Morgunblaðið - 24.11.1983, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 24.11.1983, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. NÓVEMBER 1983 íslandssagan er kennd og verður kennd — eftir Erlu Kristjánsdóttur Vegna skrifa um íslandssögu- kennslu í sunnudagsblaði Mbl. 13.11. og í leiðara sama blaðs þriðjudag 15.11. er nauðsynlegt að leiðrétta leiðan misskilning og órökstuddar fullyrðingar sem þar komu fram. Um leið vil ég nota tækifærið og gefa nánari upplýs- ingar um samningu nýs námsefnis í samfélagsfræði. Fyrst af öllu vil ég mótmæla harðlega þeirri full- yrðingu er kemur fram í leiðara „að í kyrrþey skuli hafa verið ákveðið að hætta að kenna íslandssögu í grunnskólum og að niðurfelling fslandssögunnar á vegum menntamálaráðuneytisins skuli hafa komist til framkvæmda þegjandi og hljóðalaust." íslands- saga hefur ekki verið felld niður og það hefur aldrei komið til greina að gera það. Saga þjóðarinnar er öllum ís- lendingum hjartfólgin en mjög er þó mismunandi hvaða þættir hennar höfða til hvers og eins. Sínum augum lítur hver á silfrið og því er auðvelt að vekja deilur um hvaöa þætti íslandssögunnar eigi að fjalla um í skyldunámi uppvaxandi kynslóðar. Málefnaleg umræða sem beinist að því að finna raunhæfa og farsæla lausn á vandamáli er okkur öll varðar er tvímælalaust til góðs. Það á ekki hvað síst við umræður um skóla og hvernig þeir gegni best því hlut- verki sínu að búa unga íslendinga undir líf og starf í þjóðfélaginu. Það er því sorgleg staðreynd hversu oft er markvisst reynt að gera þá sem vinna að umbótum og breytingum á skólastarfi tor- tryggilega og ætla þeim að stunda niðurrifsstarfsemi í stað endur- bóta og uppbyggingar. Hvaða til- gangi þjóna t.d. feitletraðar fyrir- sagnir í Morgunblaðinu þar sem ýmist er farið með rökleysu (sbr. fyrirsögn í leiðara „Engin Is- landssaga") eða aukaatriði slegið upp sem aðalatriði (sbr. fyrirsögn Mbl. „Gömlu bækurnar eru hlut- dræg túlkun á Islandssögunni") Hvers vegna var fyrirsögnin þar ekki „Æskilegt að allir íslend- ingar kunni skil á sögu þjóðar sinnar" (tilvitnun í sömu grein)? Hefði sú fyrirsögn ekki vakið verðskuldaða athygli? Allir ís- lendingar hljóta að vera sammála þessari síðustu staðhæfingu en hitt er álitamál hvort allir geta verið á eitt sáttir um hvernig skuli stuðlað að því. Skipuþætting — nýyrði Morgunblaðsins I viðtalinu við mig (Mbl. 13.11.) leggur blaðamaður mér í munn upptalningu á rökum fyrir sam- þættingu námsgreina. Eins og ráða má af samhenginu er þetta bein tilvitnun i nefndarálit frá 1971 og tók blaðamaður þetta upp úr bæklingi er ber heitið Um endurskoðun námsefnis í samfé- lagsfræði 1975, og ég hafði lánað honum til að afla sér upplýsinga um forsögu kennslu í samfélags- fræði. a) Hefðbundin mörk greinanna eru miðuð við fræðilegar for- sendur sem börn á barnastigi hafa vart tök á að greina. b) Námið verður raunvirkara og tengist betur reynslu barnsins utan skólans ef námsgreinarn- ar eru ekki skildar að. c) Með skipulagðri samþættingu má gera námið mun hnitmið- aðra og koma í veg fyrir óþarfa skörun og endurtekningar. Orðið skipuþætting er mér og samfélagsfræðinni því alls óvið- komandi og trúlega má skrifa það á reikning prentvillupúkans. Fæst af því sem okkur blaðamanninum fór á milli kemur fram í viðtalinu. Gæti skýringin á því verið sú að