Morgunblaðið - 24.11.1983, Side 18
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. NÓVEMBER 1983
Norður-Kóreumenn fyrir rétti í Burma:
Myndin er frá útRjr Suöur-Kóreumannanna, sem létu lífið í mordtilræð-
inu, sem Noröur-Kóreustjórn fyrirskipaði. Fremst er borin mynd af Lee
Bum-Nuk, utanríkisráðherra Suður-Kóreu.
Knngoon, Burma, 23. nóvember. AP.
Þremur foringjura í her Norður-Kóreu var skipað að takast á hendur ferð
til Rangoon í Burma og drepa þar forseta Suður-Kóreu, Chun Doo-Hwan.
I>eir sprengdu hins vegar sprengjurnar með fjarstýribúnaði áður en for-
setinn var kominn á áfangastaö, að grafhýsi píslarvottanna. Þannig hljóð-
ar játning annars tveggja Norður-Kóreumannanna, sem nú eru fyrir rétti
í Rangoon, sakaðir um að hafa myrt fjóra suður-kóreska ráðherra og
fjölda annarra manna.
Við réttarhöldin í dag las yfir-
maður lögreglunnar í Burma
upp játningu annars mannanna
tveggja en þriðji Norður-Kóreu-
maðurinn féll fyrir kúlum lög-
reglunnar þegar hann reyndi að
flýja af vettvangi. Norður-
Kóreumennirnir höfðu allir að-
setur í herbúðum í Kaesong,
skammt frá landamærunum við
Suður-Kóreu, og þar fengu þeir
skipun um það frá Tae Chan Su,
hershöfðingja, að fara til Rang-
oon og undirbúa morðin. 9. sept-
ember sl. fóru þeir frá Norður-
Kóreu en komu ekki til Rangoon
fyrr en 22. eða 23. sama mánað-
ar. Þar tók á móti þeim starfs-
maður í norður-kóreska sendi-
ráðinu og fór með þá í hús, sem
var á þess vegum. Þar biðu þeir í
tvo daga áður en þeir fengu
sprengjurnar í hendur.
Að kvöldi 7. október fóru þre-
menningarnir að grafhýsi písl-
arvottanna og komu sprengjun-
um fyrir uppi undir mæni, beint
yfir gröf Aung San, þjóðhetju
Burmabúa. Lítil sem engin
gæsla er við bygginguna, sem er
opin á alla vegu.
Norður-Kóreumennirnir
fylgdust með úr nokkurri fjar-
lægð þegar Suður-Kóreumenn-
irnir komu til grafhýsisins og
foringi þeirra, Zin að nafni,
sprengdi sprengjurnar. Þá vissu
þeir ekki, að Chun forseti átti að
koma einn sér nokkru síðar. Sex-
tán Suður-Kóreumenn og þrír
Burmabúar létu lífið í spreng-
ingunni.
Þremenningarnir náðust allir
nokkru síðar, en einn þeirra var
skotinn þegar hann kastaði
handsprengju að lögreglumönn-
unum. Hinir tveir reyndu að
svipta sig lífi með handsprengj-
um, sem þeim tókst þó ekki en
slösuðust mikið.
Burmastjórn hefur eins og
kunnugt er slitið stjórnmála-
sambandi við Norður-Kóreu-
stjórn vegna morðanna en
Norður-Kóreumenn neita hins
vegar allri aðild að málinu.
Skipað
forseta
Eitt af verkefnum Spetznas er að ögra hervörnum annarra landa, meðal annars með því að senda kafbáta inn í
þrönga firði Noregs. Þessi mynd var tekin við leit að kafbát í Harðangursfirði.
Hermdarverkaæfingar
Spetznas við Noreg
NORSKIR firöir eru æfingasvæði
fyrir Spetznas, hina leynilegu
hermdarverka- og skemmdarverka-
sveitir Sovétmanna. Til viðbótar
Sovétrfkjunum hafa sveitir þessar
bækistöðvar í Tékkóslóvakíu, Ung-
verjalandi og Austur-Þýzkalandi. í
síðastnefnda landinu hafa þær sína
eigin flotastöð og þaðan halda smá-
kafbátar til stranda Svíþjóðar og
Noregs til æfinga. Það er hluti af
æfingunum, að þeir verði uppgötvað-
ir og leit og eltingarleikur við þá
hafin.
Skýrði norska blaðið Dagbladet
frá þessu fyrir skemmstu og hafði
frásögn sína eftir bandarísku
sjónvarpsfréttastofnuninni CBS.
Dagbladet segir, að bandaríska
utanríkisráðuneytið hafi ekki vilj-
að staðfesta þesa frásögn blaðsins
en heldur ekki viljað neita henni.
Segist blaðið hafa það eftir áreið-
anlegum heimildum, að í Banda-
ríkjunum sé Spetznas tekið mjög
alvarlega og að vaxandi starfsemi
þessara sveita á síðustu árum hafi
vakið miklar áhyggjur hjá
mönnum innan Reagan-stjórnar-
innar.
