta sömu
þjónustu og aðrir.“
armálum allan forgang. Mótmæli
okkar byggjast á eftirfarandi
ályktun Heimsþingsins: „Útgjöld-
um vegna hernaðar og tækni verði
beint að friðsamlegri framleiðslu
og þá sérstaklega vegna þarfa fá-
tæks fólks í heiminum." Okkur eru
gefnar frjálsar hendur til þess að
mótmæla hverskyns útgjöldum til
hernaðar. En það gerum við ekki í
ályktun okkar. Við mótmælum
einungis hugmyndum um nýja út-
gjaldaliði.
Öll umræða um veru „Varnar-
liðsins" og þátttöku okkar í NATO
er svo tengd flokkspólitískum
deilumálum, að við töldum það
ekki viðeigandi að svo komnu máli
að blanda okkur inn í þá umræðu,
einmitt vegna sóknarbarna okkar,
sem höfundi Reykjavíkurbréfs er
svo annt um. En á aðalfundi
Prestafélagsins hér vestra kom
einnig í ljós vilji manna til þess að
hnekkja einokun vissra pólitískra
flokka á umræðu um friðar- og
varnarmál og notkun þeirra á
þessum málaflokkum til hags-
muna fyrir flokkinn. Við áskiljum
okkur allan rétt til þess að koma
inn I þær umræður og „hefja þær
á æðra plan“.
Til þess að vera trú köllun sinni
hlýtur kirkjan að blanda sér í frið-
arumræðuna og taka afstöðu til
hennar. Henni ber að vinna að
friði og sáttargjörð milli manna
og milli þjóða.
Því eru óskiijanleg skrif hins
ónafngreinda höfundar Reykja-
víkurbréfs um, að ályktun okkar
geti skaðað möguleika okkar til að
rækja það starf sem við höfum
tekið okkur fyrir hendur. Vanga-
veltur hans um það, hvaða áhrif
afskipti okkar af friðarmálum
hafi á skilyrði okkar til að sinna
köllun okkar, boða kristna trú
meðal landsmanna og hugsa um
sálarheill sóknarbarna okkar,
bera vott um rangt mat hans á
hlutverki okkar prestanna sem
kirkjunnar þjóna. Kirkjan getur
ekki komist hjá afskiptum af
stjórnmálum þrátt fyrir allan
þann sársauka sem því fylgir. Það
er óhjákvæmilegt, ef hún á að vera
samkvæm boðskap síns Drottins.
Kirkjan er tilbúin að taka af-
leiðingum boðunar sinnar. Lúter
sagði eitt sinn: „Kirkjan er andleg
meðan hún gerir sér grein fyrir
því að hún hlýtur að vera ofsótt.
Hættulegasta freistingin sem að
henni steðjar er að freistast til
þess að vera ekki ofsótt og lifa í
öryggi."
Friðarbarátta okkar vestfirsku
prestanna, sem og kirkjunnar allr-
ar, er ekki af flokkspólitískum rót-
um runnin, heldur af þeirri trú
okkar, að „fremur beri að hlýða
Guði en mönnum". Allur víg-
búnaður veldur ómældri þjáningu.
Meðan -fimm hundruð milljónir
manna svelta er ekki forsvaran-
legt að eyða stórfé í aukin hernað-
arumsvif. Sérhver kristinn maður
ber ábyrgð á hinum þjáða, sama
hvers litar hann er, hverrar trúar
eða pólitískrar skoðunar. Því er
gerð sú krafa til sérhvers kristins
manns, sem tekur trú sína alvar-
lega, að efla uppeldi til friðar.
Uppeldi til friðar verður ekki
eflt með því að taka afstöðu með
öðru stórveldinu í áróðursstríði
þess gegn hinu.
Uppeldi til friðar verður ekki
eflt með því að ala stöðugt á tor-
tryggni í garð annars aðiljans,
„óvinarins".
Uppeldi til friðar verður ekki
eflt með því að tortryggja og gera
þannig tortryggilega einstaklinga
og hópa sem vinna friðarstörf,
sem ekki eru í samræmi við „frið-
arstefnu" Reagans.
Ég skora á Morgunblaðið að
birta ályktun Prestafélags Vest-
fjarða frá því í haust í heild sinni.
Ennfremur vonast ég til þess að
skrif blaðsins í framtíðinni verði
til þess að auka skilning hins stóra
lesendahóps blaðsins á nauðsyn
afvopnunar og efla áhuga á friði
og sáttfýsi, bæði í samskiptum
einstaklinga og þjóða, en ekki að
ala á tortryggni í garð friðar-
hreyfinga og gera lítið úr friðar-
vilja þeirra.
Með ósk um jákvæðar undir-
tektir.
Þingeyri við Dýrafjörð,
8. nóvember ’83.