það hafi ekki verið nógu hagstætt þeim málflutningi er til stóð að hefja um að íslandssagan væri fyrir bí. Ég ætla því að gera aðra tilraun til að hrekja þennan leiða misskilning um að einungis eigi að fjalla-um 120 ár sögunnar og í þetta sinn ætla ég að gera það án hjálpar blaðamannsins við að skýra frá staðreyndum. Af gefnu tilefni verð ég einnig að taka það fram að ég hef gegnt starfi námstjóra í samfélagsfræði frá 1. jan. 1983. Á undan mér hafa gegnt því starfi tveir öndvegis- menn, og áður en skipaður var námstjóri í samfélagsfræði höfðu umsjón með námsefnisgerðinni tvær aðrar ágætismanneskjur. Námstjórn í samfélagsfræði fyrir 1,—3. bekk hvilir á Sigríði Jóns- dóttur og hefur hún gegnt því starfi frá 1978. Þótt ég skirrist ekki við að vera málsvari samfé- lagsfræðinnar neita ég að eiga ein heiðurinn af því góða starfi sem þar hefur verið unnið. Starfshóp- ur, skipaður kennurum, sagnfræð- ingum, landfræðingum og öðrum fræðingum, ber hita og þunga verksins á sínum herðum. í kyrrþey? Vissulega hefur samfélagsfræð- in ekki verið kynnt nægilega vel í fjölmiðlum og er það gagnrýni vert. Þó hefur ýmislegt verið gert til að kynna efnið, bæði kennurum og foreldrum. Ekki færri en 1000 kennarar hafa sótt námskeið þar sem efnið, og hugmyndir að baki þess, hefur verið kynnt. Þá hafa verið haldnir kynningar- og fræðslufundir fyrir kennara og foreldra. Til fróðleiks má nefna að á undanförnum árum hafa þeir fundir verið ekki færri en 60 að tölu. Menntamálaráðuneytið, skólarannsóknadeild, hefur gefið út upplýsingabæklinga um samfé- lagsfræði (um endurskoðun náms- efnis í samfeálgsfræði nr. 4 (maí 1975), Um samfélagsfræði nr. 17 (apríl 1978), Um samfélagsfræð- ina nr. 27 (apríl 1979), Um samfé- lagsfræðina nr. 35 (apríl 1981)) og að auki tvo þar sem fjallað er um nám og kennslu í öllum kennslu- greinum (Um nám og kennslu í grunnskólum skólaárið 1982—’83 nr. 36 (mars 1982), Um nám og kennslu í grunnskólum skólaárið 1983—’84 nr. 39 (apríl 1983). Þá hafa verið samdar ýmsar skýrslur um samfélagsfræðina að beiðni annarra ráðuneyta, stjórnmála- manna og alþjóðastofnana. Náms- efni í samfélagsfræði hefur einnig verið kynnt á ráðstefnum sagn- fræðinga og sögukennara sem og á fundum með öðrum fagfélögum kennara. Blöð hafa og fengið fréttatilkynningar um útkomu nýs efnis. HefAbundinni sögukennslu áfátt um margt I grein Guðmundar Magnússon- ar (Mbl. 13.11.) er að því vikið að sú skoðun sé ríkjandi meðal fram- haldsskólakennara að þekkingu nemenda þeirra á sögu fari mjög hrakandi og af samhenginu má ráða að greinarhöfundur gefi það í skyn að því sé um að kenna að nemendur hafi lært nýtt námsefni í samfélagsfræði. Þetta er hins vegar alrangt. Þeir nemendur sem nú eru í framhaldsskólum hafa allir lesið íslandssögubækur Þér- leifs Bjarnasonar eða Jónasar frá Hriflu. Það er því ekki hægt að kenna samfélagsfræði um þetta. En hlýtur það ekki að vera væn- legra til árangurs að leita raun- hæfra skýringa á lélegri sögu- kunnáttu en að búa þær til með grunnskólans sjáum við að 6 greinar skipta á milli sín 14 kennslustundum á viku. Ljóst er að tími til-íslandssögu- kennslu er mjög naumt skorinn og leyfir hann sjaldan að „farið sé yfir“ alla bókina. Algengast mun vera að kennarar velji að „hlaupa að fylgst sé með framförum í læknavísindum og tækni? Getur það talist eðlilegt