í flotastöð Spetznas í Austur-
Þýzkalandi eru 1.500—3.000
manna lið. Markmið þeirra eru
einkum skemmdarverk á herbæki-
stöðvum Vesturlanda en einnig
hermdarverkaárásir og morð á
æðstu mönnum þeirra landa, sem
eru hugsanieg óvinalönd. Maður
frá Spetznas, sem flýði til Vestur-
landa, hefur staðfest það í viðtali
við blaðið „International De-
fence", sem fjallar um hernaðar-
mál en er gefið út í Sviss, að kon-
ungur Noregs og meðlimir norsku
ríkisstjórnarinnar séu á meðal
þeirra, sem drepnir skulu þar í
landi, ef styrjöld skellur á.
Aðeins harðgerir og kjarkmiklir
menn eru valdir til starfa hjá
Spetznas. Segir Dagbladet, að
samkvæmt bandarískum heimild-
um séu það einkum íþróttamenn
innan hersins, sem valdir séu til
þessara starfa. Þessir menn séu
látnir halda áfram íþróttamanna-
ferli sínum og geti með því móti
fengið að ferðast um hindrana-
laust í heiminum. Samkvæmt frá-
sögn norska blaösins eru alls um
15.000 manns í Spetznas.
Mega Rússar sjá
„Daginn eftir“?
( hicago, 23. nóvember. AP.
BANDARÍSKI öldungadeildar-
þingmaðurinn Charles H. Percy
hefur lagt til, að Sovétmönnum
verði gert kleift að sjá myndina
„Daginn eftir“, sem fjallar um
skelfilegar afleiðingar kjarnorku-
styrjaldar. Kveðst Percy nú vera
að semja orðsendingu til sovéskra
leiðtoga í þessum tilgangi.
„Mér finnst alls ekki ólíklegt,
að leiðtogar Sovétríkjanna leyfi
að myndin verði sýnd,“ sagði
Percy. „I nóvember 1980 leyfðu
þeir mér t.d. að koma fram í sov-
éska sjónvarpinu í 10 mínútur og
tala um frið og afvopnun. Á því
hafði ég þó ekki átt von.“
Charles Percy taldi ekki
ósennilegt, að Rússar vildu
klippa eitthvað úr myndinni en í
henni er gefið í skyn, að kjarn-
orkustyrjöldin hafi stafað af
árás Sovétmanna á Vestur-Evr-
ópu.
Samveldisráðstefnan:
Kýpur
áfram
— segir Indira Gandhi
Nýju-Delhi, 22. nóv. AP.
STJORN Kýpur bað í dag ráðstefnu
brezku samveldisríkjanna í Nýju-
Delhi um stuðning í deilu hennar við
lýðveldi Kýpur-Tyrkja, sem stofnað
var 15. nóv. sl. Sendi Spyros Kypri-
anou forseti orðsendingu til ráð-
stefnunnar, þar sem sjálfstæðisyfir-
lýsing Kýpur-Tyrkja er sögð „ögrun
við Samveldið, sem Kýpur er einlæg-
ur aðili að“. í orðsendingunni er
þess enn fremur farið á leit, að sam-
veldisráðstefnan lysi yfír stuðningi
sínum við þá ályktun Öryggisráðs
verði
óskipt
Sameinuðu þjóðanna, aö afturkalla
beri sjálfstæðisyfírlýsinguna tafar-
laust. Jafnframt er skorað á sam-
veldisríkin að viðurkenna ekki
stjórn Kýpur-Tyrkja. Von er á Kypri-
anou til Nýju-Delhi á föstudag.
Indira Gandhi, forsætisráð-
herra Indlands, lýsti í dag yfir
stuðningi sínum við Kyprianou og
sagði aðgerðir Kýpur-Tyrkja
„augljóslega ólöglegar". í ræðu
sinni við upphaf ráðstefnunnar
hvatti hún til þess, að Kyprianou
yrði send stuðningsorðsending.
„Kýpur verður að vera áfram
óskipt," sagði frú Gandhi.
Bretland:
Makríll seldur
í erlend skip
London, 23. nóvember. AP.
ÞRÁTT fyrir áköf mótmæli sjómanna hafa bresk stjórnvöld ákveðið að
leyfa verksmiðjuskipum frá Sovétríkjunum og öðrum erlendum þjóðum
utan EBE að kaupa makrfl, sem veiddur er undan suðvesturströnd
Englands.
Fyrir tveimur árum voru er-
lend verksmiðjuskip á þessum
slóðum allt að 50 talsins en var
þá vísað burtu vegna mikilla
mótmæla sjómanna. Skipin, sem
eru í raun fljótandi niðursuðu-
verksmiðjur, kaupa makrílinn
af öllum, sem hann vilja selja,
og borga meira fyrir hann en fá
má í landi. Aðeins lítill hluti afl-
ans er því unninn í landi og
veldur það óánægjunni.
Fimm skip og ein flugvél
munu fylgjast með veiðunum,
sem standa munu eitthvað fram
yfir áramót. Makrílkvótinn fyrir
vesturströndina er 220.000 tonn
og er búist við, að sá afli náist
allur. Talið er, að 30 verksmiðju-
skip frá Póllandi, Sovétríkjun-
um og Austur-Þýskalandi komi
brátt á miðin en einnig er von á
skipum frá Nígeríu og Egypta-
landi.
\V/
ERLENT .