Torfi Stefánsson,
sóknarprestur.
Ályktun Prestafélags Vestfjarða á
aðalfundi þess á ísafirði 7. septem-
ber 1983.
Áskoran til ríkis-
stjórnarinnar
Mikil umræða hefur farið fram
meðal kirkjudeilda heimsins nú
undanfarin ár um þá geigvænlegu
ógn sem steðjar að mannkyni í liki
kjarnorkusprengjunnar og annars
vígbúnaðar.
Samanlögð hermálaútgjöld
nema nú um 600 milljörðum doll-
ara á ári en samanlögð útgjöld á
ári til þróunarmála eru 20 millj-
arðar dollara. Kostnaður af 10 ára
áætlun til þess að fullnægja frum-
þörfum í mat og heilbrigðisþjón-
ustu fyrir íbúa þriðja heimsins er
minni en helmingur af eins árs
hernaðarútgjöldum í heiminum.
Prestastefna íslands árið 1982
var tileinkuð friðarmálum og var
samin ályktun sem hvatti söfnuði
landsins til að vinna að friðarmál-
um. Henni var ætlað m.a. að vekja
þjóðina til umhugsunar og meðvit-
undar um málefni friðarins í ljósi
fagnaðarerindis Jesú Krists.
Fagnaðarerindið er friðarboð-
skapur; boðskapur lífs og friðar,
vonar og væntumþykju. Á þessum
boðskap bera allir kristnir menn
ábyrgð.
Þessari ályktun verður að fylgja
eftir af kirkjunnar hálfu. Orðin
ein duga ekki, í stað orða verða að
koma athafnir. Við vekjum at-
hygli á því friðarstarfi sem fram
hefur farið hér á landi að undan-
förnu og lýsum stuðningi okkar
við það.
Kirkjuleiðtogar Norðurlanda
boðuðu til Heimsþings kirkjunnar
í Uppsölum í Svíþjóð nú í vor. Þar
mættu kirkjuleiðtogar frá 60 lönd-
um og sérfræðingar í afvopnun-
armálum undir kjörorðunum Líf
og friður. Heimsþingið fól í sér
viðleitni til virkrar baráttu fyrir
friði.
f ályktun sem samþykkt var
segir m.a.:
„Mannkynið stendur frammi
fyrir endanlegu vali milli lífs og
dauða." „Á þessum algjöru tíma-
mótum mannlegrar sögu er skorað
á kristna menn að boða orðið og
lifa samkvæmt því.“
„Yfirvofandi ógnun kjarnork-
unnar krefst þess að kirkjudeild-
imar gefi friðarmálum allan for-
gang. Kirkjudeild sem sættir sig
við hörmungar líðandi stundar,
afneitar boði Drottins."
Guð hefur sett okkur ráðsmenn
yfir sköpunarverk sitt. Þess vegna
getum við ekki horft hlutlaust á
nokkuð það sem ógnar öllu lífi.
Framleiðsla og notkun kjarnorku-
vopna er ósamrímanleg kristnum
sjónarmiðum. Afvopnun á að vera
liður í nýskipan efnahagsmála í
heiminum. Jörðin getur brauðfætt
þrefaldan þann fjölda sem nú
byggir hana.
Við hvetjum alla þá sem láta
friðarumræðuna sig einhverju
varða til að kynna sér boðskap
heimsþingsins og við tökum
áskorun þess til kirkjudeilda
alvarlega með því að taka undir
boðskap þess og byggjum ályktun
okkar á honum:
Áskoran
Aðalfundur Prestafélags Vest-
fjarða skorar á ríkisstjórn íslands
að stuðla að friði hérlendis og á
alþjóðavettvangi með því að ...:
1. ... þrýsta á ráöstafanir til út-
rýmingar á öllum kjarnorku-
vopnum innan fimm ára.
2. ... stuðla að kjarnorkuvopna-
lausum svæðum, m.a kjarn-
orkuvopnalausum Norðurlönd-
um, og friðlýsingu Norður-Atl-
antshafsins.
3. ... hvetja til þess að útgjöldum
vegna hernaðar og tækni verði
beint að friðsamlegri fram-
leiðslu og þá sérstaklega með
þarfir fátæks fólks I heiminum
í huga.
Við mótmælum hugmyndum um
aukin hernaðarumsvif hér á landi
svo sem byggingu ratsjárstöðvar
hér á Vestfjörðum.
Að endingu viljum við taka und-
ir eftirfarandi boðskap heims-
þingsins: „Veraldarvaldið er, eins
og við sjálf, háð dómi Guðs ...