á örtölvuöld að ætla að náms- og kennsluhættir þurfi ekki að breytast? Hversvegna breyttar námsaðferðir? Við lifum á tímum þar sem þekking tvöfaldast á hverjum tíu árum. Mörg þekkingaratriði sem þóttu góð og gild fyrir 10—20 ár- um hafa hú þokað fyrir nýrri vitn- eskju. Það verður æ erfiðara að velja úr allri þeirri þekkingu sem nú er fyrir hendi, þau þekkingar- atriði sem allir geta verið sam- mála um að mikilvægt sé að nem- endur kunni skil á. Enginn getur þó mótmælt nauðsyn þess að nem- endur læri fjölmargar staðreyndir og önnur þekkingaratriði. Því er Erla Kristjánsdóttir „Fyrst af öllu vil ég mótmæla harðlega þeirri fullyrðingu er kemur fram í leiðara „að í kyrrþey skuli hafa verið ákveðið að hætta að kenna ís- landssögu í grunnskólum og að niðurfelling ís- landssögunnar á vegum menntamálaráðuneytisins skuli hafa komist til fram- kvæmda þegjandi og hljóðalaust.“ íslandssaga hefur ekki verið felld niöur og það hefur aldrei komið til greina að gera það.“ því að skella skuldinni á námsefni sem nemendur hafa aldrei augum litið? Við kennslu í 4., 5. og 6. bekk eru notaðar áðurnefndar bækur Þór- leifs Bjarnasonar og/eða Jónasar Jónssonar og bók Þorsteins M. Jónssonar í 7. bekk. Þessir mætu kennslubókahöfundar ætluðu sér aldrei þá dul að fjalla um alla ís- landssöguna í námsefni barna. Þeir þurftu að velja og hafna. Reynt var að gefa nemendum stutt yfirlit um helstu atburði og merkismenn frá landnámi fram undir stofnun lýðveldis. Við skul- um líta aðeins á viðmiðunar- stundaskrá grunnskólans og at- huga hvernig kennslustundir skiptast milli námsgreina. 7. námsár 8. námsár 9. námsár Móðurmál 6 5 5 Stærðfræði 5 5 5 Danska 3 4 4 Enska Samfélagsgreinar Kritinfræði 4 4 4 Raungreinar Heimilisfræði Mynd- og handmennt.. Tónmennt 14 14 íþróttir Valgreinar 3 3 3 10-14 35 35 31-35 yfir“ ákveðin tímabil og gera þá öðrum betri skil. Við eigum að baki áratuga reynslu af „yfirlits- kennslu" og eru nú flestir á einu máli um að hún skili ekki þejm árangri er vænst var, að þessar kennslubækur hafi runnið sitt skeið sem aðalnámsefni barna í Islandssögu og að afar brýnt sé að gefa út námsefni er svari betur þeim kröfum sem gerðar eru til námsbóka nú á tímum. Og hverjir eru betur fallnir til að meta námsbækur en kennarar og nem- endur sem eiga að nota þær? I hefðbundinni sögukennslu hef- ur megináhersla verið lögð á að læra ákveðið inntak og leggja fjöl- marga atburði frá liðinni tíð á minnið. Nú sýna niðurstöður rannsókna að nemendur gleyma V* af því námsefni sem þeir læra á þennan hátt innan tveggja ára. Og ef við berum þessar niðurstöður saman við eigin reynslu þá segir mér svo hugur um að margur les- andi sem lítur af hreinskilni í eig- in barm komist að þeirri niður- stöðu að hann hefur ekki ýkja margt á takteinum úr sögunámi sínu úr barnaskóla. Manst þú t.d. lesandi góður eftir Hörmöngurum, Staðamálum, Stefánungum eða Stöðulögunum? Hér má einnig minna á hve fátt varð um svör í útvarpsþætti á þjóðhátíðardegi fyrir fáum árum er vegfarendur voru spurðir: Hver var Jón Sig- urðsson? En þetta er ekkert eins- dæmi. Aðrar þjóðir hafa einnig áhyggjur af því hve almenn sögu- Móðurmál 1 Stærðfræði (5) Samfélagsgreinar | 4. námsár 5. námsár 6. námsár Kristinfræði )• Raungreinar | Danska, enska | Heimilisfræði J Mynd- og handmennt.. 21 23 25 Tónmennt 6 6 6 íþróttir 2 3 3 29 32 34 I ljós kemur að sjö greinar fá til umráða 21 kennslustund, sem væri 3 kennslustundir á viku ef skipt væri jafnt. I flestum tilvik- um fá móðurmál og stærðfræði þó meira í sinn skerf eða u.b.b. 5 tíma hvor. Eftir standa þá 11 stundir fyrir 5 greinar. I þeim skólum þar sem íslands- saga og landafræði eru kenndar sem sérstakar námsgreinar er raunhæft að gera ráð fyrir því að Islandssaga fái 1—2 kennslu- stundir á viku allt skólaárið. Ef við lítum á stundaskrá efri bekkja þekking er lítil. Því hefur sögu- nám verið rannsóknarefni margra fræðimanna, einkum sagnfræð- inga, þroskasálfræðinga og kennslufræðinga. Allir eru sam- mála um að sögukennslu hafi ver- ið áfátt, einkum hafi lítill gaumur verið gefinn að forsendum nem- enda til að tileinka sér marga flókna þætti sögunnar. Það er fyllsta ástæða til að gefa þessu gaum. Því ber okkur ekki skylda til að fylgjast með nýrri vitneskju um þroska barna, nám og kennslu og annað er varðar andlega heill þeirra, eins og við teljum sjálfsagt nú lögð megináhersla á að þjálfa nemendur í góðum vinnubrögðum við að afla sér upplýsinga og þekk- ingar. Þær námsaðferðir sem nú þykir brýnt að nemendur temji sér eru byggðar á niðurstöðum fjöl- margra rannsókna um nám og kennslu og ennfremur hafa niður- stöður rannsókna á starfsemi heil- ans stutt mikilvægi þeirra. Svipar þeim á margan hátt til þeirra að- ferða er vísindamenn beita. Lögð er áhersla á að þjálfa gagnrýna hugsun, sjálfstæð vinnubrögð, leikni við heimildaöflun, þjálfun dómgreindar og rökhugsunar. Það fer ekki á milli mála að þessar námsaðferðir gera mun meiri kröfur bæði til kennara og nem- enda en hefðbundnar kennsluað- ferðir. Frá 1973 hefur starfað hópur kennara, sagnfræðinga, landfræð- inga og annarra sérfræðinga við að semja nýtt námsefni sem byggt er á framangreindum námsaðferð- um, reyna það í kennslu og leið- beina kennurum við notkun þess. Sökum fjárskorts m.a. hefur þessu starfi miðað afar hægt, einungis er komið út heildstætt efni fyrir fyrstu fjóra bekki grunnskólans. Álmennt má segja að þetta efni hafi hlotið jákvæðar undirtektir bæði hjá kennurum og foreldrum. I þessu sambandi má nefna að námsefnið hefur vakið umtals- verða athygli þegar það hefur ver- ið kynnt á alþjóðavettvangi og hafa menn undrast að námsefni í þessum gæðaflokki skuli koma frá svo litlu landi. Námsefnisgerð er vandasamt verk og hjá stærri þjóðum er það iðulega unnið af stórum hópum kennara og ann- arra sérfræðinga, oftast í tengsl- um við háskóladeildir. Við gerð námsefnis er að mörgu að hyggja, og ber fyrst að nefna vandað val á inntaki, framsetningu texta, vali mynda, útliti efnisins, viðfangs- efnum, kennsluaðferðum, hvernig námsmati skuli háttað og síðast en ekki síst hversu vel efnið höfð- ar til þeirra nemenda sem eiga að nota það. Það nær skammt að huga eingöngu að inntaki, af því höfum við bitra reynslu. íslandssagan hornsteinn í sam- félagsfræðinámi Þeir sem vinna að námsefni í samfélagsfræði vilja leggja sitt af mörkum til að efla þekkingu nem- enda á sögu þjóðar sinnar. Velkist einhver í vafa um réttmæti þess- arar staðhæfingar skal hér vitnað til námskrár í samfélagsfræði (Aðalnámskrá grunnskóla, sam- félagsfræði 1977 bls. 9—10): 1.4. Saga og landafræði. Þótt sjónarmið samfélagsfræð-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.