Guð dæmir núverandi skipulag
heimsins, sem orsakar ómælda
þjáningu og viðheldur henni, en
eykur á öryggisleysið ... Þar sem
auðæfum heimsins er varið til
vígbúnaðar, deyja milljónir
manna, ekki aðeins I hernaðar-
átökum, heldur vegna þess að þeir
fá ekki það sem þarf til að lifa. Við
höfum ekki boðið vígbúnaðar-
keppninni byrginn á virkan hátt,
en hún elur á ótta og tortryggni.
Ekki höfum við heldur spornað
gegn þeim fáránleika, að þjóðir
leitist við að skapa öryggi með
herstyrk, en auka þannig öryggis-
leysið og hindra sættir manna ...
Kjarnorkuvopnabúnaður í varn-
arskyni er beinlínis mannskemm-
andi með því hann eykur ótta og
hatur og gerir ráð fyrir átökum
milli „óvinarins og okkar“. Flest
okkar telja því að tilvist þessara
vopna sé andstæð vilja Guðs.
Hlýðni við þann vilja krefst af
okkur öllum markviss átaks að út-
rýma kjarnorkuvopnabúnaði inn-
an ákveðins tíma. öryggi einnar
þjóðar verður ekki tryggt með því
að stofna öðrum í hættu eða með
því að leita eftir hernaðarlegum
yfirburðum.
Aðeins sameiginlegt öryggi
tryggir okkur öll.“
Séra Toríi Steíánsson er sóknar-
prestur á Þingeyri rið Dýrafjörð.
Viötöl og frá-
sagnir Jóns
Bjarnasonar
BÖKAÚTGÁFAN Skjaldborg á Ak-
ureyri hefur gefið út bókina Fólk
sem ekki má gleymast eftir Jón
Bjarnason frá Garðsvík.
Þetta er sjöunda bók Jóns og í
henni eru viðtöl og frásagnir.
Kaflarnir heita: Þáttur af Gunn-
laugi Stefánssyni Vestari-Krók-
um, Húsmóðir í hjólastól, Gunn-
laugur Jóhann Sigurðsson, Dul-
arfull fyrirbrigði á Grýtubakka,
Mannbjörg á Gjögrum, Karlar á
skrafstólum, Saga af heiðinni, Af
Erlendi Erlendssyni, Allt er þegar
þrennt er, Magnús Snæbjörnsson,
Af Jóni G. Guðmann bónda á
Skarði, Akureyri, Gísli Guðmann
á Skarði, Spjallað við Stefán Nikó-
demusson, Tildrög frásagnar og
Saga Guðna Þorsteinssonar. I
bókinni eru myndir og nafnaskrá.
Jón Bjarnason
Fólk sem ekki má gleymast er
211 blaðsíður, unnin í Prentsmiðju
Björns Jónssonar.
Aðalfundur sveitar-
félaga á Vesturlandi
Borgarnesi, 21. nóvember.
AÐALFUNDUR Samtaka sveitar-
félaga í Vesturlandskjördæmi
verður haldinn í Hótel Borgarnesi
25.—26. nóvember næstkomandi.
50—60 fulltrúar frá 39 sveitarfé-
lögum á Vesturlandi sækja fund-
inn.
Aðalmál fundarins verða hús-
hitunarmál, iðnaðarmál og
fræðslumál að sögn fram-
kvæmdastjóra samtakanna,
Guðjóns Ingva Stefánssonar. í
skýrslu húshitunarnefndar
samtakanna, sem lögð verður
fyrir fundinn, kemur fram að
markvisst hefur verið unnið að
skoðun á húsum á hinum köldu
svæðum Vesturlands í orku-
sparnaðarskyni og munu að
sögn Guðjóns Ingva koma þar
fram ýmsar athyglisverðar
staðreyndir. Fyrir fundinn
verða lögð drög að reglugerð
fyrir Iðnþróunarsjóð Vestur-
lands sem í undirbúnigni er að
stofna og á fundinum munu
starfa nefnd til að fjalla um
samningsuppkast um fram-
haldsskóla Vesturlands.
Fundurinn verður settur
klukkan 14 á föstudag og verður
þá á dagskrá ávarp Alexanders
Stefánssonar, félagsmálaráð-
herra, og fleiri gesta en síðan
flytja formaður samtakanna,
Hörður Pálsson, framkvæmda-
stjóri, og formaður fræðsluráðs,
skýrslur sínar svo og iðn-
ráðgjafi. Einnig verða fluttar
skýrslur iðnaðarnefndar og
húshitunarnefndar, lagðir fram
reikningar og fjárhagsáætlun.
Á laugardag verður fjallað sér-
staklega um iðnaðar- og orku-
mál og mun Sverrir Hermanns-
son, iðnaðarráðherra, þá ávarpa
fundinn. Björn Friðfinnsson,
formaður Sambands íslenskra
sveitarfélaga, ávarpar fundinn
eftir hádegi á laugardag, síðan
munu nefndir skila áliti og að
lokum verða umræður og af-
greiðsla mála. HBj.